Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 48
verlð örugg verslið við fagmenn! trpimMsiMib SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 Sími 44566 RAFLAGNIR samvirki ísland — Malta 16 ára piltur í landsliðshópinn ÍSLENDINGAR og Möltu-búar leika landsleik í knattspyrnu a Laug- ardalsvelli í dag klukkan 17 og er leikurinn liður í Evropukcppni landsliða. Sú breyting hefur orðið á landsliðshópnum, að Sigurður Jóns- son úr ÍA kemur inn í hópinn í stað Gunnars Gíslasonar, sem forfallað- ist. Ef Sigurður leikur í dag, verður hann yngsti landsliðsmaður íslands, 16 ára. Sigurður Jónsson er fyrsti Is- lendingurinn, sem nær þeim áfanga, að vera valinn í öll fjögur knattspyrnulandsliðin, sem fsland teflir fram í sumar, drengja- landsliðið, 14—16 ára, unglinga- landsliðið 16—18 ára, landslið 21 árs leikmanna og yngri og síðan A-landsiiðið. Fyrstu fimm mánuði ársins: 712 ökumenn teknir á yfir 100 km hraða Um 300 ökumenn sviptir ökuréttindum fvrir of hraðan akstur FYRSTU fimm mánuði ársins voru 712 ökumenn teknir á yfir 100 kflómetra hraða í nágrenni Reykjavíkur og var sá, er hrað- ast ók, tekinn á 170 kflómetra hraða. Fimm fyrstu mánuðina hafa alls verið gefnar út um 2450 kærur fyrir of hraðan akstur í Reykjavík og skýrslur um um- ferðarbrot nema á þessu tímabili um 4600 og eru þá ekki talin með brot fyrir ólöglega stöðu bif- reiða. Um 300 ökumenn hafa verið sviptir ökuréttindum fyrir hraðabrot. Þar er um að ræða gífurlega fjölgun og er tekið mun harðar á of hröðum akstri en áður. Algengt er að menn missi ökuréttindi í 1 til 2 mán- uði fyrir of hraðan akstur. „Fyrstu fimm mánuðina slösuðust 66 í umferðinni í Reykjavík, 42 lítið og 24 alvar- Morgunblaðið/ Július Lögreglumenn hafa haft í nógu að snúast við að halda umferðarhraðan- um niðri. 508 ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í maí og á stundum mynduðust biðraðir er menn voru teknir. lega. Á sama tíma í fyrra slös- uðust 117 manns, 55 lítið en 62 alvarlega. Þetta er ánægjuleg þróun og ein af meginskýring- unum er hert eftirlit með um- ferðarhraða í Reykjavík og því verða færri alvarlegir árekstr- ar,“ sagði Óskar Ólason, yfir- lögregluþjónn í samtali við Mbl: „Menn verða að gera sér grein fyrir því, að lögreglu- menn hafa nú radar í lög- reglubifreiðum. Áður var radar einungis settur upp á felgu og geislanum beint út á götu. Nú geta lögreglumenn mælt hraða bifreiða úr bifreið- um sínum og þarf nú aðeins 2 í bifreið í stað 4 til 6 áður. Með þessu höfum við getað stór- aukið eftirlit með hraðakstri," sagði Óskar Ólason. Ljósm.: Danfel Hrafnkelsson Frjósöm ær í Fljótsdal: Fimmlembd í vor - 26 lömb á 7 árum Á tilraunabúinu að Skriðu- klaustri í Fljótsdal bar ærin nr. 3.117 5 lömbum í vor. Lömbin fæddust öll lifandi en eitt þeirra dó á 2. degi, hin eru öll spræk og frísk. Dr. Stefán Að- alsteinsson búfjárfræðingur sagði í samtali við Mbl. að það væri afar sjaldgæft að ær yrðu fimmlembdar hér á landi, en þessi kind væri einstaklega frjósöm. Kindin er 7 vetra og hefur borið 7 sinnum, þrisvar sinn- um þrílembd, þrisvar sinnum fjórlembd og svo fimmlembd í vor. Samtals hefur hún þá borið 26 lömbum á 7 árum. Stefán sagði, að frjósemi hennar væri einstök og áreiðanlega um landsmet að ræða. Ærin er af frjósömum fjárstofni, fædd árið 1976 að Smyrlabjörgum í Austur- Skaftafellssýslu, en var keypt í sérstaka frjósemis- tilraun. Af lömbunum 26 misfórust 8 lömb. Tveir fimmlembinganna ganga með móðurinni, en hinir und- ir fósturmóður. Minna dreift úr flugvél- um en undanfarin ar Áburðar- og frædreifing á flugvélum Landgræóslu ríkisins er að hefjast um þessar mundir, en minna magni verður dreift nú en áður, samkvæmt upplýs- ingum Sveins Runólfssonar hjá Landgræðslunni. Áburðardreififlugvélin TF-TÚN byrjaði að dreifa frá Sandskeiði 26. maí á svæði kringum Reykja- vík, en hún er nú í áburðarflugi frá Gunnarsholti. Flugmenn eru Hafsteinn Heiðarsson og Pétur Steinþórsson. Væntanlega hefur TF-NPK, Páll Sveinsson, áburðarflug um 10. júní, þar sem stórskoðun á flugvélinni, sem nú er á fimmtugs- aldri, er að Ijúka. Fyrst dreifir Páll Sveinsson á Reykjanesi, síðan frá Gunnarsholti og loks norður í Þingeyjarsýslum. f maí voru 10 ár liðin frá því áburðarflug hófst á Páli Sveins- syni, og er þetta 11 sumarið sem flugvélin er notuð til dreififlugs, en áburðarflug á minni flugvélum hófst 1957, og er því á 26. sumri. Flugmenn Flugleiða fljúga Páli Sveinssyni í sjálfboðavinnu. Eins og áður segir er magn fræs og áburðar sem dreift verður í ár minna en undanfarin ár. Kemur þar til að framkvæmdagildi fjár- veitinga til Landgræðslunnar hef- ur rýrnað verulega, að sögn Sveins, og hækkanir á áburði og grasfræi eru langt um fram það sem fjárveitingar hækkuðu. Páll Sveinsson hefur á undan- förnum árum dreyft 2.200 tonnum af áburði og grasfræi árlega, í fyrra dreifði hann um 1.200 tonn- um og í ár verður magnið enn minna. TF-TÚN hefur dreyft um 800 tonnum á ári, en í fyrra var dreift um 500 tonnum og minna núna. Nýlega hefur fengist sérstök viðbótarfjárveiting til að dreifa á þau svæði sem verst urðu úti í síð- asta Heklugosi, á Landmanna-, Holtamanna- og Gnúpverjaaf- rétti. Mikill árangur hefur náðst af áburðarflugi á þessum svæðum, en nú eru þau afar illa farin, að sögn Sveins. Þó er talsvert gras komið upp í gegn um ösku og vik- ur, einkum þó íslenzka melgresið. Bæjarútgerð Reykjavíkur: Rekstrartapið nam 112 milljónum kr. í fyrra — halli af togurunum 94,3 milljónir án verðbreytingafærslna REKSTRARTAP Bæjarútgeröar Reykjavíkur á árinu 1982 varð 112 milljónir króna og er þá tillit tekið til afskrifta, sem voru 41,1 milljón króna, að því er fram kom hjá Davíð Oddssyni borgarstjóra á borgarstjórnarfundi sl. flmmtu- dag. Bókfærðar eignir fyrirtækisins umfram skuldir námu í árslok 46,5 milljónum króna og hefur þá verið tekið mið af því að Framkvæmda- sjóður Reykjavíkurborgar hefur afskrifað 54,1 milljón króna. Togarar BÚR fóru í 147 veiði- ferðir á sl. ári og var landað í Reykjavík í 142 skipti, en 5 sinn- um var landað erlendis. Heild- arafli togaranna var að verðmæti 115,5 milljónir og halli af rekstri þeirra varð 94,3 milljónir, að verð- breytingafærslum undanskildum. Hagnaður af rekstri fiskiðju- vers, saltfiskverkunar og skreiðar- verkunar varð hins vegar 38,6 milljónir. „Eins og þessar tölur um af- komu Bæjarútgerðarinnar bera með sér, er brýnt að leysa fjár- hagsvanda útgerðarinnar með því að lækka fjármagnskostnað, þannig að fyrirtækið geti staðið á eigin fótum. Að því er nú unnið," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri á fundinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.