Morgunblaðið - 22.06.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNl 1983
23
Einarsgarðurinn á Skólavöröuholti. Vel sést hið raikla rask sera á sér stað á
meðan verið er að gera garðinn aðgengilegri gestum og gangandi og færa
safnið Út. Morgunblaðið/RAX.
Rannveig Asgeirs-
dóttir —
Mánudaginn 13. júní 1983 dó að
Hrafnistu hér í Reykjavík Rann-
veig Ásgeirsdóttir, sem lengi bjó
að Látrum í Aðalvík ásamt manni
sínum, Friðrik Magnússyni út-
vegsbónda þar.
Rannveig fæddist að Eiði í
Hestfirði við Isafjarðadjúp 4. júlí
1893. Hún kom ung stúlka að Látr-
um sem ráðskona til Friðriks, sem
síðan varð maður hennar.
Rannveig var þriðja kona Frið-
riks, en hann hafði áður misst
tvær fyrri konur sínar í blóma
lífsins frá ungum börnum. Rann-
veig tók því við stóru og umsvifa-
miklu heimili og ungum börnum
frá fyrri hjónaböndum mannsins,
svo og sjómönnum sem voru há-
setar á báti Friðriks. Einnig var
algengt að skólabörnum annars-
staðar úr Sléttuhreppi, þar sem
skólahald var ekki, væri komið
fyrir hjá Rannveigu og Friðrik á
skólatímabilinu.
Af þessu má sjá að mikið hefur
verið að gera og mörgu í að snúast
hjá húsmóðurinni ungu í Nesinu
að Látrum.
Minning
Ég gat ekki á mér setið, er ég
frétti lát Rannveigar, að biðja son
minn um að skrifa fyrir mig
nokkrar línur um hana þar sem
hún var mér svo minnisstæð frá
æskuárum mínum. Rannveig var
komin til Látra áður en ég man
eftir mér. Það var nú svo, að for-
eldrar mínir bjuggu í næsta húsi
við hjónin í Nesi og var samgang-
ur þar mikill í milli.
Ég og Aðalheiður systir mín
komum oft í Nes og tók Rannveig
okkur með afbrigðum vel og mér
hefur þótt vænt um þá framkomu
hennar við okkur systur sem börn
síðan. Margan bitann og sopann
gaf hún Rannveig okkur, og fyrir
það vil ég þakka, en leiðir skilja að
sinni.
Rannveig og þau hjónin voru
mér ekki aðeins góð á meðan ég
var barn heldur allan þann tíma
sem við vorum nágrannar í Aðal-
vík.
Rannveig og Friðrik eignuðust
einn son, Gunnar Friðriksson,
framkvæmdastjóra í Reykjavík og
fyrrverandi forseta Slysavarnafé-
lags íslands í fjölda ára.
Hjá þeim hjónum ólust upp tvö
fósturbörn. Magnúsína Valdi-
marsdóttir, bróðurdóttir Rann-
veigar, en hún missti föður sinn og
síðan móður sína er hún var barn
að aldri, og Jason Rósa Árnason,
sem býr hér í Reykjavík.
Ég hefði vilja segja margt fleira
um velgerðarkonu mína, Rann-
veigu, en læt hér staðar numið.
Ég sendi syni hennar og öðrum
ættingjum mínar bestu samúð-
arkveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurlaug Friðriksdóttir,
frá Látrum.
Einarsgarðurinn
á Skólavörðuholti
í nýjan búning
— 23 höggmyndir settar upp
í sumar og garðurinn opnaður
MIKIÐ umrót á sér nú stað í hinum stóra og fagra garði við safn Einars
Jónssonar myndhöggvara á Skólavörðuholti, en verið er að framkvæma
miklar breytingar á garðinum og á næstu vikum verða settar þar upp 23
höggmyndir Einars úr eir. Um langt árabil hefur garðurinn verið lokaður
almenningi, en nú er ætlunin að opna garðinn og eru breytingarnar gerðar
með það fyrir augum. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Kvaran forstöðumanns
Listasafns Einars Jónssonar er ráðgert að verkinu verði lokið í ágústmánuði.
Reynir Vilhjálmsson landslags-
arkitekt hefur teiknað breyt-
ingarnar á garðinum og er nú
unnið að því að leggja hitalagnir í
garðinn, stéttir, gangstíga og
stöpla undir höggmyndir, en jafn-
framt verður garðurinn raf-
væddur með sérstakri lýsingu.
Tvær höggmyndir eru fyrir í
garðinum og 23 eirafsteypur af
ýmsum stærðum eru tilbúnar til
uppsetningar, en þær hafa verið
steyptar í eir á undanförnum ár-
um í Bretlandi.
Fyrst um sinn verður garðurinn
opinn á sama tima og safnið og
verður gengið inn í garðinn í gegn-
um safnhúsið, en ráðgert að hafa
opnunartíma garðsins lengri í
framtíðinni, enda er garðurinn
mjög skjólsæll og fagur og verður
einn af dýrgripum Reykjavíkur
undir berum himni þegar allar
höggmyndirnar verða komnar
upp. Hin nýja skipulagning á Ein-
arsgarðinum gerir ráð fyrir því að
höggmyndum fjölgi eftir því sem
gengur að fá afsteypur í eir, en
inni í safnhúsi Einars eru aðallega
sýndar gipsmyndir listamannsins.
-íj-
í BÍÓHÖLLINNI eru nú hafnar sýningar á myndinni „Merry Christmas Mr.
Lawrence". Leikstjóri er Nagisa Óshima og er þetta fyrsta mynd hans frá þvf
hann leikstýrði „Á valdi tilfinninganna" 1978. Aðalhlutverkin eru í höndum
David Bowie, Tom Conti, Riuishi Sakamoto og Beat Takeshi.
Myndin, sem gerð er eftir sögu Laurens van der Post, „The Seed and tbe
Sower“ fjallar um tvo undirofursta í breska hernum og veru þeirra í fanga-
búðum Japana í Indónesíu árið 1942.
srigum
skreffid
til fulls
og bjóðum nýja og ennþá
fullkomnari
framleiðsluábyrgö
í kjölfar frábærrar reynslu af tvöfaldri límingu
einangrunarglers hefur Glerborg nú ákveðið að
taka ísetningu með í framleiðsluábyrgðina. í
þeim undantekningartilfellum sem samsetning-
argalli kemur fram gerum við þvf meira en að
útvega nýtt gler. Við ökum þvf beint á staðinn,
setjum rúðuna f og fjarlægjum þá gömlu - við-
skiptavininum algerlegaað kostnaðarlausu.
Og hjá okkur þarf enginn að hafa áhyggjur
þótt hann glati reikningum eða kvittunum eftir
öll þessi ár - ábyrgðin er eftir sem áður f fullu
gildi þvf tölvan okkar man allt um einangrunar-
glerið mörg ár aftur f tfmann.
Oft reynist fsetning mun dýrari en rúðan sjálf.
Hér er þvi loks komin örugg og fullkomin fram-
leiðsluábyrgð sem undirstrikar ótvfræða yfir-
burði tvöfaldrar límingar einangrunarlgers.
Tefldu ekki í tvísýnu
tvöfalda límingin margfaldar
öryggið, endinguna og ábyrgðina
Kynntu þér nýju ábyrgðarskilmálana okkar
GLERBORG HF.
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI53333