Morgunblaðið - 13.08.1983, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 13.08.1983, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1983 vHanr\ \>ar-f að -fcí skóna aPcjrœidda fynr versLunarmannoíh cl gí r\a. ■" «Mí1íí iwí mtirw r Ast er... ... a ð geyma hana ávallt í huga sér. TM Refl U.S. Pat Off.—all rights reserved °1983Los Angeles Times Syndicate Gettu hvad vid eigum að borða í dag og hvar? HÖGNI HREKKVÍSI * tfAWN \SILL AD þeic kO/Ul f?£6Aie WAWN KALLAe." Bréfritari segir þjónustu Landsbókasafnsins of mikilvKga til að hægt sé að hafa það lokað i milli fimm og sjtt. Síðdegislokun Landsbókasafns Sigurgeir 1‘orgrímsson skrifar: „Velvakandi. Allir vita, hversu ómetanlega þjónustu Landsbókasafn íslands veitir landsmönnum. Þessi þjón- usta er sjaldan brýnni en einmitt á sumrin, þegar menn vilja verja frístundum sinum og sumarleyf- um að meira eða minna leyti til lestrar og rannsókna á lestrarsal Landsbókasafnsins og handrita- deild þess. Kom það þvi mjög óþægilega við gesti safnsins, þegar fyrrver- andi menntamálaráðherra neit- aði beiðni þess um fjárveitingu til ráðningar afleysingafólks í sumarleyfum starfsfólks safns- ins, sem leiddi til þess, að loka varð Landsbókasafninu milli klukkan fimm og sjö síðdegis yfir sumarmánuðina, frá 1. júní til 1. september. Bæði er, að hægt var að fá margt hæft starfsfólk til afleysinga, eins og alltaf hefur verið áður, og það sem verra er, að margir gestir nota einkum sumarið til lestrar og rannsókna. Þar má nefna nemendur, sem eru að vinna að prófritgerðum sínum fyrir veturinn, eins og cand. mag. og BA-ritgerðum, og margir gestir sem eru að vinna að rann- sóknum til að gefa út, bæði al- þýðleg og vísindaleg ritverk, og hafa helst sumarið til umráða. Má þar nefna kennara og einnig nemendur og gesti, sem eru við nám og störf erlendis, og þurfa að safna heimildum á sumrin, til þess að vinna úr á veturna. Þá má ekki síst nefna hinn almenna borgara, sem vill skreppa á safn- ið eftir vinnutíma, en það er helst milli klukkan fimm og sjö. Það má ekki gerast, að þjón- usta jafn brýnnar stofnunar og Landsbókasafns fslands er, verði stöðugt skert meir og meir. Áður fyrr var opið á laugardögum til klukkan sjö á veturna, en síðan var dregið úr því til klukkan fjögur, og nú til klukkan tólf. Einnig var áður fyrr opið á kvöldin milli klukkan átta og tíu. Allt var þetta til þess, að hinn almenni borgari gat þá nýtt frí- stundir sínar betur til lestrar á safninu, og ef að koma á þeirra hefð að loka framvegis á sumrin milli klukkan fimm og sjö, þá eru stórlega skertir möguleikar gesta safnsins til þess að njóta þjón- ustu þess. Fyrir þessu eru engin fordæmi erlendis þar sem ég þekki til rannsókna- og þjónustu- bókasafna á Norðurlöndum og Bretlandi, eru söfnin opin til klukkan sjö á kvöldin og sums staðar einnig mestallan laugar- daginn. Eg vil því skora á núverandi menntamálaráðherra, frú Ragn- hildi Helgadóttur, að breyta stefnu fyrirrennara síns, og veita Landsbókasafninu möguleika á því, að hafa framvegis opið milli klukkan fimm og sjö, eins og á öðrum árstímum, af því að þörfin á því er ekki síður brýn en yfir veturinn. Um hunda og hundahald Hanna María skrifar: „Kæri Velvakandi. Mikið hefur verið skrifað um hunda og hundahald í dálknum þínum og bætist hér enn eitt bréfið við. Til að byrja með ætla ég að leyfa mér að vitna í grein Jóns Kristjánssonar í 2. tölu- blaði Sáms. Þar segir: „Hunda- hald í þéttbýli fer stöðugt vax- andi. Ástæðan er líklega aukinn frítími og vaxandi áhugi fólks á útilífi almennt. Fjölgun hunda skapar hundaeigendum vanda- mál, því stöðugt bætast við fleiri ótamdir hundar sem ergja hinn almenna borgara. Hundaeigend- ur fá þannig fleiri andstæðinga sem þeir þurfa að kljást við. Hundaandstæðingarnir hafa yf- irleitt lögin sín megin, svo það er ekki hlaupið að því fyrir hundaeigendur að halda rétti sínum. Mér finnst rangt að banna hundahald á höfuðborgarsvæð- inu. Hægt er að leysa vandamál- ið á annan hátt. Það gagnar nefnilega lítið fyrir lögregluna að tína einn og einn hund upp af götunni, sífellt bætast nýir í staðinn. Hvernig væri að leyfa einfaldlega hundahald í Reykja- vík, t.d. í úthverfunum, Breið- holti eða Vesturbænum, þar sem fólk hefur aðstöðu til útiveru með hundum sínum. Hægt væri að setja lög varðandi slíkt hundahald og sekta fyrir brot á þeim, jafnvel með það strangri sekt að ef lög væru brotin í þriðja sinn væri hundurinn tek- inn af eiganda og aflífaður á hans kostnað. Ég held að fólk ætti að kynna sér betur reglur um hundahald, þar sem það er leyft, eins og t.d. í Garðabæ. Skora ég á borgaryf- irvöld að athuga hvort ekki er hægt að leysa þetta leiðindamál með hundahald í Reykjavík á annan hátt en nú er reynt."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.