Morgunblaðið - 22.06.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
19
Matthías Bjarnason heilbrigð-
isráðherra tók því næst til máls og
kvað hann uppbyggingu í heil-
brigðismálum þjóðarinnar hafa
verið hraða og miklum áfanga náð
í þeim málum. Matthías óskaði
svo öllum þeim sem á spítalanum
starfa og dvelja til hamingju með
þennan áfanga og vonaði að bless-
un fylgdi þeim húsakynnum.
B-álman er samtals 6.914,7 fer-
metrar og er fyrirhugað að á
jarðhæð hússins verði lyfjaversl-
un, birgðarými, þvottamiðstöð og
aðstaða fyrir hluta tæknideildar.
Á fyrstu hæð verður svo aðstaða
fyrir sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun
til bráðabirgða, uns byggt verður
yfir þá starfsemi annars staðar.
Matsalur og bókasafn eru einnig
fyrirhuguð á 1. hæð. Sjúkradeildir
verða svo á 2.-7. hæð og verða 29
rúm á hverri hæð, alls 174 rúm.
í samtali við Mbl. sagði Páll
Gíslason, formaður stjórnar
sjúkrastofnana Reykjavíkurborg-
ar, að 1976 hefði verið samið við
ríkið um framkvæmdir og árið eft-
ir hefðu undirstöður verið byggð-
ar, en 1978 hefði nýkosin borgar-
stjórn frestað öllum framkvæmd-
um í tvö ár. Árið 1980 hefði svo
verið hafist handa á ný og á þessu
ári yrðu opnaðar tvær deildir,
þjónustudeild yrði opnuð á næsta
ári, 1985, og ’86 yrðu tvær deildir
teknar í notkun á hvoru ári.
Inntaka á deildir í B-álmunni
sagði Páll að yrði í samráði við
þjónustumiðstöð aldraðra og yrðu
teknir jöfnum höndum sjúklingar
af heimilum og spítölum, sem
þyrftu langvarandi endurhæfingu.
Á þessum öldrunarlækningadeild-
um yrði reynt að bæta heilsu
sjúklinganna þannig, að einhverj-
ir gætu dvalið heima hjá sér í
lengri eða skemmri tíma.
Einn aðalliður í starfi fyrir
aldraða á vegum borgarinnar
sagði Páll að væri heimilishjálp og
-hjúkrun og sérstakar stofnanir
með leiguíbúðum og væntanlega
söluíbúðum með sérstökum þjón-
ustukjarna, og að þær geti starfað
saman að velferð hinna öldruðu
þannig að hver fái nauðsynlega
aðstoð á þeim tíma sem hann þarf
á henni að halda. Auk þess bæri
þeim að skapa traust og öryggi
fyrir aldraða svo að þeir viti að
þeir fái þá hjálp sem þeir þurfa á
að halda.
Jónsmessuvaka
við Norræna húsið
SAMTÖK vinafélaga Norðurlanda á
íslandi efna til norrænnar hátíðar —
Jónsmessuvöku — fimmtudaginn
23. júní kl. 20.00 á lóð Norræna
hússins og er það í annað sinn sem
slík hátíð er haldin af þessum aðil-
um.
Jónsmessustöng verður reist að
sænskum sið, kveiktur Jónsmessu-
eldur og margt gert til skemmtun-
ar, dans, tónlist og söngur.
Rætt um bygging-
arsamvinnu-
félag leigjenda
Leigjendasamtökin halda aðal-
fund sinn í kvöld, 22. júní, í Sóknar-
salnum, Freyjugötu 7, kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður rætt um stofnun
Byggingarsamvinnufélags og þau
mál sem slíkri framkvæmd fylgja.
Karp - leiðrétting
í GREIN dr. Odds Guðjónssonar
fyrrum sendiherra hér í blaðinu í
gær, „Karp í Moskvu um þjóðerni
Helga Tómassonar", varð sú mis-
ritun undir lok greinarinnar að
þar stendur ... og starfaði nú í
Danmörku. — Hér átti auðvitað
að standa: starfaði nú í Bandaríkj-
unum.
Hið evangelíska-lútherska kirkjufélag íslendinga í Vesturheimi var sam-
einað öðru kirkjufélagi fyrir um tuttugu árum, en nýlega hittust á íslandi sjö
prestar, sem þjónuðu kirkjufélaginu á sínum tíma. Þeir eru á myndinni: séra
Harald Sigmar, séra Ólafur Skúlason dómprófastur, séra Stefin Guttorms-
son, séra Jón Bjarman, séra Eric Sigmar, séra Bragi Friðriksson og séra
Hjalti Guðmundsson. Þessa mynd tók Guðjón, Ijósmyndari Mbl., er prest-
arnir þágu heimboð forseta íslands að lokinni guðsþjónustu í Bessastaða-
kirkju þar sem séra Eric Sigmar prcdikaði og kórinn Vesturbræður söng.
Norsk harmonikkuhljóm-
sveit á ferð um ísland
HINGAÐ til lands er komin norska
harmonikkuhljómsveitin „Senja
trekkspillklub" í boði harmonikku-
unnenda í Reykjavik, á Vesturlandi,
í Suður-Þingeyjarsýslu og á Akur-
eyri.
Ferðin hefst á Þingvallaheim-
sókn, en 23. júní fara Norðmenn-
irnir til Húsavíkur og halda tón-
leika í félagsheimilinu þar 25.
júní, en 27. júní halda þeir til Ak-
ureyrar, skoða staðinn og halda
tónleika. Því næst verður farið til
Borgarfjarðar og haldnir tónleik-
ar að Varmalandi 29. júní, en til
Reykjavíkur kemur hópurinn svo
og heldur tónleika í Ártúni 30.
júní og 2. júlí, en eftir konsertinn
verður að vanda efnt til dansleiks
fram eftir nóttu.
Hægt að hlusta
á samtöl áhafn-
ar Challenger
Símnotendur á íslandi, sem
áhuga hafa, geta hringt til Banda-
ríkjanna í síma 90 1 307 410 6272
og fylgst með samtölum áhafnar
bandarísku geimferjunnar „The
Challenger" við stjórnstöð, til nk.
föstudags 24. júní kl. 6.53 að
bandarískum tíma, sem er áætlað-
ur lendingartími geimferjunnar.
Hjartans þakkir færi ég öllum ættingjum mínum og
vinum sem glöddu mig med heimsóknum, gjöfum og
heiUaskeytum á sjötugsafmœli mínu.
Gud blessi ykkur öU.
Vnnur Björnsdóttir, Hrísey.
Við eigum eftirfarandi bfla fyrirliggjandi
SUZUKI ALTO 4ra dyra. Eyösla 5 I. pr. 100 km.
Val um beinskiptingu eöa sjálfskiptingu.
Verö frá kr. 192.000.-
SUZUKI FOX. Mest seldi jeppinn á Islandi 1982.
Eyösia 8—101. pr. 100 km.
Verö kr. 269.000,-
SUZUKI ALTO 2ja dyra. Eyösla 5 I. pr. 100 km. Val
um beinskiptingu eöa sjálfskiptingu.
Verö frá kr. 181.000.-
SUZUKI ALTO sendibíll. Eyösla 5 I. pr. 100 km.
Verö kr. 135.000,-
SUZUKI SJ410 Pick-up. Eyösla 8—10 I. pr. 100
km. Lengd á palli 1,55 m.
Vfirð kr. 213.000.-
MUNIÐ. aö samkvæmt úrslitum sparaksturs-
keppna síöustu ára eru Suzuki bílar þeir lang-
sparneytnustu á markaöinum.
SUZUKI ST90. Mest seldi sendibíllinn á íslandi
1981 og 1982. Eyösla 7—8 I. pr. 100 km. Lengd
hleðslurýmis 1,80 m. Buröarþol 550 kg.
Verö kr. 162.000,-