Morgunblaðið - 13.08.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.08.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1983 27 Spjallað um útvarp og sjónvarp „Hér fyrir sunnan nefiium við þá galdramenn... “ — eftirÓlaf Ormsson í þessu spjalli er eingöngu fjallað um Ríkisútvarpið á Akur- eyri, RÚVAK í tilefni af eins árs afmæli stofnunarinnar um þess- ar mundir. Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með RÚVAK, sem þrátt fyrir þröng húsakynni og frumlegan aðbún- að hefur sannað á eftirminni- legan hátt tilverurétt lands- hlutaútvarps. Hið merka frum- kvæði þeirra norðanmanna mun líklega hafa þau áhrif að í náinni framtíð verði útvarp rekið í öll- um landshlutum, fyrir austan vestan, norðan og sunnan. Stjórnendur og tæknimenn ein- stakra dagskrárliða hjá RÚVAK koma stöðugt á óvart með frum- leika og ótrúlegu næmi á gott útvarpsefni. Tæpur tugur út- varpsþátta kemur frá Akureyri vikulega og ég hef enn ekki heyrt þaðan misheppnaðan útvarps- þátt og hef þó hlustað reglulega síðan starfsemin hófst. Jónas Jónasson hefur verið drifkrafturinn í starfi RÚVAK en margir aðrir hafa komið við sögu þetta fyrsta starfsár sem eiga hrós skilið. Ólafur Torfason og Örn Ingi, sem bera ábyrgð á „Sporbrautinni" sem er send út á sunnudagseftirmiðdögum eru frábærir útvarpsmenn. Þáttur þeirra er mjög vel heppnaður og í hópi betri útvarpsþátta á síðari árum. ólafur og Örn heimsækja oft sveitir og byggðarlög fyrir norðan, og banka uppá hjá fólki sem kann frá mörgu skemmti- legu og fróðlegu að segja. Um- sjónarmenn Sporbrautarinnar rannsaka sérstæð náttúrufyrir- bæri, rekja sögur af fólki og at- burðum, spjalla við hlustendur í léttum tón, rétt eins og gerist þegar góðir gestir koma í heim- sókn og er boðið til stofu. Það er ekki hægt í stuttu spjalli að fjalla ítarlega um ein- staka útvarpsþætti að norðan. Ég get um þá þætti sem mér þykja hafa verið athyglisverð- astir. Þáttur sem heitir „Útvarp unga fólksins" og Helgi Már Bárðarson stjórnar af öryggi hefur verið sendur út að norðan að mig minnir síðan fáninn var dreginn að hún á útvarpshúsinu við upphaf útvarpssendinga frá Akureyri. Þátturinn er mjög góður. Helgi Már og aðstoðarfólk hans við þáttinn gerir töluvert af því að bjóða tii sín í þáttinn ungu fólki af Norðurlandi, spjallar við það um áhugamál þess, lífsviðhorf og tónlistar- smekk. Unga fólkið á Akureyri er lifsglatt fólk og tónlistar- smekkur þess annar en tán- inganna hér á mölinni fyrir sunnan. „Náttfari" Gests Einars Jón- assonar er á dagskrá vikulega á föstudagskvöldum undir mið- nætti og er áheyrilegur: Gestur Einar hringir í fólk á lands- byggðinni og leitar frétta af mannlífi, heyskap í sveitum, menningarstarfsemi, áhugamál- um og líðan fólks á þessu glæsi- Hilda Torfadóttir lega sumri. Tónlistin í þætti Gests er góð og gamlir aðdáend- ur The Beatles fá oft að heyra í snillingunum og öðrum popp- hljómsveitum frá sjöunda ára- tugnum. í þætti Gests er oft mjög svo rómantísk stemmning, hugljúfar ballöður og óður til ungra elskenda. Hermann Arason er skrifaður fyrir þættinum „Lystauki", sem er á dagskrá vikulega á mánu- dögum fyrir hádegi og er um líf- ið og tilveruna. Þessi þáttur er búinn að vera á dagskrá um nokkurn tíma en ég hef lítið get- að hlustað á hann fyrr en nú síð- ustu vikur. í þætti 8. ágúst var fjallað um mannslíkamann og starfsemi hans og heilinn sér- staklega tekinn fyrir. Sagt frá forvitni fólks, forvitni sem rak Kolumbus til að finna Ameríku og Edison, forvitni hans sem að lokum leiddi til þess að hann fann upp hluti sem við nútíma- menn getum ekki án verið. Her- mann Arason og aðstoðarmaður hans komu víða við. Ræddu við fólk á förnum vegi um útihátíðir, verslunarmannahelgi og næstu hátíðir eftir hana og svo kom fram kostulegt skáld, Birgir í Hríslum, og fór með frumort ljóð sem líklega síðar skipar honum á bekk með helstu leir- skáldum íslandssögunnar. Her- mann og aðstoðarmaður hans eru frumlegir húmoristar sem hafa gaman af að skemmta sér og öðrum. Þátturinn er um það bil hálftíma langur. Frá byrjun til enda byggður uppá ærslum og sprelli og svoleiðis nokkuð á kannski ekki vinsældum að fagna á þeim miklu alvörutímum sem nú eru. Mér líkar þátturinn vel og ég tel að hann njóti vin- sælda. „Á sveitalínunni" heitir út- varpsþáttur að norðan sem Hilda Torfadóttir, Laugum í Reykjadai, stjórnar. Ég sé Hildu fyrir mér í peysufötum, sveitar- ómantíkin allsráðandi og and- rúmsloftið líkast því að hlust- endur hafi horfið þrjátíu ár aft- ur í tímann, ef ekki fjörutíu. í þætti fyrir um það bil mánuði Jónas Jónasson sagði Hilda frá merkum stöðum í Hrútafirði, spilaði karlakóra- tónlist, kirkjukóratónlist og sagði frá kúabúum og búskap á Brautarholti í Hrútafirði. Hilda leiddi hlustendur inní veröld sem er senn að hverfa og tónlist- in í þættinum var borin uppi af Smárakvartettinum á Akureyri sem er sá sönghópur sem sungið hefur hvað fegurst hér á landi. Þáttur þeirra Snorra Guð- varðarsonar og Benedikts Aðal- steinssonar, „Spegilbrot", um sérstæða tónlistarmenn síðasta áratugar er athyglisverður og yfirleitt áheyrilegur. Þó verður að segjast eins og er, að ég hef ekki hlustað reglulega á þáttinn, þannig að best er að hafa um- sögn um hann í styttra lagi. Mér sýnist allir aldursflokkar fá eitthvað við sitt hæfi í dagskrá RÚVAK, frískir krakk- ar sem fótalúnir öldungar, hús- mæður, bændur, verkamenn, forstjórar, táningar eða mið- aldra fólk. Fjölbreytnin í dagskránni er ótrúleg þegar þess er gætt að starfslið RÚVAK er ekki fjölmennara en meðalstór fjölskylda og á blaðsíðu 333 í símaskránni er getið um Ríkis- útvarpið, upptökuherbergi Norð- urgötu 2b, sem er kannski ekki stærra en svo að þar sé hægt að koma fyrir einu borði og tveim til þrem stólum auk upptöku- tækja. Sé ekki búið að því þá legg ég til að komið verði upp myndum, ekkert alltof stórum, uppá vegg í herberginu af því fólki sem hóf ævintýrið og hefur gert hreinasta kraftaverk á liðn- um tólf mánuðum. Hér fyrir sunnan nefnum við það galdra- menn. Að svo mæltu óska ég Ríkis- útvarpinu á Akureyri til ham- ingju með að hafa á að skipa miklu hæfileikafólki. RÚVAK á eftir að gleðja marga landsmenn um ókomna tíma og ber að hlúa að hinu unga fyrirtæki sem fer glæsilega af stað. Akureyringar hljóta að vera stoltir af framtaki Ríkisútvarpsins á staðnum og eru sennilega bara svolítið montnir... Þyrils-menn og FFSÍ Föstudaginn 15. júlí síðastliöinn birtist í Morgunblaðinu opiö bréf frá Sigurði Þóröarsyni til Ingólfs Stef- ánssonar skrifstofustjóra Farmanna- og fiskimannasambands íslands. í grein þeirri rekur Sigurður að hluta hrakfallasögu áhafnarinnar á olíu- skipinu Þyrli, þar sem hún barðist fyrir lífi sínu peningalaus í köldu og matarlau.su skipi, sem statt var (er- lendri höfn. Það eitt er kapituli út af fyrir sig hvernig slíkt og þvílíkt ástand getur í rauninni komið upp um borð í skipi sem siglir með Is- lenska áhöfn og undir íslenskum fána. Það sjá allir að við slíkar aðstæður er ekki margra kosta völ, en einn er sá að leita aðstoðar stéttarfélagsins, það er Far- mannasambandsins, sem og var gert. Framganga Farmannasam- bandsins og samskipti þess við út- gerðina er áhöfninni og fleirum með öllu óskiljanleg. Sigurður spyr út í þau í umræddu bréfi, en fátt er um svör. Því viljum við undirritaðir fyrrverandi yfirmenn á olíuskipinu Þyrli skora á Ingólf Stefánsson eða stjórn Farmanna- sambandsins að svara þeim spurn- ingum sem fram koma í bréfi Sig- urðar, þetta er ekki mál sem varð- ar einn mann eða eina áhöfn. Þetta er mál allrar sjómanna- stéttarinnar því er það nauðsyn- legt ef árangur á að nást í kjara- baráttu að traust og góð samskipti séu milli forustu félagsins og þeirra sjómanna sem hún sækir styrk sinn og umboð til. Þökk fyrir birtinguna. Gunnar Lúðvíksson, Einar Hjaltason, Sveinbjörn Kjartansson, Sigurgeir Jónsson. Glæsileg hálfsmánaðar ferð, einstök blanda af baðstrandarlífi, alparómantík og stórborgarfjöri. 22. ág. - 4. sept. Riminisól -como og ziirich í kaupbætí 22. ág. - 31. ág. Rimini 31. ág. - 01. sept. Comovatn - í ítölsku ölpunum 01. sept. - 04. sept. Zúrich - borg borganna í Sviss. Fyrsta flokks hótel á öllum stöðum. Verð kr. 19.800. miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Innifalið: Flug, hótelgisting m/morgunverði á Rimini, við Comovatn og í Zúrich, rútuferð Rimini - Como - Zúrich, islensk fararstjórn. Allar aðrar ferðir uppseldar! Sanwinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRJCTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.