Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
27
Hjörtur Olafs-
son - Minning
Fæddur 3. október 1918.
Dáinn 13. júní 1983.
Hann Hjörtur var fljótur að öllu
sem hann gerði og jafn skyndilegt
var fráfall hans. Hann mætti til
starfa á mánudegi, hress að
vanda. Engan grunaði, þegar hann
kvaddi að loknum vinnudegi, að
það væri í síðasta sinn. Að kvöldi
var hann allur. Góður drengur
hafði kvatt þennan heim.
Þegar einn okkar nánasti sam-
starfsmaður, sem siðastliðin 16 ár
hefur verið örugg stoð á vinnustað
er svo skyndilega horfinn úr okkar
daglega lífi setur mann hljóðan.
Við, sem eftir lifum, erum ræki-
lega minnt á hve oft dauðinn getur
verið skammt undan. Við, sem
þekktum Hjört ólafsson, vissum
raunar að hann var einn þeirra
manna sem ekki þurfa á slíkri
áminningu að halda.
Á unglingsárum mínum, þegar
ég var að hefja störf við bygginga-
vinnu, var þessi glaði maður
sveipaður þeim ævintýraljóma,
sem aldrei eltist af honum. Hann
var þá nýkominn frá Brasilíu og
sigldi um heimsins höf. Seinna
lágu leiðir okkar saman þegar
hann tók að sér byggingarstjórn
við Ármúlaskóla 1967, síðan við
Minning:
Halldóra Helga
Valdemarsdóttir
Fædd 9. maí 1930.
Dáin 8. júní 1983.
Með söknuði og döprum hug
langar mig að minnast vinkonu
minnar Halldóru, sem fyrir aldur
fram er horfin héðan. Engum datt
í hug er hún fór á spítalann að svo
stutt væri eftir. Hún lést á Borg-
arspítalanum 8. júní sl. eftir að-
eins 3 vikna legu þar. Halldóra
fæddist á Raufarhöfn 9. maí 1930
og ólst þar upp. Foreldrar hennar
voru Valdemar Guðmundsson og
Rósa Önundardóttir. Móður sína
missti hún ung að árum og þurfti
því snemma að standa á eigin fót-
um. Við kynntumst er við hófum
nám í Ljósmæðraskólanum haust-
ið 1949. Halldóra var létt í lund og
hrókur alls fagnaðar og áttum við
margar skemmtilegar stundir á
skólaárinu og síðar. Árið 1950
giftist hún Guðmundi Halldórs-
syni, bifreiðastjóra í Reykjavík.
Þau byrjuðu búskap á Raufarhöfn
þar sem Halldóra hóf sín ljósmóð-
urstörf. Síðan fluttu þau til
Reykjavíkur og reistu sér hús að
Langagerði 6. Þau eignuðust 6
börn. Halldóra vann alltaf með
heimilinu. Hún var afskaplega
dugleg. Það var sama hvað hún
Jfe / JL
gerði, allt lék í höndum hennar.
Hún var mikil hannyrðakona og
eru margir fallegir munir til eftir
hana. Halldóra mátti ekkert aumt
sjá, alltaf var hún boðin og búin
til hjálpar þeim sem við erfiðleika
áttu að stríða.
Ég bið Guð að blessa minningu
hennar og veita huggun og styrk
eiginmanni, börnum, föður og öðr-
um ástvinum. Ég votta þeim mína
dýpstu samúð.
Helga Jóhannesdóttir.
+
Hjartans þakkir til allra sem sýndu mór samúö og vinarhug viö
andlát og útför systur minnar,
ÖNNU HALLDÓRSDÓTTUR,
Efstasundi 9.
Guöni Halldórsson.
t
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför mágkonu minnar og
frænku,
SIGURLAUGAR SOFFÍU INGIBJARGAR SVEINSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á Elliheimilinu Grund,
sem veittu henni kærleiksríka umönnun. „ „
Fyrir hönd ættingja, foMía Svainsdóttir,
Ásta Snorradóttir.
Skrifstofur okkar veröa
lokaðar
e.h. miövikudaginn 22. júní vegna jarðarfarar Hjartar
Ólafssonar.
Aseta sf.
Skrifstofur okkar og trésmíöaverkstæöi veröa
lokuð
e.h. miövikudaginn 22. júní vegna jaröarfarar Hjartar
Ólafssonar.
Ármannsfell hf.
Fellaskóla og fleiri stórbyggingar,
þar sem hann var aðalverkstjóri.
Hjörtur var vinsæll með af-
brigðum meðal samstarfsmanna
sinna og naut trausts og virðingar
allra sem hann átti samskipti við.
Sem dæmi má nefna að við bygg-
ingu Fellaskóla var Hjörtur um-
svifalaust samþykktur sem stjórn-
andi verksins af borgaryfirvöld-
um, enda þótt Bergþór bróðir hans
væri ráðinn aðaleftirlitsmaður
með verkinu af Reykjavíkurborg.
Mun slíkt vera einsdæmi og sýnir
vel trúmennsku og samviskusemi
Hjartar.
Þeir menn, sem alltaf horfa á
björtu hliðarnar í lífinu, ætíð til-
búnir til þess að lyfta öðrum með
spaugsyrði á vör og smitandi
hlátri sínum, jafnframt því að
gera meiri kröfur til sjálfs sín en
annara verða oftast hamingju-
menn.
Ég hygg að Hjörtur hafi verið
hamingjumaður. Ein hans mesta
hamingja var án efa konan, sem
hann giftist fyrir 27 árum, Þor-
björg Þórðardóttir. Umhyggjan
sem þau báru hvort fyrir öðru
sýndi það betur en nokkur orð.
Þau hjónin eignuðust fjögur börn,
allt hið mesta efnisfólk, og barna-
börnin voru orðin tvö. Þau sjá nú á
bak góðum fjölskylduföður og vini
og sendi ég þeim mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Hjörtur ólafsson náði ekki að
verða gamall maður. Er hann
hvarf á braut var hann í fullu
starfi, þó hann hefði átt við veik-
indi að striða á undanförnum ár-
um.
Síðustu samskipti okkar Hjart-
ar voru daginn sem hann lést.
Hann kom til mín til þess að ger-
ast þátttakandi í samtökum um
byggingu nýs húss tónlistarinnar.
Ég veit að tónlistin, sem var eitt
af hans fjölmörgu áhugamálum,
fylgir honum á nýju tilverusviði
og þar finna þeir hann aftur sem
honum unnu.
Ég þakka honum allar góðar
samverustundir.
Ármann Ö. Ármannsson
Auglýsinq
umfrest
á greiðslum
af verótryggöum
lánum
CIR BYGGINQARSJÓÐI VERKAMANNA
OG BYGGINGARSJÓÐI RÍKISINS
Samkvæmt bráðabyrgðalögum
nr. 57 frá 27. maí 1983
1. Frestunin nær til verðtryggðra lána, sem veitt hafa verið
einstaklingum úr Byggingarsjóði verkamanna frá 1. júlí
1980 og úr Byggingarsjóði ríkisins frá 1. júlí 1974.
2. Fresturinn nær til lána, sem gjaldfalla á tímabilinu
1. maí 1983 til 30. apríl 1984, að því tilskildu að um fulla
greiðslu á gjalddaga sé að ræða (þ.e. vextir, afborgun
og verðbætur).
3. Peirri fjárhæð, sem frestað er verður bætt við höfuðstól
lánsins og kemur til greiðslu að loknum lánstímanum.
Hún ber þá grunnvísitölu, sem í gildi var á þeim gjalddaga,
sem til þess var stofnað.
4. Sé um vanskil að ræða reiknast fullir dráttarvextir
af því sem gjaldféll að frádreginni þeirri ijárhæð sem frestað er.
5. Gjald fyrir breytingu láns verður reiknað samkvæmt
gjaldskrá fyrir innlánsstofnanir.
6. Peir lántakendur, sem óska eftir fresti, skulu afhenda
skriflega beiðni á þar til gerðu eyðublaði, sem afhent
er hjá veðdeild Landsbanka íslands, Reykjavík og hjá þeim
bönkum og sparisjóðum úti á landi, sem móttekið hafa
greiðslur af lánum Húsnæðisstofnunar ríkisins.
7. Frestun verður aðeins veitt innan þriggja mánaða frá
gjalddaga.
Reykjavík, 22. júní 1983
Húsnæðisstofnun
ríkisins