Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLf 1983 Listasafn Einars Jónssonar: Framkvæmdir í garðinum í fullum gangi FRAMKVÆMDIR eru nú í fullum gangi í garði Listasafns Einars J. Jónssonar, þar sem verið er að koma fyrir 23 eirafsteypum af listaverkum Einars. Sagði forstöðumaður safnsins, Ólafur Kvaran, er Mbl. leit við hjá honum í gær, að verið væri að skipta um gróður, helluleggja og steypa stalla und- ir verkin og er fyrirhugað að garðurinn verði opnaður almenningi um miðjan ágúst. (Emilía Björnsdóttir Ijósmyndari Mbl. tók þessa mynd I garftinum I gær.) Matthías Bjarnason samgönguráðherra: „Ég held að það sé engin sérstök undanþágugleði í samgönguráðu- neytinu. Þetta er vandamál sem hef- ur verið svo lengi sem ég man eftir mér í sambandi við undanþágur til sjómanna. Það er skortur á sjó- mönnum, en mér finnast einnig mjög eðlileg viðbrögð fulltrúa Far- manna- og fiskimannasambands- ins,“ sagði Matthías Bjarnason samgönguráðherra í tilefni af um- mælum Helga Laxdal varaformanns Vélstjórafélags íslands í Mbl. í gær. Helgi segir m.a. í viðtalinu, að hann telji undanþágur ráðuneytis- ins of lausar í hendi. Tilefnið er að samgönguráðuneytið veitti fyrir skömmu tveimur vélstjórum með ófullnægjandi réttindi leyfi til vél- stjórnar á flutningaskipinu ís- Mikil aukning á djúprækjuveiðinni MIKIL aukning hefur nú verið á djúprækjuveiðum á flestum miðum umhverfis landið. Mikil veiði hefur verið við Eldey, á miðunum út af Vestfjörðum og Norðurlandi auk þess sem Bjarni Sæmundsson fann fyrir skömmu ný rækjumið út af Austfjörðum. Sem dæmi má nefna, að við Eldey hafa bátar fengið upp í 5 lestir í róðri og á Vestfjörðum var djúprækjuafiinn rúmum 500 lestum meiri í júní nú en í sama mánuði í fyrra. Sala á rækju hefur gengið vel að undanfömu og hefur hún aðal- lega farið til landa innan Efnahags- bandalagsins. „Það má segja að nú sé góðæri Leiðrétting ÞAÐ var ranglega frá því skýrt í Morgunblaðinu í gær að maður sá sem úrskurðaður var í gæsluvarð- hald vegna fjársvika væri fyrrver- andi fasteignasali. Þeir einir hafa rétt til að kalla sig fasteignasala, sem hafá lokið prófi sem löggiltir fasteignasalar eða eru lögfræðingar eða við- skiptafræðingar, og hafa fengið leyfi til fasteignasölu hjá lög- reglustjóra. Hið rétta er að mað- urinn starfaði við fasteignasölu, sem hann rak, í umboði annars, sem hafði til þess leyfi. Morgunblaðið biðst afsökunar á þessum mistökum. til sjós og lands í rækjuiðnaðinum, veiðum og vinnslu, það fer ekkert á milli mála þegar sjómenn eru komnir upp í 100.000 krónur á mánuði á meðalbát. Hér er ein- göngu um djúprækjuveiðina að ræða, en hún er mjög vaxandi, innanfjarðarrækjan er háð strangari kvóta, sem hefur verið lítið breyttur undanfarin ár,“ sagði Óttar Yngvason, fram- kvæmdastjóri íslenzku útflutn- ingsmiðstöðvarinnar, méðal ann- ars í samtali við Morgunblaðið. óttar sagði ennfremur, að mikil aukning væri á rækjuafla Norð- manna þessi árin og færi mest öll rækja þeirra inn á Bandaríkja- markaðinn, þar sem Alaskarækj- an hefði nær alveg brugðist í ár. Norðmenn hefðu ekki sömu toll- fríðindi og við innan EBE-land- anna og leituðu því fanga vestan hafs og utan EBE. Vegna tolla- ivilnana okkar innan EBE-land- anna opnuðust frekari möguleikar fyrir okkur þar og þangað færi meirihluti rækjunnar héðan og á góðu verði. Þá hefði aukin neyzla einhver áhrif í þessum málum. Óttar sagði ennfremur, að rækjuveiði hér við land hefði verið mjög svipuð undanfarin ár, í fyrra hefði verið landað 9.150 lestum, árið áður um 8.000 lestum, en væri litið lengra aftur í tímann, til dæmis til ársins 1973, hefði ársafl- inn verið 7.300 lestir. bergi, þrátt fyrir að Vélstjórafé- lagið og undanþágunefnd hefðu synjað beiðni þar að lútandi. Matthías sagði ennfremur: „Þessar undanþágur hafa tíðkast og að vissu marki er það rétt, að það eru ekki nógu strangar og ákveðnar reglur í ráðuneytinu og ég hef hug á því að breyta þeim og gera fastari. Einnig hef ég hug á að leita betra og víðtækara sam- starfs við þessa aðila. Ráðherrann var þá spurður hvort ekki væri varhugavert að veita undanþágur til yfirmanna á sjó, sem ekki hefðu fullnægjandi réttindi. „Það hefur nú verið gert í nokkra áratugi og mjög oft. Þetta er ekki nein aukning eða viðbót við það sem verið hefur. Hins vegar er það víða þannig að það er skortur á mönnum með próf og það kostar sumar útgerðir að komast ekki með skip á sjó. Nefnd skipuð til endurskoðunar á skattalögum: Reiknað með frumvarpi í þingbyrjun í haust Fjármálaráðherra sendi í gær skipunarbréf vegna nefndar, sem hann hefur falið að endurskoða lög um tekju- og eignaskatt í þeim til- gangi að þau örvi fjárfestingu og eiginfjármyndun í atvinnulífinu, eins og segir í skipunarbréfinu. Formað- ur nefndarinnar er Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi. 1 lok skipunarbréfsins ber fjár- málaráðherra fram þá ósk að nefndin hraði störfum og leggi til- lögur fram það tímanlega, að unnt verði að leggja frumvarp til laga um breytingar á fyrrgreindum lögum fram á Alþingi, þegar það kemur saman í haust. Nefndina skipa, auk ólafs, Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður og Þor- steinn Pálsson af hálfu Sjálfstæð- isflokksins, einnig Davíð Aðal- steinsson alþingismaður og Geir Geirsson, löggiltur endurskoðandi, af hálfu Framsóknarflokks. Mezzoforte: Sjö tónleikar í Japan í febrúar Lundúnum, 15. júlí. Frá (iunnlaugi KögnvaldsNyni, fréttamanni Morgunblaðsimt. Engin sérstök undan- þágugleði í ráðuneytinu — en rétt að reglur eru ekki nógu strangar og ákveðnar „Strákarnir eru allir búnir að leggja mjög hart að sér á síðustu vikum. Lokatónleikar þeirra á ferða- laginu um Bretland eru á morgun og að þeim loknum hafa þeir leikið 47 sinnum. Enginn, sem ég þekki í tón- listarbransanum, myndi leggja slíkt á sig,“ sagði Paul Bolton hjá Con- corde-hljómleikafyrirtækinu við mig. Fastlega er við því búist, að Mezzoforte nái inn á „topp-10“ listann í Japan yfir erlendar plöt- ur. í Japan er stuðst við þrjá vin- sældalista. Er þar um að ræða einn fyrir innlendar plötur, annan fyrir erlendar og svo þann þriðja, sem er sambland af hinum báðum. Platan „Surprise Surprise" er þessa dagana í um 20. sæti á er- lenda listanum. Sagði Bolton ennfremur, að kæmist platan hærra á blandaða listanum stæði hljómsveitin með pálmann í höndunum. Mezzoforte hefur þegar aflað sér umtals- Drengur undir dráttarvagni TÓLF ára drengur frá Selfossi slasaðist mikið á höfði um miðjan dag í gær, þegar hann varð undir vagni sem dreginn var af drátt- arvél á bænum Þórarinsstöðum í Hrunamannahreppi. Þyrla varn- arliðsins var fengin til að ná í drenginn og lenti hún í Reykjavík klukkan 18.17. Drengurinn er á Borgarspítalanum, en fréttir af líðan hans var ekki að fá í gær- kveldi, né nánari fregnir af því hvernig slysið átti sér stað. verðra vinsælda í Japan og er búið að bóka hljómsveitina á 7 tónleika á 10 dögum í febrúar á næsta ári. Þá eru 5-6 tónleikar til viðbótar frágengnir í Bretlandi í haust, auk þess sem frekari tónleikar í Hol- andi fyrirhugaðir. Kaupmannahöfn: Batahorfur taldar góðar Maðurinn sem ráðist var á á hóteli í Kaupmannahöfn aðfara- nótt fimmtudags og sleginn í rot og rændur, komst til meðvitund- ar í gær og eru batahorfur hans taldar eftir atvikum góðar. Hann gekkst undir aðgerð seinnipart fimmtudagsins og töldu læknar hana hafa tekist vel. Hægt hefur verið að tala við sjúklinginn, en hann verður ekki yfirheyrður fyrr en hann hefur náð sér betur, um at- burði þá er leiddu til þess að á hann var ráðist. © INNLENT Albert Guðmundsson um söluskatteniðurfellinguna: Ákveðin fyrir opnun til að lækka miðaverð „ÞESSI söluskattsniðurfelling var fyrir börnin í bænum en ekki fyrir að- standendur tivolísins. Heimildin fyrir niðurfellingunni var gefin áður en tívolíð var sett upp í þeim tilgangi að lækka aðgöngumiðaverðið og gefa þannig fleiri börnum tækifæri til að nota þessa tilbreytni í bæjarlífnu. Með þessu var ég einvörðungu að styrkja þetta framtak einstaklinga til að skapa tímbundna tilbreytni fyrir börn og unglinga bæjarins," sagði Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra, er Mbl. spurði hann hvort ákvörðun hans um að fella niður söluskatt af rekstri tivolísins á Miklatúni hefði verið tekin til að minnka tap Kaupstefnunnar, en eins og komið hefur fram í fréttum nam það um 2 milljónum króna. Halldór Guðmundsson talsmað- ur Kaupstefnunnar sagði aðspurð- ur, að heimildin til niðurfellingar söluskatts hefði fengist viku eða tíu dögum áður en tivolíið hóf rekstur, og því hefði söluskattur ekki verið innheimtur í miðaverði. Ef við hefðum ekki fengið heimild- ina til niðurfellingr þá hefði miða- verðið verið 23,5% hærra, sagði hann. Fjármálaráðherra sagði einnig, að tap Kaupstefnunnar hefði orðið hið sama þó svo að söluskattur hefði verið innheimtur. „Útkoman hefði verið sú sama fyrir þá. Þeir hefðu bara innheimt söluskatt fyrir ríkissjóð og staðið uppi með sama tapið. Þetta á ekki að hafa komið neinum til góða nema börn- unum, nema þá kannski í aukinni aðsókn, sem ég vona að hafi verið, því fleiri börn hafa þá fengið tæki- færi til að njóta þessarar til- breytni í bæjarlífinu," sagði hann. Þá var fjármálaráðherra spurð- ur, hvort hann myndi veita sömu fyrirgreiðslu vegna sirkussins sem kominn er til landsins. Hann sagð- ist ekki hafa fengið neina beiðni um slíkt, enda væru það erlendir aðilar sem stæðu að sirkusnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.