Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Mismunandi viðbrögð fjölmiðla í A- og V-Evrópu vegna ferðar páfa:
Ymist alger þögn eða
uppsláttur á forsíðum
Lundúnum og Varsjá, 21. júní. AP.
FJÖLMIÐLA í Evrópu greindi á um það í dag hvort sú beiðni Jóhannesar
Páls páfa II, aö samningavidræður yrðu teknar upp á milli pólskra
stjórnvalda og verkamanna um stofnun nýrra frjálsra verkalýðsfélaga,
bæri árangur.
Blöð í Evrópu slógu því upp í
dag með stóru letri, að páfi hefði
nefnt nafn Samstöðu í ræðu
sinni í gær. Á hinn bóginn hefur
verið lítið um fréttir af för páfa
til Póllands í sovéskum fjölmiðl-
um. Þar hefur þögnin ráðið ríkj-
um ef undan er skilin örstutt
klausa um komu hans til Var-
sjár.
Þá hafa pólskir fjölmiðlar að-
eins komið broti af hinum hörðu
ummælum páfa í garð yfirvalda
til skila. Aðaláherslupunkturinn
hefur verið fundur páfa og Jaru-
zelskis. Hins vegar hefur góðu
rúmi verið eytt undir gagnrýni
stjórnvalda á vestræna fjölmiðla
fyrir umfjöllun þeirra á heim-
sókn trúarleiðtogans. Pólsk al-
þýða fær lítið að sjá af páfa í
sjónvarpi og kirkjuleiðtogar í
landinu hafa ítrekað lýst yfir
vonbrigðum sínum með umfjöll-
un fjölmiðlanna í landinu.
Þótt fjölmiðlarnir í Póllandi
birti ekki ræður páfa á alþýðan
þess kost að lesa þær í málgögn-
um kirkjunnar. Upplag blaða
kaþólsku kirkjunnar í Póllandi
er um 1,4 milljón og er þá allt
meðtalið. Ræðurnar fara þó ekki
óritskoðaðar í prentun og þegar
hafa borist fregnir af því að
„óæskilegum" setningum hafi
verið kippt út úr ræðum páfa.
ítölsk dagblöð hafa ekki getið
um ferð páfa í ritstjórnargrein-
um sínum til þessa, en hið
vinstrisinnaða blað í Róm, La
Republica, skýrði frá því í frétt
frá Varsjá, að hinar harðorðu
ræður páfa hefðu komið leiðtog-
um landsins í opna skjöldu.
Þá er þess að geta, að leiðtogar
Efnahagsbandalagsríkjanna tíu
lýstu yfir eindregnum stuðningi
sínum við Samstöðu að loknum
leiðtogafundi þeirra í Stuttgart
fyrir skemmstu. Sagði í sameig-
inlegri yfirlýsingu leiðtoga þjóð-
anna, að sterkar taugar lægju
frá þjóðum þeirra til Samstöðu.
Pólskir borgarar í Wroclaw flykktust saman til þess að hlýða á útiguðsþjónustu Jóhannesar Páls páfa i gær. Talið var að um ein milljón manns hefði
hlýtt á boðskapinn. Myndin sýnir hvar fólkið gerir V-merki með fíngrunum og fagnar páfa innilega. Símamynd AP
Friðarráðstefna sett í Prag:
Stefnt að útrýmingu allra
kjarnorkuvopna í heíminum
Prag, 21. júní. AP.
GIJSTAV Husak, forseti Tékkóslóv-
akíu, setti í morgun alþjóðlega frið-
arráðstefnu í Prag með þeim orðum
að Bandaríkjamenn ætluðu sýnilega
að ná undirtökunum í heiminum
með stuðningi öflugra kjarnorku-
vopna.
í ræðu sinni varaði Husak einn-
ig við fyrirhugaðri staðsetningu
bandarískra eldflauga í Vestur-
Evrópu og sagði að austantjalds-
ríkin sættu sig ekki þegjandi og
hljóðalaust við þær fyrirætlanir.
Indverjinn Romesh Chandra,
formaður Alþjóða friðarhreyf-
ingarinnar, tók í sama streng og
Husak og lét þess jafnframt getið
að stefnt skyldi að útrýmingu
kjarnorkuvopna hvar sem væri í
heiminum. Var það í eina skiptið í
upphafserindum ráðstefnunnar
sem vísað var til kjarnorkuvopna
Sovétmanna.
Að sögn Jean Corey, eins 175
fulltrúa Bandaríkjamanna á
ráðstefnunni, var upphafsræða
Husak ekki eins einlit og fyrir-
fram hafði verið ætlað. Corey
sagði ennfremur, að allir banda-
rísku fulltrúarnir væru andvígir
stjórninni, en undirstrikaði að
ráðstefnan væri ekki and-banda-
rísk.
Ráðstefnan er haldin undir yfir-
skriftinni „Heimsþing í þágu frið-
ar og lífs án kjarnorkuvopna"
virðist vera augljós þáttur í þeim
fyrirætlunum austantjaldsríkj-
anna að fá almenning á Vestur-
löndum í lið með sér í baráttunni
gegn kjarnorkuvopnum.
Ráðstefnu þessa í Prag sitja
2400 fulltrúar frá 140 löndum, þar
á meðal frá Bandaríkjunum,
Bretlandi, V-Þýskalandi og fleiri
NATO-ríkjum.
Þúsund kort og skeyti
á fyrsta afmælisdaginn
Lundúnum, 21. júní. AF.
Vilhjálmur prins, erf-
ingi þeirra Karls Bret-
aprins og Diönu, varð
eins árs gamall í dag.
Foreldrarnir voru ekki
heima til þess að halda
upp á áfangann með
snáða, en heilla-
óskakort og skeyti
streymdu að úr öllum
áttum, auk fjölda gjafa.
Þau Karl og Diana eru
nú um þessar mundir á
þriggja vikna ferðalagi
um Kanada.
Að sögn talsmanns
bresku konungsfjöl-
skyldunnar var von á
símtali frá foreldrun-
um á hverri stundu og
hirðfólkið hafði í nógu
að snúast. Meira en
eitt þúsund kort og
skeyti höfðu borist á
hádegi og um eitt
hundrað gjafir. Prins-
inn ungi mun þó ekki
njóta gjafanna nema
að litlu leyti því flest-
ar verða þær sendar á
góðgerðarstofnanir og
sjúkrahús.
Vilhjálmur prins
hefur dafnað vel á
sínu fyrsta ári í heimi
mannanna. Hann hef-
ur nú sjö tennur og
mikið og þykkt, ljóst
hár.
TÓLF
12 tískuverslanir
á höfuðborgarsvæðinu.
TIL DAGLEGRA NOTA
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
27/6
11/7
25/7
8/8
28/6
12/7
26/7
9/8
29/6
13/7
27/7
10/8
1/7
15/7
29/7
12/8
segir:
HULL/GOOLE:
Jan .........
Jan ..........
Jan .........
Jan .........
ROTTERDAM:
Jan .........
Jan .........
Jan .........
Jan .........
ANTWERPEN:
Jan .........
Jan .........
Jan .........
Jan .........
HAMBORG:
Jan .........
Jan .........
Jan .........
Jan .........
HELSINKI:
Helgafell ...... 15/7
Helgafell ....... 9/8
LARVIK:
Hvassafell ...... 4/7
Hvassafell ..... 18/7
Hvassafell ...... 1/8
GAUTABORG:
Hvassafell ...... 5/7
Hvassafell ..... 19/7
Hvassafell ...... 2/8
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ...... 6/7
Hvassafell ..... 20/7
Hvassafell ...... 3/8
SVENDBORG:
Hvassafell ..... 23/6
Dísarfell ...... 28/6
Hvassafell ...... 7/7
Dísarfell ...... 18/7
Helgafell ...... 21/7
ÁRHUS:
Hvassafell ..... 23/6
Dísarfell ...... 28/6
Hvassafell ...... 7/7
Dísarfell ...... 18/7
Helgafell ...... 21/7
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell ..... 19/7
Jökulfell ...... 28/7
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ..... 23/6
Skaftafell ..... 21/7
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101