Morgunblaðið - 22.06.1983, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Mikill áhugi er fyrir sýningum stöðvarinnar og er greinilegt að koma þarf upp góðri aðstöðu til sýninga, bæði fyrir hesta og áhorfendur. Hér sést hluti
áhorfenda láta fara vel um sig í góða veðrinu.
Glæsileg sýning stóðhestastöðvarinnar:
Fjögurra vetra gamall foli
hlaut góð fyrstu verðlaun
Hestar
Valdimar Kristinsson
Um helgina var haldin í Gunn-
arsholti hin árlega sýning stóðhesta-
stöðvar Búnaðarfélags íslands á fol-
um stöðvarinnar. Einnig var ein-
staklingum á Suðurlandi gefinn
kostur á að sýna fola sem farið
höfðu í gegnum forskoðun fyrir
skömmu. Alls voru sýndir tuttugu og
einn graðhestur og þar af sextán frá
stöðinni og af þeim átti stöðin sjö
fola. t tanaðkomandi folar voru
fimm. Mjög gott veður var meðan á
sýningunni stóð og skiptu áhorfend-
ur hundruðum. Fer þeim sífellt fjölg-
andi sem mæta á þessa árlegu sýn-
ingu og má fullyrða að aldrei hafi
verið jafn fjölmennt og nú. Er það
athyglisvert hversu vel var mætt, því
nokkrar íþróttadeildir hér sunnan-
lands voru með íþróttamót þennan
sama dag. Er greinilegt, að áhugi
fyrir starfsemi stöðvarinnar er mikill
meðal almennings. Tvær stórar rút-
ur, fullar af fólki, mættu á staðinn
auk þess sem margir komu á einka-
bflum.
Það var mál manna að sýningin
nú væri sú besta sem stöðin hefði
gengist fyrir frá upphafi, en vet-
urinn í vetur var sá tíundi sem
stöðin er starfrækt. Venjulega
hefur þessi sýning verið haldin
síðast í apríl, en var seinkað nú og
virðist það til mikilla bóta á allan
hátt, folarnir líta betur út og eru
meira tamdir auk þess sem veður
er að öllu jöfnu betra i maí en
apríl. Er vonandi að sýningu
stöðvarinnar verði valinn þessi
tími í framtíðinni.
Af þeim folum sem nú voru
sýndir, voru það einkum fjögurra
vetra folarnir sem athygli vöktu,
enda áður ósýndir og auk þess
margir þeirra mjög efnilegir.
Ætla má af sjónhendingu einni að
af þessum folum sem nú komu
fram, sé stærri hluti framtíðar-
hestar en áður hefur verið á þess-
um sýningum. Nú nýverið voru
folarnir dæmdir af kynbótanefnd
stöðvarinnar og hlutu tveir af
þeim fyrstu verðlaun, þeir Adam
frá Meðalfelli, undan Hrafni 802
og Vordísi 4726 frá Meðalfelli.
Hinn er Hrani frá Hrafnkelsstöð-
um, undan Kolbaki 730 og Vindu
3294. Adam er aðeins fjögurra
vetra og þykir mjög efnilegur,
enda hlaut hann í einkunn fyrir
byggingu 7,90 og fyrir hæfileika
8,35 og meðaleinkunn 8,13. Hrani
er aftur á móti sjö vetra, en hefur
aldrei náð að komast í dóm fyrr en
Adam frá Meðalfelli er ein bjartasta vonin af þeim folum sem á stöðinni eru.
Strax í fyrra voru bundnar miklar vonir við hann og hefur hann staðið undir
þeim og gott betur. Þessi efnilegi hestur verður til afnota fyrir almenning að
Meðalfelli í Kjós til 15. júní nk. Eftir það verður hann notaður af Hrossa-
ræktarsambandi Suðurlands fyrir félagsmenn. ijósmyndir Vaidímar Krútiiumn.
nú, en því hafa valdið slys og
óhöpp þegar átt hefur að sýna
hann. Hrani fékk 7,93 fyrir bygg-
ingu og 8,15 fyrir hæfileika og
meðaleinkunn 8,04.
Of langt yrði, ef telja ætti upp
alla þá fola sem sýndir voru, en
rétt er þó að geta nokkurra yngri
folanna sem telja má álitlega: Við-
ar frá Viðvík var alveg við það að
ná fyrstu verðlaunum, fékk 7,86
fyrir byggingu og 8,07 fyrir hæfi-
leika og 7,97 í meðaleinkunn.
Einnig mætti nefna Blakk frá
Reykjum, en bæði hann og Viðar
eru undan Hrafni 802. Blakkur
vann sér það meðal annars til
ágætis að fá 8,5 fyrir skeið, sem
verður að teljast gott hjá fjögurra
vetra fola. Fyrir byggingu fékk
hann 7,88 og 7,97 fyrir hæfileika,
eða 7,93 í meðaleinkunn. Snældu-
Blesi frá Árgerði, einnig undan
Hrafni 802 og Snældu 4154, en hún
stóð efst af hryssum sex vetra og
eldri á Landsmótinu 1978, vakti
nokkra eftirtekt og er greinilega
þar á ferðinni mikið efni, þótt ekki
hlyti hann háar einkunnir nú, en
hann mun hafa slasast í vetur og
misst rúman mánuð úr tamningu.
Fyrir byggingu hlaut hann 7,83,
hæfileika 7,67 og meðaleinkunn
7,75.
Ekki er neinum blöðum um það
að fletta, að þessi sýning endur-
speglar velheppnaðan vetur hjá
þeim á stóðhestastöðinni, bæði
hvað varðar fóðrun og tamningu.
Tamningamenn stöðvarinnar, þeir
Páll B. Pálsson og Gísli Gíslason,
hafa greinilega gert góða hluti í
vetur, og fóðurmeistarinn Jón
Jónsson, virðist kunna sitt fag.
Það sem helst er aðfinnsluvert er
hirðing hófa. Mætti í því sam-
bandi varpa fram þeirri spurn-
ingu, hvort ekki sé eðlilegt og
sjálfsagt að fá faglærðan járn-
ingamann til að annast allar járn-
ingar og snyrtingu hófa á folum
stöðvarinnar?
Af þeim utanstöðvarfolum sem
þarna voru sýndir, var einn þeirra
mjög álitlegur. Var það Draupnir
frá Hvolsvelli, en hann er undan
Þætti 722 og Lútus frá Miðsitju.
Draupnir er að vísu sjö vetra gam-
all, en þess má geta að hann var
taminn nú fyrst í vetur. f einkunn
hlaut hann 7,88 fyrir byggingu og
7,92 fyrir hæfileika, eða 7,90 í
meðaleinkunn. Fyrir dyrum stend-
ur að selja þennan hest utan, þar
sem ekki hefur fengist kaupandi
hérlendis.
Að lokinni sýningu voru seldar
veitingar í mötuneyti Landgræðsl-
unnar og síðan farið í hesthús og
ungfolar teymdir út eins og venja
hefur verið. VK
Skuggi frá Bjarnastöóum undan Fáfni 747 og Nös 3010, knapi
er Páll Pálsson.
Hestur númer eitt á stóðhestastöðinni, Glaður 852 frá Reykj- Hrani frá Hrafnkelsstöðum hlaut fyrstu verðlaun.
um.
Flugar frá Torfastöðum undan Þætti 722 og Flugsvinn 4260.
Knapi er Gísli Gíslason. Hlaut í einkunn 7,93.
Draupnir frá Hvolsvelli. Knapi er Þorvaldur Ágústsson, sem
jafnframt er eigandi.
Djákni frá Kirkjubæ undan Sikli frá Kirkjubæ og Gríði frá
sama stað. Glæsilegur og hágengur töltari. Hlaut í einkunn
7,73.
mm' ii ■ ”*<**■■