Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 21

Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 21 353 nemar enn atvinnu- lausir í Reykjavík 2.530 sóttu um sumarvinnu hjá borginni NÚ HAFA 2530 skólanemar sótt um sumarstarf hjá Reykjavíkur- borg, en ennþá eru 353 atvinnu- lausir. Á Akureyri eru 35 á bió- lista hjá bænum, en þar hafa nemendur reynt að fá atvinnu hjá hinum ýmsu fyrirtækjum fremur en að láta skrá sig hjá Vinnumiðl- unarskrifstofunni. Ráðningarstofa Reykjavíkur- borgar starfar lögum sam- kvæmt allt árið, en þar freistar skólafólk þess að fá atvinnu. í samtali við MBl. sagði Gunnar Helgason, forstöðumaður ráðningastofunnar, að frá 1. apríl hefðu 1430 skólanemar, 16 ára og eldri, sótt um sumar- starf hjá Reykjavíkurborg. Til samanburðar hefðu 1.129 nem- ar sent inn umsóknir í fyrra og því væri fjöldi þeirra 26,7% meiri í ár. Nú væri svo komið að 153 piltar og 200 stúlkur væru enn atvinnulaus, en 116 piltar og 209 stúlkur á sama tíma í fyrra. Vinnuskóli Reykjavíkurborg- ar ræður 14 og 15 ára skóla- nemendur í sumarvinnu. Gunn- ar Helgason sagði, að nú hefðu 1100 nemur verið ráðnir til starfa en í fyrra hefðu 1188 nemendur starfað í vinnuskól- anum. Skólinn er ekki enn að fullu hafinn, en starfið felst að miklu leyti í hreinsun skrúð- garða og gróðursetningu. Skólagarðar Reykjavíkur eru fyrir 10—12 ára skólakrakka, en þar fer fram kennsla í með- ferð ýmissa nytjajurta og rækt- un hvers konar. Hjá atvinnumiðlun stúdenta fengust þær upplýsingar að 450 framhaldsskólanemendur og háskólastúdentar hefðu skráð sig. Atvinnumiðlunin hefði nú útvegað um 100 nemendum at- vinnu, en álíka stór hópur hefði fengið vinnu eftir öðrum leið- um. Því væru nú um 250 nem- endur enn á skrá. Það er eink- um verkamannavinna sem miðlunin útvegar námsfólki, en oftast er beðið um fólk sem get- ur hafið störf um leið og at- vinnurekendur óska þess. Taldi starfsmaður atvinnumiðlunar- innar að horfur væru vart meiri en sæmilegar á því, að tækist að aðstoða þá atvinnu- lausu námsmenn sem enn væru á skrá hjá miðluninni. Mun skrifstofan verða opin fram í júlí, en venjulega er miðlunin aðeins opin út júní. Að atvinnumiðlun stúdenta standa auk Stúdentaráðs Há- skóla íslands, SÍNE, Samband íslenskra námsmanna erlendis, LMF, Landssamband mennta- og fjölbrautaskólanema og BISN, Bandalag íslenskra sér- skólanema. Mbl. hafði samband við Hauk Torfason hjá vinnumiðlunar- skrifstofu Akureyrar varðandi útlit í atvinnumálum skólafólks fyrir norðan. Haukur sagði, að fjöldi skólafólks, eldri en 16 ára, hefði leitað til vinnumiðl- unarskrifstofunnar, en alls hefðu 35 skráð sig á biðlista. Er það 16,7% fleiri nemar en skráðu sig þar í fyrra. Kvað Haukur ekki útlit fyrir að hægt væri að útvega þessu fólki at- vinnu þar sem fyrirtækin í bænum hefðu sjálf langa bið- lista og leituðu þvi ekki til vinnumiðlunarinnar eftir skólafólki. Unglingar undir 16 ára aldri sækja mikið í vinnuskóla bæj- arins og munu 410 ungmenni starfa á vegum hans í sumar, en 365 nemendur stunduðu þar vinnu í fyrra. Er því ljóst að skortur er á atvinnu fyrir skólafólk jafnt fyrir norðan sem í Reykjavík. Morgunbla&ið/KÓE. SUrfsfólk atvinnumiðlunar stúdenta á skrifstofu Stúdentaráðs í Félags- stofnun. Jöklarannsókna- félag íslands: Sumarleiðangri á Vatnajökul frestað vegna snjóalaga Jöklarannsóknafélag Islands hugðist leggja upp í sinn árlega sumarleiðangur á Vantajökul um hvítasunnuhelgina, en vegna mikilla snjóalaga á leiðinni inn að jökli var ferðinni frestað. Nú um helgina voru jöklamenn í viðbragðsstöðu, ekki síst vegna goss- ins í Grímsvötnum. En eftir að skát- ar í björgunarsveitinni voru 19 klst. að komast inn í Jökulheima með mun léttari byrgðar vegna skafla á leið- inni, hefur Jörfi enn frestað ferðinni um viku. En leiðangurinn er um- fangsmikill með 10 tonna farangur og vistir. Or bænum verður að flytja 3 snjóbíla og sá fjórði bætist við í skála félagsins í Jökulheimum. Einn- ig er með í för bor til að bora gufu- holu fyrir afl í sendistöð á Gríms- fjalli. I vorleiðangrinum munu að þessu sinni verða 20—30 manns. Auk hinna venjulegu mælinga á hæð Gríms- vatna, þykkt Vetrarákomunr.ar á jöklinum o.fl. á í þetta sinn að taka gufusýni og gjóskusýni vegna gossins og ekki síst að reyna að bora eftir gufu til að knýja sjálfvirka sendistöð er sendir upplýsingar til byggða og standa Raunvísindastofnunarmenn að því. Er það vísir að rannsóknastöð á hæsta stað á íslandi, á Svíahnúk þar sem Jöklafélagsmenn eiga skála í rúmlega 1.700 metra hæð yfir sjávar- máli. Áætlað er að dvelja vikutíma á jöklinum, en slíkt getur alltaf breyst, ekki síst ef eldur er uppi. Eins og er, er hvorki hægt að komast með búnað leiðangursmanna á sleða aftan í snjóbíl inn að jökli, þar sem auðir rimar eru á milli skafla og heldur ekki með þunga trukka, þar sem djúpir skaflar hindra för. Nú þarf íslenzka landsliðið á stuðningi áhorfenda að halda. Við verðum að vinna. - Áfram ísland CÍIDC Al A aögöngumiöa á Laugardals- ■ 1111OHLH velli frá kl. 12 á hádegi í dag. Þaö er upplagt á sjómannadaginn aö horfa á eylöndin leika aö loknum hátíöahöldunum. Atli Eövaldsson, einn markahæsti maöur í þýzku deildinni, og Pétur Ormslev, komu til landsins meö Arnarflugi í gærkvöldi til þess aö geta tekiö þátt í leiknum. Síöan fljúga þeir til baka meö Arnarflugi í kvöld þjóöinni nánast aö kostnaöarlausu. Island-Malta í Evrópukeppni landsliöa á Laugardalsvelli í dag, sunnudag, kl. 17.00 adidas adidas EIMSKIP S)KNAna»vmiA 4Rj\AWFLUG ^KARI^^ i/ISKIP ^ Beint frá Þýzkalandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.