Morgunblaðið - 09.07.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 09.07.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLl 1983 Hagræðing og sparnaður í heilbrigðiskerfinu „Skynsamlegt að kanna þettau - segir Davíð Á. Gunnarsson „ÞAÐ er mjög skynsamlegt að kanna þessa möguleika, en það er í raun og veru ekki hægt að hafa skoðun á málinu fyrr en búið athuga það nánar," sagði Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna, í samtali við Morgunblaðið um tillögur þær sem sendar voru frá heilbrigðisráðu- neytinu um leiðir til sparnaðar í rekstri stofnunarinnar. „Það veit enginn hvað ákvæðis- kerfi kemur til með að hafa í för með sér, það hefur hvergi verið prófað á sjúkra- og stoðdeildum svo mér sé kunnugt og því ekki hægt að fullyrða um hagkvæmn- ina af því. óhætt er hins vegar að fullyrða að það yrði flókið í fram- kvæmd, kannski svo flókið að hag- kvæmnin hyrfi af þeim sökum. Þá stendur það líka og fellur með þeim kjarasamningum, sem nást við starfsfólkið. Hin stóra breyt- ingin frá núverandi kerfi, sam- kvæmt þessum hugmyndum, er að prófa að bjóða út ákveðna verk- þætti, en það er einnig flókið mál og margt sem þarf að taka tillit til. Við höfum sífellt verið með hagræðingu og kannanir á rekstr- inum í gangi, en þessar hugmynd- ir eru athyglisverðar og sjálfsagt að prófa þær,“ sagði Davíð A. Gunnarsson. Ekki hægt að full- yrða um sparnað - segir Eggert G. Þorsteinsson „VIÐ munum að sjálfsögðu hlýða þessum fyrirmælum og rannsaka nákvæmlega hvar hægt er að spara í rekstri stofnunarinnar,“ sagði Eggert G. Þorsteinsson, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, í sam- tali við Morgunblaðið í gær um er- indisbréf heilbrigðis- og tryggingar- áðuneytisins til Tryggingastofn- unarinnar um sparnað hjá stofn- uninni. Starfsemi Sæ- dýrasafnsins til athugunar VIÐRÆÐUR hafa farið fram síð- ustu vikur á milli menntamála- ráðherra og stjórnarmanna Sæ- dýrasafnsins í Hafnarfirði um framhald starfsemi þess. Að sögn Ragnhildar Helgadóttur, mennta- málaráðherra, hafa safninu verið sett ákveðin skilyrði um búnað og þessa dagana er verið að athuga hvort nægar úrbætur hafi verið gerðar. Ráðherra sagði, að hún teldi safn sem Sædýrasafnið hafa uppeldislegt gildi, en jafnframt væri ljóst, að vel yrði að ganga frá málum. „Varðandi bótagreiðslurnar, þá eru þær lögbundnar og nánar kveðið á um þær í reglugerðum, þannig að breytingar á þeim eru að miklu leyti undir Alþingi og ráðuneyti komnar. Hvað sjálfan reksturinn snertir, þá hefur verið reynt að halda eins spart á og hægt hefur verið og um það hafa komið fram beiðnir frá öllum ráðherrum heilbrigðis- og trygg- ingamála. Við munum að sjálfsögðu hlíta þessum óskum ráðuneytisins um að fara ofan í saumana á þessu betur, en í bréfinu til okkar eru engar ákveðnar ábendingar eins og í bréfinu til Ríkisspítalanna, heldur almennt talað um að spara og halda vel á. Á undanförnum árum hefur verið lögð áhersla á að bæta þjónustuna við hina tryggðu, meðal annras með því að senda allar bótagreiðslur á bankabækur og hafa bankarnir þar unnið mjög þarft verk hér á Reykjavíkursvæð- inu, en nú er búið að tölvuvæða allt landið svo að þetta á að verða með sama hætti í umboðunum um allt land á næstunni. Þetta er svona það helsta sem snýr að þjónustunni, en beinan sparnað í rekstri stofnunarinnar er ég ekki tilbúinn til að fullyrða um á þess- ari stundu, nýbúinn að fá bréfið í hendurnar," sagði Eggert G. Þor- steinsson að lokum. Jóhann Konráð Birgisson, sem bjargaói Kristni Þór Ingibjörnssyni á Akureyri á fimmtudag. Með þeim er Börkur Hólmgeirsson, félagi Jóhanns. Bjargað frá drukknun Börkur og Jóhann KonráÓ yió slyssUóinn. Morgunblaöið/GBerg. Akureyri, 7. júlí. FJÖGURRA ára gömlum dreng var bjargað frá drukknun um fjögur leytið í fyrradag. Hann er nú kominn heim, er hress og virðist ekki hafa orðið meint af volkinu. Málsatvik eru þau að um miðjan dag á fimmtudag voru börn að leik við skurð sem er við húsgrunn við Fjölnisgöt- una á Akureyri. Tvær stúlkur vöktu athygli Jóhanns Gunnars Birgissonar, tíu ára gamals, sem var á fleka út á skurðinum ásamt öðrum dreng, á því að Kristinn Þór Ingibjörnsson, 4 ára, væri í skurðinum. Jóhann gat teygt sig í hárið á Kristni og dregið hann upp úr skurðinum og var hann þá meðvitundarlaus. Hann var þegar fluttur á sjúkrahús og er nú kominn heim eins og fyrr sagði. Skurðurinn er um 1,70 metrar á dýpt þar sem hann er dýpstur og er til hliðar við húsgrunninn. ítrekað hefur verið varað við opnum grunnum og skurðum á Akureyri og er greinilega full ástæða til. G.Berg. Janúar—júní 1983: Þorskafli dróst sam- an um liðlega 23,2% Heildarafli dróst saman um liðlega 13% ALLS bárust 370.346 tonn af sjávarafla á land hér fyrstu sex mánuði ársins, samkvæmt bráðabirgðayfirliti Fiskifélags íslands, en til samanburðar bárust 425.578 tonn á land á sama tíma í fyrra. Samdrátturinn milli ára er um 13%. Þorskaflinn dróst nokkru meira saman á fyrstu sex mánuðum árs- ins, eða um 23,2% samkvæmt yfir- litinu. Alls bárust 185.08 tonn á land, borið saman við 240.956 tonn á sama tíma í fyrra. Ef skipting þorskaflans milli báta og togara er skoðuð, kemur í ljós, að samdrátturinn hjá bátun- um er nokkru meiri, eða um 28,3%. Alls bárust á land 116.089 tonn á tímabilinu í ár, borið sam- an við 161.861 tonn á sama tíma í fyrra. Hins vegar var samdráttur- inn hjá togurunum 12,8% milli ára. Fyrstu sex mánuðina í ár bár- ust á land 68.991 tonn, borið sam- an við 79.095 tonn á sama tíma í fyrra. Ef litið er á annan botnfiskafla, þá bárust alls 172.525 tonn á land fyrstu sex mánuðina, borið saman við 160.542 tonn á sama tíma í fyrra. Þar hefur því orðið afla- aukning upp á um 7,5% milli ára. Botnfiskafli báta jókst um 13,4% milli ára, en hann var um 60.265 tonn í ár borið saman við 53.144 tonn á síðasta ári. Botnfisk- afli togaranna jókst um 4,5% milli ára. Aflinn var um 112.260 tonn í ár, borið saman við 107.398 tonn á sama tíma f fyrra. Um 46,7% samdráttur í bílainnflutningi Hestamótið á VíðivöUum: Dýrlingur efstur í B-flokki STÓRMÓTIÐ hófst á Víði- völlum um tvöleytið í gær með dómum í B-fíokki gæð- inga. Hæstu einkunn hlaut Dýrling- ur frá Krossanesi, 8,54; annar varð Haki frá Kirkjubæ með 8,53, og í þriðja sæti varð Krummi frá Keldnastöðum, fékk hann einkunnina 8,45. Þeir hestar sem næstir komu voru Bliki frá Höskuldsstöðum, 8,32; Blesi frá Hvítárbakka, 8,22; Loftfari frá Hafnarfirði, 8,19; Huginn frá Ketilsstöðum, 8,08, og Stígandi frá Þóreyjarnúpi, 8,06. Þessir átta hestar mæta síðan í úrslitakeppni á sunnudag og má búast við spennandi keppni. Um fjögur í gær byrjuðu dóm- ar á kynbótahrossum en niður- stöður þeirra verða ekki kynntar fyrr en á sunnudag. y.K. Sveinn Hjörleifsson, knapi, á hestinum Dýrlingi. — Alls 2.821 bfll fluttur inn janúar- —maí, en 5.289 á sama tíma í fyrra Bflainnflutningur dróst saman um 46,7% á fyrstu fimm mánuðum ársins, þegar Gæzluvarð- hald vegna innbrota MAÐUR sem grunaður er um inn- brot og þjófnaði í sumarbústaði í Mosfellssveit, á Þingvöllum og Laugarvatni, sem og innbrot í Hafn- arfirði, var úrskurðaður í gæslu- varðhald í gær til 20. júlí. Hann var handtekinn í Hafnarfirði um hádegi á fimmtudag. Þess ber að geta að þarna er um sama manninn að ræða og grunað- ur var um nokkur innbrot í Kópa- vogi og sagt var frá í Morgunblað- inu í gær. Gæsluvarðhaldsúr- skurðurinn var þó ekki kveðinn upp vegna þeirra innbrota. alls var fluttur inn 2.821 bfll, en til samanburðar voru fluttir inn samtals 5.289 bflar á sama tíma í fyrra. Á fyrstu fimm mánuðum ársins voru fluttir inn 9 almennings- vagnar, en 17 á sama tíma í fyrra. Fluttir voru inn samtals 70 stat- ion-bílar, borið saman við 209 á sama tíma í fyrra. Alls voru fluttir inn 2.016 al- mennir fólksbílar á umræddu tímabili, en til samanburðar voru þeir 3.966 á sama tíma í fyrra. Þar er samdrátturinn um 49% milli ára. Fyrstu fimm mánuðina voru fluttir inn samtals 346 bílar með drifi á öllum hjólum, en til sam- anburðar 398 á sama tíma í fyrra. Fluttir voru inn 255 sendibílar, borið saman við 478 í fyrra. Þá voru fluttir inn 70 vörubílar, en til samanburðar 160 í fyrra. Loks voru fluttir inn 55 ýmsir aðrir bíl- ar, borið saman við 61 á sama tíma í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.