Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Góöur leikur é Akureyri:
Fjögur mörk skoruó
í fyrri hálfleik
ÞÓR Akureyri og Valur gerðu jefntefli 2—2 í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu í gærkvöldi, er liöin léku á Akureyri. Leikur liöanna var
mjög fjörugur og vel leikinn. Staöan í hálfleik var jöfn 2—2. Mikil
barátta var í leikmönnum beggja liða og úrslit leiksins nokkuð sann-
gjörn.
Fjögur mörk
í fyrri hálfleik
Fyrsta mark leiksins kom strax á
3. mínútu. Bjarni Sveinbjörnsson
tók hornspyrnu og gaf vel fyrir
markiö. Guöjón Guömundsson
náöi aö skalla fast aö marki Vals.
Siguröur Haraldsson hélt ekki
boltanum, missti hann frá sér og
Siguröur Pálsson náöi aö skora af
stuttu færi.
Á 16. mínútu komust leikmenn
Þórs í 2—0, þá fékk Siguröur
Pálsson boltann á miðjum vallar-
helmingi Vals nálægt hliöarlínu og
geröi hann sér lítiö fyrir og skaut
háum bolta aö marki Vals. Og viti
menn, boltinn fór yfir Sigurö
markvörö Vals sem stóð framar-
lega í markinu. Var þetta mark
skoraö af rúmlega 30 metra færi.
Sannkölluð óskabyrjun fyrir Þórs-
ara.
En Valsmenn létu ekki bugast
þrátt fyrir þetta, þeir sýndu allan
tímann góöa baráttu og gáfu
hvergi eftir. Nú jafnaöist leikur liö-
anna og Valsmenn náöu aö skora
á 20. mínútu.
Grímur Sæmundssen skoraöi
þá eftir aö boltinn haföi borist til
hans úr þvögu sem myndast haföi
inni í vítateig, Grímur skaut frá
vítateig föstu skoti sem fór í stöng-
ina síöan í bakiö á Þorsteini mark-
veröi Ólafssyni og svo í netið.
Á 44. mínútu leiksins gaf Berg-
þór Magnússon vel fyrir markiö og
Ingi Björn Albertsson skallaöi í
markiö af markteig. Hans 102.
mark í 1. deildinni. Áhorfendur
fengu skemmtilegan fyrri hálfleik
þar sem alltaf eitthvaö var aö ger-
ast.
Gott samspil en
fá marktækifæri
Strax í upphafi síðari hálfleiks
var Grími Sæmundssen sýnt rauöa
spjaldiö og vikiö af leikvelli.
Valsmenn léku því 10 þaö sem eftir
var leiksins.
Gott samspil var hjá báöum liö-
um í siðari hálfleiknum, en mark-
tækifæri liöanna voru ekki mörg.
Þórsarar sóttu íviö meira gegn 10
leikmönnum Vals en vantaði
herslumuninn á aö taka leikinn í
sínar hendur.
Liöin
Hjá Þór átti Guöjón Guö-
mundsson bestan leik, sívinnandi
Þór —
Valur
• Siguröur Pálsson tvítugur
framherji í liöi Þórs skoraði tvö
mörk fyrir liö sitt í gær gegn Val.
og gaf aldrei eftir. Bjarni Svein-
björnsson og Sigurjón Rannvers-
son áttu báöir góöan leik. i heild-
ina lék liöiö vel.
Hjá Val bar mest á Heröi Hilm-
arssyni, Inga Birni Albertssyni og
Þorgrími Þráinssyni. Liö Vals náöi
vel saman og sýndi mikla baráttu.
í STUTTU MÁLI:
Þór — Valur 2—2 (2—2)
Mörk Vals: Grímur Sæmundssen á 20.
og Ingi Björn á 44. mín.
Mörk Þörs: Siguröur Pálsson á 3. og
16. mín.
Gul spjöld: Hilmar Sighvatsson Val,
Sigurbjörn Viöarsson Þór, Siguröur
æxi----
KalSSOffi.
Rautt spjald og vikiö af leikvellí: Grím-
ur Sæmundssen Val.
Áhorfendur: 750.
Dómari var Friögeir Hallgrímsson og
dæmdi hann leikinn ágætlega.
Einkunnagjöfin:
Liö Þórs: Þorsteinn Ólafsson 6, Sígur-
jón Rannversson 7, Jónas Róbertsson
6, Sigurbjörn Viðarsson 6, Þórarinn
Jóhannesson 7, Árni Stefánsson 6,
Halldór Áskelsson 7, Guöjón Guð-
mundsson 8, Bjarni Sveinbjörnsson 8,
Siguröur Pálsson 7, Óskar Gunnars-
son 6.
Liö Vals: Siguröur Haraldsson 6, Guö-
mundur Kjartansson 6, Grímur Sæ-
mundssen 6, Höröur Hilmarsson 8,
Jón Grétar Jónsson 5, Þorgrímur Þrá-
insson 7, Ingi Björn Albertsson 7,
Hilmar Sighvatsson 6, Valur Valsson 6,
Guömundur Þorbjörnsson 6, Bergþór
Magnússon 6, Magni Pétursson vm. 6.
AS/ÞR
• Óskar Ingimundarson er hér nærri því aö lauma boltanum í netiö en
ÍBÍ tókat aö bjarga á línu eins og þeir geröu nokkrum sinnum í gær.
ísiandsmðtlð 1. delld
• Þorbergur Aðalsteinsson ésamt eiginkonu sinni.
flthletico Madrid vill fá Þorberg:
„Tilboðió frá félaginu
kom of seint til mín“
— segir Þorbergur Aðalsteinsson
SPÁNSKA handknattleiksliöið
Athletico Madrid hefur sýnt
mikinn áhuga á því að fá Þor-
berg Aöalsteinsson til liös viö
sig. Félagið haföi samband viö
Viggó Sigurösson og haföi hann
milligöngu í máli þessu. Athlet-
ico bauð Þorbergi góöan samn-
ing ef hann heföi áhuga á því að
koma og leika meö liöinu næsta
keppnistímabil.
— Þaö er rétt, ég fékk gott
tilboð frá félaginu, en þaö kom of
seint. Ég var búinn aö ganga frá
samningum hér í Vestmannaeyj-
um og þeim veröur ekkert hnikaö
til. Hins vegar er aldrei aö vita
hvaö maöur gerir eftir eitt ár ef
tilboðið stendur ennþá, sagöi
Þorbergur í gærdag. Þorbergur
sagöi aö félagiö væri aö leita aö
góðum miöjuspilara og skyttu.
Þaö heföi boöiö háa peninga-
upphæö og góö skilyröi fyrir rétt-
an leikmann. Eins og skýrt hefur
veriö frá keypti spánska liöiö FC
Barcelona þýska leikmanninn
Wunderlich nýlega fyrir met-
upphæö. Þaö viröist vera aö fær-
ast í aukana aö spænsku liöin
leiti út fyrir landsteinana eftir
góöum leikmönnum, þvi aö
nokkuö mun vera um þaö aö
sterkir leikmenn á Noröurlönd-
unum hafi fengiö tilboö frá liöum
á Spáni.
Vallarskilyrði fyrir neóan allar hellur:
Þófkenndum leik á lélegum
velli lauk með jafntefli
„ÞETTA var mjög lélegt hjá okkur
og þaö er víst aö viö vinnum ekki
leik meö því aö spila svona. Þaö
komu aö vísu góöir kaflar inn á
millí en þess á milli datt þetta
langt niöur og verður þvi að telj-
ast lélegt,“ sagöi Ottó Guö-
mundsson fyrirliði KR-inga eftir
viöureign þeirra við ísfirðinga á
Laugardalsvelli í gærkvöldi en
henni lauk meö markalausu jafn-
tefli.
Þaö er í raun ekkert meira um
þennan leik aö segja, þaö kemur
allt fram i því sem Ottó segir.
Knattspyrnan sem liöin sýndu var
ekki upp á marga fiska, enda ekki
hægt aö búast viö aö menn leiki
vel þegar völlurinn er eins og hann
er, annar kanturinn eitt drullusvað
þar sem leikmenn gátu ekki fótaö
sig, hvaö þá spilaö knattspyrnu.
Þaö nær ekki nokkurri átt aö leika
1. deildarleiki á þvilíkum velli og
raunar ekki neina knattspyrnu,
sama í hvaöa deild eöa flokki þaö
er. Áhorfendur veröa aö horfa á úr
fjarlægö því þaö er búiö aö færa
völlinn eina 30 metra frá
áhorfendapöllunum og á meöan
þannig er þá er ekki hægt aö búast
viö mörgum áhorfendum.
KR-ingar byrjuöu af krafti og
sóttu stíft framan af fyrri hálfleik en
þeim tókst ekki aö skora þrátt fyrir
nokkur ágætis færi. Isfiröingar áttu
nokkur hraöaupphlaup inn á milli
og þaö var helst Jón Oddsson hinn
eldfljóti framherji þeirra sem
ógnaöi vörn KR, en einnig átti Jón
Björnsson bakvöröur ágæta
spretti upp kantinn, enda var hann
réttu megin á vellinum, þaö er
þeim megin sem möguleiki var aö
reyna aö spila knattspyrnu. Áhorf-
endur höföu á tilfinningunni aö
mark væri á leiöinni en þaö lét
standa á sér og hvorugu liðinu
tókst aö skora fyrir leikhlé. Besta
færiö í fyrri hálfleik fengu KR-ingar
þegar Willum renndi sér á fyrirgjöf
frá Óskari en skotiö var variö í
horn. Upp úr horninu átti Óskar
ágætis skot en Isfiröingar björg-
uöu á línu og var þaö í annaö
skiþtið sem þeir geröu þaö, því
snemma í hálfleiknum var bjargaö
af línu skoti frá Sæbirni.
Siöari hálfleik hófu KR-ingar
eins og þeir enduðu þann fyrri, í
sókn en þeir voru óheppnir aö nýta
sér ekki færin sem þeir fengu og
þá sérstaklega Óskar Ingimund-
arson. Hann fékk nokkur góö færi
en hann var ekki á skotskónum í
gær frekar en aörir leikmenn. Þeg-
ar um stundarfjóröungur var til
leiksloka færöist mikiö fjör í leikinn
og liðin sóttu á víxl. KR-ingar meó
langar sóknir en ísfiröingar meö
skyndisóknir sem oft voru viö þaö
aö bera árangur, en ekki tókst
þeim samt aö skora.
Einkunnagjöfin. KR: Stefán Arnar-
aon 6, Willum Þórsson 6, Síguróur Ind-
riðason 5, Ottó Guömundsson 6,
Magnús Jónsson 7, Jósteinn Einars-
son 6, Ágúst Már Jónsson 6, Óskar
Ingimundarson 6, Jón G. Bjarnason 7,
Sæbjörn Guómundsson 6, Helgi Þor-
björnsson 6, Elías Guðmundsson (vm)
6, Vilhelm Fredriksen (vm) lék of stutt.
ÍBÍ: Hreióar Sigtryggsson 6, Guó-
mundur Jóhannsson 4, Rúnar Vífils-
son 6, Örnólfur Oddsson 5, Jóhann
Torfason 6, Jón Oddsson 7, Bjarni Jó-
hannsson 6, Benedikt Einarsson 6,
Kristinn Kristjánsson 5, Ámundi Sig-
mundsson 5, Jón Björnsson 7.
f stuttu máli:
Laugardalsvöllur 1. deild.
KR — ÍBÍ 0—0.
Gul spjöld: Ottó Guómundsson KR.
Dómari: Óli P. Ólsen og dæmdi
hann ágætlega.
. SUS.