Morgunblaðið - 22.06.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983 29
• Ingi Björn Albertsson náöi þeim frábæra áfanga um helgina aö
skora sitt 100. mark í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu — og reyndar
sitt 101. mark einnig, þar sem hann skoraöi tvívegis gegn KR. í tilefni
af þessu færöi Ólafur Schram, framkvæmdastjóri Adidas-umboösins,
Björgvín Schram hf., Inga Birni forláta æfingagalla og bolta frá Adidas,
svo og Adidas-knattspyrnuskó aó gjöf í fyrradag. Myndin er tekin er
ÓlafUr færir honum boltann. MorgunbUdié/Skapli H»llgrim»*on.
Barcelona hefur
áhuga á Pétri
SPÁNSKA liöið Barcelona hefur
nú mikinn áhuga á að fá körfu-
knattleiksmanninn Pétur Guö-
mundsson til liðs viö sig.
Maður frá liöinu hringdi hingaö
til lands á dögunum og ætlaöi aö
reyna aö hafa upp á símanúmeri
Péturs í Bandaríkjunum, en án
árangurs, þar sem Pétur er fluttur
og erfitt hefur veriö aö fá uppgefiö
nýja númeriö.
• Pétur Guómundsson
Pétur æfir nú af fullu meö Port-
land Trailblazers — og virtist sá
spánski vita um allt sem Pétur
haföi gert undanfariö. Aö hann
heföi leikiö hér á iandi í vetur, og
lék honum forvitni á aö vita hvern-
ig hann heföi staðið og í hvernig
formi hann væri nú.
Barcelona er mjög þekkt körfu-
knattleikslið — og meö sterkari í
Evrópu. En Pétur hefur sjálfur sagt
aö hann hafi mestan áhuga á því
aö leika meö Portland næsta vetur
og sé staöráðinn í því aö komast í
hópinn hjá liðinu. Tíminn veröur
auðvitaö að skera úr um hvort þaö
tekst hjá honum, en fróðlegt verö-
ur aö fylgjast meö framvindu
þessa Barcelona-máls.
— SH
Heimsmet í 200 m
skriðsundi
í GÆR var sett nýtt heimsmet í
200 m skriösundi á þýska meist-
aramótínu. Það var Þjóöverjinn
Michael Gross, sem er aðeins 19
ára gamall, sem synti á 1:48,28 en
eldra metiö, 1:48,93 átti banda-
ríkjamaðurinn Rowdy Gaines.
Gross er fyrsti V-Þjóðverjinn sem
setur heimsmet í sundi í sex ár
og var honum vel fagnað af rúm-
lega þúsund áhorfendum.
Mark eftir hálfa mínútu
Sl. laugardag léku Njarðvík-
ingar viö nágranna sína Víöi,
Garöi, á Njarðvíkurvelli, og sigr-
aöi Víðir 1:0.
Víöir lék undan strekkingsgolu í
fyrri hálfleik og hóf leikinn af mikl-
um krafti, og eftir 35 sekúndur lá
knötturinn í marki Njarövíkinga.
Eftir góöan samleik frá miöju, fékk
Vilberg Þorvaldsson knöttinn rétt
utan vítateigs, rakti hann einu sinni
á undan sér og sendi síöan knött-
inn í netiö meö þrumuskoti, óverj-
andi fyrir Ólaf markvörö Njarðvík-
inga. Eftir markiö skiptust liöin á
að sækja, Víöir þó mun meir. Á 17.
mínútu sleppti dómarinn, aö
flestra mati, augljósri vítaspyrnu á
Víöi. Jón Halldórsson var kominn í
dauöafæri innan vítateigs Víöis, er
fótunum var hreinlega sparkaö
undan honum. Leikmenn hættu,
og biöu eftir aö dæmt yröi, en ann-
ars ágætur dómari leiksins, Gísli
Guömundsson, veifaöi leik-
mönnum aö halda áfram.
i síöari hálfleik sóttu Njarövík-
ingar mjög stíft undan golunni, og
skall þá oft hurö nærri hælum viö
mark Víöis, en allt kom fyrir ekki,
skot Njarövíkinga fóru ýmist í
þverslá, yfir eöa voru varin. Síö-
ustu fimm mínuturnar var þó eins
og Njarövíkingar gæfust hreinlega
upp og sótti Víöir stanslaust, og á
82. minútu skaut Daníel yfir af
tveggja metra færi, og rétt á eftir
var skallaö í þverslá, eftir horn-
spyrnu, á Njarðvíkinga.
En fleiri uröu mörkin ekki, og
sanngjarn sigur Víöis í höfn. Þeir
voru mun frískari og ákveönari en
Njarövíkingar, sem áttu nú sinn ló-
legasta leik á heimavelli í sumar.
Besti maöur Víöis, og vallarins, var
Guöjón Guömundsson, en bestur
Njarðvíkinga var Benedikt Hreins-
son. Einum leikmanni, Ólafi
Björnssyni, Njarövík, var sýnt gula
spjaldiö.
Ó.T.
Atli með hæstu einkunn:
Skoraði átta skallamörk
í deildinni. Hrubesch níu
EINS OG flestum er kunnugt þá
er Bundesligunni þýsku lokið og í
síöustu umferðinni léku Atll Eö-
valdsson og félagar hans í Dllss-
eldorf gegn Frankfurt og burst-
uóu þá 5—1 og skoraöi Atli öll
fimm mörk DUsseldorf.
Þessi árangur Atla er mjög fá-
gætur og fékk hann mjög góöa
dóma í þýskum blöðum fyrir
frammistööuna eins og hann
reyndar fékk oft í vetur. Þýska
blaöiö Bild gefur einkunn frá 1—6
eftir hvern leik og er einkunnin 1
þaö besta sem hægt er aö fá, leik-
ur á heimsmælikvaröa. Eins og sjá
má fékk Atli bestu einkunn eftir
leikinn og var hann jafnframt eini
maöurinn á vellinum sem fékk 1 í
einkunn.
• Atli Eövaldsson
• Horst Hrubesch
Eins og viö höfum sagt frá áöur
skoraði Atli 21 mark í deildinni í
vetur og varö hann annar marka-
hæsti leikmaðurinn. Af þessum
mörkum skoraði Atli fimm meö
vinstri, sjö meö hægri, átta meö
skalla og eitt úr víti. Hér á eftir fer
samskonar úttekt á þeim 10 leik-
mönnum sem skoruöu flest mörk í
Þýskalandi í vetur.
St V H Sk V
Völler (Werder)
Atli (Diisseldorf)
Allgöwer (Stuttgart)
Rummenigge (Bayern)
Hrubesch (HSV)
23 5 14 4 0
21 5 781
21 0 14 6 1
20 2 15 3 0
18 0 9 9 0
• Fyrirsögnin úr v-þýska blaðinu Bild daginn eftir leikinn fræga.
Burgsmuller (Dortmund) 17 2 10 5 0 Abramczik (Oortmund) 16 5 6 5 0
Hoenes (Bayern) 17 1 8 7 1 Llttbarski (Köln) 16 4 7 3 2
Vantar þig
betri yfirsýn?
Vantar þig yfirsýn yfir þær greiösluskuldbindingar sem þú
hefur tekið á þig t.d. vegna fasteignakaupa eöa annarra
fjárfestinga?
Eyddu óþarfa áhyggjum og láttu Kaupþing gera greiösluyfirlit
fyrirþig.
44 KAUPÞING HF
^ ^ Húsi verzlunarinnar, 3. hæð, sími 8 69 88
Verðbréfasala, fjárvarzla, þjóðhagsfræði-,
rekstrar- og tölvuráðgjöf. Fasteignasala
og leigumiölun atvinnuhúsnæöis.