Morgunblaðið - 22.06.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
5
* Wlj 1 **»» \
r \T r irt; c fV
Morgunblaðið/GuJjón.
Prestar ganga hempuklæddir til guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Fremst á myndinni eru séra Flóki Kristinsson og
séra Solveig Lára Guðmundsdóttir. Þau voru nýlega vígð prestsvígslu.
Frá guðsþjónustunni í Dómkirkjunni í gær. Séra Hjalti Guðmundsson
dómkirkjuprestur og séra Agnes M. Sigurðardóttir æskulýðsfulltrúi ann-
ast altarisþjónustu.
Þorri presta sækir prestastefnu
PRESTÁSTEFNA íslands 1983 var sett í hátíðarsal Háskólans í gær með
ávarpi biskups íslands, herra Péturs Sigurgeirssonar. Umræðuefni
prestastefnunnar nú, er hinn lúterski arfur í kirkju nútímans. Prestast-
efnunni lýkur á fimmtudag, en hana sækja prestar hvaðanæva af landinu.
Prestastefna íslands hófst í
gærmorgun með því, að prestar
víðs vegar af landinu gengu
hempuklæddir til guðsþjónustu í
Dómkirkjunni. Séra Þorleifur K.
Kristmundsson predikaði, en
altarisþjónustu önnuðust séra
Ólafur Skúlason dómprófastur,
séra Agnes M. Sigurðardóttir
æskulýðsfulltrúi og dómkirkju-
prestarnir séra Þórir Stephen-
sen og séra Hjalti Guðmunds-
son.
Prestastefnan var síðan sett í
hátíðarsal Háskóla íslands með
ávarpi biskups íslands, herra
Péturs Sigurgeirssonar, en hann
flutti einnig yfirlitsræðu. Þá
ávarpaði Jón Helgason kirkju-
málaráðherra viðstadda. Séra
Gunnar Björnsson og séra Örn
Friðriksson léku á selló og píanó,
en einnig söng karlakórinn Vest-
urbræður frá Seattle. Að loknu
kaffihléi voru fluttar framsögu-
ræður um hinn lúterska arf í
kirkju nútímans. Séra Jónas
Gíslason dósent ræddi um sið-
bótarmanninn Martein Lúther,
en séra Þorbergur Kristjánsson
um stöðu kirkjunnar í þjóðfélag-
inu og séra Þorbjörn Hlynur
Árnason um kenningu lútersku
kirkjunnar og hinn almenna
prestdóm.
Prestastefna íslands 1983
stendur fram á fimmtudag. í dag
munu umræðuhópar fjalla um
málefni hennar og framsögu-
menn hópanna skila áliti. Þá
mun Lúthers-nefnd kirkjunnar
kynna ýmislegt er verður á
dagskrá hennar á Lúthers-ári,
en 10. nóvember nk. munu 500 ár
verða liðin frá fæðingu Marteins
Lúthers í bænum Eisleben í
Mansfeld-sýslu í Þýskalandi. Á
morgun, fimmtudag, mun um-
ræðum verða haldið áfram, en
prestastefnunni lýkur með
greinargerð, fyrirspurnum og al-
mennri umræðu.
Prestastefnuna sækja allir
þjónandi sóknarprestar, auk
presta er gegna öðrum embætt-
um innan kirkjunnar og guð-
fræðingar í sérembættum innan
hennar. Þá mega allir guðfræð-
ingar sækja stefnuna, sem hald-
in er árlega — nú síðast á Hólum
i Hjaltadal.
Skákmótið í Júgóslavíu:
íslendingun-
um gengur vel
FIMM íslenzkir skákmenn tefla nú á sterku alþjóðlegu skákmóti í borginni
Bela Crkva í Júgóslavíu. Um 200 skákmenn taka þátt í mótinu, þar af 10
stórmeistarar og 15 alþjóðlegir meistarar. íslenzku skákmönnunum hefur
gengið vel. •
Að loknum fjórum umferðum
eru þrír þeirra í efsta sæti ásamt
nokkrum öðrum með 3‘á vinning
af 4 mögulegum, þeir Jóhann
Hjartarson, Karl Þorsteins og Jón
L. Árnason.
Margeir Pétursson hefur hlotið
3 vinninga og Elvar Guðmundsson
Sauðburði lokið
á Barðaströnd
Bardaströnd, 15. júní.
SAUÐBURÐI er lokið og gekk hann
vel þó tíðin væri frekar slæm. Bændur
voru yfirleitt heybirgir.
Grásleppuvertíð er í fullum gangi
og virðist vera nokkur veiði, en tíðin
ekki nógu hagstæð svo illa gefur á
sjó. Á land munu komnar um 500
tunnur af 14 bátum. Hrefnuveiðin er
hafin og búið að veiða nokkrar
hrefnur, sem eru unnar í Flóka hf.
— SJÞ.
sömuleiðis. I þriðju umferð vann
Jón L. Árnason júgóslavneska
stórmeistarann Sahovic og Mar-
geir Pétursson gerði jafntefli við
stórmeistarann Velimirovic eftir
að hafa lengst af haft undirtökin.
f fjórðu umferð gerðu Karl Þor-
steins og Jóhann Hjartarson jafn-
tefli í innbyrðis skák þeirra, Elvar
Guðmundsson vann alþjóðlega
meistarann Benhádi frá Alsír, Jón
L. gerði jafntefli við alþjóðlega
meistarann Murshed frá Bangla-
desh og Margeir gerði jafntefli við
stórmeistarann Vukic frá
Júgóslavíu. Telfdar verða 13 um-
ferðir.
Þeim Jóni L. Árnasyni og Mar-
geiri Péturssyni hefur verið boðið
að taka þátt í skákmóti i Belgrad.
Jón L. hefur þekkst boðið en
Margeir heldur til Noregs, þar
sem hann tekur þátt í tveimur
skákmótum.
Hjörtur Kristmundsson,
skólastjóri, látinn
HJÖRTUR Kristmundsson, fyrnim
skólastjóri, lést í Reykjavík 17. júní.
Hann var fæddur 1. febrúar árið
1907 í Skjaldfannadal í N-ísafjarð-
arsýslu.
Hann lauk kennaraprófi árið
1935, en hafði áður sótt námskeið í
íþróttum innanlands og utan.
Hjörtur var kennari við Laugar-
nesskólann í Reykjavík frá 1935 til
1955. Það ár varð hann skólastjóri
við Háagerðisskóla og síðar
Breiðagerðisskóla í Reykjavík.
Hann starfaði að félagsmálum
kennara og var meðal annars for-
maður Stéttarfélags barna-
kennara. Hjörtur skrifaði mikið af
greinum í blöð og tímarit.
Eftirlifandi kona hans er Ein-
ara A. Jónsdóttir.