Morgunblaðið - 13.08.1983, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.08.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1983 21 Munum ræða mál- ið á stjórnarfundi — segir Sveinn Björnsson, formaður ÍSÍ „ÞAÐ VERÐUR fundur í stjórn íþróttasambands íslands á mið- vikudaginn og þetta mál verður tekið fyrir þar,“ sagði Sveinn Björnsson, formaður ÍSÍ. Hann sagði að á þessu stigi málsins vildi hann ekkert láta eftir sér hafa um samning FRÍ og Sam- bandsins en þess væri að vænta, að yfirlýsing yrði gefin út að loknum stjórnarfundinum á mið- vikudag. Samningurinn skyldar íþróttasam- böndin til viðskipta við Samvinnuferðir — segir Örn Steinsen hjá ferðaskrifstofunni Útsýn „ÞAÐ ER greinilega ekki kjarnorku stríð sem maður þarf að óttast mest heldur Sambandið," sagði Örn Steinsen hjá ferðaskrifstofunni Utsýn. Hann var inntur álits á þeim sérstöku samstarfs- samningum sem Körfuknattleikssam- bandið, Handknattleikssambandið og Frjálsíþróttasambandið hafa gert við ferðaskrifstofuna Samvinnuferðir- Landsýn og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær. Eins og fram kom í frétt blaðsins hafa þessi þrjú íþróttasam- bönd hlotið íþróttastyrk SÍS. Örn sagði að öll þessi sérsambönd hefðu áður verslað hjá Útsýn en hætt því eftir að sambandið veitti þeim styrk sinn. „Þau eru í raun skylduð með samningnum til að versla við Samvinnuferðir-Landsýn. 1 samn- ingnum er talað um að styrkinn skuli nota til kaupa á þjónustu og vörum hjá SÍS, kaupfélögunum og sam- starfsfyrirtækjum þessara aðila, en það er vitað mál að ekki er um annað að ræða en kaup á farseðlum og ferðalögum. Við vissum að það hlyti að standa í sambandi við þennan styrk að þau hættu að eiga viðskipti við Útsýn, en vissum það þó ekki fyrir víst hvernig samningurinn var úr garði gerður fyrr en nú. Mér finnst vera um misnotkun á fé Sambandsins að ræða. Það er í sjálfu sér í lagi að gefa slíkan styrk, en án skilyrða. Það er aðalmálið. Við ræddum það hér á sínum tíma að veita styrk, en aldrei hefði komið til greina af okkar hálfu að binda hann slíkum skilyrðum. Það á aðeins að fara eftir þjónustunni og hvort unnt er að útvega ódýr far- gjöld, hvar aðilar hafa viðskipti sín. Samvinnuferðir þurfa ekki að hugsa um slíkt. Þeir fá þetta á silfurfati og þurfa ekkert fyrir þessu að hafa. Ljóst er, að viðkomandi íþróttasam- band fær ekkert betri kjör hjá Sam- vinnuferðum en hjá öðrum. Tökum t.d. áætlunarflug Flugleiða og Arnar- flugs. Þar eru allir með sömu kjör. Ef hópur íþróttamanna ætlar utan þá er það aðeins ÍSÍ-gjaldið sem kemur til greina. Samvinnuferðir geta boðið upp á það eins og við. En Sambandið er að hjálpa Samvinnuferðum, eins og það hefur gert í gegnum tíðina. Eg var þó mjög hissa þegar ég sá Örn Steinsen samninginn, þ.e. að í raun skyldar hann viðkomandi samband til að fara með öll sín mál tii Samvinnuferða, til þess að auka söluna þar og veita þeim færi á að semja við þá aðila, sem þeir eiga í skiptum við, s.s. flugfélögin. Við erum með svo og svo mikil við- skipti við ykkur og viljum því hag- stæðari kjör á öðrum sviðum. Þetta er ekkert annað en mútustarfsemi í orðsins fyllstu merkingu." Morgunblaðið reyndi í gær árang- urslaust að ná sambandi við Stein Lárusson, forstjóra ferðaskrifstof- unnar Úrvals, vegna þessa máls, en hann dvelur erlendis um þessar mundir. Skil ekki hvað Mbl. gengur til með þessu — segir Friðrik Guðmundsson, formaður HSÍ „ÉG SKIL ekki hvað Morgunblaðinu gengur til með skrifum eins og þeim sem voru í blaðinu í dag. Jafnframt óttast ég að fyrirtæki munu hrökklast frá fremur en sækjast eftir að styðja íþróttahreyfinguna ef þau fá svona skrif á sig,“ sagði Friðrik Guðmundsson, formaður Handknattleikssambands ís- lands. Hann sagði samning þann sem HSÍ hefði gert við SÍS um íþróttastyrk Sambandsins áþekkan þeim sem SÍS og FRÍ hefðu gert sín á milli. „Hér er alls ekki um viðskiptasamning að ræða heldur styrk vegna þess að það eru ekki kvaðir í samningum um við- skipti við Samvinnuhreyfinguna heldur aðeins tiimæli," sagði Friðrik. „Mér finnst mjög eðlilegt að fyrir- tæki sem styrkir íþróttahreyfinguna komi með slík tilmæli. Mér finnst það aðeins eðlilegur viðskiptamáti. Ef Eimskip færi t.d. fram á það við KSÍ, ef það þyrfti á þjónustu skipafélags- ins að halda, að það færi ekki með þau viðskipti til Hafskips, þá fyndist mér það eðlilegt og mjög svipað," sagði Friðrik þegar hann var spurður hvort eðlilegt gæti talist fyrir íþróttasamtökin að gera umræddan samning, þar sem mælst væri til að sinnt væri slíkum tilmælum. Þá var hann spurður hvort öll þau smáatriði sem fram kæmu í samn- ingnum gætu talist eðlileg. Þar er t.d. kveðið á um að fulltrúi SIS skuli sitja blaðamannafundi íþróttasamtakanna og að fræðslubæklingur um SÍS skuli fylgja möppum þátttakenda í nám- skeiðum á vegum íþróttasamtakanna. Friðrik sagði að SIS hefði látið útbúa mjög myndarlegar möppur fyrir alla fulltrúa á þingum HSÍ og haft í þeim auglýsingapésa. „Þetta er ekki dregið Friðrik Guðmundsson frá styrknum á neinn hátt og mér finnst ekki óeðlilegt að þeir komi sín- um málum að á þennan hátt. Þetta er aðeins auglýsingastarfsemi og við njótum góðs af henni,“ sagði Friðrik Guðmundsson. Þá sagði Friðrik að HSl hefði gert samstarfssamning við Samvinnu- ferðir, en áður haft staðgreiðslu- viðskipti við Flugleiðir. „Samningur okkar við Samvinnuferðir hefur reynst okkur óhemju vel,“ sagði Frið- rik. Hann bætti því við að samning- urinn við Samvinnuferðir tengdist ekki á nokkurn hátt íþróttastyrk Sambandsins. Ennfremur sagði hann að HSl væri í mörg hundruð þúsund króna skuld við Samvinnuferðir og hefði þjónusta starfsmanna ferða- skrifstofunnar hvort tveggja í senn verið lipur og mótast af skilningi í garð samtakanna. Loks sagði Friðrik Guðmundsson að HSÍ væri þegar far- ið að leita eftir nýjum auglýsinga- samningi eftir að samningurinn við SlS rennur út um áramótin. Hugmyndin um hús tónlist- arinnar mjög athyglisverð Rætt viö Stefán Einarsson hljódtæknifræðing í ráði er að stofna formlega í haust samtök áhugamanna um hús tónlistarinnar á Islandi. Hér er um að ræða byggingu tónleika- og æf- ingahúss fyrir Sinfóníuhljómsveit íslands, en einnig er ætlunin að það verði almenn hljómlistarmiðstöð þar sem leikin yrði tónlist af öllu tagi s.s. jazz, rokk, blús og þjóðlög. Fé- lagar í samtökunum eru nú 1.300 og hefur 12 manna undirbúningsstjórn verið skipuð. Að ósk hennar hefur Stefán Einarsson hljóðtæknifræð- ingur, sem starfað hefur í Svíþjóð um árabil, tekið að sér undirbúning þess þáttar húsbyggingarinnar er viðkemur hljómburði. — Stefán var staddur hér á landi á dögunum, en hann er nú eini fslendingurinn sem fæst einvörðungu við hljóðtækni- fræði. Blm. Mbl. ræddi því við hann um starfið og helstu verkefni sem hann hefur unnið að. „Eftir að ég lauk námi í Þrándheimi hef ég unnið 16 ár hjá sænska fyrirtækinu Ingemansson Akustik í Gautaborg við grein mína. Af þeim verkefnum sem ég hef unnið að á vegum Ingemans- son má t.d. nefna sænska þing- húsið í Stokkhólmi, sem nú á að breyta í borgarleikhús. — Enda var húsið hugsað í upphafi sem leikhús áður en sú hugmynd kom til sögunnar að gera það að þing- húsi til bráðabirgða. Ég vinn nú að því að gera þessar breytingar, ekki síst vegna þess að ég starfaði með arkitektum hússins og tók þátt í hönnun þess. Ég hef einnig verið viðriðinn fyrirhugaðar breytingar á hljómleikahúsinu í Gautaborg, en það er talið í fremstu röð í heiminum. Þetta er erfitt verkefni því hætta er á að hljómburðurinn, sem er geysilega góður, versni við breytingarnar. Og fyrir þá sök er mikið lagt upp úr að þær takist vel svo að hljómburðurinn verði jafnvel enn betri ef þess er nokkur kostur.“ — Hvernig líst þér á hugmynd- ina um hús tónlistarinnar hér? „Mér finnst hún mjög athyglis- verð og er því hingað kominn til skrafs og ráðagerða um frumdrög hönnunar hússins með tilliti til hljómburðar. Er síðan ætlunin að hafa þau til hliðsjónar f sam- keppni norrænna arkitekta um teikningu hússins sem fyrirhugað er að efna til. Þar er gert ráð fyrir að hljómburðurinn sitji í fyrir- rúmi, en minni áhersla lögð á ytra útlit. Því er þetta vissulega krefj- andi verkefni, en að sama skapi áhugavert. Og þó að bygging tón- listarmiðstöðvarinnar sé á frum- stigi er ég bjartsýnn á að það tak- ist að reisa hana. A.m.k. hefur öll undirbúningsvinna að mínum dómi verið gott dæmi um íslenska framtakssemi og góðan vilja. — Þó mun koma í ljós á næstu mán- uðum hvort nægur áhugi fólks sé á þessu húsi, svo að unnt verði að hrinda þessari hugmynd í fram- kvæmd. En það er ekkert vafamál að sinfónfuhljómsveitina vantar hentugt húsnæði undir starfsemi sína. — Nú hefur þú unnið á vegum annarra íslenskra aðilja ... „Já, forráðamenn Borgarleik- húss fólu mér að vinna við hönn- un þess á sínum tíma. Og þar er stærsti þátturinn innrétting og klæðning salarkynna. Þó er bygg- ing leikhússins komin of skammt á veg til að ég geti einbeitt mér að þessu verki, enda þótt sá tími fari nú óðum að nálgast. Þess vegna hef ég notað dvölina hér m.a. til að ræða við aðstandendur Borg- arleikhúss um verkefni mitt þar. Auk þess hef ég unnið að ýmsum smærri verkefnum hér, s.s. í tengslum við hljóðeinangrun, Stefán Einarsson hljóðtæknifræð- ingur. Ljósm. Mbl. Emilía. verksmiðjuhávaða og hljómburð og verið í stöðugu sambandi við Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins frá því ég bjó hér á landi á árunum 1974—’75. Þá skrifaði ég m.a. kver um frum- atriði hljóðtæknifræði á vegum stofnunarinnar. — Geturðu gert í stuttu máli grein fyrir helstu viðfangsefnum hljóðtæknifræðinnar og nýjung- um innan hennar? „Segja má að hljóðtæknifræði spanni þrjú höfuðsvið: hljómburð, hávaða og hljóðeinangrun, en einnig er nauðsynlegt að kunna nokkur skil á öllum meginþáttum húsagerðarlistar og annarrar tækni. Enda verður samvinna við arkitekta að vera góð ef árangur á að nást. Því gefur hljóðtækni- fræði innsýn í ýmsar hliðargrein- ar, sem mér finnst mikil hvatning í starfi. — Af nýjungum hygg ég að tölvuvinnsla í hönnun hljóm- leikahúsa sé ákaflega mikilvæg til að segja fyrir um hljómburð, en sú tækni er tiltölulega ný af nál- inni. Tölvuvinnsla af þessu tagi hefur verið tekin i þjónustu Inge- mansson Akustik og reynst mjög vel. — En auk tækninnar skiptir ekki síður máli að hafa þekkingu til að bera á hinum huglægu þátt- um hljóðs,“ sagði Stefán að lok- um. Talsveröar framkvæmdir hafa verift vift Borgarleikhúsið í sumar, en sem kunnugt er, er stefnt aft því aft taka þaft í notkun árift 1986.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.