Morgunblaðið - 05.06.1983, Side 46

Morgunblaðið - 05.06.1983, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5.JÚNÍ 1983 Þessi sportlegi fatnaAur er framleiddur af Karnabæ undir vörumerkinu Bandido. Friðþjéf- ur Helgason tók allar myndirnar sem birtast hér frá sýningunni á Broadway. Þessar ungu og glaðlegu blómarósir sýndu hluta þess fatnaðar, sem framleiddur er úr einu vinsælasta efni sumarsins, ei það er kennt við háskólaboli. Sumartízkan Fegurðarsamkeppni íslands fór fram fyrir nokkru á dansstaðnum Broadway. Sýningarfólk kynnti þar sumartízkuna frá Karnabæ, jafnt innlenda sem erlenda hönnun. Tízkusýning- unni var vel tekið, en íslenzka framleiðslan vakti hvað mesta athygli viðstadda. Kynnir vai Heiðar Jónsson, en sýningarfólk var flest úr Módel 79. Finnskur tónlistarmað- ur í Norræna húsinu MÁNUDAGINN 6. júní kl. 20.30 verða tónleikar í Norræna húsinu. Kemur þar fram finnska tónskáldið og saxófónleikarinn Lauri Nykopp. Á efnisskrá er tónverk í sjö þáttum sem Nykopp samdi á síðasta ári og nefnir „Y“. Nykopp hefur haldið tónleika víðsvegar um Evrópu, m.a. kom hann til Islands síðasta sumar og tók þátt í tónleikahaldi á vegum „Ung nordisk musik". Vestur-íslenskur kór væntanlegur til íslands UM MIÐJAN júní kemur til íslands vestur-íslenski karlakórinn Vestur- bræður frá Seattle í Bandaríkjunum. Á ensku nefna þeir sig Western Brothers og eru 23 að tölu. Þeir nefna sig Western vegna þess, að þeir koma frá Vesturheimi, en ættir sínar rekja þeir til íslands og eru af annarri, þriðju og fjórðu kynslóð ís- lendinga, sem námu land í Banda- ríkjunum fyrir um hundrað árum. Raunar er einn fslendingur í kórn- um og er hann kennari í íslensku og íslenskum bókmenntum við Uni- versity of Washington. Einnig er í kórnum Bandaríkjamaður af sænsk- um ættum, en eiginkona hans er af íslenskum ættum. Hann er prestur, en hið sama má einnig segja um tvo aðra meðlimi kórsins, bræðurna sr. Eric og sr. Harald Sigmar, sem mörgum eru að góðu kunnir hér á landi. Sr. Harald á t.d. þó nokkuð marga nemendur meðal íslenskra presta, því að hann kenndi við guð- fræðideild Háskóla íslands tvo vet- ur, 1957—59. í kórnum eru nokkrir feðgar. Þar má nefna einn af einsöngvur- um kórsins dr. Edward Palmason lækni, sem er tenór og þrjá syni hans, sem eru í kórnum og eru allir tenórar. Meðlimir kórsins eru búsettir í Seattle og nágrenni og sumir kórmeðlimir þurfa að ferð- ast allt að 96 km til að komast á söngæfingar og taka þátt í söng- starfi kórsins. Margir af meðlimum kórsins eru fæddir og uppaldir í Norður- Dakota, á Mountain og nágrenni, og sumir þeirra sungu í kirkju- kórnum á Mountain og einnig í ís- lenska karlakórnum í Norður- Dakota fyrir meira en 40 árum. Aðrir eru fæddir og uppaldir í Seattle, en áttu foreldra, sem komu frá Norður-Dakota. Yngsti meðlimur kórsins er rúmlega tvítugur, en sá elsti er á áttræðisaldri. Sex eða sjö kórmeð- limir tala íslensku allvel og hinir skilja hana að mestu leyti. Allir hlakka þeir Vesturbræður mjög til þess að heimsækja land feðra sinna og syngja þar. Tíu meðlimir kórsins hafa áður komið til ís- lands. Stjórnandi kórsins er Ernest Anderson. Hann er Bandaríkja- maður af sænskum ættum og fyrr- um meðlimur Fred Waring Chor- us. Undirleikari karlakórsins Vesturbræðra hér á í slandi verður Agnes Löve píanóleikari. Á síðustu tveimur árum hefur MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 47 Stúlkurnar eru í rúskinnsbuxum og bómull- artreyjum frá Garbo. Fatnaðurinn er franskur og nefnast litirnir „mildir jarðarlitir", enda þótt lesendur geti ekki greint þá í blaðinu. Og nú eru frakkarnir komnir aftur í tízku. Bonaparte sýndi alls kyns gerðir af frökkum á tízkusýningunni á Broadway. Léttur baðmullar- jakki frá Karnabæ. Baðmullardragt, brydduð með rú- skinni. Dragtin sem er frá Garbo, er japönsk hönnun. Þær voru léttstígar og sumarlegar sýningar- stúlkurnar, er þær kynntu sumartízk- - una. Bonaparte sýndi mikið úrval af fötum og stökum jökk- um. Alls konar jakkavesti eru mjög vinsæl um þessar mundir. Hér getur að líta eitt þeirra frá Karnabæ. karlakórinn Vesturbræður haldið nokkra tónleika og sungið á skemmtunum í Seattle og ná- grenni. Það var kórnum mikill heiður að syngja við þrjár athafn- ir á síðastliðnu hausti, þegar for- seti íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir, heimsótti Seattle í sam- bandi við kynningarhátíðina Scandinavia Today. Einn liður ferðarinnar til Islands verður heimsókn til forseta íslands að Bessastöðum. Karlakórinn Vesturbræður: Fremri röð frá vinstri: Harald Johnson, Lanny Turay, Kristjan Krist- jansson, sr. Harald Sigmar, Mar- ino (Ted) Hermann, sr. Eric Sig- mar, Jonatan Bjornson, Dennis Bjornson, Delbert Anderson, Leonard Sigmundson, Stefan Scheving. Aftari röð frá vinstri: Ralph Scheving, Benedict Hall- grimson, Dennis Palmason, Valdi- mar Kristjanson, Peter Hall- grimson, Edward Palmason Jr., Raymond Olason, Einar Gíslason, Jon Palmason, Sigurbjorn Krist- jansson, Sr. Walter Moris, Dr. Edward Palmason. Kórinn áformar að heimsækja íslensku byggðirnar í Norður- Dakota og Manitoba á næsta ári. Til fslands kemur karlakórinn Vesturbræður 15. júní og mun taka þátt í hátíðahöldunum á þjóðhátíðardaginn 17. júní hér í Reykjavík. Mánudaginn 20. júní fer kórinn til Hveragerðis og syngur í Hveragerðiskirkju. Þriðjudaginn 21. júní verða tón- leikar kórsins í Bústaðakirkju í Reykjavík kl. 20.30. Miðvikudag- inn 22. júní verður farið upp í Borgarfjörð og m.a. sungið í Loga- landi í Reykholtsdal kl. 21.00. Laugardaginn 25. júní fer kórinn í ferðalag austur í Biskupstungur, syngur nokkur lög í Skálholts- kirkju og heldur tónleika í Ara- tungu kl. 21.30. Sunnudaginn 26. júní áformar Þjóðræknisfélag ís- lendinga að hafa gestamóttöku í tilefni af komu Vesturbræðra til íslands. Síðustu tónleikar karla- kórsins Vesturbræðra á fslandi í þessari ferð verða í Akureyrar- kirkju mánudaginn 27. júní kl. 20.30. Flestir kórmenn fara síðan heim til Bandaríkjanna 1. júlí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.