Morgunblaðið - 22.06.1983, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Enn árásir skæru
liða í Nicaragua
Managua, Nicaragua, 21. júní. AP.
SKÆRULIÐAR, sem hafa aðsetur sitt skammt handan landamæranna á m
Nicaragua og Uondúras, brugðu sér yfir þau í gær og gerðu árás á bú<
verkamanna, sem vinna við gerð þjóðvegar í Nicaragua. Sprengdu þeir í loft u
meira en 30 vinnuvélar af sovéskri gerð. Ekkert manntjón varð í árásinni.
Þá var frá því skýrt í Moskvu í
dag, að sendinefnd Nicaragua-
manna undir forystu Bayardo Arce
Castano hefði komið til landsins til
viðræðna í boði sovéska kommún-
istaflokksins.
Verkamannabúðirnar, sem
skæruliðarnir réðust á, eru um 2(
kílómetra norður af Managui
skammt innan landamærann;
Vegurinn, sem verið er að vinna a<
á að bæta samgöngur á milli aust
urhluta landsins og annarra lands
hluta.
Belgar gefa grænt
ljós til bráðabirgða
Luxembor|>, 21. júní. AP.
LEO Tindemans, utanríkisráðherra Belgíu, skýrði frá því í dag, að ríkisstjórn
sín hefði undirritað samkomulag við Bandaríkjamenn um hugsanlega staðsetn-
ingu 48 meðaldrægra eldflauga í landinu. Geta frumathuganir hafist á þessu ári.
Samkomulag þetta er ekki nýtt af nálinni, sagt nokkurra mánaða gamalt, en
ekki var frá því skýrt opinberlega fyrr en nú.
Tindemans ítrekaði, að um end-
anlegt samþykki belgísku stjórnar-
innar fyrir staðsetningu eldflaug-
anna 48 væri ekki að ræða. Þegar
hafa farið fram kannanir á vegum
stjórnarinnar hver væri heppi-
legasta staðsetning flauganna ef
endanlegt samþykki yrði ofan á.
Hefur helst komið til álita að koma
þeim fyrir við herflugvöllinn í Flor-
ennes.
Fimmtíu milljóna
krafist fyrir meiðyrði
('hicago, 21. júní. AP.
HÖFÐAÐ hefur verið skaðabótamál
á hcndur bandaríska blaöamannin-
um Seymor Hersh fyrir meiðyrði.
Hersh þessi, sem m.a. hefur hlotið
Ihilitzer-verðlaunin og er eftirsóttur
fyrir fréttamennskustörf sín, heldur
því fram í bók, sem hann hefur ritað,
að Morarji Desai, fyrrum forsætis-
ráðherra Indlands, hafi verið á
launaskrá bandarísku leyniþjónust-
unnar.
Lögfræðingurinn Mahendra
Mehta, sem höfðar málið fyrir
hönd skjólstæðings síns, sagði, að
í bók Hersh, „Gjöld valdabarátt-
unnar: Kissinger í Hvíta húsi Nix-
ons“, væri ranglega farið með
staðreyndir varðandi Desai og ill-
kvittnislegar upplýsingar gefnar.
Þá sagði einnig í ákærunni, að
Desai væri borið á brýn glæpsam-
legt athæfi gagnvart þjóð sinni.
Hefur lögfræðingurinn farið
fram á 50 milljónir dala í skaða-
bætur fyrir hönd Desai. Hersh
sagðist í gærkvöld ekki geta tjáð
sig um málið, þar sem hann hefði
enn ekki séð ákæruskjalið.
ÁHÖFNIN um borð í Challenger. Aftari röð frá vinstri: John M. Fabian, Norman E. Thagard. Sitjandi frá vinstri:
Sally K. Ride, Robert L. Crippen og Frederick H. Hauck.
Rólegur dagur geim-
faranna í Cnallenger
Kanaveralhöfóa, 21. júní. AP.
GEIMFERÐ Challenger gengur að
óskum og í dag var farangurs-
geymslu skipsins snúið, þannig að
hún sneri út í skuggann eftir aö hún
hafði hitnað mjög í ferðinni. Ferðin
er nú hálfnuð, en þegar hafa verið
hafnar æfingar vegna fyrirhugaðrar
lendingar geimskipsins.
Dagurinn í dag var óvenjuróleg-
ur af degi í geimfari að vera.
Rannsóknarstörf héldu áfram eins
og ákveðið hafði verið en dagurinn
fór að mestu í að undirbúa „ást-
arfund" geimferjunnar og v-þýsks
gervitungls á morgun, miðviku-
dag.
Soyétmanni vísað frá
Japan sökum njósna
Tókíó, 21. júní. AP.
SOVÉSKUR embættismaður hefur
verið beðinn um að yfirgefa Japan
þar sem hann er grunaður um að
hafa stundað njósnir í japönsku
tölvufyrirtæki, að því er segir í til-
kynningu utanríkisráðuneytisins.
Arkadii A. Vinogradov, aðalrit-
ari í sovéska sendiráðinu fór frá
Japan á sunnudag eftir að hafa
verið ákærður fyrir að hafa átt
þátt í iðnaðarnjósnum árið 1978,
að því er segir í tilkynningu yfir-
valda.
Lögreglurannsókn leiddi í ljós,
að Vinogradov og verkfræðingur
nokkur, sem einungis er kallaður
B.N. Kakorin, hafi reynt að afla
sér tækniþekkingar frá stóru
tölvufyrirtæki í nánd við Tókíó.
Fyrirtækið var ekki nafngreint.
Þessi brottvísun kemur í kjölfar
75 annarra á sovéskum embættis-
mönnum, fréttamönnum og versl-
unarmönnum frá 13 öðrum lönd-
um sakir njósna frá því í janúar
1982. Frönsk stjórnvöld vísuðu 47
sovéskum embættismönnum frá
Frakklandi og breska stjórnin
skipaði sjö Sovétmönnum að verða
á brott úr Bretlandi.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins lagði áherslu á að þessi brott-
vísun væri ekki í neinum tengslum
við brottvísanir frá öðrum lönd-
um.
Samskipti Japana og Sovét-
manna hafa ekki verið upp á það
besta að undanförnu og koma þar
einkum til deilur um landsvæði og
gagnrýni stjórnvalda í Kreml á
stefnu Yasuhiro Nakasone, for-
sætisráðherra, í varnarmálum.
Sú staðreynd, að Vinogrov var
ekki beinlínis vísað úr landi held-
ur beðinn um að yfirgefa það, þyk-
ir benda til þess, að stjórnvöld í
Japan hætti ekki á neitt í sam-
skiptum sínum við Sovétmenn.
Öryggisráðstefna
Evrópu:
Sovétmenn
hafna
tillögu
Spánverja
Madrid, 21. júní. AP.
SOVÉTMENN höfnuðu í dag tillögu
Spánverja sem var sett fram til að
reyna að koma málum úr sjálfheldu
á öryggisráðstefnu Evrópu, sem stað-
ið hefur í 31 mánuð.
Yfirmaður sovésku sendinefnd-
arinnar, Anatoli Kovaliov, til-
kynnti samstarfsmönnum sínum á
ráðstefnunni að Sovétmenn hefðu
hafnað „sérhverri tillögu ríkja
Atlantshafsbandalagsins".
— og nú er Ómar Ragnarsson
í opnuviðtali.
Meðal annars efnis:
• Hvað um útilegu?
• „Stefni að íslandsmetinu"
— rætt við Knstján Harðarson
• Þróun svifdrekaflugs
• Galtalsekjarskógur
Nýtt tölublað
Æskunnar er komid!
Weinberger sæk-
ir Thatcher heim
Lundúnum, 21. júní. AP.
CASPAR Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
kom í dag til Lundúna til tveggja
daga viðræðna við Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Breta. Auk viðræðna við forsæt-
isráðherrann mun Weinberger
hitta kollega sinn, Michael
Heseltine, að máli.
Gálgafrestur
Glistrup á enda
Dómur verður í dag kveðinn
upp í máli þingmannsins Mogens
Glistrup. Allt þykir benda til þess
að hæstiréttur staðfesti dóm yfir-
réttar, en hann var á þá ieið að
Glistrup fengi fjögurra ára fang-
elsisdóm, auk fjögurra milljóna
danskra króna sektar.
Málaferlin yfir Glistrup
hafa staðið í mörg ár og er
honum borið á brýn að hafa
farið á bak við lög um hlutafé-
lög til þess að geta svikið und-
an skatti.
Friskt blað, forvitnilegt
I spennandi
Askrifendasími 17336
Tveir látnir { framsæti bifreiðar eftir að grímuklæddir vopnaðir menn réðust
á bifreið þeirra í hafnarborginni Trípólí í síðastliðinni viku.
Enn harðir bar-
dagar í Trípólí
Beirút, 21. júní. AP.
MIKLIR bardagar brutust út í hafnarborginni Trípólí í dag og sprengja sprakk
á þjóðveginum suður af Beirút. Yfirmaður ísraelska herliðsins á þessum slóðum
sagði engin slys hafa orðið á mönnum í sprengingunni, en hins vegar hefðu
a.m.k. tíu manns slasast í bardögunum í Trípólí.
Utvarpsstöðin „Rödd Líbanon" hluta Líbanon og í framhaldi af því
sagði að sex manns hefðu látið lífið
í bardögunum og níu slasast.
Útvarpsstöð líbanska ríkisins til-
kynnti í dag, að Sýrlendingar hefðu
lokað aðalþjóðveginum til norður-
sagði í fréttum útvarpsstöðvarinn-
ar „Rödd Líbanon", að Sýrlendingar
hefðu handtekið meira en 100
manns í bæjum á sömu slóðum.
Leiðtogi kommúnista
í íran tekinn af lífi
Lundúnum, 21. júní. AP.
LEIÐTOGI kommúnista í íran, dr.
Nureddin Kianuri, 75 ára að aldri,
hefur verið tekinn af lífi að því er
óstaðfestar fregnir frá Teheran
herma. Skýrt var frá þessu í breska
blaðinu Daily Telegraph í dag.
Að sögn blaðsins fór aftakan
fram í gær, en ekki var hægt að fá
það staðfest eftir öruggum heimild-
um. Ekki er óalgengt í íran, að
nokkrir dagar líði frá aftöku þar til
skýrt er frá henni opinberlega.
Kianuri var aðalritari íranska
kommúnistaflokksins, sem bannað-
ur var með lögum eftir að Khomeini
komst til valda. Kianuri hafði setið
í fangelsi frá því í febrúar. Hann
kom fram í sjónvarpi í apríllok, þar
sem hann játaði á sig njósnir í þágu
Sovétmanna.
Af útliti hans í sjónvarpinu að
dæma töldu vinir hans, að hann
hefði verið látinn sæta hörðum
pyntingum tii þess að knýja fram
játningu. Um 1500 meðlimir komm-
únistaflokksins hafa verið hand-
teknir frá því Khomeini komst til
valda. Alls taldi flokkurinn um
10.000 meðlimi fyrir byltinguna.