Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 32
Sími 44566
RAFLAGNIR
samviritÍjÆV
BILLINN
BÍLASALA SlMI 79944 SMIÐJUVEGI4 KÓFWOGI
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
Börðust við eldinn
í rúman sólarhring
■.. mW'-;. ..9*T£
Hafnsögubátur flutti kistur ungu mannanna þriggja, sem létust um borö í Gunnjóni, úr varðskipi að hafnarbakka á fsafirði. Morgunblaðið/KriBtján Örn.
Eiríkur Ingimundarson
loks fyrir hádegið í gær tókst
endanlega að ráða niðurlögum
hans, en eldurinn hafði blossað
upp að nýju hvað eftir annað.
Eldsupptök eru enn ókunn, en
VARÐSKIPIÐ ÞÓR kom til ísa-
fjarðar klukkan 17.30 í gær meö
lík mannanna þriggja, sem létust
um borð í Gunnjóni GK 306 á
mánudag. Líkin verða flutt flug-
leiðis til Reykjavíkur í dag. Aðrir
skipverjar eru væntanlegir með
Bjarna Ólafssyni AK 70 til Njarð-
vfkur í kvöld, en skipið er með
Gunnjón í togi.
Þeir sem létust um borð í
Gunnjóni voru Haukur Ólafsson,
fyrsti vélstjóri, Akurgerði 4,
Reykjavík, 25 ára. Hann var
fæddur 5. janúar 1958 og lætur
eftir sig unnustu og 9 mánaða
gamlan son.
Eiríkur Ingimundarson, há-
seti, Tunguvegi 12, Njarðvík, 20
ára. Hann var fæddur 30. apríl
1963 og var ókvæntur.
Ragnar Júlíus Hallmannsson,
háseti, Ásgarði 5, Keflavík, 18
ára. Hann var fæddur 18. júní
1966.
Ragnar Júlíus Hallmannsson
Skipverjar á varðskipinu Þór,
Gunnjóni og Bjarna ólafssyni
börðust við eldinn um borð í
Gunnjóni í um sólarhring, eða
frá því á mánudagsmorgun, og
skipið er mjög illa farið; allar
innréttingar taldar ónýtar og
nokkur sjór var kominn í vélar-
rúm síðdegis í gær. Sjópróf hafa
ekki verið ákveðin enn.
„Gullleitarmenn á
SkeiÖarársandi“:
Byrjað að
reka stál-
þilið niður
„GULLLEITARMENN“ á Skeiðar-
ársandi eru nú byrjaðir að reka
niður stálþil umhverfis „gullskipið"
og gengur það þokkalcga þrátt fyrir
óhagstætt veður, suðaustan kalsa, að
sögn Kristins Guðbrandssonar.
Verður stálþilið rekið niður um-
hverfis skipið og mun verða um
180 lengdarmetrar og 600 til 700
lestir að þyngd. Nú er um helm-
ingur stálsins kominn austur á
sandinn og kemur það sem eftir er
smátt og smátt að sögn Kristins.
Gæti þessum hluta verksins verið
lokið um miðjan júli verði ekki um
nein skakkaföll að ræða og verður
þá hægt að byrja að dæla sandin-
um frá skipinu af fullum krafti.
Um mánaðamótin júlí-ágúst gæti
skipið svo farið að líta dagsins
ljós.
Meira atvinnu-
leysi en í fyrra
EINS OG fram hefur komið í Mbl.
hefur atvinnuleysi í borginni aukist í
sumar frá því sem var í fyrrasumar
sérstaklega hjá unglingum og náms-
fólki. Hjá Atvinnumiðlun stúdenta
hafa 520 skráð sig nú og er það
nokkru fieiri en létu skrá sig í fyrra-
sumar. Um 350 hafa fengið störf í
gegnum atvinnumiðlunina. Atvinnu-
miðluninni hefur gengið verr að út-
vega störf nú en áður.
Á Ráðningarskrifstofu Reykja-
víkurborgar var þær upplýsingar
að hafa að almennt atvinnuleysi
hafi aukist töluvert, því helmingi
fleiri eru nú á atvinnuleysisskrá
þar en undanfarin ár. Nú eru á
skrá 407 manns, þar af 209 karl-
menn og 198 konur.
Verulegur samdráttur í sölu heimilistækja og bfla:
Sala nýrra bíla nær stöðv-
aðist við gengisfellinguna
VERULEGUR samdráttur hefur átt sér stað í innflutningi og sölu á ýmis
konar varningi á þessu ári og þá alveg sérstaklega síðustu vikurnar m.a.
í kjölfar gengisfellingar krónunnar í síðasta mánuði.
Samdrátturinn hefur orðið
hvað tilfinnanlegastur í inn-
flutningi og sölu á svokölluðum
lúxusvarningi, eins og sjónvörp-
um, myndböndum, hljómflutn-
ingstækjum og fleiru, auk þess
sem samdrátturinn hefur komið
áþreifanlega fram í sölu á heim-
ilistækjum og bílum.
Innflutningur á „lúxusvarn-
ingi“, heimilistækjum og bílum
hefur dregizt saman um nær-
fellt helming það sem af er ár-
inu og hefur salan dregizt sam-
an í svipuðu hlutfalli, nema
hvað hún nær stöðvaðist í kjöl-
far gengisfellingar krónunnar á
dögunum og er ekki nema rétt
að komast af stað aftur.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
er ástandið sérstaklega erfitt í
bílasölu, sem hefur verið nær
engin síðan gengið var fellt. Eru
dæmi þess að einstök bílaumboð
hafi hreinlega ekki selt einn ein-
asta bíl á þeim tæplega mánuði,
sem er umliðinn. Þá er ástandið
ennfremur mjög erfitt hjá fyrir-
tækjum, sem selja „lúxusvarn-
ing“ og eru þegar farin að sjást
merki þess, að betri kjör eru
boðin vilji fólk eiga viðskipti.
70% fall í
lagadeild
AF ÞEIM 80 nemendum sem
gengust undir próf í almennri
lögfræði í vor, náðu aðeins 24
einkunninni 7, sem er tilskilin
lágmarkseinkunn. Þetta er um
70% fall og hafa aldrei fallið
jafnmargir á fyrsta námsári í
lagadeild og nú, að sögn Björns
Þ. Guðmundssonar, forseta laga-
deildar. Ef tekið er mið af því að
alls innrituðust um 100 nemend-
ur í lagadeild síðastliðið haust, er
Ijóst, að affóllin eru jafnvel enn
meiri.
Að sögn Stefáns Sörenssonar
háskólaritara hafa enn ekki
borist einkunnir úr öllum
deildum og því ekki unnt að
birta tölur yfir fjölda þeirra
sem náð hafa tilskildum lág-
markseinkunnum. Það ætti að
vera unnt um eða upp úr næstu
mánaðamótum. Hann sagði að
venjan væri sú að um það bil
helmingur stúdenta á fyrsta
námsári næði ekki tilskilinni
lágmarkseinkunn, en fall á síð-
ari námsárum væri óverulegt.