Morgunblaðið - 22.06.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Coimors:
Reynslan
mikilvæg
1982 var ár Jimmy Conn-
ors. Ollum á óvart sigraði
þessi þrítugi Bandaríkja-
maður — „Jimbo" — í annaö
skipti á ferli sínum á
Wimbledon, og lagði þar
með grunninn að því að
hann var á ný talinn sá besti
í tennis í heiminum. Hann
sigraði fyrst á Wimbledon
1974, en síðan tapaöi þessi
örvhenti leikmaöur tvívegis í
úrslitaleik keppninnar fyrir
Björn Borg. Nú er Connors
aftur talinn einn sá sigur-
stranglegasti á WimWedon.
• Bikartnn — verðlaunin I
karlaflokkí.
Tennisfólk
mótmælir
TUTTUGU fraegir tennisleikarar,
með John McEnroe í broddi fylk-
ingar, hafa afhent Alþjóöatennis-
sambandinu bráf þar sem þau
mótmæla banni því og fjársekt-
um sem Guillermo Vilas hlaut
fyrir skömmu.
Hann var dæmdur í eins árs
keppnisbann og háa sekt en hann
fékk einn mánuö til aö aölaga sig
þannig aö hann gat keppt á
Wimbledon. Margt frægt fólk skrif-
aöi undir þennan lista m.a. Noah,
Ivan Lendl og Wilander, en athygli
vakti aö nafn Connors var ekki á
listanum.
• John McEnroe var meðal
þeirra sem skrifuðu undir mót-
mælabréfið.
Wimbledon er meira en bara venjuleg keppni. Síð-
ustu hundrað árin hefur hún orðið goðsögn...
106 ára gömul
— og enn talin Mecca tennisheimsins
ENGIN önnur tenniskeppni líkist
All England-meistarakeppninni á
Wimbledon. í fyrradag hófst
Wimbledon-keppnin í London og
er þetta 106. árið í röð sem hún er
haldin. Þrátt fyrir háan aldur er
keppnin enn Mecca tennisheims-
ins — síung og laðar ætíö mikinn
fjölda tennisáhugamanna að sér.
Þaö er því skiljanlegt aö sér-
stakur Ijómi sé yfir sögunni um það
hvernig þessi keppni komst á lagg-
irnar. Ef viö trúum sögunni — var
þaö vegna nísku stofnenda All
England krokkett- og Lawn tenn-
is-klúbbsins aö þessi keppni allra
keppna komst á fót. Áriö 1877
vantaöi klúbbinn nýjan valtara á
grasvöll sinn, og þeir heldri menn
sem í klúbbnum voru komu meö
þá uppástungu aö halda tennismót
til aö fjármagna valtarann. Aö-
gangseyrir var eitt sterlingspund
(sem í dag eru 42 krónur).
Virðingarlaus
Bandaríkjamaöur
Þeir fengu þaö sem þeir vildu.
Og sigurvegarinn á mótinu varö 27
ára bandarískur námsmaöur —
Spencer Gore aö nafni: fyrsti
Wimbledon-meistarinn. En hann
varö nú ekkert yfir sig hrifinn af
þessu þrátt fyrir sigurinn. „Hund-
leiöinleg íþrótt" á hann aö hafa
sagt í hinu mesta viröingarleysi aö
mótinu loknu.
En Gore haföi á röngu aö
standa. í dag fylgjast milljónir
manna meö tennisíþróttinni um
allan heim, og þaö aö sigra á
Wimbledon (sem margir telja vera
heimsmeistarakeppnina í tennis)
þýöir ekki aöeins mikla peninga
fyrir þann besta (sigurvegarinn í
karlaflokki hlýtur 25.000 pund —
1.052.500 ísl. krónur) heldur ör-
uggt sæti i tennissögunni um alla
ókomna framtíö. Sigurvegarar
Wimbledon-keppninnar veröa
goðsagnir.
Og enginn þarf aö óttast aö þaö
veröi leiöinlegt á Wimbledon-
keppninni. Grasvöllurinn frægi sér
um þaö. Grasiö (sem er slegið
mjög nákvæmlega þannig aö
lengdin á þí er 4,7625 millimetrar)
en aöeins notaö í þessari einu
keppni — sem á þessu ári stendur
yfir frá 20. júní til 3. júlí. Engu aö
síöur gerir hann heimsins bestu
tennisleikurum lífiö heldur betur
leitt á árí hverju. í upphafi keppn-
innar, þegar grasiö er enn ilmandi
grænt og fallegt — er hættan á því
aö boltinn sé horfinn aftur fyrir
keppendur áöur en þeir ná til hans.
Og í lokin, þegar „Centre Court“ er
oröinn slitinn og drullubrúnn,
veröa keppendur aö hlaupa eins
og brjálaðir menn til aö ná í bolt-
ann þar sem hann fer svo hægt á
vellinum.
Einstök stemmning
En hvaöa keppendum finnst
ekki skemmtilegt aö þurfa einmitt
aö standa í slíku? Þaö er einstök
stemmning í sambandi viö allt
tengt Wimbledon-keppninni.
Höröustu áhangendurnir tjalda í
fleiri daga fyrir utan miðasöluna
áöur en hún opnar — til aö tryggja
sér miöa í keppnina. Svartamark-
aösbrask er auövitaö mikiö hér
eins og annars staöar — og ekki
er sjaldgæft aö verö á miöa fyrir
einn dag fari upp í 250 pund (rúm-
lega 10.000 ísl.kr.).
En meirihluti miöanna fá auövit-
aö hinir 400 meölimir klúbbsins.
En þaö er ekki auövelt aö gerast
meölimur — nema aö státa af
tvennu. Annaöhvort aö vera fædd-
ur inn í eina af þeim frægu fjöl-
skyldum sem í klúbbnum eru, eöa
þá aö þú náir aö sigra í mótinu. Þá
kemst þú sjálfkrafa inn í þennan
fræga hóp.
Forráðamenn Wimbledon-
keppninnar eru jafn sparsamir og
þeir voru 1877. Sigurvegarar fá
aöeins aö handleika verölauna-
gripi sina í stutta stund — bikarinn
sem sigurvegarinn í karlaflokki fær
og skjöldurinn sem sigurvegarinn
hjá kvenfólkinu fær — en síöan
eru gripirnir settir aftur í glerskáp-
ana í húsi klúbbsins.
• Centre Court é Wimbledon, þar sem úrelitaleiklr hafa farið fram allar götur síðan 1877 er keppnln hóf
göngu sína.
Ivan Lendl:
Ég get sigraó á grasi
Ivan Lendl, 23 ára Tékki, er í
dag talinn besti tennisleikari ver-
aldar. Hann vann í Masters-
keppninni 1982 og 1983. Lendl
segir: „Ef þú vilt vera númer eitt í
heiminum verður þú að hafa spil-
aö á Wimbledon. Þessi keppni er
sú langmikilvægasta af öllum —
þannig að ekki er nema eðlilegt
að draumur allra tennisleikara sé
að sigra í henni.
Margir halda því fram aö ég geti
ekki leikiö á grasi en þaö er ekki
satt. Ég vann unglingakeppnina á
Wimbledon, en mitt vandamál er
aö ég stend mig ætíö betur á hörö-
um völlum. Ég stend mig einnig vel
á leikvöllum og aö undanskildum
þessum tveimur vikum á Wlmble-
ton leíkum viö allt áriö á slíkum
völlum — og þess vegna er þaö
mjög erfitt og í þaö fer mikill tími
og kraftur aö venjast grasinu.
En ég vona aö þaö veröi þess
viröi. Ég vona aö ég detti ekki út í
fyrstu umferöinni eins og fyrir
tveimur árum, því aö þaö tók ég
mjög nærri mér.
I augnablikinu er ég númer eitt á
listanum yfir tennisleikara — ég
hef tvívegis sigraöi í Masters-
keppninni, og sigraö alla aöra
bestu spilara í heimi a.m.k. einu
sinni. Margir vilja örugglega halda
því fram aö þetta sé nóg: hvaö
meira getur þessi maöur viljaö? En
margir benda aftur á móti á, rétti-
lega aö mínu mati, aö þó ég hafi
veriö sigursæll, hafi ég aldrei sigr-
aö í neinu af fjórum stærstu mót-
unum: Wimbledon, Paris, Flushing
Meadow og Melbourne. Þessu
ætla ég aö breyta, og þess vegna
tek ég þátt í öllum fjórum keppn-
unum á þessu ári.
Aö sjálfsögöu yröi þaö stór-
kostlegt ef mér tækist aö sigra á
Wimbledon. Ekkert vildi ég frekar.
Þaö er sérstakt andrúmsloft á
Wimbledon — ööruvísi en á
nokkru ööru móti. Nafnið „Mecca
tennisheimsins'1 segir allt sem
segja þarf þar um.“
NavratWova:
Talin
ósigrandí
Martina Navratilova er án
efa besta tenniskonan í
heiminum í dag. í fyrra vann
hún keppni í einliðaleik
kvenna á Wimbledon í þriöja
skiptið. Þessi 26 ára gamla
örvhenta kempa frá Prag —
sem nú er amerískur ríkis-
borgari — hefur verið önnur
af þeim tveimur bestu í
heiminum frá því 1978. Það
verður örugglega erfitt fyrir
andstæðinga hennar að
sigra hana í Wimbledon-
keppninni nú sem endra-
nær.
• Bkjötdurinn — verðlaunin
f kvennaflokki.
Litvinov
með nýtt
heimsmet
SERGEI Litvinov setti í gær nýtt
heimsmet í sleggjukasti á móti í
Sovétríkjunum eftir því sem sov-
éska fréttastofan TASS skýröi
frá.
Sergei bætti sitt eigiö heimsmet
um 14 sentimetra — kastaöi 84,12
metra, en gamla metiö var 83,98
m. Það setti hann 4. júní 1982 í
Lezelidze í Sovétríkjunum.
Er völlurinn
ónýtur?
í ATHUGASEMD dómara í leik-
skýrslu eftir leik KR og ísafjaröar
í gærkvöldi stendur orörétt:
„Hallarflötin eitt forarsvað, ekki
boöleg til knattspyrnuleiks. Óli P.
Ólsen.“ Menn veltu því fyrir sér af
hverju leikurinn var látinn fara
fram á þessum stað í gærkvöldi
þegar aðrir vellir á svæðinu voru
í góðu ásigkomulagi.
— ÞR