Morgunblaðið - 05.06.1983, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 05.06.1983, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 43 þjóðrækni hans ætti sér lítil takmörk olli hún ekki andúð eða vanmati á fólki af öðru sauðahúsi eða kynþætti. Það kom m.a. glöggt í ljós í skiptum hans við indíána sem hann hafði oft og einatt í kaupavinnu. Hann tók þá eins og þeir voru, kunni vel að meta dugn- að þeirra og snerpu við störfin en umbar þeim frátafir og hyskni ef slíku var að skipta. Þau hjónin tóku þá inn á heimilið og gerðu til þeirra eins og skylduliðs síns. Annað dæmi sýnir hve stórhuga og ókvalráður Gunnar var: Eitt sinn lagði hann lið hjálparstofnun únítarakirkjunnar í Winnipeg með þeim hætti að sendi hann fá- tækum indverskum pilti fjárupp- hæð. En hann gerði ekki enda- sleppt við öreigann indverska, heldur studdi hann til háskóia- náms með árlegum styrk næstu tíu árin. Pilturinn varð menntur vel. Hann tók sér nafn velgerð- armanns síns og heitir nú Gunnar Madhaven. Á þetta síðasta dæmi mætti einnig líta frá öðru sjónarmiði. Það speglar viðhorf Gunnars Sæmundssonar til menntunar. Og þá er freistandi að bæta öðru við: Árið 1951 var ákveðið að stofna íslenskudeild við Manitoba-há- skóla í Winnipeg. Skorti þá að sjálfsögðu fé en bændur ýmsir í Nýja-lslandi og víðar vestra, svo og fáeinir fjársterkari menn, brugðu drengilega við og lögðu fé í sjóðinn. Geta má nærri að Gunnar lét sig ekki vanta í þennan hóp og reiddi af hendi 1.000 dollara. Hef- ur það naumast verið neinn hægð- arleikur því að einmitt um það leyti var ómegð þeirra hjóna óðum að þyngjast. En afstaðan til menntunar og þjóðrækni í senn hlaut hér að vega þungt: íslensku- deildin sannaði brátt tilverurétt sinn og er nú höfuðvígi íslenskra fræða í Kanada. Get ég um það borið að Gunnari þótti peningun- um vel varið. ósjálfrátt hvarflar nú hugurinn til íslands og spyr um afstöðu bænda til íslenskra fræða í eigin háskóla. „Hver mun hirða hér um fræði?" kvað Jónas. Hér að framan hefur í stuttu máli verið farið ofan í nokkra megindrætti í stórskorinni mynd Gunnars Sæmundssonar. En ekki er þess að dyljast að margt hefur orðið eftir sem raunar er nauð- synlegt til að fullgera myndina. En Gunnar var alvörumaður og fáræðinn um sjálfan sig, enda þótt hann væri þekktur sem gleðimað- ur í kunningjahópi og hafsjór af skemmtifróðleik bæði í lausu máli og bundnu. Hann átti gott safn bóka, einkum íslenskra, og las mikið, allt frá ættfræðiritum til ljóða sem hann hafði tvímæla- laust mest yndi af. Ljóðakunnátta hans var einstök og hef ég aldrei kynnst jafnoka hans á því sviði. Mátti kalla að hann væri jafnan í samfylgd eftirlætisskálda sinna hvar sem hann var staddur. Sjálf- ur var hann vel ljóðhagur en flík- aði lítt eigin kveðskap. Ungur að árum nam hann ljóð 19. aldar skálda og fylgdist vel með þróun í ísienskum skáldskap á þessari öld. Mat hann mikils þau samtíma- skáld sem megnuðu að sameina gamalt og nýtt í ljóðum sínum. Samt duldist ekki að Gunnar var maður hins eldra ljóðforms og stíls. Átti hann gott sálufélag við Guttorm J. Guttormsson meðan hans naut við og taldi hann van- metinn á íslandi. En af öllum skáldum dáði hann Stefán G. mest og mun þar raunar fleira hafa komið til en skáldskapurinn einn. Hygg ég að hann hafi borið kennsl á hvert og eitt kvæða Stefáns og fjöldamörg þeirra gat hann flutt án bókar. Þrátt fyrir það að Gunn- ar væri manna sjálfstæðastur í skoðunum er freistandi að gera ráð fyrir því að Stefán hafi snemma orkað á lifsskoðanir hans, svo margt í þeim var svip- líkt og skylt hjá báðum. Lýk ég þessum orðum með ívitnun í hina frægu játningu Stefáns sem einnig er réttmæli um Gunnar Sæmundsson: „Til framandi landa ójj bródurhujj ber, þar brestur á viókvæmnin ein, en cttjardarböndum mig jjrípur hvar jjrund, sem fjrær krinjjum íslendings bein.“ Reykjavfk, mars 1983 Óskar Halldórsson Tökum að okkur að rétta og lagfæra legsteina í kirkjugörðum. SS.HELGASONHF Bl STEINSMIÐJA ■■ SKBrfMUVEGI «8 SlMI 70677 Legsteinar Framleiðum ailar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fuslega upplýsingar og ráðgjöf ________um gerð og val legsteina._ Ífi S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA ■ SKEMMIWEGI 48 SIMI 76677 WAUU 30.000 kr. afslátt af fyrstu sendingunni á Skoda ’83 Hefur bú efni á að bíða? 165.000 kr Skoda er þessa dagana fóanlegur fyrir aðeins 135.000krl meöan fyrsta sendingin endist Skoda105 kr. 134.700 Skoda 120L kr. 147.900 Skoda120LS kr. 163.400 Skoda 120GLS kr. 177.400 Skoda Ftapid kr. 196.800 Verð miðað við tollgengi júnímánaðar. JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 85 42

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.