Morgunblaðið - 09.07.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.07.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1983 Minning: Helgi Sigurðsson frá Heggsstöðum Faeddur 23. desember 1893 Dáinn 2. júlí 1983 Helgi Sigurðsson frá Heggs- stöðum var fæddur 23. desember 1893 að Refsstöðum í Hálsasveit. Foreldrar hans voru hjónin Guð- rún Pálsdóttir og Sigurður Helga- son, bóndi þar. Móðir Helga dó frá þremur sonum sínum er hann var þriggja ára. Innan fárra ára flutt- ist hann með föður sínum, síðari konu hans og bræðrum sínum að Hömrum í Reykhotsdal og ólst þar upp eftir það. Árið 1922 giftist hann Ástríði Halldórsdóttur frá Kjalvararstöðum. Bjuggu þau á Hömrum til ársins 1926 er þau fluttu að Kletti í Reykoltsdal og þaðan að Heggsstöðum í Anda- kílshreppi árið 1931, þar sem þau bjuggu til ársins 1956. Eftir það áttu þau heima í Kópavogi og Reykjavík til ársins 1971 og dvöld- ust síðan á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi til æviloka, en Helgi andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 2. júlí sl. eftir fárra daga legu. Eftir að þau fluttu frá Heggs- stöðum bjó sonur þeirra, Kristóf- er, þar ásamt fjölskyldu sinni meðan honum entist heilsa, en það var sorglega stuttur tími, því að hann andaðist löngu fyrir aldur fram árið 1959. Má geta nærri hvílikt áfall það hefur verið fyrir fjölskyldu hans og foreldra að sjá á bak svo efnilegum ungum manni, þegar hann hafði svo að segja nýtekið við jörðinni sem þau höfðu lagt svo mikla rækt við. Ástríður andaðist árið 1981 eftir langa vanheilsu. f febrúar sl. varð Helgi svo að sjá á bak elsta barni sínu, Guðrúnu, eftir erfiða sjúk- dómslegu. Guðrún var öllum harmdauði er hana þekktu, en eðlilega mestur eiginmanni, börn- um og öldruðum föður. Þessi áföll bar Helgi með sömu rósemýini og sama jafnaðargeðinu og ávallt hefur einkennt hann. Eftir lifa tvö af börnum þeirra hjóna, Guðný, kennari í Reykjavík og Sigurður, deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu. Heimili Ástu og Helga á Heggs- stöðum hafði orð á sér íyrir snyrtimennsku og menningarbrag og bar húsbændum sínum fagurt vitni. Þar var ekki spurt: „Hvað getur samfélagið gert fyrir mig?“ Hins vegar hygg ég að fjölskyldan hafi oft spurt sjálfa sig: „Hvað get ég gert fyrir samfélagið?" Sér- staklega er mér kunnugt um þann félagsanda sem Heggsstaðafjöl- skyldan sýndi í störfum sínum fyrir Ungmennafélagið íslending og Kvenfélagið 19. júní. Helgi var þakklátur fyrir hið góða atlæti sem þau hjón nutu á Dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi, ekki síst fyrir þá aðstöðu sem hann fékk til að stunda smíðar og aðra handavinnu. Hann var hand- laginn og smekkvís og gerði síð- ustu árin marga fagra og þjóðlega muni sem prýða fjölda heimila. Hann var þakklátur fyrir að fá að velja sér herbergi á hæðinni, sem hefur nýlega verið tekin í notkun, þaðan sem hann sá heim í sveitina sína og sömu fjöllin og hann sá frá Heggsstöðum. Eg er þakklát fyrir að hafa kynnst Helga, frænda mínum, þótt ekki væri fyrr en á efri árum hans. Ég mun geyma minninguna um viðmót hans sem minnti mig mjög á viðmót forfeðra minna er honum voru náskyldir. Ég minnist hógværðar hans, jafnaðargeðsins í meðlæti og mótlæti, tillitsseminn- ar við aðra en sjálfan sig, vinnu- seminnar, áhuga hans á að hjálpa öðrum og gleðja aðra, einkum þá sem minna máttu sín, fegurðar- innar í brosi hans, friðarins sem fylgdi honum og ég efast ekki um að fylgi honum út yfir gröf og dauða. Blessuð sé minning Helga frá Heggsstöðum. Gyda Bergþórsdóttir. í dag verður lagður til hinstu hvíldar í Borgarnesi Helgi Sig- urðsson frá Heggsstöðum sem andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 2. júlí sl. Helgi fæddist á Refsstöðum í Hálsasveit, sonur Sigurðar Helga- sonar bónda þar og konu hans Guðrúnar Pálsdóttur frá Fljóts- tungu. Helgi fluttist með foreldr- um sínum að Hömrum í Reyk- holtsdal og þar hóf hann búskap á hálfri jörðinni 1921 ásamt systur minni, Ástríði Guðrúnu Hall- dórsdóttur frá Kjalvararstöðum, en þau giftust 13. maí 1922. Á Hömrum bjuggu þau Ástríður og Helgi í fimm ár og önnur fimm á Kletti í Reykholtsdal, en 1931 keyptu þau Heggsstaði í Andakíl og bjuggu þar snotru og góðu búi til 1956. Þá brugðu þau búi, aðal- lega af heilsufarsástæðum og búskaparþreytu, en þau voru alla tíð harðdugleg og ósérhlífin. Þá fluttu þau í Kópavog þar sem þau áttu heima til 1962. Þar vann Helgi almenna verkamannavinnu. Eftir það fluttu þau til Reykjavík- ur þar sem Helgi vann hjá Jöklum hf. Árið 1971 fluttust þau Ástríður og Helgi á Dvalarheimili aldraðra i Borgarnesi þar sem þau áttu heimili til dauðadags, en Ástríður andaðist 30. maí 1981. Ástríður og Helgi eignuðust fjögur börn. Þau voru þessi: Guð- rún, f. 14. september 1922, gift Sig- urði Tómassyni bifreiðarstjóra í Kópavogi. Hún andaðist 25. febrú- ar sl. rúmlega sextug. Guðný, f. 16. ágúst 1924, gift Gunnari Gissur- arsyni prentara og verkstjóra hjá Kassagerð Reykjavíkur. Kristófer, f. 18. janúar 1926, giftur Ásdísi Guðlaugsdóttur. Þau bjuggu í Fossatúni í Bæjarsveit og síðar á Heggsstöðum. Kristófer andaðist 4. apríl 1959, tæplega 34 ára að aldri. Þannig hefur dauðinn sótt fast að þessari fjölskyldu þar sem helmingur systkinanna er fallinn frá fyrir aldur fram. Yngstur barna þeirra Ástríðar og Helga er Sigurður Helgason, f. 2. mars 1930, deildarstjóri í menntamála- ráðuneytinu en áður kennari og skólastjóri í Stykkishólmi og Laugagerðisskóla í Hnappadals- svslu. Kona hans var Ólöf Lára Ágústsdóttir. Þau skildu. Ég á margar góðar minningar frá samvistum mínum við Helga og Ástríði og fjölskyldu þeirra sem ég hef alla tíð haft náið sam- band við. Ég var ekki nema 6 ára þegar þau hófu búskap á Hömrum og þangað þótti mér gott að koma Runólfur Runólfsson fyrrver- andi vélstjóri og skipstjóri í Vest- mannaeyjum, lengstaf búsettur í Bræðratungu, og síðustu árin á Dverghamri 1 þar í bænum, and- aðist 4. júní sl. á 84. aldursári, og var jarðaður frá Landakirkju 11. sama mánaðar. Runólfur var fæddur á Haust- húsum á Stokkseyri 12. desember 1899. Foreldrar hans voru hjónin Runólfur Jónasson frá Magnús- fjósum í Kaldaðarneshverfi í Sandvíkurhreppi, Hannessonar bónda í Ranakoti efra í Stokkseyr- arhverfi, Runólfssonar bónda í Bitru, Þorsteinssonar, og Sólrún Guðmundsdóttir, Árnasonar á Þinghól í Hvolhreppi. Árið 1920 fluttist Runólfur frá Stokkseyri með foreldrum sínum til Vestmannaeyja, en áður hafði hann verið sjómaður vertíðirnar 1918 og 1919 á vélbátnum Krist- björgu með mági sínum Þórarni Guðmundssyni formanni á Jaðri og var vélstjóri á bátnum seinni vertíðina. 1921 var Runólfur á vélbátnum Njáli, en honum stýrði þá Bryngeir Torfason frá Stokks- eyri. En 1923 hóf hann sjó- mennsku á happaskipinu Halkíon. Var formaður Stefán Guðlaugsson í Gerði, kunnur og farsæll Eyja- sjómaður. Gerðist Runólfur strax meðeigandi í Halkíon og var alltaf vélstjóri á honum og skipstjóri um skeið í forföllum Stefáns, sem var í nokkur ár heilsubilaður. Á sumr- in var hann alllengi vélstjóri á dýpkunarskipi í Vestmannaeyja- höfn. Sjómennskunni hætti Run- ólfur eftir 32 ára veru á Halkíon 1955 og gerðist vélstjóri í Vinnslu- stöð Vestmannaeyja, og hélt því starfi fram yfir áttrætt. Fljótlega eftir komuna til Vest- mannaeyja reisti Runólfur í félagi við föður sinn og Sigmund bróður sinn húsið Bræðratungu við Heimagötu, og við þann stað var hann jafnan kenndur, enda bjó hann þar þangað til eldgosið 1973 spjó hraunflóði yfir það. Hinn 11. október 1924 kvæntist Runólfur glæsilegri stúlku, Unni Þorsteinsdóttur frá Laufási í Eyj- og vildi vera sem lengst. Sem dæmi um það minnist ég þess að eitt sinn faldi ég húfuna mína svo að brottför minni yrði frestað. Það bragð mistókst nú reyndar því að húfuskömmin fannst og ég hélt heim samkvæmt áætlun. Síðar fór ég oft í heimsókn að Kletti og Heggsstöðum. Á Heggsstöðum var ég og eitt sinn kaupamaður í mán- uð þegar ég var um tvítugt og lenti þá í því ævintýri að heyja á flæði- engjum, en Heggsstaðir áttu þá um 100 hesta flæðiengjastykki skammt frá Bárustöðum. Þar var legið við í tjaldi meðan heyjað var. Síðan var heyið flutt heim á baggahestum á einum degi. Hver ferð tók þrjár klukkustundir og voru nær 20 hestar í lestinni og hafði Helgi að nokkru safnað þeim saman hjá nágrönnunum. Helgi fór á milli en við Ásta bundum. um. Voru foreldrar hennar hinn kunni formaður, útgerðarmaður og rithöfundur Þorsteinn Jónsson í Laufási og kona hans Elínborg Gísladóttir verslunarstjóra Eng- ilbertssonar. Þóttu þessi ungu hjón vel samvalin sakir glæsi- mennsku og myndarskapar. Var heimili þeirra jafnan í fremstu röð. Eftir 23 ára sambúð við konu sína varð Runólfur að þola þá þungu raun að missa hana frá hinu stóra heimili, en þeim hjón- um varð sjö barna auðið. Voru þrjú eða fjögur ófermd þegar móð- ir þeirra dó 16. mars 1947. Eftir lát konu sinnar hélt Runólfur um nokkurra ára skeið heimili með börnum sínum og hafði ráðskonu, en þegar þau voru farin úr föður- húsum varð hann einbúi og hafði þá nokkurn stuðning frá Jóni syni sínum og konu hans, sem bjuggu í næsta nágrenni. Þegar húsið Bræðratunga var horfið undir hraun og hið mynd- arlega og gamalgróna heimili þar með þá sýndi Runólfur slíkt ein- dæma þrek og kjark kominn á átt- ræðisaldur, að hann réðst í að byggja nýtt hús og endurreisa heimili sitt. Kom hann upp vönd- uðu einbýlishúsi að Dverghamri 1, og þar bjó hann einn síðasta ára- tug ævinnar. Heilsa Runólfs var góð alla tíð, að öðru leyti en því, að nokkur seinustu árin bjó hann við mjög skerta sjón, en hann lét það ekki á sig fá. Hélt hann glaðri lund og fullum kjarki, og var að mestu sjálfum sér nógur til hinstu stundar. Eins og áður er getið voru börn þeirra hjóna sjö. Eru þau öll á lífi og hið mesta manndómsfólk. Öll eru þau systkin gift, hafa eignast börn og stofnað góð heimili. Systkinin eru þessi í réttri ald- ursröð: Jón vélsmiður, starfar við Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi, kvæntur Ágústu Björnsdóttur frá Pétursborg í Vestmannaeyjum. Sigrún húsfrú á Selfossi, gift Ágústi Jóhannssyni frá Teigi í Fljótshlíð. Þorsteinn trésmiður í Hafnarfirði, kvæntur Dóru Ing- ólfsdóttur úr Kópavogi. Ragnar + Þökkum innilega samúö og hlýhug vlö andlát og útför fööur okkar og tengdafööur, BJÖRNS J. ANDRÉSSONAR. Edda Björnsdóttir, Stefán Hallgrímaaon, Bragi Björnsson, Soffia Anna Jónsdóttir. Maöurinn minn, GUÐMUNDUR JÓNSSON, framkvasmdastjóri, Svöluhrauni 3, Hafnarfiröi, andaöist fimmtudaginn 7. júlf. Guðfinna Jóhannesdóttir. + Útför bróöur míns, LÁRUSARJÓNSSONAR, fyrrverandi héraöalæknis, fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 11. Júlí kl. 3 e.h. Þeir sem vlldu mlnnast hlns látna látl Ifknarstofnanir njóta þess. Fyrir hönd vandamanna, Bjarni Jónsson, Haga, Austur-Húnavatnssýslu. Minning: Runólfur Runólfs- son Vestmannaeyjum Búskapur á Heggsstöðum var um margt erfiður en þar bjuggu þau Ásta og Helgi góðu búi. Þau voru mjög samhent og snyrti- mennsku stafaði af öllum hlutum bæði úti og inni. Helgi var mjög farsæll í starfi og vinsæll af vinnufélögum sínum. Ég er ekki kunnugur æskuárum Helga. En þegar ég var að skrifa sögu Ungmennafélags Reykdæla sá ég í fundargerðabókum félags- ins að hann hafði tekið virkan þátt í starfi félagsins á fyrstu árum þess. Meðal annars tók hann þátt í fyrstu leiksýningu félagsins 1915. Eftir að Helgi sneri sér að búskap 1921 sinnti hann minna störfum í ungmennafélaginu, en hálfbróðir hans Jakob Sigurðsson, sem var yngri, var hins vegar virkur í fé- laginu í hálfa öld og frábær leik- ari. Helgi var einn af þeim sem kunnu að eldast. Þegar hann var sestur um kyrrt á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi var síður en svo að hann léti alla starfsemi niður falla. Þá sneri hann sér að smíðum. Smíðaði hann þá ýmiss konar minjagripi, amboð í smækk- uðu formi: orf, hrífur, heymeisa, klyfbera, torfljái, pála, rekur, lára og kistur, svo og hin frægu króka- refskefli sem eru hreinasta galdrasmíð. Allt þetta smíðaði hann að mestu leyti með vasa- hnífnum sínum. Síðustu árin óf hann einnig teppi. Helgi var einn af þeim mönnum sem auðga mannlífið og gott var að kynnast, alltaf jafn ljúfur í við- móti. Við hjónin vottum aðstand- endum samúð við fráfall hans en dýrmæt er okkur öllum minningin um góðan dreng. Helgi J. Halldórsson trésmiður í Hafnarfirði, kvæntur Gertrud Johannessen frá Faereyj- um. Hörður vélstjóri í Fiskiðju Vestmannaeyja, kvæntur Kristínu Baldvinsdóttur úr Vestmannaeyj- um. Ástþór byggingarmeistari í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur frá Egilsstöðum í Ölfusi. Runólfur verkstjóri í Hafnarfirði, kvæntur Kristínu Sigurðardóttur frá Vestmanna- eyjum. Runólfur var maður stór í snið- um. Hann var í hærra lagi á vöxt og vel limaður, fríður í andliti og sviphreinn. Glaðsinna var hann og hinn mesti garpur til starfa. Rausnarlegur og gestrisinn, rækti vel vináttubönd og var félagslynd- ur. Hann var félagi í Oddfellow- reglunni og mikill áhugamaður um viðgang þess félagsskapar. Fjölskyldufaðir var hann góður og unni mjög börnum sínum og barnabörnum. Naut hann ástríkis og umhyggju þeirra í staðinn. Runólfur var í fáum orðum sagt drengur góður, trygglyndur og vinfastur. Var sá er þetta ritar einn þeirra mörgu er nutu vináttu hans og gestrisni. Bauð hann mér jafnan heim til sín þegar ég var á ferð í Eyjum eftir að ég flutti það- an og vildi, að ég gisti hjá sér. Var þá glatt á hjalla í hans góða ranni. Með þessum fáu orðum vil ég fyrir mína hönd og konu minnar — sem er systir Runólfs — þakka þegar leiðir hefur skilið um sinn fyrir langa og trygga vináttu. Ragnar Þorvaldsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.