Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1983 35 Class of 1984 "We A«TmeFuture/ „.ANDNOTHrtteCW STDPUí'.' Ný og jafnframt mjög spenn- andi mynd um skólalífiö í fjöl- brautaskólanum Abraham Lincoln. Viö erum framtíöin og ekkert getur stöövaö okkur segja forsprakkar klikunnar þar. Hvaö á til bragös aö taka, eöa er þetta sem koma skal? Aöalhlutverk: Perry King, Merrie Lynn Roet, Roddy McDowall Leikstjórl: Mark Leeter. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Hatkkaö verð Bönnuð innan 16 4ra. SALUR2 Merry Christmas Mr. Lawrence .r.lawrenceL I Heimsfræg og jafnframt | splunkuný stórmvnd sem I gerist í >angabúöum Japana i J siöarl heimsstyrjöld Myndin er gerö eftir sögu Laurens I Post, The Seed and Sower, og I leikstýrt af Naglsa Oshlma en pað tók hann timm ár aö full- I gera þessa mynd. Aöalhlut- I verk: David Bowie, Tom Conti, Ryuichi Sakamoto, Jack Thompaon. I Sýnd kl. 2.45, 5. 9 og 11.15. Bðnnuð börnum innan 14 ára. Haakkað verð. Myndin er tekln i Dolby Stereo og sýnd í 4 rása Star- I scope Staðgengillinn (The Mwm Mea) Enduraýnd kl. 3, 5, 7 og 11.15. Svörtu tígrisdýrin (Good Guys wear black) Hressileg slagsmálamynd. Aöalhlutverk: Chuck Normia, Jim Backua. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 11.15. SALUR4 Svartskeggur ÍK. '• Sýnd kl. 3, 5 og 7. Píkuskrækir (Pussytalk) Sú djarfasta sem komiö hetur Aöalhlutverk: Nila Horiza. Enduraýnd kl. 9 og 11. Bönnuð börnum innan 16 ára. I SALUR5 Atlantíc City Frábær úrvalsmynd útnefnd tll 5 óskara 1982. Aöalhlv.: Burt Lancaater, Suaan Sarandon. Leikstj.: Louia Malle. Sýnd kl. 5 og 9. Allar með íal. texta. Sovétmenn höfðu yfirburði í Evrópukeppni landsliða Skák Margeir Pétursson i z 3 5 u 7 8 VIHN NR. \ sovétr'ikin I A W4 ft’L b (d lo ? 38 1 z JÚ&'osLftV'l fí A 1 Wl 3 'í ft'A N (o tí/z 33 2 5 UNG-VERTftLftNL 3 54 3/4 m ft'L 3 5/z (c> 5 3/ 3 V ENGLANÞ 3 A 4/z 3'A 1 3J4 3 /z 5/z (o 30 5 Holland 2 yk 5" ft'L 1 5'í h/z ft'/z Ift’/z 5 6 búlg-arU 2 l'L « 2/z 1 H'L S 1S (o 7 DftNMÖRK 2 2 2 Hz 3'h 344 1 ¥L 10 7 8 V-kViKftLAND 1 fíz 3 1 y/t 3 354 yy/y mí % SOVÉTMENN sigruðu að venju í Evrópukeppni lands- liða sem fram fór um mán- aöamótin í búlgörsku borg- inni Plovdiv. Þeir hafa unn- ið þessa keppni allt frá upp- hafi og ætíð með miklum yfirburðum sem nú. Rúss- arnir hafa ávallt fariö mun léttar með þessa keppni en Ólympíumótin og er skýr- ingin efalaust sú að í Evrópukeppninni er teflt á átta borðum, en á Ólympíu- mótunum á fjórum. Rússar hafa miklu jafnari sveit en hinar þjóðirnar og í Plovdiv rökuðu þeir saman vinning- unum á neðstu borðunum. í sigursveitinni voru heims- meistararnir Karpov, Polugaj- evsky, Petrosjan, Vagnajan, Beljavsky, Tukmakov, Psakhis, Romanishin, Jusupov og Geller. Þessi sveit vann stórsigur á Hollendingum, Búlgörum, Dön- um og V-Þjóðverjum, lét sér nægja að vinna Ungverja og Englendinga með minnsta mun og gegn Júgóslövum lyktaði öll- um skákunum átta með jafn- tefli. Þrátt fyrir þennan ágæta árangur voru Sovétmenn án Tals, sem er veikur, Kasparovs og Smyslovs, en þeir undirbúa sig nú undir að tefla í undan- úrslitum áskorendakeppninnar. Júgóslavar hafa vafalaust verið mjög ánægðir með frammistöðu sína í Plovdiv og geta nú aftur gert kröfu til þess að vera álitnir næstmesta skák- þjóð heims, en þeim heiðri hafa Ungverjar getað státað af síðan þeir urðu Ólympíumeistarar ár- ið 1978. Mestu skákþjóðir V-Evrópu, Englendingar og Hollendingar, hafa varla verið sérlega ánægðir með árangur- inn, þó báðar sveitinar hafi ver- ið vel yfir 50% mörkunum. Danir, sem komu mjög á óvart í undanrásunum með því að slá Tékka út, voru nú sem höfuðlaus her því Bent Larsen sveik þá að þessu sinni og var ekki með. Engu að síður tókst þeim að komast hjá því að verða neðstir og má telja það afrek út af fyrir sig, því þeir voru eina sveitin sem státaði ekki af ein- um einasta stórmeistara. Botn- sætið kom því í hlut V-Þjóð- verja sem voru með unga stórmeistarann Eric Lobron á fyrsta borði, en að öðru leyti al- veg án sinna beztu manna, þ.á m. Robert Hubners, en þær sögusagnir ganga nú að Húbner sé alveg hættur að tefla, eftir tapið fyrir Smyslov í einvíginu um daginn. Það vakti athygli að gömlu kempurnar Petrosjan og Polug- ajevsky voru hafðir næstir á eftir Karpov, þótt þeim mistæk- ist að komast í áskorenda- keppnina í fyrra. Kollegi þeirra, Efim Geller, var hins vegar annar varamaður. Rafael Vag- anjan hefur náð frábærum árangri síðasta árið, staðið sig mjög vel á mótum og teflir jafn- an hvasst og skemmtilega. Strax í fyrstu umferð, er Rúss- arnir mættu gestgjöfunum, vann hann dæmigerða skák þar sem hver þrumuleikurinn rak annan. Andstæðingur hans var útnefndur stórmeistari á síð- asta FIDE-þingi. Hvítt: Inkiov (Búlgaríu) Svart: Vaganjan (Sovétríkjunum) Enski leikurinn 1. Rf3 — Rf6, 2. c4 — c5, 3. e3 — g6, 4. Rc3 — Bg7, 5. d4 — 0-0, 6. Be2 — cxd4, 7. Rxd4 Það er greinilegt að hvítur sættir sig vel við jafntefli. Eftir 7. exd4 — d5 kemur upp þekkt staða úr Grúnfeldsvörn. 7. — Rc6, 8. Rc2 - d6, 9. e4?! Nú er komin upp staða úr drekaafbrigðinu í Sikileyjar- vörn þar sem hvítur hefur tapað leik, því það hefur tekið hann tvo leiki að koma þessu peði á e4. Það er því rökrétt að svartur geti náð frumkvæðinu og það gerir Vaganjan svikalaust. 9. — Rd7, 10. 0—0 — Rc5 Petrosjan hefði án efa leikið 10. — Bxc3 til að gefa hvítum stakt tvípeð, en hvass skákstíll Vaganjans leyfir honum ekki að láta svo góða biskup af hendi. 11. f3 — fS, 12. exf5 — Bxf5, 13. Rd5 — Bxc2, 14. Dxc2 — e6, 15. Rc3 — Rd4, 16. Ddl — Rf5, 17. Del — d5! Takið eftir því hvernig svart- ur hefur undirbúið framrás þessa peðs til d4 og d3. 18. Khl - Hc8, 19. Hbl - d4, 20. Re4 — d3! 21. Bg5 — Dd4, 22. Bdl — Rxe4, 23. fxe4 — Rd6, 24. Hxf8+ — Hxf8, 25. Bg4 — Rxe4, 26. Bxe6+ — Kh8, 27. Be3 — d2!, 28. Dgl — Rf2+, 29. Bxf2 Endataflið eftir 29. Dxf2 — Hxf2, 30. Bxd4 — Bxd4, 31. Bg4 — Bxb2 er vonlaust á hvítt. 29. — Hxf2, 30. Ddl — De4, 31. Bd5 31. — Dxbl! og hvítur gafst upp, því eftir 32. Dxbl — He2, 33. Dgl — Hel, 34. Bf3 er svarað með 34. — Bd4! Sá Dani sem beztum árangri náði í Plovdiv var Jakob 0st-Hansen sem fékk hvorki meira né minna en vinning af 6 mögulegum. Drottningar- fórn hans gegn Júgóslavanum Hulak var sérlega glæsileg, en auk hans lagði 0st-Hansen Beljavsky að velli. Svart: Hulak (Júgóslavíu) Hvítt:: 0st-Hansen (Danmörku) 28. Dxh6+!! Ef nú 28. - Kxh6 þá 29. Rfg4+ — Rxg4, 30. Rxg4+ — Kh7, 31. Rf6+ - Kh8, 32. Hh3+ — Hh7, 33. Hxh7 — mát. Hulak valdi því aðra leið, en með peð undir og sundurtætta kóngs- stöðu reyndist baráttan von- laus. 28. — Kg8, 29. Dg5 — Rh7, 30. Dg4 — Bc8, 31. Dh4 — Hf8, 32. Rfg4 — Kh8, 33. Rh6 — d5, 34. Rxd5 — Rxd5, 35. hxd5 — Bb7, 36. Hdl — Hxf4, 37. Hd8+ — Rf8, 38. Rf7+ — Kg8, 39. Dh8+ — Kf7, 40. Dxf8+ og nú loks sá svartur sitt óvænna og gaf. 10 bestu erlendu myndirnar í Vestur-Þýska landi nóv.—des. 1982. Seld Titill Útgefandi sæti CLASS OF 1984 Scotia 462,244 THE THING UIP 398,565 STAR TREK II UIP 286,806 PORKY’S Fox 270,350 PINK FLOYD THE WALL Neue Constantin 244,085 THE WANDERER OF SANSSOUCI Scotia 213,521 SUSI UND STROLCH Fox 208,069 BLADE RUNNER Wamer-Columbia 141,954 GIB DEM AFFEN 2UCKER UIP 140,255 Þessar tölur tala sínu máli, myndin sem allir tala um. Sýnd kl. 3 — 5 — 7 — 9 — 11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.