Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 24 Utgefandi tiXiTabtt* hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. elntakiö. Neitunarvaldi aflétt — þáttaskil au þáttaskil urðu í um- ræðum um íslensk utan- ríkismál þegar ráðuneyti Ólafs Jóhannessonar settist að völdum 1. september 1978, að Alþýðubandalagið tók sæti í ríkisstjórn sem hafði það ekki að markmiði sínu að rifta varnarsamstarfinu við Bandaríkin. Tvisvar sinnum áður frá því að varnarsamn- ingurinn var gerður, 1956 og 1971, hafði Alþýðubandalagið átt ráðherra í ríkisstjórnum og höfðu þær báðar ákvæði um það í sáttmála sínum að rifta bæri varnarsamstarfinu. í hvorugt skiptið náðu þau áform fram að ganga. í árs- byrjun 1974, áður en hin síð- ari þessara stjórna hrökklað- ist frá, var efnt til sögulegrar undirskriftasöfnunar undir kjörorðinu Varið land, þar sem 55.522 kjósendur mót- mæltu ótímabærum áformum stjórnarinnar í varnarmálum og andmæltu þannig með undirskrift sinni stefnu Al- þýðubandalagsins. Öamhliða því sem Alþýðu- bandalagið sætti sig formlega við dvöl varnarliðsins á Is- landi með stjórnarþátttöku sinni 1978 var því veitt neit- unarvald um meiriháttar framkvæmdir í þágu þess. í febrúar 1980 var á ný mynduð ríkisstjórn með þátttöku Al- þýðubandalagsins án þess að hróflað væri við varnarsam- starfinu. Þá var þó enn látið undan kröfu flokksins um neitunarvald og það veitt varðandi nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Má segja, að þetta hafi verið eina ákvæðið í sáttmála fyrri stjórnar sem hélt gildi sínu allan starfsferil hennar. Ólaf- ur Jóhannesson, utanríkisráð- herra, gaf að vísu oftar en einu sinni til kynna að hann gæti illa sætt sig við þetta neitunarvald en yrði engu að síður að hlíta því. Hagaði hann stjórn varnarmála þannig að á öðrum sviðum var ekki hlaupið eftir sérvisku al- þýðubandalagsmanna um leið og séð var til þess að neitunarvaldið gegn flugstöðvarframkvæmdunum eyðilegði ekki þá samninga sem fyrri stjórnir höfðu gert við Bandaríkjastjórn um fjár- mögnun þessarar nauðsyn- legu framkvæmdar. Er það samdóma álit manna í öllum flokkum utan Alþýðubanda- lagsins, að ólafur Jóhannes- son hafi haldið vel á þessum viðkvæmu málum og tekið ákvarðanir sem treysta ör- yggi þjóðarinnar út á við. Með myndun stjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins á dögun- um var neitunarvaldi Alþýðu- bandalagsins í öryggismálum aflétt. En það urðu jafnframt mikilvægari þáttaskil. Við embætti utanríkisráðherra tók Geir Hallgrímsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins. Er hann fyrsti sjálfstæðis- maðurinn sem fer með stjórn utanríkisráðuneytisins siðan Bjarni Benediktsson lét af því embætti fyrir 30 árum. í þessa þrjá áratugi hefur Sjálfstæðiflokkurinn verið sjálfum sér samkvæmur í utanríkismálum og aldrei hvikað frá þeirri megin- stefnu, að öryggi lands og þjóðar yrði að tryggja í sam- ræmi við mat á öryggishags- mununum einum. Þróun öryggismála í okkar heimshluta hefur því miður verið á þann veg að hernað- arlegt mikilvægi íslands hef- ur aukist vegna hnattstöð- unnar og sífellt meiri umsvifa Sovétmanna í lofti og á legi á Norður-Atlantshafssvæðinu. Jafnvel alþýðubandalags- menn hafa í verki viðurkennt að varnarsamstarfið við Bandaríkin innan ramma að- ildar íslands að Atlantshafs- bandalaginu sé nauðsynlegt, þótt í stefnuskrá Alþýðu- bandalagsins séu enn ákvæði um öryggismál sem hefðu getað verið samin af hug- myndafræðingum Varsjár- bandalagsins. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur aldrei fallist á neitunar- vald Alþýðubandalagsins um nokkurn þátt utanríkismál- anna og síst af öllu varnar- málin. Er ekki ólíklegt að al- þýðubandalagsmenn reyni að egar stjórnarmyndun- arviðræður voru á við- kvæmu stigi, eða hinn 18. maí síðastliðinn, birtist í Tíman- um, málgagni Framsóknar- flokksins, forystugrein sem hét: Fordæmi Svía um stjórn- armyndanir. Þar sagði meðal annars: „Hið nýja kerfi Svía er í stuttu máli á þá leið, að þegar nýkjörið þing kemur saman, er það að sjálfsögðu fyrsta verk þess að kjósa for- seta þingsins, en þing Svía starfar í einni deild. Þingfor- setinn hefur síðan forustu um stjórnarmyndun." í forystugrein Tímans var sem sé boðuð sú stefna, að hefna harma sinna gegn sjálfstæðismönnum í þessum málaflokki í samræmi við þann tvískinnung sem ræður ferðinni í Alþýðubandalaginu eftir því hvort það er utan eða innan stjórnar. Enginn þarf að efast um hvor hefur betri vígstöðu leggi Alþýðubanda- lagið til atlögu við Sjálfstæð- isflokkinn á þessu sviði. Skjöldur Sjálfstæðisflokksins er hreinn. Alþýðubandalagið þarf tíma til að ná vopnum sínum og auk þess er nauð- synlegt fyrir flokkinn að sanna svo að eftir því verði tekið, að hann sé ekki „rússn- eskt útibú" í þessu efni, svo að notuð séu orðin sem varafor- manni Alþýðubandalagsins voru efst í huga á meðan Svavar Gestsson reyndi að mynda ríkisstjórn. valdið til að veita mönnum umboð til stjórnarmyndunar skuli taka af forseta íslands og fela forseta Alþingis. Nauðsynlegt er að þeirri spurningu sé svarað, hvort Tíminn hafi með þessum hætti verið að lýsa stefnu Framsóknarflokksins eða ekki. Tafarlaust verður að útiloka allan vafa í því efni jafnframt sem á það er minnt, að í skoðun málgagns Framsóknarflokksins á for- dæmi Svía felst einnig ábend- ing um það, að nýkjörið þing skuli kalla strax saman til funda. Forseti íslands eða forseti Alþingis? MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 25 Vinarbréf. Þú spyrð mig, kæri vinur, hvernig gangi stjórnunin á ís- landi, þar sem þú ert svo fjarri fósturjörðinni. Hér er allt í lagi. Leikur ekki lengur á reið- anum einum. Komnir að stjórnvelinum ráðherrar, sem ku ætla að koma öllu í lag. Sjáðu til. Gamla stjórnin, sem var svo afskaplega rösk að hún kom verðbólgunni úr 60 stigum í vel upp fyrir 100, veit nú alveg hvernig á að koma henni niður aftur. Þ.e. þeir ráðherrar sem fóru úr henni. Nýja stjórnin er varla byrjuð, en sumir þeirra vita upp á hár að allt það sem hún er ekki farin að gera er kolvitlaust. Hann Svavar (það er fyrirliði þeirra sem fóru) er líka svo svakalega klár. Strax í kosn- ingabaráttunni var hann bú- inn að læra það að skerðing á laun með lögum væri alveg forkastanlegt athæfi. Verst að hann skyldi falla út úr stjórn- inni einmitt þá. Meðan hann var þar, skertu hann og félag- ar hans nefnilega launin 14 sinnum. Og svo hefur þetta þá allt saman verið hreinasti óþarfi. Hann hefði bara alls ekki haldið áfram að skerða launin okkar í 15., 16. og 17. ... sinn, ef hann hefði fengið að vera kyrr. Hann segir að slíkt séu kaldar kveðjur og árás á mannréttindi í blaðinu sínu. Slæmt að búið var að skerða launin okkar um nær 50% þegar hann sá að sér og tók að kasta öllum syndum sínum bak við sig og reyna að sjá þær aldrei meir. Nýja rík- isstjórnin kann líklega ekki þessi trix. Er byrjuð að skerða launin í 15. sinnið og segist ætla að gera það aftur í 16. skiptið í haust og Svavar spyr hvort þeim detti í hug að slík ólög fái að standa. En þar sem hann fékk að telja ótruflaður löglegar kjaraskerðingar upp í 14, þá finnst sumum að hinir ættu að fá að gera það tvisvar sinnum. Svavar og félagar ætla ekki að láta deigan síga og bjarga þjóðinni frá slíkum hremmingum, nú þegar hann er viðreistur, eins og þeir segja í stúkunni um þá sem játa að þeir hafi gert ljótt og vilja snúa til betra lífernis. Hinn hlutinn úr gömlu stjórninni virtist ekkert óánægður með verðbólguna — sumir a.m. Sá ráðherrann sem kvaddi alveg, fannst hún ekk- ert mál. En þeir sem héldu áfram i stjórn eru ekki óánægðari en svo, að þeir vilja endilega kenna við sig tímann frá því bólgan sú fór að herða sprettinn úr 5 stigum 1971 upp fyrir 100 og kalla það Fram- sóknaráratuginn. Virðast stoltir af. Hafa nú samt ásamt nýju sjálfstæðisvinunum sín- um í stjórninni ráðist til at- lögu, til að koma verðbólgunni niður á viðunandi stig. Það er bara eitt sem ég er ekki alveg klár á. Hvað er við- unandi stig? Ætli það sé ekki álíka og í nágrannalöndunum og landinu þar sem þú ert, semsagt innan við 10 stig. Þeg- ar foringi stjórnarinnar sagði svo í blöðum að ekki yrði kosið fyrr en búið væri að ná verð- bólgunni niður á viðunandi stig, þá fóru að renna á mig tvær grímur. Það læðist að manni lúmskur grunur um að þá gæti orðið æði langt í að við fengjum að ganga að kjörborð- inu. Rétt þegar við héldum — fyrir kosningar — að nú ætti að fara að skila svolitlum parti af stolna kosningaréttinum okkar hér í þéttbýlinu til okkar aftur. Ætli verði þá nokkuð kosningar fyrir alda- mótin 2000? Ekki veit ég, vinur, hvort þú botnar nokkuð í þessu. Það er dálítið erfitt að skilja þetta á þessari stundu, svona rétt á meðan snöggu skoðanaskiptin eru að fara fram. Og nýja stjórnin varla farin að gera nokkuð. Til dæmis var gamla stjórnin mesta kærleiks- heimili, að manni var sagt. Og Steingrímur hinn mætasti maður innan hennar. En nú kemur bara í ljós, eins og hann Ólafur Ragnar útmálar í grein (hann er sko samherji Svav- ars, sem ég var að segja þér frá), að þetta var bara alltaf bannsettur álkarl (það er mesta skammaryrði Allaballa að vera kenndur við þann óeðla málm). Allir ráðherrar fram- sóknar voru víst allan tímann ekkert annað en íhaldstríó og það meira að segja steinrunnið íhald. Þingflokksformaður samstarfsflokksins frá kær- leiksárunum segir það. Gerðu ekkert annað en að hrekkja góðu ráðherrana og gera þeim erfitt fyrir um góðverkin. Það er ekki gaman þegar menn breytast svona snögglega, ekki aðeins hér og nú heldur aftur í tímann. Hugsjónir, félags- hyggja og þjóðernisviðhorf bara öll horfin. Púff! Ekkert eftir af fornum dyggðum hjá gömlu félögunum, að því er prófessorinn telur. Ætli það sé annars ekki dálítið snúið að kenna ungum stjórnmálaspek- ingum framtíðarinnar vísinda- leg, gagnrýnin vinnubrögð í háskóla, ef menn og málefni taka slíkum stakkaskiptum í sögunni aftur í tímann? Kannski gerir það ekki svo mikið til, úr því koma alltaf nýir ferskir viðtakendur. Það var þetta með hugsjón- irnar. Þær koma bara og fara og enginn veit hver er hver og hvurs er hvað. Til dæmis héldu fulltrúar góða félagsmála- flokksins tíðum langar tölur um jafnrétti. Og raunverulega var reynt að koma á jöfnuði á undanförnum árum — með því að auka skattbyrðina á alla. Tókst að bæta 30 þúsund kr. nýjum sköttum á meðalfjöl- skylduna á 3 árum. Undir fargi fletjast nefnilega allir út og verða jafn flatir. Óneitanlega snjöll hugmynd. Veiztu, ég held að ég gefist bara alveg upp á þessu. Eg er búin að lesa öll blöðin í marga daga til að reyna að gefa þér mynd af stjórnarskiptunum. En er sjálf orðin svo rugluð að ég veit varla hver er góður og hver vondur í ríkisstjórnum. Reyni aftur seinna. Raunar er ég ekki komin að nýju stjórn- inni — enda er hún nánast óskrifað blað. Reyni aftur seinna. En lætin drógu fram í hug- ann vísu eftir Steingrím Thorsteinsson. Ég skil ekki af hverju: Eggjadi skýin öfund svört upp rann morgunstjarna. „Byrgið hana, hún er of björt helvítiö aÖ tarna“. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ | Reykjavíkurbréf >♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 4. júní ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Hálfs árs afmæli verdbóta- skerðingar Hjörleifur Guttormsson, Ragn- ar Arnalds og Svavar Gestsson, þá ráðherrar í fráfarinni ríkisstjórn, héldu upp á fullveldisdaginn, 1. desember 1982, með því að helm- inga umsamdar verðbætur á laun fyrir þá í hönd farandi verðbóta- tímabil. Verðbótaskerðingin nam 7,71%. Þjóðviljinn sagði frá þess- um gjörningi í forsíðufrétt (18. nóvember sl.) undir fyrirsögninni: „Skerðing verðbóta 1. desember: „minnkar stórlega viðskipta- hallann!“ Síðan er vitnað í félaga flokks- formann, Svavar Gestsson: „Auðvitað er hér um að ræða neyðarráðstöfun, sem gerð var vegna mikils viðskiptahalla á síð- asta ári, sem eykur erlendar skuldir um 3,1 milljarð króna. Þessar ráðstafanir nú hafa það í för með sér að viðskiptahalli næsta árs verður allt að 1,5 millj- arði minni á sambærilegu verð- lagi.“ — Með öðrum orðum: for- maður Alþýðubandalagsins lætur að því liggja að nauðsyn hafi borð- ið til að minnka kaupmátt og eft- irspurn. En það er meira blóð í kúnni. Svavar hnykkir á og segir: „Með þessum ráðstöfunum er sumsé reynt að draga stórlega úr erlendri skuldasöfnun og treysta efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinn- ar. Hins vegar er því miður ljóst, að kreppan er að knýja dyra og því óvíst að þessar ráðstafanir dugi til að treysta stöðu þjóðarbúsins ... “ í framhaldi af þessum að- gerðum setti flokksformaðurinn síðan fram kenninguna um nauð- syn „fjögurra ára neyðaráætlun- ar“. Loks lagði hann til í stjórnar- myndunarviðræðum á dögunum „að fresta 1. júní“ um einn mánuð — og þar með þá ráðgerðum verð- bótum á laun eins og þær lögðu sig. „Aðgerðir ekki raunhæfar nú,“ sagði forseti ASÍ Daginn eftir forsíðufrétt Þjóð- viljans um skerðingu verðbóta á laun um mánaðamótin nóvem- ber/desember 1982 til að „draga úr viðskiptahallanum" er enn höggvið í sama knérunn. Þá birtir blaðið fjögurra dálka forsíðufrétt: „Áætlað fall okkar þjóðarfram- íeiðslu 1982 og 1983: Nær einsdæmi innan OECD síðustu 20 ár.“ Fréttin tíundar síðan aflasamdrátt þorsks og versnandi stöðu sjávarútvegs. Blaðið er enn að helluleggja stíg- inn að „fjögurra ára neyðaráætl- un“ flokksformannsins. Þessum fréttum er fylgt eftir með tilvitnun í Ásmund Stefáns- son, forseta ASÍ, um viðbrögð samtakanna. Á forsíðu Þjóðvilj- ans (30. nóvember sl.) trónar stór fyrirsögn, sem höfð er eftir hon- um: „Aðgerðir ekki raunhæfar nú“. Ásmundur sagði: „Verkalýðssam- tökin hljóta alltaf að taka tillit til aðstæðna og það er þvf mat sam- bandsstjórnarinnar að á næstunni sé ekki raunhæft að ganga til að- gerða vegna bráðabirgöalaga rík- isstjórnarinnar." .Hann vitnar m.a. í samþykkt sambandsstjórn- ar ASÍ: „Sambandsstjórnin telur að við núverandi aðstæður sé ekki raunhæft að efna til andófs vegna bráðabirgðalaganna ..." Loks hnýtir ritstjóri Þjóðvilj- ans, Kjartan Ólafsson, endahnút- inn á réttlætingu verðbótaskerð- ingarinnar með leiðara, sem hefst á þessum orðum: „Á morgun, 1. desember, hefst nýtt verðbótatímabii hjá íslenzku launafólki. Þá kemur til fram- kvæmda sú skerðing verðbóta á laun, sem ákveðin var með efna- hagsráðstöfunum ríkisstjórnar- innar frá 21. ágúst sl. Hér er um að ræða helmings skerðingu þeirra verðbóta sem ella hefðu verið greiddar á laun ..." Og ritstjóri Þjóðviljans heldur áfram: „Sú skerðing verðbóta, sem nú kemur til framkvæmda á sér ærið tilefni sem engin stjórnvöld geta horft fram hjá (leturbr. Mbl.). Á því ári sem nú er senn á enda hafa þjóðartekjur á mann fallið um 5%, og það er mat Þjóðhagsst- ofnunar að horfur séu á að þær falli um álíka upphæð á næsta ári (1983), jafnvel meira ..." Þessa skemmtilegu mynd tók Garðar Pálsson skipherra hja Landhelgisgæzlunni þegar burðarflugvél með geimferjuna Enterpriae á bakinu flaug yfir Reykjavík um daginn. Það er eins og Leifur Eiríksson sé að virða þetta tækniafrek fyrir sér, en segja má að geimskutlan sé tákn nútíma hugvits bandarískra vísindamanna og hefur því mikið vatn runnið til sjávar frá því Leifur fann Ameríku í vestri. Ástandið reynd- ist enn verra en við var búizt Það er fróðlegt að fletta Þjóð- viljanum frá þessum dögum kringum síðustu (af 14) verðbóta- skerðingum launa í stjórnartíð Al- þýðubandalagsins. Ekki sízt i ljósi þess, sem síðar hefur komið á dag- inn, að rekstrarstaða atvinnuvega, sem er hin hliðin á atvinnuöryggi almennings, reyndist mun lakari en fyrri úttektir Þjóðhagsstofnun- ar bentu til, og ringulreið efna- hagsmála enn hrikalegri. Arfleifð fráfarinnar ríkisstjórnar bendir til þess að við höfum nú við stærri efnahagsvanda að glima en nokkru sinni fyrr í sögu lýðveldis- ins: þriggja stafa óðaverðbólga, erlend skuldasöfnun langt um- fram hættumörk, innlendur sparnaður hruninn, nýkrónan nálgast verðgildi flotkrónunnar, staða ríkissjóðs hefur snöggversn- að þrátt fyrir stóraukna skatt- heimtu — og taprekstur og skuldasöfnun undirstöðuatvinnu- vega þegar farin að segja til sín í atvinnubresti. Alþýðubandalagið bjó sig undir það, bæði fyrir og eftir kosningar, að sitja áfram í ríkisstjórn með því fyrst og fremst að búa fylgj- endur sína undir „fjögurra ára neyðaráætlun" og „frestun 1. júní“, þ.e. umsaminna verðbóta á laun. Ekki höfðu ráðherrar Al- þýðubandalagsins lokað dyrum ráðuneyta sinna, sem þeir yfirgáfu nauðugir, þegar þeir sneru við blaði í málflutningi. Þeir vóru komnir í leikgervi „samninganna í gildi" áður en þeir stigu út af lóð Arnarhváls! Og Þjóðviljinn er eins og „kópía" af sjálfum sér 1977/1978, þegar hann sté hruna- dans verðbólgunnar af hvað mestri innlifun og ábyrgðarleysi. Já, það er mikill munur á félaga flokksformanni á ráðherrastóli eða utan veggja stjórnarráðsins. Útboð á vegum ríkis og ríkisstofnana meginregla Fyrir um það bil 13 árum vóru fest í lög (nr. 63/1970) ákvæði um skipan opinberra framkvæmda. f þrettándu grein þessara laga er kveðið ótvírætt á um það að útboð skuli vera meginregla í fram- kvæmdum ríkis og ríkisstofnana. í greinargerð með frumvarpi að þessum lögum segir m.a.: „Frum- varpið gerir ráð fyrir að sem flest verk á vegum hins opinbera verði unnin á útboðsgrundvelli og tryggt verði samræmt bókhald, þannig að samanburður kostnaðar verkanna fáist.“ f athugasemd við 13. greinina segir: „Greinin hefur að geyma stefnuyfirlýsingu um það, að opinberar framkvæmdir skuli að jafnaði unnar eftir útboði, þótt gert sé ráð fyrir undantekn- ingum eftir eðli verks eða öðrum ástæðum." Hér er ótvírætt kveðið á um mikilvægt framkvæmdaat- riði. Á þeim rúma áratug, sem liðinn er frá þessari lagasetningu, hefur framkvæmdin orðið önnur en vilji löggjafans stóð til, samanber ofanskráðar tilvitnanir. Þannig námu verktakagreiðslur ríkisins til nýrra framkvæmda við vega- og brúargerð á árinu 1978 um 11% kostnaðar í vegagerð það ár, 12% 1979, 18,8% 1980 og 20,2% 1981. Hjá Hafnamálastofnuninni var hlutfallið 14,7% 1978, 14,6% 1979, 17,8% 1980 (þar af innlendur kostnaður 5% en erlendur — aðal- lega efni — 12%), 6,25% innlend útboð 1981. Hjá Flugmálastjórn 13% 1978, 24% 1979, 19% 1980 og 13,2% 1981. Ljóst er að alltaf hljóta að verða einhverjar undantekningar frá „meginreglu", en það er naumast kórrétt löghlýðni, ef meginreglur laga eru gerðar að undantekning- um í framkvæmdum opinberra að- ila. Ef opinberar stofnanir treysta sér til að vinna verk þann veg, að þau kosti skattborgara minni pen- inga en hjá verktökum, er sjálf- gefið að þær fái að taka „áhættu" eftir sömu reglum og aðrir. „Hið opinbera" á hinsvegar að gefa al- menningi gott eftirdæmi í lög- hlýðni og haga framkvæmdum þann veg, að ná sem mestu fram fyrir sem minnstan kostnað. Útboð örva og atvinnulífið og kalla á samkeppni, sem oft er kveikja að tækniframförum, vexti atvinnugreina og grósku í samfé- laginu. — Hitt vekur og spurn, hvort rétt sé að sama opinbera stofnunin annist bæði fram- kvæmd og úttekt ýmissa kostnað- arsamra verka. Það ber að stefna hiklaust að framkvæmd þessara laga (helzt áður en þau verða mikið eldri). Þó opinberar stofnanir hafi eflaust þurft umþóttunartíma til að laga sig að breyttri skipan um opinber- ar framkvæmdir, í samræmi við tilvitnuð lög, verður þó að telja tíma til kominn að hrinda þeim í framkvæmd í mun ríkara mæli. — „Með lögum skal land byggja." Flugstöd á Keflavíkur- flugvelli Benedikt Gröndal og Geir Hall- grímsson fluttu frumvarp á 104. löggjafarþingi íslendinga um flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Kjartan Jóhannsson, Salóme Þorkelsdóttir, Karl Steinar Guðnason og Eyjólfur Konráð Jónsson endurfluttu frumvarp þetta, nokkuð breytt, á síðasta þingi. Helztu efnisatriði og meginrök frumvarpanna vóru þessi: • Reist skal á Keflavíkurflugvelli ný afgreiðslustöð fyrir farþega og vörur. Stöðin skal vera íslenzkt mannvirki, undir íslenzkri stjórn og aðskilin frá athafnasvæði varn- arliðsins. • Núverandi flugstöð, sem er gömul og úrelt timburbygging, er með öllu ófær um að gegna hlut- verki sínu, bæði hvað varðar að- búnað farþega til og frá landinu og ekki síður starfsaðstöðu þeirra er þar vinna. • I flugstöðinni er „óhjákvæmileg eldhætta, sem gæti leitt til stór- slyss þegar farþegafjöldi er mest- ur.“ • Bygging nýrrar flugstöðvar er og nauðsynleg til að koma við æskilegum aðskilnaði almennrar flugumferðar og varnarliðsstarfs, sem allir eru sammála um. • Flugstöðin á Keflavíkurflug- velli er og verður „anddyri" Is- lands gagnvart umheiminum, þ.e. hundruðum þúsunda, sem þar hafa viðdvöl, koma til landsins eða fara frá því. • Bygging nýrrar flugstöðvar, sem verður íslenzkt mannvirki, losar aðra aðstöðu, sem kemur varnarliðinu til góða. Þar af leiðir að það er reiðubúið til að fjár- magna flughlað og leggja 20 millj- ónir dala til sjálfrar flugstöðvar- byggingarinnar (helming áætlaðs kostnaðar), en heimild til þess er tímabundin af bandaríska þing- inu. • Væntanleg flugstöðvarbygging hefur verið endurhönnuð og minnkuð til muna frá fyrstu áætl- unum og hugmyndum. Öll rök hníga í þá átt að hefja þessa byggingu sem allra fyrst. Neitunarvald Alþýðubandalagsins í fráfarinni ríkisstjórn hindraði þessa framkvæmd, eins og fleiri framfaraspor. Nú er það úr sögu — og ekki eftir neinu að bíða með framkvæmdir. Hér er um að ræða mikilvæga samgönguframkvæmd, sem ekki er vansalaust hve Iengi hefur dregizt. Mikill meirihluti þjóðar- innar er einhuga um að nú eigi að ganga rösklega til þessa verks.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.