Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 1
56 SÍÐUR
138. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaösins
Barátta Pólverja
fær blessun páfa
Krakow. Póllandi. 21. iúní. AP.
Krakow, Póllandi, 21. júní. AP.
JÓHANNES PÁLL II páfi kom á kunnugar slóðir í dag, er
hann heimsótti fyrrverandi biskupsdæmi sitt í Krakow. Páf-
anum var fagnað ákaflega og var loft þrungið sterkum tiifinn-
ingum. Fyrr um daginn hafði páfi lagt blessun sína yfir
„þorsta pólskra verkamanna eftir réttlætinu“ og baráttu
þeirra fyrir mannréttindum.
Stjórnvöld í Póllandi, sem setið
hafa á glóðum elds síðan páfi hóf
förina, snerust í fyrsta sinn til
varnar í dag, er Mieczyslaw Rak-
owski, aðstoðarforsætisráðherra,
varaði við því að ala æskulýð í Pól-
landi á „goðsögnum, hindurvitnum
og hálfum sannindum". í viðtali,
sem birtist í stærstu málgögnum
pólska kommúnistaflokksins, var-
aðist Rokowski að víkja beinum
orðum að páfa, en vísaði þess í stað
til hans sem „kennara" og „leið-
beinanda".
Félagar í Samstöðu fylktu liði
undir mótmælaspjöldum er páfi
kom til Krakow í dag, þrátt fyrir
viðvörun Vatíkansins, sem gefin
var út snemma dags, um að póli-
tískum sjónarmiðum yrði ekki
blandað saman við heimsókn Jó-
hannesar Páls II til Póllands.
Herstjórn gerir
sáttaboð í Chile
Hundruð ungmenna komu sam-
an í miðborg Wroclaw í suðvest-
urhluta landsins eftir að páfinn
hafði flutt ræðu sína þar fyrir
komuna til Krakow og lagt blessun
sína yfir réttlætisbaráttu pólskra
verkamanna. Varð lögregla að
beita valdi til að dreifa hópnum og
notaði m.a. til þess þyrlur og vatns-
sprautur. íbúar í nærliggjandi há-
hýsum, sem fylgdust með átökun-
um, brugðust hins vegar ókvæða
við og hrópuðu „Gestapó" og önnur
hnýfilyrði. Ungmennin gengu frið-
samlega á brott, en lögregla hélt
áfram vörð við svæðið.
Hundruð þúsunda fylgdust síðan
með er páfi ók um götur Krakow
síðdegis. Hrópaði mannfjöldinn
„Lengi lifi páfinn" og dreifði blóm-
um á leið hans.
Samkvæmt síðustu fréttum hef-
ur Samstöðuleiðtoganum Lech
Walesa verið veitt þriggja daga
leyfi frá vinnu til að ganga á fund
páfa í Krakow á fimmtudag.
Sjá ennfremur um páfa á bls. 15.
Sögunnar minnzt simamyndAP
Þrír Pólverjar, klæddir búningum úr fangabúðum nazista, krjúpa frammi
fyrir páfa eftir ræðu hans í Wroeklaw í suðvesturhluta Póllands. íbúar í
Krakow kölluðu „Gestapo“ að lögreglu, er hún reyndi að dreifa samkomu
ungmenna eftir að páfi flutti þar ræðu.
Santiago, Chile, 21. júní. AP.
HERSTJÓRNIN í Chile skýrði frá því í dag að hún myndi leyfa hundrað
tuttugu og fimm pólitískum útlögum að snúa aftur til landsins, þar á meðal
Andres Zaldivar, forseta heimssambands kristilegra demókrata. Yfirlýsingin
virðist vera eftirgjöf af hálfu stjórnvalda við vaxandi mótmælum og verk-
fallshótunum vegna áframhaldandi herstjórnar í Chile.
Zaldivar hefur löngum verið tal-
inn skeleggasti andstæðingur
Augusto Pinochets forseta í út-
legð. Dómsmálaráðuneyti landsins
tilkynnti í dag að Zaldivar, ásamt
fimm öðrum áhrifamiklum stjórn-
málamönnum, „gætu snúið aftur
m vansalaust frá og með
i.Æn. eginum. Einnig var aflétt
útlegðardómi yfir hundrað og
tuttugu til hundrað og fimmtíu
öðrum stjórnmálaforingjum.
Mikil ókyrrð hefur verið í Chile
að undanförnu vegna þess hve
hægt hefur gengið að koma á
borgaralegri stjórn í landinu.
Hafa ýmsir hagsmunahópar m.a.
krafizt þess að tíu þúsund af þrjá-
tíu og sjö þúsund Chilemönnum,
sem dæmdir voru í útlegð, er Pino-
chet kollvarpaði stjórn Allendes
1973, fengju að hverfa aftur til
heimalands síns. Leiðtogar verka-
lýðsfélaga hafa hvatt tii víðtækra
verkfalla frá og með fimmtudegi,
eftir að Pinochet forseta tókst að
brjóta á bak aftur verkfall kop-
arnámumanna á mánudagskvöld.
Yasser Arafat fór
bónleiður til búðar
Forseti íslands í Flatey
Slmamynd Mbl. RAX.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, heimsótti Flatey í gær á ferö sinni um Vestfirði. Mikill mannfjöldi víða
að úr eyjum á Breiðafiröi tók á móti forsetanum á bryggjunni og síðan þáði forsetinn veitingar. Sjá nánar
frásögn á miðopnu.
ýskra hersveita og skæruliða, er
hafa stuðning Líbýu.
Arafat barst orð af bardögunum
þar sem hann sat á fundi með
byltingarráði A1 Fatah í Damask-
us og var að semja um málamiðl-
un til að laða uppreisnarmenn aft-
ur til samstarfs. Uppreisnarmenn
leiddu fund ráðsins hins vegar hjá
sér og sendu frá sér yfirlýsingu
þar sem vísað er til „endurskoðun-
arstefnu og hægri sinnaðrar for-
ystu Arafats". Komst einn stuðn-
ingsmanna Arafats svo að orði að
hann hefði verið „í miklu upp-
námi“ er hann snéri til Tripoli í
Líbanon í dag. Mun leiðtoginn
hafa látið svo um mælt að hann
myndi ekki koma aftur fyrr en
sýrlenzkar hersveitir hættu að
greiða götu uppreisnarmanna.
Dama-skus, Sýrlandi, 21. júní. AP.
LEIÐTOGI Frelsissamtaka Palestínumanna, Yasser Arafat, haskaði lor
heim frá Damaskus í dag, eftir að hatrömm átök brutust út meöal Palestínu-
manna í Líbanon og gerðu að engu tilraunir leiðtogans til að kveða niöur
misklíð í röðum samtakanna. Arafat var á fundum með foringjum Al Fatah-
skæruliða í Sýrlandi.
Það voru stuðningsmenn Saed
Mousa ofursta sem réðust á aðal-
herstöð Arafats í Bekaadal og
ruddu brott skjaldsveit Arafats að
sögn talsmanna ofurstans og A1
Fatha samtakanna. Engar fregnir
hafa borizt af mannfalli og sagði
fréttamaður AP, er var á ferð um
Bekaadal síðdegis, að þar hefði þá
allt verið með kyrrum kjörum.
Talsmenn Arafats hafa viður-
kennt að hafa tapað aðalherstöð-
inni í Majdel Anjar til uppreisn-
armanna og skýrði líbanska út-
varpið frá því að stuðningsmenn
Arafats hefðu hörfað til bæki-
stöðva í um sextán kílómetra fjar-
lægð frá landamærum Sýrlands.
Fullyrða stuðningsmenn Arafats
að uppreisnarmenn hafi notið líb-
Það kvad vera
fallegt í Kína
Pekinf!, 21. júní. AP.
TAIWANSKUR flugmaður, sem flúði til kínverska alþýðulýðveldisins á
þotu sinni fyrir tveimur árum ekur nú um á hvítum Mercedes Benz,
ber lof á landið og hvetur aðra taiwanska flugmenn til að fara að
fordæmi sínu.
„Eyjarskeggjar á Taiwan búa
enn við ömurleg skilyrði að ýmsu
leyti og ættu að skoða með eigin
augum þann framúrskarandi
árangur, sem náðst hefur á meg-
inlandinu," sagði Huang Zhich-
eng í viðtali í dag. „Ég hef hug á
að gerast félagi í kommúnista-
flokknum, en er einfaldlega ekki
fullnuminn í marxismanum enn-
þá,“ bætti hann við. Zhicheng
var þriðji flugmaðurinn sem
flúði frá Taiwan til Kína eftir
1949. Þegar hann kom á áfanga-
stað í ágúst 1981 sagðist hann
vonast til að geta lagt eitthvað
af mörkum til sameiningar
Kína.
„Ég hef síður en svo verið
heilaþveginn, og það er ósatt að
ég hafi hlaupist á brott vegna
spilavítisskulda. Ég er áreiðan-
lega á réttri braut í lífinu," sagði
Zhicheng og ljómaði allur.