Morgunblaðið - 22.06.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Norræna ráðherranefndin á fréttamannafundi í Ráóherrabústaönum f g*r. Frá vinstri eru: Frú Ragnhildur Helga-
dóttir, menntamálaráðherra íslands, Bengt Göranson, menningarmálaráðherra Svfþjóðar, sem er formaður ráðherra-
nefndarinnar, Gustaf Björgstrand, menningarmálaráðherra Finnlands, og Lars Roar Langslet, menningar- og vís-
indamálaráðherra Noregs. Fyrir aftan stendur Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu.
Samnorrænt sjónvarp
strax á næsta ári?
Norðmenn bjóða upp á samstarf um ECS-hnöttinn
Pólsku skipin:
Ekki kröfur um
að skip verði
seld í staðinn
PÓLSKIJ skipin þrjú sem væntanleg eru til landsins kosta að sögn Gísla
Jónassonar forstjóra Samtogs h.f., sem er kaupandi að tveimur þeirra, rúmar
tvær milljónir dollara hvert. Þau eru um 32 metrar að lengd, smíöuð úr stáli,
og ætluð fyrir almenna neta- og togveiði. Engar kvaðir eru um að selja úr
landi gömul skip eða að þau séu dæmd ónýt, þannig að skipin þrjú verða
hrein viðbót við fiskiskipaflotann.
Á FUNDI norrænu ráðherra-
nefndarinnar, sem hófst í
Reykjavík í gærmorgun, var
m.a. rætt um möguleikana á því
að byrja tilraunir með norrænar
sjónvarpsútsendingar um ECS-
fjarskiptahnöttinn strax á næsta
ári. Ástæðan er sú, að Norð-
menn eiga kost á rás í ECS-fjar-
skiptahnettinum, sem skotið
verður á loft á næsta ári og hafa
þeir boðið öðrum Norðurlanda-
þjóðum að taka þátt í samstarfi
um þessa rás.
Lézt í bflslysi
KONAN, sem lézt í bifreiðaslysinu
í Skagafirði á laugardag. Hún hét
Jakobína Pálmadóttir til heimilis
á Háaleitisbraut 43 í Reykjavík.
Matthías Á. og
Albert vildu
báðir sumarþing
VIÐ afgreiðslu ríkisstjórnarinnar á
samkomudegi Alþingis þar sem
ákveðið var að Alþingi kæmi ekki
saman fyrr en í haust komu fram
a.m.k. tvær ákveðnar raddir um að
kveðja ætti Alþingi saman í sumar.
Samkvæmt heimildum Mbl.
lýstu Matthías Á. Mathiesen við-
skiptaráðherra og Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra því
báðir yfir, að þeir teldu rétt að
Alþingi kæmi saman hið fyrsta.
Það var því ekki einhugur innan
ríkisstjórnarinnar um afgreiðslu
málsins, eins og haft hefur verið
eftir einstökum ráðherrum og al-
þingismönnum í fjölmiðlum.
Á fundinum í gær var
ákveðið að afla frekari upplýs-
inga um, hvaða möguleikar
felist í þessu samstarfi, áður
en endanleg ákvörðun verður
tekin í þessu máli. Danir taka
ekki þátt í þessum fundi nú.
í gær lagði norræna menn-
ingarmálanefndin fram fyrir
ráðherrafundinn hugmyndir
um það, hvernig dagskrá slíkr-
ar samnorrænnar rásar gæti
verið samsett, en tekin var ein
vika í maí og valið úr sjón-
varpsdagskrám allra Norð-
urlandanna efni, sem vænlegt
þótti til sendingar.
Sjónvarpskerfi um norræn-
an fjarskiptahnött skal, ef til
framkvæmda kemur, ná í
fyrstu til sendinga um þrjár
rásir fyrir sjónvarpsefni til
Finnlands, Noregs og Svíþjóð-
ar og yrði útsendingartíminn
45 klukkustundir á hverri rás
á viku. Þessar útsendingar
verða fyrst mögulegar um ára-
mót 1988—1989. Ráðherra-
nefndin hafði áður tekið
ákvörðun um, að sjónvarpsút-
sendingar til íslands skuli í
fyrstu fara fram um eina rás.
„SEÐLABANKINN hefur ekki tekið
formlega afstöðu til þessa bréfs
viöskiptaráöherra, en það verður
tekið til umfjöllunar á næstunni,"
sagði dr. Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóri, í samtali við Mbl., er
hann var inntur eftir viðbrögðum
Seðlabankans við bréfi sem við-
skiptaráðherra hefur ritað bankan-
um, þar sem hann lýsti þeim vilja
sínum, að allir bankar og sparisjóðir
fái heimild til gjaldeyrisviðskipta.
„Eins og kunnugt er var ákveðið
fyrir tæplega ári að veita Búnað-
Að sögn Gísla verða Vest-
mannaeyjaskipin afhent í pólskri
höfn í fyrstu viku desembermán-
aðar nk., en þriðja skipið fer til
Hróa í Ólafsvík í byrjun febrú-
armánaðar á næsta ári.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra var spurður hvort
honum hefði komið fréttin um að
pólsku skipin væru að koma til
landsins á óvart, eins og forvera
hans í starfi, þ.e. núverandi for-
sætisráðherra. Hann kvað svo
ekki vera. Hann hefði síðast séð
þeirra getið á skjölum við af-
greiðslu lánsfjáráætlunar á Al-
þingi í vetur, vegna viðskipta-
samningsins við Pólverja. Sjávar-
útvegsráðherra sagði einnig, að
við gerð umrædds viðskiptasamn-
ings hefði mikið verið rætt um
slæmt ásigkomulag bátaflotans í
Vestmannaeyjum og því hefði
væntanlega ákvörðunin um að tvö
þeirra færu til Vestmannaeyja
verið tekin.
arbankanum heimild til viðskipta
með gjaldeyri og má í raun segja,
að þá hafi verið brotið blað í sög-
unni. Þá var ljóst að fleiri myndu
fylgja í kjölfarið," sagði dr. Jó-
hannes Nordal ennfremur.
„Við höfum hins vegar verið
þeirrar skoðunar, að ekki væri
rétt að fara mjög hratt í þessa
þróun, hreinlega af hagkvæmnis-
ástæðum. Það væri ekki rétt að
auka mjög á tilkostnað við veit-
ingu þessarar þjónustu. Stjórn
bankans mun síðan skoða málið í
Halldór sagði að ekkert gæti
komið í veg fyrir að skip þessi
kæmu til landsins, en hann væri
hins vegar þeirrar skoðunar að
ekki ætti að smíða fleiri skip eins
og ástandið væri. Hann kvað mik-
inn vanda fylgja nýjustu fiskiskip-
um og togurum flotans. Mikil van-
skil væru vegna þeirra og enginn
virtist telja sig bera ábyrgð á
þeim.
Tekur sæti
á Alþingi
STEFÁN Benediktsson, arkitekt,
tekur sæti Vilmundar Gylfasonar á
Alþingi. Stefán skipaði þriðja sætið á
lista Bandalags jafnaðarmanna við
síðustu alþingiskosningar.
Fyrsti varamaður verður nú í
stað Stefáns Jónína Leósdóttir,
sem skipaði fjórða sæti listans.
ljósi aðstæðna á næstunni," sagði
dr. Jóhannes Nordal.
Um þá ósk viðskiptaráðherra,
að taka rekstrar- og afurðalána-
kerfið til endurskoðunar, sagði dr.
Jóhannes Nordal, að það hafi lengi
verið skoðun seðlabankamanna,
að rétt væri að draga núverandi
kerfi saman. „Það fer hins vegar
ekki hjá því, að ýmis vandamál
eru því samfara og mun málið
verða kannað í ljósi þess á næst-
unni,“ sagði dr. Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, að síðustu.
Stórlaxar í Grímsá
„Grímsá opnaði þann 19. júní
og eftir tveggja daga veiði voru
komnir 22 laxar á land. í fyrra
var þetta ekki neitt á sama tíma,
en það sem vekur meiri athygli
nú er, að þetta er eingöngu mjög
vænn lax, meðalþunginn um 12
pund,“ sagði Friðrik D. Stefáns-
son framkvæmdastjóri Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur í sam-
tali við Mbl. í gær.
„Það er kominn einn 18 punda
á land, annar 17 punda, 15 punda
og margir 10—12 punda. Enginn
smálax enn sem komið er og
verður fróðlegt að sjá hvernig
framhaldið verður. Þetta hefur
mest veiðst á maðk, en þó tók 17
pundarinn lúru. Allur hefur lax-
inn veiðst í Laxfossi, Þingnes-
strengjum og Lambaklettsfljóti
og virðist lítið eða ekkert vera
komið af fiski þar fram fyrir enn
sem komið er,“ bætti Friðrik við.
Veitt er á 8 stangir í Grímsá
um þessar mundir og hefur hún
verið mjög vatnsmikil til þessa,
þó ekki skoluð. Þessi byrjun lof-
ar afar góðu, áin hefur verið afar
léleg síðustu árin og laxinn mjög
smár.
Norðurá full af fiski
„Norðurá er full af fiski fram
að Laxfossi, en veiðin hefur verið
sveiflótt þar sem áin hefur skol-
ast og hækkað mjög nokkrum
sinnum og verið þá illveiðandi.
Síðasti veiðihópurinn náði 51
laxi, en hópurinn sem veiddi frá
12,—15. júní náði 58 löxum sem
er það mesta til þessa. Alls eru
komnir um 150 laxar úr Norð-
urá, sem er prýðisgott miðað við
hversu seint laxinn gekk að
þessu sinni," sagði Friðrik hjá
SVFR í gær.
Friðrik gat þess einnig að lax-
inn væri ekki alveg eins vænn og
í Grímsá, meðalþunginn væri
líklega um 8—9 pund og stærstu
laxarnir 15 punda. f gærmorgun
komu 14 laxar á land. Þá hefur
mikið sést af fiski í Munaðar-
nesi, en þar mun vera vandhitt á
hann. Þó nokkuð hefur veiðst á
flugu í Norðurá, en megnið þó á
þann slímuga.
Reytingur í Elliðaánum
Friðrik gat þess einnig, að um
síðustu helgi hafi verið komnir
um 50 laxar á land úr Elliðaán-
um, en þær opnuðu 10. júní. Hef-
ur verið reytingsafli, 3—6 laxar
á dag að meðaltali, allt frá því að
veiðin hófst og framan af komu
nokkrir vænir á land. Enginn
náði þó þeim stærsta, sem sást
spóka sig bæði fyrir neðan og
ofan gömlu brúna. Var hann tal-
inn með því stærsta sem sést í
Elliðaánum, kannski 20 pund. í
gærkvöldi voru komnir 60 laxar
á land og talsverður lax að
ganga.
Lítið úr Langá
Mbl. vantar nýjar tölur úr
Langá, en hún opnaði 15. júní.
Lítið kom á land í byrjun og um
helgina höfðu aðeins örfáir laxar
veiðst á neðstu svæðunum, ekk-
ert að því er Mbl. hafði fregnað
af efri svæðum, þó hafði sést
fiskur á efsta svæðinu. Áin er
vatnsmikil.
- gg
Málið verður skoðað
í ljósi aðstæðna nú
— segir dr. Jóhannes Nordal um ósk viðskiptaráðherra um heimild
til handa bönkum og sparisjóðum til gjaldeyrisviðskipta