Morgunblaðið - 22.06.1983, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Námskeið í akstri
og meðferð bifreiða
ÖKUMENN á höfuðborgarsvædinu eiga þess kost að taka þátt i þjalfunar
námskeiði í akstri og meðferð bifreiða sem haldið verður 23. júní í húsakynn
•jm Bifreiðaeftirlits ríkisins í Dugguvogi 2 og hefst kl. 20.00.
Að námskeiðinu standa Bifreiðaeftirlit ríkisins, Tryggingarfélögin, Um
ferðarráð og Ökukennarafélag íslands en námskeiðið er liður í bættu um
ferðaröryggi á Norrænu umferðarári.
Námskeiðið hefst með því að óli
H. Þórðarson framkvæmdastjóri
Umferðarráðs setur námskeiðið.
Þá tekur til máls Jóhann Björns-
son forstjóri Ábyrgðar hf. og ræð-
ir um fébætur og tryggingar. Sig-
fús Sigurðsson deildarstjóri í
Iðnskólanum í Reykjavík fjallar
um meðferð bíla og viðhald með
tilliti til orkusparnaðar og end-
ingar. Að lokum spjalla Snorri
Bjarnason og Arnaldur Árnason
ökukennarar um akstur í bæjum
og á þjóðvegum.
Eftir hlé flytur Guðmundur
Þorsteinsson námstjóri í mennta-
málaráðuneytinu erindi sem nefn-
ist „Maðurinn við stýrið" en að því
loknu fer fram verkleg þjálfun
undir leiðsögn ökukennara frá
ökukennarafélagi íslands.
Myndir af nýstúdentum
HERRADEILD PÓ hefur nú endur- unarinnar á 17. júní. Að þessu sinni
vakið þann sið að stilla út myndum er það Ijósmyndarinn Jóhannes
af nýstúdentum í hornglugga verzl- Long, sem tekið hefur myndirnar.
Tvær Jónsmessuferðir
í TILEFNI Jónsmessunnar efnir
ferðafélagið Útivist til tveggja
ferða. Sú fyrri, Jónsmessuganga,
verður farin 23. júní kl. 20.00 og
verður gengið um Kjalarnesfjörur
og Esjuhlíðar undir leiðsögn
Tryggva Hansen. Eftir varðeld í
miðnætursólinni verður komið
heim um 1.00. Hin ferðin er Jóns-
messuhátíð á Snæfellsnesi og
verður farið frá Reykjavík kl.
20.00 að kvöldi 24. júní og gist í
félagsheimilinu Lýsuhóli. í ferð-
inni verður ýmislegt rifjað upp um
íslenska þjóðtrú og gengið á Mæli-
fell.
Ljósmynd Mbl./KEE.
Frá vinstri Hrafnhildur Schram listfræðingur, Ann Sandelin forstöðumaður Norræna hússins og Björg Þor-
steinsdóttir forstöðumaður Ásgrímssafns.
Norræna húsið:
Sumarsýning á fjörutíu
verkum Ásgríms Jónssonar
— bók um listamanninn væntanleg
í Norræna húsinu hefur verið
opnuð sýning á verkum Ásgríms
Jónssonar listmálara og mun hún
standa til 24. júlí. Fjörutíu verk
eru á sýningunni, olíumálverk,
vatnslitamyndir og teikningar, og
eru þau öll í eigu Ásgrímssafns.
Flestar myndanna eru unnar á
síðustu árum listamannsins en
hann lést 1958. Olíumyndirnar
eru nær allar frá Húsafelli í
Borgarfirði en Ásgrímur dvald-
ist þar langdvölum. Málaði hann
fyrst þar sumarið 1915 og síðast
árið 1953.
Verk á sýninguna voru valin
af Björgu Þorsteinsdóttur for-
stöðumanni Ásgrímssafns, Guð-
mundi Benediktssyni mynd-
höggvara og Hrafnhildi Schram
listfræðingi en hún sá einnig um
uppsetningu sýningarinnar.
I viðtali við Mbl. sagði Ann
Sandelin forstöðumaður Nor-
ræna hússins að sú hefð hefði
myndast í sumarstarfsemi Nor-
ræna hússins að standa fyrir
sýningu á verkum eins eða fleiri
íslenskra myndlistarmanna,
hefði nútíma list oftast orðið
fyrir valinu þar til núna.
Þetta er sjöunda sumarsýning
Norræna hússins og er hún ópin
daglega frá 14—19.
Væntanleg er bók um Ásgrím
Jónsson og verk hans. Það er
bókaforlagið Lögberg sem mun
gefa út bókina í samvinnu við
Ásgrímssafn. Hrafnhildur
Schram listfræðingur og Hjör-
leifur Sigurðsson listmáíari rita
um listamanninn og verk hans.
Bókin verður hin veglegasta,
prýdd fjölda litmynda svo og
svart-hvítum myndum af teikn-
ingum listamannsins og ljós-
myndum af Ásgrími og samtíð-
arfólki hans.
Undirbúningur að bókinni er
hafinn og kemur hún væntan-
lega út á næsta ári.
í tengslum við bókaútgáfuna
verða leituð uppi verk Ásgríms
til skrásetningar og ljósmyndun-
ar og verða allar upplýsingar
sem aflast varðveittar í Ás-
grímssafni.
Þeir sem eiga verk eftir Ás-
grím Jónsson eru vinsamlega
beðnir að gefa sig fram við
gæslufólk sýningarinnar, sem nú
stendur yfir í Norræna húsinu.
Mun síðan verða haft við þá
samband. Sýningarsalurinn er
opinn frá 14—19 daglega, sími
þar er 28520. Allar upplýsingar
eru vel þegnar og geta komið Ás-
grímssafni og útgáfu bókarinnar
að ómetanlegum notum.
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð 15 ára:
Fjölbreytt dagskrá um helgina
verk eftir Mist Þorkelsdóttur
fyrir flautu og lágfiðlu og einnig
kom fram strengjasveit sem
skipuð var bæði fyrrverandi og
núverandi kórfélögum. Þá kom
Guðmundur Arnlaugsson einnig
fram á þessari skemmtun og
rifjaði hann upp sögu kórsins og
sagði ferðasögur frá ferðalögum
hans.
í dag hefst svo enn eitt ferða-
lag kórsins og verður farið að
þessu sinni til Noregs og Sví-
þjóðar. í kvöld verður kórinn
með tónleika í Niðaróskirkju, en
þaðan fer hann svo til Norður-
Svíþjóðar í boði Riks Konserter
en tónleikaferðin um Svíþjóð
verður mjög ströng og verður
tónleikahald á hverjum degi.
Meðal annars kemur kórinn
fram á tónlistarhátíð við Öster
Sund, en þar munu einnig koma
fram þau Manuela Wiesler og
Þorkell Sigurbjörnsson. Þá verð-
ur einnig á þessari tónlistarhá-
tíð hópur úr íslensku hljóm-
sveitinni.
Að lokinni þessari tónlistar-
hátíð verður kórinn með tónleika
í Karlstad og verður þeim út-
varpað beint um Svíþjóð.
Tónleikarnir sem kórinn flyt-
ur verða fjórtán og verða þeir
síðustu í nágrenni Stokkhólms.
Áætlað er að kórinn komi heim
þann 10. júlí.
Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð hélt upp á 15 ára af-
mæli sitt um helgina. Afmælis-
dagskráin hófst kl. 17 á laugar-
daginn en þá hélt kórinn tón-
leika í Miklagarði, hátíðarsal
skólans. Á efnisskránni, sem á
voru einungis íslensk lög, voru
m.a. verk sem samin hafa verið
sérstaklega fyrir kórinn, en á
undanförnum 13 árum hafa
mörg verk verið samin fyrir
hann.
Um kvöldið, kl. 20, hófst síðan
samæfing allra þeirra sem í
kórnum hafa verið frá upphafi
hans. Hátt í hundrað manns
tóku þátt í þessari samæfingu,
en á skrá kórsins eru um 500.
Eins og gefur að skilja hefur
þessi stóri hópur manna, sem í
kórnum hefur starfað, dreifst út
um allt land eða til annarra
landa, og eins hafa menn átt
misjafnlega heimangengt. Sam-
æfingin stóð yfir í tvo og hálfan
tíma og að henni lokinni var lok-
aður dansleikur fyrir kórfélaga
og maka þeirra.
Á sunnudeginum hófst afmæl-
isdagskráin kl. 14 í Háteigs-
kirkju með hátíðarmessu þar
sem kórinn sá um allan tónlist-
arflutning ásamt Herði Áskels-
syni organleikara en hann hefur
oft starfað með kórnum. Hr. Sig-
urbjörn Einarsson, biskup, pre-
dikaði. Að lokinni messu bauð
kórinn upp á afmæliskaffi í MH
og gengu kórfélagar þar um
beina.
Skemmtidagskránni lauk svo
um kvöldið með tónlistar-
skemmtun sem samanstóð af
allskonar atriðum. Meðal þess
sem gerðist var að frumflutt var
Frá samæfingu kórsins á laugardag þar sem bæði fyrrverandi og núverandi meðlimir kórsins komu saman og æfðu undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur.