Morgunblaðið - 22.06.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
7
Innilegt þakklœti til allra er minntust mín á áttræöis-
afmæli mínu með heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Sérstaklega þakka ég Elliheimilinu Gmnd og starfsfólk-
inu þar.
Guð blessi ykkur öll.
Lilja Jónsdóttir.
Öllum þeim sem glöddu mig í tilefni 80 ára afmœlis
míns 3. júní sl., sendi ég innilegar kveðjur og hjartans
þakkir.
HALLDÓRA FRIÐRIKSDÓTTIR
frá Efri-Hólum.
Bestu þakkir færi ég þeim er glöddu mig á 80 ára
afmæli mínu U. júní.
Ásgrímur Sigurðsson,
Elliheimili Siglufjarðar.
Metsölubhd á hvetjum degi!
Ford Transit
á gamla genginu
Eigum einn tollafgreiddan Ford Transit Diesel-
sendibíl fyrirliggjandi. Bíllinn er meö hliöarglugg-
um og sætum fyrir 12. Verö kr. 499.000,-
Til atvinnubílstjóra kr. 362.000,-
„Þróunarein-
kenni eru
nokkuð ljós“
Ingvar Gíslason, þing-
maAur Framsóknarflokks,
segir m.a. í Tímagreininni í
gær: „Fylgistap Framsókn-
arflokksins síðastlióin 12
ír — með hliðsjón af stöðu
flokksins 1963 og 1967 —
er almennt einkenni á
flokknum og á sér sam-
svörun í kjördæmum. Fylgi
Framsóknarflokksins í ein-
stökum kjördæmum fer yf-
irleitt minnkandi, eða
staðnar þegar best lætur.
I*ótt fjarri sé að tapið skipt-
ist jafnt á kjördæmi breytir
það ekki miklu í þessu
sambandi. Þróunarein-
kenni eru nokkuð Ijós,
Framsóknarflokkurinn
hefur yfirleitt tapað fylgi í
öllum kjördæmum meira
eða minna. I’að kann að
vera eitthvað mismunandi
eftir kjördæmura á hvaða
ári fylgistapið ríður einkum
yfir á þessu 12 ára bili, en
allt ber að sama brunni um
meginþróun fylgisins, það
hefur sigið niður á við
meira eða minna alls stað-
ar í landinu."
„Fylgið í
Reykjanes-
kjördæmi er
hálfhrunið“
Og Ingvar Gíslason,
nýstaðinn upp úr ráðherra-
stóli, heldur áfram: „Á ár-
unum milli 1960—70, þ.e.
eftir kjördæmabreytinguna
1959, efldist Framsóknar-
fiokkurinn víða í þéttbýli
og hélt vel hlut sínum í
dreifbýli. Flokkurinn hafði
á þessum árum 2 þing-
menn í Reykjavík og ör-
uggt þingsæti í Reykja-
neskjördæmi. Nú er þetta
að snúast við. Fylgið í
Reykjaneskjördæmi er
hálfhrunið, þrátt fyrir sí-
fellda endurnýjun fram-
boðslistans, og Reykjavík-
urfylgið hefur látið á sjá.
Mjög er nú tekið að saxast
á þá yfirburðaaðstöðu, sem
ajLi
Niðurtalningin
Ingvar Gíslason, fyrrverandi ráöherra,
fjallar í Tímagrein í gær um vegferð
Framsóknarflokksins noröur og niður.
Hann spyr sjálfan sig: „Vex fylgi flokks-
ins, stendur það í stað eða fer það
minnkandi?“ „Ég nefni hér nokkrar tölu-
legar staðreyndir,” segir hann í eigin
svari:
„1963 28,2% 19 þingmenn
1967 28,1% 18 þingmenn
1971 25,3% 17 þingmenn
1974 24,9% 17 þingmenn
1978 16,9% 12 þingmenn
1979 25,0% 17 þingmenn
1983 19,0% 14 þingmenn
Þetta lauslega heildaryfirlit yfir stöðu
Framsóknarflokksins í 20 ár sýnir að
staöan hefur fariö versnandi. Frá því að
hafa 28,8% 1963 hefur heildarfylgið
minnkað í 19% 1983. Frá því aö hafa 19
þingmenn hefur hann nú 14.“
flokkurinn hafði löngum í
dreifbýliskjördæmum, t.d.
á Austurlandi, þar sem
flokkurinn hlaut eitt sinn
57% af atkvæðamagni, en
hefur nú um 37%. Ég sé
ekki betur en að Fram-
sóknarflokkurinn eigi und-
ir högg að sækja, bæði í
dreifbýli og þéttbýli. Þetta
er alvarlegt mál, en að
þessari niðurstöðu hef ég
komist með því að virða
fyrir mér atkvæðatölur
fiokksins síðustu 20 ár.
Þetta eru staðreyndir.“
Að standa upp
með reisn
Ekki verður sagt að
Ingvar Gíslason standi upp
úr ráðherrastól með reisn,
þegar þessi „svanasöngur"
er lesinn. Hann hefur
bókstafiega allt á hornum
sér. Lítum á nokkur bolla-
brot úr grein hans:
• 1) „Langvarandi
óskapnaður efnahagslífs-
ins, verðbólgu- og gengis-
lækkunarpólitík, hefur
gengið nærri Framsóknar-
flokknum...“
• 2) „Endurtekin von-
brigði um lausn efnahags-
mála hafa sett mark sitt á
Framsóknarf1okkinn.“
• 3) „Framsóknarfiokk-
urinn hefur verið að tapa
fylgi í landinu sl. 12 ár.
Flokkurinn fer minnkandi.
Tapið kemur fram svo að
segja í ölhim kjördæmum
og nær til þéttbýlis og
dreifbýlis."
Var Ingvar Gíslason
ekki einn þeirra forystu-
manna flokks síns, sem
sáði til þeirrar uppskeru, er
hann nú fjallar um, eins og
sá er kemur af fjöllum
ofan? Var hann ekki einn
af hönnuðum herlegheit-
anna? Eða svaf hann
máske af sér ráðherraver-
tíðina, er nú er að baki?
Og hver er síðan niður-
staðan í naflaskoðuninni?
„Hins vegar held ég að
það sé löngu tímabært að
hinir vitrari menn í flokkn-
um, fólk á öllum aldri,
konur og karlar, hyggi nán-
ar að orsökum hinnar
óhagstæðu fylgisþróunar
flokksins síðustu 10—12 ár
eða þar um bil. Hvaða öfl
eru þar að verki?“
Ekki leikur vafi á að
ráðherrann fyrrverandi tel-
ur sig til „hinna vitrari
manna", þrátt fyrir allL
Hitt vefst máske fyrir ýms-
um, hvað hann á við með
spurningunni, sem grein
hans lýkur á: „Hvaða öfl
eru þar að verki?“
Sveinn Egilsson
Skeifan 17, sími 85100
HITAMÆLAR
SíMolMtygiiyKí1
Vesturgötu 16,
sími 13280.
Hress
a morgnana
Þreyttur
á kvöldin
Eigum geysilega gott úrval af góö-
um, sterkum og fallegum furu-
rúmum.
Greiösluskilmálar í 6—8 mánuði.
HAGSÝNN VELUR ÞAÐ BESTA
HÚS&AGNAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410