Morgunblaðið - 22.06.1983, Blaðsíða 17
i
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
17
Frú Vigdís Finnbogadóttir gróðursetti þrjár hríslur í Barmahlíö meö aöstoö tveggja ungra
drengja.
Færð var erfið upp brekkuna frá Börmum.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu, Stefán Skarphéðinsson, tekur á móti forsetanum í Gilsfirði.
Ferð forsetans um
Vestfírði hafín
tekts og Ingibjargar Árnadóttur
ritstjóra Hjúkrunarblaðsins.
Bærinn er upphaflega smíðaður
1929, en var endurnýjaður á ár-
unum 1971 til 1974, og þá var
jafnframt plantað þar 11 hundr-
uð hríslum í tilefni 11 hundruð
ára íslandsbyggðar. Dvaldist
forsetanum nokkuð við að skoða
bæinn og útsýnið frá honum, en
út af bænum er eyjan Hrísey og
hólmar og sker, sem einu nafni
nefnast Barmalönd. Þar hafa
undanfarin ár orpið ernir og er
nú vitað um fimm geldfugla þar.
Undan Börmum er einnig klett-
urinn Bjartmarssteinn, sem sag-
an segir að sé siglingamerki álfa.
Þar sást á sinni tíð skip sigla og
hverfa inn í klettinn.
Frá Börmum var haldið inn að
Reykhólum, þar sem þörunga-
vinnslan var skoðuð í fylgd
framkvæmdastjóra hennar,
Kristins Þórs Kristjánssonar, og
gaf forsetinn sig á tal við þá sem
voru í vinnslunni. Sýslunefnd
bauð til kaffisamsætis í barna-
skólanum, en þangað var haldið
næst. Mannfjöldi fagnaði forset-
anum við komuna, og það gerði
sólin einnig þegar hún braust
fram úr skýjunum í fyrsta skipti
í ferðinni. Þar ávörpuðu forset-
ann Jens Guðmundsson kennari
á Reykhólum og Valdimar
Hreiðarsson prestur á Reykhól-
um, og Bjargey Arnórsdóttir
flutti frumort kvæði.
Frá Reykhólum var ekið inn
að Stað, en þangað er um hálfrar
klukkustundar akstur frá
Reykhólum. Þar beið flóabátur-
inn Baldur forsetans. Baldur
hafði fyrr um morguninn tekið
grásleppuhrogn í Brjánslæk, en
var það sem eftir var dagsins í
þjónustu forsetans og flutti
hana og fylgdarlið til Flateyjar
og síðan til Brjánslækjar. Á
Baldri er sjö manna áhöfn, en
skipstjóri er Jón Dalbú Ágústs-
son.
Til Flateyjar er tveggja tíma
sigling og var lagst þar að
bryggju korter fyrir sjö. Með í
förinni var Hafsteinn Guð-
mundsson oddviti í Flatey.
Mannfjöldi víða úr eyjunum tók
á móti forsetanum á bryggjunni.
Tíu mínútna gangur er inn til
þorpsins og þar var boðið upp á
hressingu í gömlu loftskeyta-
stöðinni, sem nú er samkomuhús
í Flatey. Þar flutti Eysteinn
Gislason bóndi í Skáleyjum
ávarp, en síðan var gengið til
kirkju.
Frá Flatey hélt forsetinn til
Brjánslækjar og þaðan til Flóka-
lundar, þar sem sýslunefnd
Vestur-Barðastrandarsýslu stóð
fyrir borðhaldi. Gist verður í
Flókalundi en á morgun klukkan
hálf níu heldur forsetinn og
fylgdarlið ferðinni áfram og
verður farið að Látrum og
snæddur hádegisverður í Fagra-
hvammi í boði Rauðsendinga.
Síðar um daginn mun forsetinn
opna minjasafnið að Hnjóti og
heimsækja Sauðlauksdal. Um
kvöldverðarleytið verður komið
til Patreksfjarðar.
Flókalundi, 21. júní. Frá blm. Mbl., Hjálmari
FIMM daga heimsókn forseta ts-
lands, Vigdísar Finnbogadóttur, til
Vestfjarða hófst á hádegi í dag
með því að sýslumaður Barða-
strandarsýslu, Stefán Skarphéðins-
son, ásamt sýslunefnd Austur-
Barðastrandarsýslu tók á móti for-
setanum á sýslumörkum Barða-
strandar- og Dalasýslu í Gilsfirði.
heimsókninni lýkur nk., sunnudag
á ísafirði og mun forsetinn þá hafa
farið um fiest byggðarlög Vest-
fjarðakjálkans, nema Stranda-
sýslu, en hana hefur hún heimsótt
áður.
Úr Gilsfirði var ekið til Bjark-
arlundar þar sem hádegisverður
var snæddur, heilagfiski og heil-
agfiskisúpa, með sveitarstjórn-
arfólki i austursýslunni. Nokkur
mannfjöldi var mættur til að
fagna forsetanum. Stefán
Skarphéðinsson sýslumaður
bauð forsetann velkominn og
þakkaði frú Vigdís fyrir sig. Að
loknum hádegisverði var ekið
inn að Barmahlíð, en um hana er
kvæði Jóns Thoroddsen „Hlíðin
mín fríða" kveðið. Þar gróður-
setti forsetinn þrjár birkihrísl-
ur, eina fyrir uppvaxandi drengi,
eina fyrir uppvaxandi stúlkur og
eina fyrir ófæddar kynslóðir.
Fékk hún tvo unga drengi til að
aðstoða sig við gróðursetning-
una.
Að henni lokinni var bærinn
Barmar skoðaður, en þar hefur
gömlum bæjarhúsum verið hald-
ið við og þau gerð upp. í þeim er
búið yfir sumartímann og skoð-
aði forsetinn bæinn í fylgd eig-
endanna Jóns ólafssonar arki-
'
-\
K
- ■
XV*
v
L*
?
'
Frú Vigdís skoðaði þörungavinnsluna á Reykhólum síðdegis f gær og er myndin tekin við það tækifæri. Má sjá Vigdísi tilsýndar að ganga til fundar við
verkafólkið.