Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 40
BÍLLINN BlLASALA SIMI 79944 SMIÐJUVEGI 4 KÓRAVOGI LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1983 Alltfy rir gluggann —----—.... i r----1 Ul o Siðumúla 22 Simi 31870 Keflavik Sími 2061 Utanríkisráðherra svarar Ragnari Arnalds: Endurnýjun ratsjár- kerfís í undirbúningi „RÆTT hefur verið um að reisa tvær ratsjárstöðvar í stað þeirra, sem lagðar voru niður á Vestfjörðum og Norð-Austurlandi og endurnýja tækjabúnað þeirra sem fyrir eru, þ.e. á Stokksnesi og Reykjanesi. Þá opnast enn betri möguleikar en áður til að nýta ratsjárstöðvar við stjórn á umferð almennra flugvéla á innan- landsleiðum og í millilandaflugi, sem og við öflun upplýsinga fyrir landhelgisgæsluna,“ segir í frétta- tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu í gær, en í henni svarar Geir Hall- grímsson, utanríkisráðherra, spurn- ingum Ragnars Arnalds, alþingis- manns, um ratsjárstöðvar á vegum varnarliðsins. Fram kemur að málið er enn á undirbúningsstigi og ákvörðun ekki tímabær að svo stöddu. í fréttatilkynningunni segir, að úrvinnsla upplýsinga og fram- kvæmd ratsjáreftirlits sé í hönd- um varnarliðsins en ekkert sé því til fyrirstöðu að fslendingar vinni við ratsjárstöðvarnar og fylgist með úrvinnslu upplýsinga. Þá segir utanríkisráðherra orð- rétt: „Verði tækjabúnaður núver- andi ratsjárstöðvar á Stokksnesi endurbættur og tvær nýjar stöðv- ar byggðar, er gert ráð fyrir, að mun færri geti rekið hverja stöð og að mestu leyti íslendingar, ef því er að skipta, í stað rúmlega 100 manna, sem nú starfa á Stokks- nesi og eru allt Bandaríkjamenn. Rekstur endurbættrar stöðvar á Reykjanesi verður nokkuð mann- frekari en þó fækkar frá því sem nú er. Þar er gert ráð fyrir mið- stöð, sem safni upplýsingum á einn stað frá hinum þremur stöðv- unum.“ Eins og fram kemur í fréttatil- kynningu utanríkisráðuneytisins voru upphaflega fjórar ratsjár- stöðvar hér á landi á vegum varn- arliðsins en nú eru tvær þeirra eftir. Sú þriðja var við Aðalvík á Vestfjörðum og hin fjórða á Langanesi. Ratsjáin á Langanesi mun hafa verið öflugust þeirra, en hún eyðilagðist í óveðri 1968. Ratsjárnar eru hluti af svokall- aðri DEW-línu, aem komið var upp á sjötta áratugnum og liggur þvert yfir norðanvert Kanada um Grænland, ísland, Færeyjar og til Hjaltlandseyja. (Sjá fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins í heild í miðopnu blaðsins.) Landslið íslands í hestaíþróttum valið á Hellu Frá frétUritara Morpinblaósiiu Valdimar Krwtiiuwyni UM sexleytið í gær lauk úrtökukeppninni á Hellu eftir æsispennandi baráttu. Sjö hestar og menn voru valdir sem fulltrúar íslands á Evrópumót íslenskra hesta sem haldið verður í Þýskalandi fyrstu vikuna í september. Á þessari mynd eru sex þeirra. Lengst til vinstri er Tómas Ragnarsson á Fjölni og síðan koma Gunnar Arnarsson á Galsa, Aðalsteinn Aðalsteins- son á Baldri, Lárus Sigmundsson á Bjarma, Olil Amble á Blika og Reynir Aðalsteinsson á Sprota. Sjöundi landsliðsmaðurinn er Eyjólfur Isólfsson á Krák. Fleiri um- sóknir nú en í fyrra- haust INNRITUN nýnema í Háskóla ís- lands fyrir veturinn 1983-84 lauk í gær, 15. júlí. Ekki hafði fjöldi um- sókna verið talinn þegar skrifstofa Háskólans lokaði en Ijóst þótti að þær væru fleiri en á sama tíma í fyrra. Voru þá um 1200 manns sem sendu umsóknir. Hafa nú yfir 1300 manns sótt um skólavist en umsóknir utan af landi og aðrar þær sem póstlagðar eru með póststimpli 15. júlí eða fyrr eiga eftir að bætast við þá tölu. Þá hafa borist 87 umsóknir f sjúkraþjálfun, sem ekki eru taldar með þar sem að- eins 18 nýnemar eru teknir í það nám. Háskólaráð hefur frestað til ára- móta ákvörðun vegna tillögu um al- mennar takmarkanir á fjölda há- skólanema. Þó allir fjallvegir séu nú að verða færir, eru vfðu miklar snjófyrningar við vegi. Þessi mynd var tekin á Breiðadalsheiði fyrir tæpri viku og gefur hún góða mynd af snjófarginu, sem þar hefur verið. Flestir fjallvegir að verða akfærir FLESTIR fjallvegir verða nú orðnir færir um eða eftir helgina. Er það nokkuð í seinna lagi og hefur snjór eða aurbleyta hamlað færð um þá. Morgunblaðið aflaði sér upplýsinga um ástand þessara vega hjá Vegagerð ríkisins og fer hér á eftir yfirlit yfir færð á helztu fjallvegum: Uxahryggir eru færir öllum bíl- um; Kaldidalur var opnaður í gær; Laxárdalsheiði er fær öllum bílum; Steinadalsheiði er lokuð; Trölla- tunguheiði er fær öllum bílum; Þverárfjall er jeppafært og verður lagað eftir helgina; Kjölur er fær jeppum og stórum bílum; Sprengi- sandur var opnaður í gær, en veg- urinn er mjög slæmur; Skagafjarð- arleið er lokuð, en verður skoðuð um helgina og sama er að segja um Eyjafjarðarleið. Á Fjallbaksleiö nvrðri hefur verið heflað frá Sig- öídu í Landmannalaugar og fært er úr Skaftártungum í Eldgjá og byrjað verður að vinna í kaflanum þarna á milli um helgina. Á Fjalla- baksleið syðri hefur verið heflað í Hvanngil, en Mælifellssandur er ófær en verður heflaður í næstu viku. Ófært er milli Keldna og Hvanngils og snjór er á milli Hvanngils og Álftavatns; Dóma- dalsleið er fær; Öskjuleið cr jeppa- fær og verið er að hefla úr Dreka- gili inn í Öskju; Kverkfjöll eru jeppafær. Hraðfrystihús Patreksfjarðar: Laun væntanlega greidd á mánudag — Vandinn hugsanlega leystur með aðstoð SÍS og Olís, segir Jens Valdimarsson, kaupfélagsstjóri „ÉG SÉ ekki fram á það, að laun hjá Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar verði greidd út í dag, en líklega leysist þetta mál fyrir hádegi á mánudag. Þá verður byrjað að landa úr togar- anum okkar og vinna ætti að geta hafizt þá eftir hádegið,“ sagði Jens Valdimarsson, kaupfélagsstjóri á Patreksfirði, í gær er Morgunblaðið innti hann eftir því hvort laun hefðu verið greidd út hjá hraðfrystihúsinu. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun starfsfólk tilbúið til að mæta til vinnu á mánudag verði þess óskað. Jens sagði enn- fremur, að á launaskrá hjá fyrir- tækinu væru um 120 manns auk áhafna á togaranum og línubát, sem gerður væri út frá Hrað- frystihúsinu. Nú ætti þetta fólk inni tveggja vikna laun. Ekki sagði Jens sér kunnugt um það hve mikið frystihúsið skuldaði í launagreiðslu en gat þess að á síð- asta ári hefðu launagreiðslur numið 25 milljónum króna. Aðspurður um það hvort SÍS og Olís hlypu undir bagga með frysti- Að sögn Þórhalls Ásgeirssonar, ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðu- neytinu, verður rætt um fram- kvæmd viðskiptasamnings land- anna og þá um leið þau mál, sem báðir aðilar kunna að leggja húsinu sagði Jens að það væri hugsanlegt, en vildi ekki að öðru leyti tjá sig um það hvernig málið yrði leyst. „Mér finnst það mjög sorglegt að ekki skyldi takast að greiða út laun í dag. Mér finnst verkafólk hér á Patreksfirði hafa tekið þessu alveg sérstaklega vel.“ áherzlu á og það sem talið er geta betur farið. Sagði Þórhallur, að is- lenzka sendinefndin hefði ákveðn- ar óskir á ýmsum sviðum, en hann vildi ekki tjá sig um hverjar þær væru. Viðræður við Sovét- ríkin í ágústmánuði ÁFORMAÐ er að árlegar viðskiptaviðræður milli íslands og Sovétríkjanna fari fram í Moskvu dagana 29. til 31. ígúst. Hér er um að ræða viðræður milli viðræðunefnda viðskiptaráðuneyta beggja landanna, en ekki ura beinar samningaviðræður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.