Morgunblaðið - 05.06.1983, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 05.06.1983, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 41 möðkum, sem þá bíta ekki fleiri blöð. Úðið með sápuvatni, þá verða blöðin ekki jafn „gómsæt" fyrir orminn. Munið að ef hægt er að halda vörninni áfram í viku, þá er trjánum borgið, fugl- unum borgið og lífi okkar sjálfra ekki ógnað með eitri. Ef þessi formáli nægir ekki til að vekja okkur til umhugsunar og gefa tilefni til fleirri spurn- inga, þá hringið eða spyrjið. Morgunblaðið hefur mann á vakt milli kl. 11 og 12 alla virka daga. Ég mun leitast við að svara eftir bestu getu. I. Gróðurmold Haukur Hauksson, Þernunesi 8, Garðabæ, spyr: Hvað þarf djúpt moldarlag undir túnþökur annars vegar og trjágróður hins vegar? Þarf að láta moldina brjóta sig og hvað lengi áður en þökurnar eru lagð- ar? Hvernig er hægt að athuga gæði moldarinnar og hvort er betra að blanda hana með hús- dýra- eða tilbúnum áburði? Svar: Fyrir túnþökur nægir 10—15 sm. moldarlag en mikils er um vert, að það sé næringar- ríkur jarðvegur. Æskilegast væri að jarðvegur sem ætlaður er til ræktunar væri efnagreind- ur og fyrr í svörum mínum hér í Morgunblaðinu á þessu vori, hef ég nokkuð rætt um ræktunar- mold. Sá jarðvegur sem helst er hægt að verða sér úti um hér á höfðuborgarsvæðinu er úr landi þar sem grafið er fyrir grunnum húsa eða annarra mannvirkja. Það segir sig því sjálft, að sá jarðvegur er afar misjafn og sjaldnast ræktunarmold. Helst þyrfti að geyma þann jarðveg í haug í nokkur ár og blanda í hann efnum sem vöntun er á, en það gæti t.d. verið sandur, kalk og lífrænn áburður. Fyrir trjá- og runnagróður þarf mun dýpri jarðveg en fyrir grasflatir. 70—100 sm þurfa flest tré en 50—70 sm fyrir runnagróður og tré með grunnstæðar rætur, t.d. birki. Sjálfsagt er að nota lífrænan áburð í upphafi ræktunar, með honum fæst aukið bakteríulíf í jarðveginn en kemískur áburður nægir í flestum tilfellum sem næringargjöf fyrir gróðurinn. II. Þaramjöl er ekki arfaeyðir Dagný Stefánsdóttir, Selja- nesi, Reykhólasveit, spyr: Hvenær er best að bera þara- mjöl á grænmetis- og kartöflu- garða og er það rétt að það eyði arfa? Svar: Þangmjöl er hyggilegast að bera á eins snemma vors og hægt er, helst þegar snjóa leysir. Ef það sýnir sig að þangmjöl hafi lamandi áhrif á vöxt arfa, þá er það einnig varasamt fyrir annan gróður vegna saltmeng- unar. III. Sniglar María Björnsdóttir, Holtsbúð 33, spyr: Ég hef heyrt að það megi nota kalk til að halda sniglum frá káli. Er það rétt? Svar: Það er vissulega rétt. En of mikil notkun kalks getur orkað tvímælis fyrir plönturnar. Allt sem verkar þurkkandi fyrir slímhúð sniglanna, fælist hann. Það kemur því fleira að gagni en kalk, t.d. sót. í þessu sambandi vil ég koma á framfæri ráðlegg- ingum sem ágæt ræktunarkona gaf mér að gefnu tilefni vegna svars er ég sendi við spurningu fyrir nokkru, um ráð við snigl- um. Hún sagðist hafa góða reynslu af að setja rif úr hvít- lauki á pinna við hverja plöntu, þar sem sniglar væru á ferð og þeir virust forðast hvítlauksþef- inn á sama hátt og ástfangin stúlka koss frá fríðum en andfúl- um pilti. Kem ég þessu á fram- færi, ef fleiri vildu kanna þetta ágæta heilræði. Gengisfellingunni má mæta með því að velja sér ódýrari sumarleyíisíerð. Þrátt íyrir nýíellt gengi er íargjayd með ms. Eddu áberandi hagstœtt. Dæmi úfrverðskral.61985 _______________HRIMGFERÐ KR. 9.110________________________________ REYKJAVÍK-NEWCASTLE-REYKJAVÍK KR. 10.600 _______________REYKJAVÍK-BREMERHAVEN-REYKJAVÍK KR. 14.860_________ _______________ALLT VERÐ MIÐAÐ VIÐ DVÖL í 2JA MANNA KLEFA.________ Og samkvæmislífið um borðheldurótruflaðáftam: í feiðinni 8. júm verða BCristinn Hallsson og Guðni Guðmundsson, píanóleikari í ferðinni 15.júní Haukur Morthens og hljómsveit: Árni Elíar, Guðmundur Steingrímsson og Ómar Axelsson. I feiðinni 22. júní enn aðrir, og svo koll aí kolli. Að ógleymdri hljómsveit skipsins sem leikur fyrir dansi hvert kvöld, diskótekinu, nœturklúbbnum, spilavítinu og öðru, etv. ögn heilsusamlegra sem boðið er s.s. sundlaug, sauna, sólstólum, setustoíu, kvikmyndasal o.þ.h Veldu þína óskaíerð í sumar. Verslaðu fyrir íslenska peninga um borð og athugaðu að farir þú hringferð með Eddu þá þarftu engan erlendan gjaldeyri. Eddan leggur írá Sundahöín hvern miðvikudag. FARSKIP Aðalstræti 7, 101 Reykjavík. Símanúmer: 91-25166.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.