Morgunblaðið - 13.08.1983, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1983
+
Sonur minn,
INGI HRAFN HAUKSSON,
myndlistarmaður,
andaöist 11. þ.m.
Fyrir hönd aöstandenda,
Ágústa Ahrens.
Maöurinn minn,
NIKOLAI ELÍASSON,
Bergi, Keflavík,
lést aöfaranótt 11. ágúst.
Kristjana Jónsdóttir.
+
Eiginmaður minn og faöir,
KRISTJÁN J. SIGURJÓNSSON,
skipstjóri,
Hringbraut 48,
varö bráökvaddur þann 11. ágúst.
Bella Sigurjónsson,
Ronald Kristjónsson,
Sigurjón Kristjónsson.
+
Móöir okkar, fósturmóöir og tengdamóöir,
ÞÓRUNN ELÍSABET SVEINSDÓTTIR,
leikkona,
Hótúní 8, Reykjavík,
lést aö heimili sínu, miövikudaginn 10. ágúst sl.
Þórdís Baldvinsdóttir, Einar Kjartansson,
Ingvi Br. Jakobsson, Ragnheiöur E. Jónsdóttir,
Hólmfríður Jakobsdóttir, Þorsteinn S. Jónsson,
Sveínn H. Jakobsson, Gréta Jónsdóttir.
+
Eiginmaður minn, sonur, faöir og tengdafaðir,
FRIORIK ÞÓRDUR BJARNASON,
tollvörður,
Baldursgaröi 5, Keflavík,
veröur jarösunginn frá Keflavikurkirkju í dag, laugardag 13. ágúst,
kl. 16.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir, en þeim sem
vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagiö.
Fyrir hönd vandamanna,
Guörún Bjarnadóttir,
Sigurborg Sumarlína Jónsd.,
Bjarni Friöriksson, Ágústina Sigurgeirsdóttir.
+
Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför eiginmanns míns, fööur okkar og afa,
SIGURÐAR BJARNASONAR,
skipstjóra,
Brautarholti 3, isafiröi.
Uröur Ólafsdóttir,
börn og barnabarn.
+
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
KAROLINU ANDREU ANDRÉSDÓTTUR.
Sólveig Mariusdóttir, Jón Bjarnason,
Ólafur Mariusson, Jóhanna G. Jónsdóttir,
Guöný Maríusd. Moustacas, Evangelos Moustacas,
Baldur Maríusson, Áslaug Arngrimsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Kæru vinir, nær og fjær, hugheilar þakkir fyrir alla þá samúö og
vináttu sem þiö hafiö sýnt okkur viö sviplegt fráfall eiginmanns
míns, fööur, tengdafööur og afa,
PÉTURS GUOJÓNSSONAR,
framkvæmdastjóra.
Béra Sigurjónsdóttir,
Sigurjón Pótursson, Þóra Hrönn Njélsdóttir,
Guöjón Þór Pétursson, Guölaug Pétursdóttir,
Magnús, Pétur og Pétur Þór.
Minning:
Sigtryggur Jónas
son vélstjóri
Fæddur 19. mars 1908
Dáinn 2. ágúst 1983
Margt flaug í gegnum huga
minn er ég frétti lát föðurbróður
míns, Sigtryggs. Ég lét hugann
reika til baka og rifjaði upp marg-
ar góðar minningar er ég á frá
sumarferðum mínum og foreldra
minna til Húsavíkur, en oft gist-
um við hjá þeim hjónum Heiði og
Sigtryggi. Ot frá þessum hugrenn-
ingum fékk ég löngun til að rita
nokkrar fátæklegar línur í minn-
ingu þessa ágæta frænda míns.
Það var einkum sumarið 1978
sem kom upp í huga minn er ég
minntist Tryggva, eins og við
frændfólkið hér fyrir sunnan köll-
uðum hann ætíð. Þetta sumar
dvaldi ég sumarlangt við vinnu á
Húsavík, en Tryggvi hafði útvegað
mér vinnu þar í bæ. Ég bjó í góðu
yfirlæti hjá þeim hjónum þennan
tíma. Þetta sumar kynntist ég
Tryggva mjög vel og sá hann í
öðru ljósi en ég áður hafði gert.
Oft áttum við ánægjulegar s'am-
ræður þessi sumarkvöld, þar sem
maður með margþætta reynslu
miðlaði unglingnum frá Reykja-
vík. Þá hafði Tryggvi fastmótaðar
skoðanir á hinum ýsmu málum,
bæði þeim sem kalla má pólitísk
og ekki pólitísk. I mínum augum
var Tryggvi afar hæglátur maður
sem lítið bar á, en mjög traustur
og félagi góður. Ég minnist þess
hve Tryggva var á móti skapi allt
bruðl og öll sú sýndarmennska
sem vill fylgja okkar nútíma
neysluþjóðfélagi. Það má segja að
þeim hjónum hafi tekist að ala af
mér alla matvendni þetta um-
rædda sumar 1978.
Vel man ég hvað þeir bræður
Tryggvi og pabbi voru samrýndir
og vinir góðir. Mun ég ætíð minn-
ast þess hvað Tryggvi sýndi okkur
í Litlagerðinu mikinn hlýhug við
lát föður míns, enda var Tryggva
afar hlýtt til þessa litla bróður
síns.
Mikil er sorg Heiðar. Auk and-
láts Sollu dóttur þeirra hjóna á
síðasta ári, bætist nú við bónda-
missir.
Ég sendi þér, Heiður, mínar
dýpstu samúðarkveðjur og megi
góður guð styrkja þig í sorg þinni.
Þá sendi ég börnum þeirra hjóna
svo og systkinum Tryggva samúð-
arkveðjur. Megi góður guð blessa
minningu þessa góða drengs.
Jón Kr. Dagsson
Óðum hverfa af sjónarsviðinu
þeir sjómenn á Húsavík sem gerðu
þar út vélbáta um 1930 og kunna
skil á þeirri sögu. Einn þeirra hef-
ir nýlega kvatt, Sigtryggur Jón-
asson, vélstjóri, löngum kallaður
Tryggvi í Haganesi og kenndur við
hús það er hann festi kaup á um
1935 við núverandi Ásgarðsveg á
Húsavík.
Sá er þessar línur ritar kynntist
Sigtryggi fyrst á Haganesárum
hans og minnist góðra granna og
tryggra frá þeim tíma.
Arið 1931 var um margan hátt
erfitt á Húsavík sem víða annars
staðar þegar heimskreppan var í
algleymingi. Margir útgerðar-
menn fóru á hausinn sem kallað
var, þótt ekki væru allir gerðir
upp.
En einmitt þetta ár festu þrír
ungir menn á Húsavík kaup á
vélbáti frá Akureyri, Vísi, 9 tonn
að stærð.
Á þeim árum var aðeins róið yf-
ir sumarmánuðina og bátarnir
settir á haustin. Þeir fengust ekki
tryggðir yfir veturinn sökum
hafnleysis. Þegar allra veðra var
von þótti ótryggt að hafa þá á leg-
unni eins og sýndi sig í haustgarð-
inum 1934 þegar tvo vélbáta sleit
upp.
Frystihús var ekki fyrir hendi
og róðrar hófust að vori eftir því
hvenær beita barst.
Hvers vegna lögðu ungir menn í
útgerð og lögðu allt sitt í sölurnar
við slíkar aðstæður, var spurning
sem undirritaður lagði fyrir Sig-
trygg heitinn er hann átti við
hann viðtal á sl. vetri um upphaf
Vísisútgerðar.
„Barnaskapur," sagði Tryggvi
og brosti, „en eitthvað varð að
gera, engin var atvinnan."
Þessi byrjun varð samt upphaf-
ið að löngu og farsælu útgerðar-
starfi Vísisfélagsins svonefnda
sem átti eftir að marka spor i sögu
sjávarútvegs og atvinnulífs á
Húsavík um áratugaskeið. Þar
komu að vísu margir við sögu á
löngum tíma en stofnendur voru í
upphafi auk Sigtryggs þeir Þór-
hallur Karlsson, Kristján Péturs-
son og Hallgrímur Steingrímsson.
En hér var líka að finna upphaf-
ið að löngu og nánu samstarfi
Þórhalls Karlssonar og Sigtryggs
Jónassonar þar sem sá fyrrnefndi
gegndi stöðu skipstjóra en hinn
stöðu vélstjóra.
Um margt voru þeir félagar lík-
ir um lund, skapgóðir jafnan en
ríkir um skap sem þeir stilltu þó
vel og slíkir drengir að þeir mætt-
ust ef þá greindi á. Studdu löngum
hvor við annars bak á langri ferð
um lífsins haf og svo var einnig
um fjölskyldur þeirra.
Sigtryggur Jónasson var fæddur
að Ystahvammi í Aðaldal 19. mars
1908. Foreldrar hans voru hjónin
Jónas Sigurbjörnsson frá Litlu-
laugum og Jónína Kristín Sig-
tryggsdóttir. Bjuggu þau að Ysta-
hvammi frá 1905—1924 en þá lést
Jónas. Bjó Jónína áfram eitt ár
eftir lát mannsins síns en fluttist
þá til Húsavíkur ásamt börnum
sínum fimm, því yngsta tveggja
ára. Sjötta barnið höfðu þau misst
áður.
Árið 1930 lauk Sigtryggur
minna mótorvélstjóraprófi er
veitti 60 tonna réttindi.
Hóf hann útgerð Vísis í félagi
við aðra 1931 eins og áður segir.
Fyrsta árið lögðu þeir félagar
fiskinn upp hjá öðrum en á öðru
ári söltuðu þeir fiskinn sjálfir og
verkuðu.
Með seiglu, iðni og atorku tókst
þeim félögum smám saman að
koma undir sig fótunum og með
betri tíð að færa út kvíarnar.
Sumarið 1935 og tvö næstu var
gert út á síld í félagi við vb.
Skallagrím, 8 tonna, skipstjóri
Stefán Pétursson og við vb.
Frosta, 14 tonn, skipstjóri Jón
Sörensson. Voru bátarnir þrír
kallaðir þrílembingarnir.
Haustið 1937 sleit Vísi upp af
legu, rak á land og eyðilagðist. Var
þá ráðist í að láta smíða nýjan bát
í Danmörku. Kom hann til Húsa-
víkur 3. maí 1938 og hlaut nafnið
Vísir. Var 21 tn að stærð, glæst-
asta far á Húsavík á þeirri tíð.
Ýmsum blöskraði og spurðu:
„Hvað á að gera við svona bát á
Húsavík?"
En nýi Vísir sannaði fljótt til-
verurétt sinn og félagarnir sem að
honum stóðu brugðust ekki sínu
hlutverki.
í ársbyrjun 1939 fór Vísir á
vetrarvertíð til Suðurnesja, sá
fyrsti frá Húsavík, en fleiri sigldu
í kjölfarið á næstu árum er bátar
stækkuðu.
Útför
+
KARLS HJÁLMARSSONAR,
Hringbraut 43,
veröur gerö frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 16. ágúst kl. 15.00.
Friöbjörg Davíösdóttir og börn.
Enn var sótt fram. Árið 1947
festi Vísisútgerðin kaup á nýjum
38 tonna báti, smíðuðum I Dan-
mörku og hlaut nafnið Smári.
Annar meþ sama nafni kom nýr
frá Hafnarfirði 1949, 64 tonna.
Á öllum þessum bátum var Sig-
tryggur vélstjóri og sótti 23 vetr-
arvertíðir til Suðurnesja.
Árið 1964 var seinni Smári seld-
ur og varð þá hlé á útgerð hjá
Vísisfélaginu um skeið. Allnokkr-
um árum áður hafði Þórhallur
Karlsson orðið að hætta sjó-
mennsku sökum heilsubrests en
vann við útgerðina í landi meðan
heilsa leyfði.
Eftir að Smári var seldur hætti
Sigtryggur sjómennsku. Fór í land
og hafði á hendi fiskverkun á veg-
um Vísisfélagsins og var raunar
framkvæmdastjóri.
Nýir menn og yngri, m.a. synir
Sigtryggs og Þórhalls, gengu í fé-
lagið og tóku við stjórn þess. Nú á
Vísisfélagið og gerir út vb. Sigþór
sem heitir í höfuðið á Sigtryggi og
Þórhalli.
Sigtryggur var meðeigandi í fé-
laginu til síðustu áramóta. Var
ávallt fullvirkur við ákvarðana-
töku. Hvatti fremur en latti ungu
mennina til dáða og átaka og jafn-
an tillögugóður.
Síðustu árin var hann vélstjóri
við frystivélar Kaupfélags Þingey-
inga þar til hann lét af starfi á sl.
ári.
Sigtryggur þótti frábær vél-
stjóri, natinn, umhirðusamur og
þrifinn. Lét ekki hlutina drasla.
Lagfærði sjálfur eða lét gera við
um leið og hann fann einhvers
staðar lát á. Vissi að það er dýrt
að láta hlutina koðna niður um-
hirðulítið og einnig hitt að vélin er
hjarta bátsins sem knýr hann
áfram og öryggi báts og skips
hafnar undir því komið að vélin sé
í góðu lagi. Um það voru skipverj-
ar sammála, sem á bátum Vísisút-
gerðarinnar störfuðu, að taktfast
sló vél og traustur var vélgæslu-
maður.
Það þótti happ ungum mönnum
sem sjó stunduðu að fá leiðsögn
hjá Sigtryggi um vinnubrögð enda
lipur og ólatur að leiðbeina, fas
rólegt og viðmót hlýtt.
Sigtryggur kvæntist 30. nóvem-
ber 1938 Heiði Sigurðardóttur
bónda á Arnarvatni. Hún hefir
reynst manni sínum traustur
förunautur. Bjó honum notalegt
heimili, fyrst í Haganesi og síðar í
húsi númer 22 við Ásgarðsveg sem
þau létu byggja og fluttu í 1952. Á
Heiði hvíldi heimilið tímunum
saman, eins og fleiri sjómanns-
konum, er eiginmennirnir voru á
vertíð, fjarri heimilum svo mán-
uðum skipti.
Þau eignuðust fjögur börn. Þrjú
eru á lífi. Málmfríður, gift Georg
Karlssyni, Húsavík. Dagbjartur,
kvæntur Lilju Sigurðardóttur,
Húsavík. Arngerður, gift Hannesi
Trausta Bjarnasyni, Borgarnesi.
Yngst systkinanna var Sólveig,
kennari, sem lést á sl. ári, langt
um aldur fram, gift Hjalta Guð-
munssyni. Sólveig var fjölgáfuð og
vel gerð stúlka og lát hennar
harmsefni öllum er til þekktu.
Með Sigtryggi Jónassyni er
genginn góður drengur og dyggur,
hreinskiptinn og hjartahlýr. Hafði
ekki hátt en vakti traust
samferðamanna og virðingu með
hógværð sinni og drenglyndi.
Utför hans verður gerð frá
Húsavíkurkirkju í dag, laugardag.
Blessuð sé minning hans.
Sigurjón Jóhannesson