Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JtJLÍ 1983 15 Arnrinn Kallsberg, sjávarútvegsráðherra Færeyja. Hluti hafnarinnar í bak- sýn. MorgiinblaðiA/HG Laxveiðar Færeyinga: Höfum ekk- ert að fela — segir sjávarútvegsráðherra Færeyja „ÉG TEL að við veiöum ekki þorsk kominn af ísiandsmiðum svo nokkru nemi. Hér við Færeyjar eru tvær tegundir þorsks og þær eru báðar í nokkru frá- brugðnar íslandsþorskinum, þær eru Ijósari. Skýring á auknum þorskveiðum okkar nú á þessu ári er frekar sú, að mikið er um átu í sjónum umhverfis eyjarnar og tveir sterkir árgangar, 1978 og 1980 eru komnir inn í veiðina," sagði Annfinn Kallsberg, sjávarútvegsráðherra Færeyja meðal annars er Morg- unblaðið ræddi við hann um þorskveiðar Færeyinga. „Þá hefur veiðigeta og sókn á heimaslóð vaxið verulega þó við höf- um ekki stækkað flotann. Skipin hafa leitað heim af erlendum mið- um og hafa þau lagt sig meira eftir þorski vegna sölutregðu á ufsa að undanförnu. Veður hefur einnig ver- ið mjög hagstætt og á hrygningar- tímanum fengu togararnir góðan afla. Línuveiðin hér hefur minnkað síðustu ár vegna þess, að fjárhags- legur grunnur fyrir henni hefur ver- ið veikur. Sá grunnur hefur hins vegar fengizt með aflakvótanum við ísland, en hann heldur uppi línu- og handfæraveiðunum." Hvað með laxveiðar Færeyinga? „Við höfum fylgzt með viðbrögð- um íslendinga við laxveiðum okkar og þar sem samstarfið við þá er af- gerandi fyrir sjávarútveg okkar, höfum við lagt spilin á borðið. Við leggjum áherzlu á að fiskimenn taki öll merki, sem þeir finna, taki sýn- ishorn af hreistri, stærð og fleiru og sendi til Fiskirannsóknarstofunnar. Við höfum í ár fengið nokkra merkta laxa, en mjög lítinn hundraðshluta heildaraflans og engann með íslenzku merki. Því er ekki hægt að segja hvort við veiðum íslenzkan lax, en samkvæmt þessu er það ólíklegt. Hafið umhverfis Færeyjar er mjög gott uppeldissvæði fyrir lax og undanfarin ár höfum við veitt allt að 1.200 lestum árlega, en eftir sam- komulag við EBE höfum við tak- markað veiðina við 625 lestir og fækkað skipum. Því teljum við okkur hafa komið á móti öllum sanngjörnum óskum annarra hags- munaþjoða. Við ölum laxinn upp í færeyskum sjó og eigum því rétt á því að fá eitthvað fyrir það. Við not- um aðeins línu við veiðarnar meðan löndin umhverfis okkur veiða meira og auk þess í net. Við höfum lofað því að ræða þessi mál við íslenzka ráðamenn áður en næsta vertíð hefst og verða þær viðræður líklega í haust. Við höfum ekkert að fela. Hvað aðrar veiðar varðar má benda á það, að þrátt fyrir aukna uppbyggingu fullkominna kol- munnaskipa misheppnuðust veið- arnar nú vegna þess hve dreifður kolmunnin var, en við reynum í auknum mæli að færa okkur sem flesta möguleika, aðra en þá hefð- bundnu, í nyt og því styrkir lands- týrið ekki lengur skipakaup og endurbyggingu fyrir hefðbundnar veiðar. Ég vonast til að hin góða sam- vinna íslendinga og Færeyinga og hin jákvæða afstaða hinna fyrr- nefndu í okkar garð haldi áfram. Island er eina landið, sem hefur gef- ið okkur veiðileyfi innan lögsögu sinnar án þess að krefjast nokkurs í staðinn. Það hefur mikla þýðingu fyrir Færeyinga og þeir eru þakklát- ir Islendingum," sagði Annfinn Kallsberg. Afgreiðslu á tillögu um fjöldatakmark- anir var frestað Lækning við AIDS? East Lansing, Michigan, 13. júlí. AP. EFNI, sem fyrirfinnst með eðli- legum hætti í heilbrigðum hvít- um blóðkornum í mannslíkam- anum, kann að veita lækningu við sjúkdómnum AIDS (áunn- inni ónæmisbæklun). Margra mánaða rannsóknir eru þó framundan, áður en unnt verður að sanna endaniegt notagildi efnisins. Kemur þetta fram í skýrslu, sem birtist í nýjasta tölublaði bandaríska lækna- tímaritsins „Journal of Clinical Investigation“. Þetta efni, sem kallast „Int- erleukin-2“ jók „verulega starf- semi þeirra fruma", sem hafa það að verkefni, að útfyma krabbameinsfrumum og frum- um, sem sýktar eru af veirum. „Þessi jákvæði árangur gefur til kynna, að „interleukin-2“ muni að lokum koma að gagni við lækningu sjúklinga, sem haldnir eru AIDS,“ er haft eftir Alain Rook, höfundi skýrslunnar. Þessar „útrýmingarfrumur" eru óvirkar í sjúklingum, sem haldnir eru AIDS og draga þannig mjög úr ónæmiskrafti þeirra og gera þá næma fyrir ýmsum sjúkdómum þar á meðal sumum tegundum krabbameins, er haft eftir Rook, en hann starf- ar við Matvæla- og lyfjaeftir- litsstofnun Bandarikjanna. "Ja, nein, bitte, danke, er allt sem þú þarft að kunna. Hann Róbert sér um restina. TIL ÞÝSKALATIDS OG AUSTURRÍKIS MEÐ RÓBERTARHniiriSSVni Farskip hí stendur íyrir hálísmánaðar ierð um marga dýrðlegustu staði þessara landa. Far með ms Eddu og rútubíl og gisting í 2ja manna herbergjum alla leið kostar aðeins kr.: 15.900 Brottför 27. júlí Meðal viðkomustaða má nelna: Bremerhaven, Hannover, Göttingen, Núrnberg, Múnchen, Salzburg. Neuschwanstein kastala, upptök Dónár, Schwartzwald (svortu skóga), Baden-Baden, Heidelberg, Rúdesheim (hinn rómantíska Rínardal). HÁSKÓLARÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær tillögu háskólarektors um að bíða með afgreiðslu tillögu frá Birni Þ. Guðmundssyni í ráðinu um athugun á fjöldatakmörkunum við Háskóla íslands, þar til niður- stöður þróunarnefndar liggja fyrir, en hún á að skila áliti í árslok. Að sögn rektors Háskóla ís- lands, Guðmundar Magnússonar, gerist því ekkert í málinu fyrr en um áramótin. Hann sagði að verk- efni þróunarnefndar væri að gera úttekt á stöðu deilda Háskólans og tillögur um nýjar námsleiðir o. fl. Háskólarektor var þá spurður hvort hann teldi að unnt yrði að hefja kennslu í haust án frekari takmarkana, miðað við núverandi fjáThagsstöðu. Hann svaraði því til að þeir myndu reyna það, en líklega yrði það erfitt. „Það verður í sjálfu sér ekki hlaupið að því, en það virðist ekki vera nein endanleg afstaða til þessa í fjárlögum hvað er veitt. Ef ekki koma til aukafjárveitingar á næsta ári stefnir í óefni með allar framkvæmdir fyrir utan beinan rekstur. Það þýðir bara leiguhúsn- æði og vandræði," sagði Háskóla- rektor að lokum. Til að komast í þessa einstœðu íerð með heimamanni (hann Róbert okkar er ekki alislenskur, eins og þið vitið) þarl að panta þatttoku nu íljótlega Gongi 12/7 Q3 FARSKIP AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.