Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 42

Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 t Bróöir okkar, SIGURDUR ÞÓR FRIÐRIKSSON, andaöist aö heimili sínu, Nóatúni 29, föstudaginn 3. júní. Þórunn Friöriksdóttir, Þóra Friöriksdóttir. t Útför móður okkar og tengdamóöur, HALLFRÍÐAR FINNBOGADÓTTUR, frá Horni, sem andaöist aö Fjóröungssjúkrahúsinu á ísafiröi 27. maí, veröur gerö frá Nýju kapellunni í Fossvogi þriöjudaginn 7. júní kl. 3. El(n Frfmannsdóttir, Rósa Frfmannsdóttir, Elsa Guöjónadóttir, og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, HRÓLFS STURLAUGSSONAR, rafvirkjameistara, Strandgötu 35, Akurayri, er andaöist 30. maí, fer fram frá Akureyrarkirkju, þriöjudaginn 7. júní kl. 13.30. Sigríöur Ólafsdóttir, Ólafur I. Hrólfsson, Ragnheiöur Gústafsdóttir, Hallfríöur Hrólfsdóttir, Guömundur Magnússon, Auður Hrólfsdóttir, og barnabörn. t Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu, móöur, tengdamóöur og ömmu, HELGU JÓNSDÓTTUR, Baldursgötu 13. Sérstakar þakkir færum viö hjúkrunarfólki á Landspítalanum. Guömundur Sigurösson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móöir okkar, GUÐNÝ SÆMUNDSDÓTTIR, Hæöargaröi 4, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 7. júní kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir. Fyrir hönd vandamanna, Haukur Haraldsson, Hrafn Haraldsson, Örn Haraldsson. t Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför, ÞÓRDAR G. NJÁLSSONAR, frá Auðkúlu, Arnarfiröi. Daöína Jónasdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, ÞÓROUR MAREL JÓNSSON, Baldursgötu 7a, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 7. júní kl. 10.30. Margrót Guóný Árnadóttir, Jón Þóröarson, Svala Karlsdóttir, Líney Þórðardóttir, Árni Þóröarson, Þuríóur Elfa Jónsdóttir, og sonasynir. Gunnar Sæmunds- son bóndi — Minning Hinn 18. febrúar sl. lést Gunnar Sæmundsson, bóndi í Árborg í Nýja-íslandi tæpra 75 ára að aldri. Með honum er horfinn okkur einhver hinn svipmesti og sérstæðasti persónuleiki vestur- íslenska þjóðarbrotsins og það bjarg íslenskrar þjóðrækni sem fastast hefur staðið í meira en hálfa öld og mun lengi verða minnst báðum megin hafsins. Gunnar fæddist 28. júlí 1908 í Árborg í Manitoba og þar átti hann heimili alla tíð til æviloka. Faðir hans, Jóhann Sæmundsson, var af borgfirskum ættum, fæddur að Grjóti í Þverárhlíð 1867, en móðir hans, Þóra Guðmundsdótt- ir, var austfirsk að ætt, fædd í Hróarstungu 1864. Þau Jóhann og Þóra gengu í hjónaband árið 1907 og eignuðust auk Gunnars dóttur- ina Aðalbjörgu, f. 1910, sem hefur til þessa búið rausnar- og mynd- arbúi í sama byggðarlagi. Að auki ólu þau upp eina fósturdóttur, Ellen Kristínu Thomsen, sem býr í Winnijjeg. Á æskuárum vann Gunnar við búskapinn með foreldrum sínum og eftir að móðir hans dó 1935 bjuggu feðgarnir einir þar til Gunnar staðfesti ráð sitt 1947 og gekk að eiga Margréti ólafíu Hall- dórsdóttur úr Siglunesbyggð við Manitoba-vatn. Á hún ættir að rekja til Húnaþings og Skaga- fjarðar og er í þeim margt vel skáldmæltra manna. Margrét var Gunnari góður og ástkær föru- nautur og lifir hún mann sinn. Gunnar naut lítillar skólagöngu í æsku, enda voru ytri skilyrði hennar ekki hagstæð en skyldu- námi sínu lauk hann eigi að síður á mjög skömmum tíma. íslenska var móðurmál þeirra systkinanna en snemma urðu þau einnig vel mælt á enska tungu. Gunnar var einstaklega vel til sjálfsmenntun- ar fallinn. Hann var gæddur ríkri og heilbrigðri forvitni, stálminni og glöggskyggni. Slíkir menn breyta jafnan lífsatvikunum, jafn- vel hversdagsreynslu í þekkingu og þroska. Mesta athygli og undr- un mun Gunnar þó hafa vakið fyrir þekkingu sína og áhuga á ís- lenskum efnum og fræðum. Hann réðst í það 22 ára að aldri að sækja ættland sitt heim og vera viðstaddur hátíðahöldin á Þing- völlum 1930 í minningu hins forna alþingis. Margt fleira fólk, einkum af eldri kynslóð, var þá með í för að vestan sem auðvitað var sjóferð með viðkomu í Bretlandi á báðum leiðum. Eftir alþingishátíðina tók Gunnar að svipast um eftir æsku- stöðvum foreldra sinna í Borgar- firði og á Austurlandi, heimsótti frændfólk og eignaðist marga vini. Dvaldist hann eystra á heimili foreldra minna í Kóreksstaðagerði og fór þaðan ýmsar kynnisferðir. Er mér í minni að fólk hafði á orði að þar færi efnismaður mikill, enda leyndi sér ekki að hann var hamhleypa til vinnu þótt amboð öll og heyskaparaðferðir væru honum ótöm, og væri hann spurð- ur um fólk úr byggðarlaginu, sem numið hafði land vestra, stóð sjaldan á svari. Hann forvitnaðist Iíka um margt og það hygg ég að þessi ferð hafi stuðlað drjúgum að hinni sterku þjóðrækni hans. En nú liðu tugir ára iðju og anna. Búið í Nýja-íslandi þurfti margs við, enda varð nú langt hlé á íslandsferðum Gunnars og ekki má heldur gleyma því að örðugt var að komast á milli. Eins og áð- ur var getið kvæntist hann 1947 og eignuðust þau Margrét sjö börn á rúmum áratug. Fara nöfn þeirra og aldur hér á eftir: Erla Margrét, f. 1948; Elva Dagmar, f. 1950; Baldur Ómar, f. 1952; Birgir Sævar, f. 1953; lést af slysförum 1971; Ánna Svava, f. 1954; Bragi Dunstan Erlingur, f. 1956; Jóhann Halldór Kár, f. 1959. Auk heimaverka stundaði Hafsteinn Haralds- son — Kveðjuorð Fæddur 9. mars 1929 Dáinn 30. október 1982 Blessuð sé minningin um hann. Vilji guðs er mönnum hulinn. Sviftur er burt frá ástríkri eig- inkonu og dóttur, sem var rétt- kallaður augasteinn föður síns, hann Steini vinur minn, kenndur í Grindavík við Garðbæ. Hafsteinn Haraldsson var alltaf svo hýr og hress. Umvafði hann mig og aðrar dömur af mikilli al- úð, vinsemd og hjartahlýju, var sem hann ætti í okkur hvert bein og urðu tíðum ljúfir endurfundir. Alltaf var Steini léttur í skapi, það sem ég þekkti til, og trallaði tíðum góða slagara og víst um það að músíkalskur var hann og er mér í barnsminni þegar hann tók sig til að tralla „Flickornar í Smá- land“, þá var ekta taktur og engin lagleysa, sem þar var á ferð. Hann var vel kynntur og að góðu einu í Grindavík, sem voru hans bernskustöðvar, og þar átti hann góða vini og kunningja sem hugsa hlýtt til hans og minnast með söknuði. Hann átti líka vísa vini um alla Reykjavík og var vinum sínum traustur og betri en flestir. Guð geymi hann til síðari endurfunda. Ljúfa t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eigin- manns míns, sonar mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, GUDJÓNS EMILS AANES, Fífilgötu 5, Veatmannaeyjum. Una ÞórAardóttir, Ragnheiöur Jónsdóttir, Ragnar J. GuAjónsson, Gunnhildur Ólafsdóttir, Þóra GuAjónsdóttir, Sveinn Valgeirsson, SigurAur GuAjónsson, Ásdís Haraldsdóttir, Helga GuAjónsdóttir, Tryggvi Sveinsson, Kristín GuAjónsdóttir, Sverrir GuAjónsson og barnabörn. t Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför, ODDNÝJAR ÞÓRU MAGNÚSDÓTTUR, Hrafnistu, Hafnarfiröi. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sfmi 81960 Gunnar lengi vel skógarhögg og trjávinnslu, einkum sögun á vetr- um og varð að hafast við á þeim vinnustað en ganga heim og heiman þegar færi gafst. Þetta var, eins og að líkum lætur, kalt verk og karlmannlegt en Gunnar var hraustmenni og þreklundaður og kvartaði hvorki né dró af sér. En hann var einnig félagshyggju- maður og jafnan reiðubúinn að leggja þörfu málefni lið. Hér skal aðeins nefnt að hann var forseti þjóðræknisfélagsins Esju í Árborg og sat í stjórn mjólkurfélags (creamery) á sama stað sem rekið var með samvinnusniði. Ennfrem- ur var hann stjórnarmaður í lestr- arfélaginu Evergreen Library sem starfar bæði í Árborg, Riverton og Gimli. Þessum störfum öllum gegndi Gunnar um margra ára skeið. Eins og að líkum lætur var ís- lenska heimilismál Gunnars og Margrétar. Svo fast stóð hann á rétti móðurmálsins að hann gegndi eigi börnum sínum ef þau ávörpuðu hann á ensku. Eftir þessu var önnur viðleitni hans í að efla tengsl þeirra við ísland og is- lenska menningu. Nú kom að því að flugið olli byltingu í samskipt- um fslendinga við frændur sína vestan hafs. Greiddi þá Gunnar för fjölskyldu sinnar til gamla landsins uns öll höfðu farið slíka för að Sævari undanskildum, sem fórst voveiflega áður en af ferð hans gæti orðið. Mörgum þótti með miklum ólíkindum hve unga fólkið frá Árborg og nýkomið til Islands talaði islenskuna reip- rennandi. Hafa sum þeirra systk- ina komið hingað aftur og Svava verið búsett hér í Reykjavík síðan 1977. Sjálfur kom Gunnar hingað fjórum sinnum á tímabilinu 1965—78 og ferðaðist m.a. talsvert um landið, gekk t.d. eitt sinn á Eyjafjallajökul og reyndist brattgengur i besta lagi. Gestrisni og hjálpsemi Gunnars var löngum við brugðið. Það eru öngvar ýkjur að margir ferðalang- ar héðan að heiman áttu hjá þeim hjónum heimili um lengri eða skemmri tíma. Þegar slíka gesti bar að garði voru daglegar heimil- isannir og búksorgir sjaldan eða aldrei látnar standa i vegi fyrir því að sinna gestunum og njóta samvista við þá. Töfina vann Gunnar upp á eftir og vakti þá oft lengi og kærði sig kollóttan um klukkuna. Þetta má þó ekki skilja svo að hann hafi gert sér manna- mun, e.t.v. fremur dagamun. Þótt Birting afmælis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.