Morgunblaðið - 19.08.1983, Page 1

Morgunblaðið - 19.08.1983, Page 1
56 SÍÐUR /3 m tbl. 70. árg. FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mi6-Ameríka: Harðir bardagar geisa í Nicaragua Managua, Nicaragua, 18. ágúst. AP. HARÐIR bardagar hafa geisað síðustu dagana í tveimur héruðum í norðaust- urhluta Nicaragua, milli um 2.000 skæruliða stjórnarandstæðinga annars vegar og hermanna sandinistastjórnarinnar hins vegar. Mannfall hefur verið mikið og allt að 200 menn fallið í röðum beggja. Fregnir þessar voru hafðar eftir ónafngreindum herforingja í Nic- araguaher. Sagði hann skærulið- ana vera úr „Demókratasveit Nic- aragua", en hana skipa m.a. fyrr- um fylgismenn Anastasio Somoza, sem sandinistarnir steyptu af for- setastóli fyrir rúmum fjórum ár- um. Þetta er önnur stórsókn skæruliðanna í sumar, í júlí réðust þeir fram í þremur héruðum, en stjórnarherinn hrakti þá á flótta. Féllu þá 215 skæruliðar og 106 stjórnarhermenn. Skæruliðarnir hafa búðir sínar í nágrannaríkinu Honduras og hefur herstjórnin í Nicaragua hótað stjórn Honduras hefndaraðgerðum, komi hún ekki í veg fyrir árásir skæruliðanna. Caspar Weinberger, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að ástandið í Mið- Ameríku hefði batnað nokkuð að undanförnu og ítrekaði hann þannig orð Ronalds Reagan for- seta nokkru áður. Einkum sagði hann stöðuna í E1 Salvador vera góða, en þar hefði stjórnarherinn allt að því brotið vinstrisinnaðar skæruliðasveitirnar á bak aftur. Bandaríkjastjórn hefur biðlað til sandinista í Nicaragua, að þeir geti minnkað spennuna í Mið- Ameríku með því einu að láta af vinstrisinnuðum þrýstingi sínum við nágrannalöndin. Nígerfa: Mannskæðar fylkis stjórnarkosningar Iji^o.s, Nígeríu, 18. ágúst. AP. 33 Nígeríumenn voru drepnir, 18 særðust og 352 voru handteknir, er fylkisstjórnakosningar í tveimur fylkjum í vesturhluta Nígeríu fóru úr böndunum og logandi óeirðir brut- ust út. Komu óeirðirnar verulega á óvart, því forsetakosningarnar fóru eftir atvikum friðsamlega fram 6. ágúst síðastliöinn. Talsmaður kosningastjórnar- E1 Salvador: Skæruliðar vilja semja Rio De Janeiro, 18. ígúat. AP. HEÍTOR Oqueli, einn af leiðtogum vinstri sinnuðu skæruliðasveitanna í El Salvador, sagði í gær að skæruliðar væru reiðubúnir að ganga að samn- ingaborðinu til að ræða friðarmögu- leika með stjórninni og Bandaríkja- mönnum. Oqueli sagði hins vegar að skil- yrði væri, að Bandaríkjamenn tækju þátt í samningum sem aðilar að deilunni, í stað þess að þykjast vera sáttasemjarar eins og verið hefur. „Annars fara allar viðræður út um þúfur," sagði foringinn. innar, Victor Ovie-Whiskey, sagði að átökin hefðu átt sér stað í Ondo og Oyo, er stjórnarandstæðingar hefðu gengið berserksgang er þeir töldu að kosningasvik hefðu átt sér stað. í Oyo var kosningunum frestað, en aflýst hins vegar með öllu í Ondo, eftir að kosninga- miðstöðin hafði verið brennd til grunna með öllu starfsliði. Sem fyrr segir fóru forsetakosn- ingarnar, fyrr í mánuðinum, eftir atvikum friðsamlega fram, en tal- ið var að talsverð ólga ríkti í röð- um stjórnarandstæðinga, en Shehu Shagari forseti var endur- kjörinn í forsetastólinn og er óeirðirnar brutust út í gær var sýnt að flokkur hans hafði unnið stórsigur í fylkisstjórnakosning- unum. Ljóst var að flokkurinn hafði sigrað örugglega í 13 fylkj- um af 19. Þingkosningar áttu að fara fram í næstu viku, eftir því sem Ovie-Whiskey sagði í gær, en þeim verður frestað um sinn, a.m.k. fram í september vegna þeirra tafa sem orðið hafa vegna ólát- anna. Þess var getið, að meðal hinna látnu hafi verið Olaiya Fag- bamigbe, stjórnarsinni, sem átti sæti í fulltrúadeild þingsins. óald- arflokkur klófesti hann fyrir utan heimili har.s, hellti yfir hann bensíni og lagði eld að. Morgunblaðið/öl.K.Mag. Afmælisbarn í blómaskrúda Reykjavíkurborg átti 197 ára afmæli f gær. Margt var gert til hátíðabrigða m.a. var miðbærinn allur blómum skrýddur eins og sjá má. Mikið vígbúnaðar- kapphlaup í Chad N’Djamena, (’had, 18. ágúsL AP. FRAKKAR og Líbýumenn héldu áfram stórfelldum vígbúnaði sínum í hinu stríðshrjáða landi Chad í gær, en hið óumsamda vopnahlé var ekki rofið sjötta daginn í röð, eða síöan að fyrstu frönsku hermennirnir komu til landsins. Boeing 747-þota flaug í gær frá París til Chad með 450 franska fallhlífarhermenn. Voru þeir fluttir til Bouar, 160 kílómetrum fyrir sunnan landamæri Chad og Líbýu. Frönsk hernaðaryfirvöld hafa sagt að við Bouar verði safn- að saman 2.000 úrvalshermönnum í sex herstöðvum fyrir komandi helgi. í næstu viku gæti farið svo að 1.000 til viðbótar verði fluttir þangað, það fer eftir hvernig mál- in þróast. Hér er um mestu hern- aðarumsvif Frakka í Afríku að ræða síðan í Alsír-stríðinu fyrir 21 ári. Ónafngreindir háttsettir menn innan franska hersins hafa sagt að fleiri vígi franskra verði reist á víglínunni. Auk hermanna, hafa frönsk yf- irvöld sent mikið magn af loft- varnarbyssum og skriðdrekaeld- flaugum, jeppum og hertrukkum, auk þess sem heil deild orrustu- þota franska flughersins er vænt- anleg til aðstoðar þremur Mir- age-herþotum stjórnarhersins. Líbýumenn hafa ekki setið auð- um höndum, vestrænar leyniþjón- ustur segja mikinn fjölda her- manna og hergagna hafa streymt frá Líbýu til Faya Largeau, eyði- merkuborgarinnar sem Líbýu- menn og skæruliðar náðu frá stjórnarhernum 10. ágúst síðast- liðinn. Þrátt fyrir það þrætir Mo- ammar Khadafy, Líbýuforingi, enn fyrir það að hann sé aðili að átökunum. Hann sagði í ræðu í gær, að Bandaríkjamenn væru að ljúga ýmsum sökum upp á Líbýu- menn til að hylma yfir eigin af- skipti af því, sem hann nefnir borgarastyrjöldina í Chad. Þá sagði hann ennfremur, að ekkert sem Frakkar gætu sagt réttlætti íhlutun þeirra, því varnarsamn- ingur þeirra við Chad gilti aðeins ef Chad yrði fyrir árás annars ríkis, en það væri alls ekki raunin, því hér væri um „borgarastyrjöld" að ræða. Sá roskni vakti athygli Lundúnum, 18. áfjúsL AP. ÞAÐ VARÐ uppi fótur og fit, er afgamall Pakistani, gráskeggur mikill í hjólastól, var beðinn um að framvísa vegabréfi sínu er hann kom til Heathrow-flugvallar í Lundúnum í gær. í vegabréfinu stóð að hann væri fæddur árið 1823, sem sagt að hann væri 159 ára gamall! Flugvallarstarfsfólk þyrptist að hinum aldna Sayed Abdul Mabood og vildi skoða fyrirbær- ið, en sá gamli brosti einungis tannlitlu glotti að forvitni fólks- ins. Ferðafélagi Maboods, Amir Sultan Malik, sagði viðstöddum, að það væri vissulega erfitt að trúa því að sá gamli væri í raun 159 ára gamall, en það væri eng- inn vafi að það væri satt og rétt samt sem áður. „Herra Mabood er virtur guðsmaður í Pakistan og lykillinn að langlífi hans felst í trú hans, en ekki mataræði, lifnaðarháttum eða þvíumlíku," sagði Malik. Malik sagði ennfremur, að Mabood hefði eignast 14 syni og í kjölfarið rúmlega 200 barna- börn. Mabood er mun eldri held- ur en methafi heimsmetabókar Guinnes-fyrirtækisins, sem er Japaninn Shigechiyo Izumi. Hann varð 118 ára gamall f júní síðastliðnum. I bókinni er þess jafnframt getið að fátt sé óljós- ara heldur en hversu langlíf mannskepnan getur orðið. Franskir hermenn ganga um borð í herflutningaþotu franska hersins á Charles De Gaulle-flugvellinum norður af París. Síðan héldu þeir áleiðis til Chad. Simamvnd AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.