Morgunblaðið - 19.08.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983
19
f menningarmiðstöAinni við Gerðuberg verða tvennir tónleikr, fyrirlestur og sögustundir fyrir börn um helgina, auk
sýningar á listaverkum úr safni ASÍ.
t Arbsjarsafni er fyrirlestur um fólkvang, ganga um Eiliðaárdal, auk kaffi-
veitinga og sýningar á gömlum Reykjavíkurkortum í Eimreiðarskemmu.
Dagskrá Reykjavíkuryiku um helgina
Á vegum Reykjavfkurviku veröa í dag, föstudag, tónleikar í
Gerðubergi, er það ungt tónlistarfólk úr Reykjavík sem syng-
ur og leikur. Fram koma Ásthildur Haraldsdóttir, Haukur
Tómasson, Elísabet F. Eiríksdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson,
Nína Margrét Grímsdóttir, Sigríður Hulda Geirlaugsdóttir og
Laufey Sigurðardóttir. Hefjast tónleikarnir kl. 20.00. Þá
verða haldnir unglingadansleikir á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavíkur í samvinnu við SATT í félagsmiðstöðvum borg-
arinnar.
„Reykjavík fyrr og nú“, dagskrá
í tali og tónum verður flutt rfiorg-
un kl. 15.00 á Kjarvalsstöðum. Á
dagskránni verður m.a. samlestur
úr bókum, söngur og píanóleikur.
Flytjendur eru þau Anna Einars-
dóttir, Emil Guðmundsson, Val-
geir Skagfjörð og Þórunn Páls-
dóttir, en stjórnandi er Helga
Bachmann. Þá hefst kl. 14.00 úti-
hátíð við Þróttheima, en hún er
haldin af félagsmiðstöðinni og
knattspyrnufélaginu Þrótti. Verð-
ur á skemmtuninni m.a. sýnt fall-
hlífastökk og leikrit, auk þess sem
knattspyrnufélagið „Augnablik“
kemur í heimsókn og geta gestir
farið í ýmsar knattspyrnuþrautir.
Um kvöldið verður síðan dansleik-
ur og flugeldasýning um miðnætti.
Reykjavíkurmót barna hefst á
sunnudag kl. 14.00, en það er
Fjórir bæklingar, vegna
Reykjavíkurvikunnar
Reykjavíkurborg hefur gefið út, f
tengslum við Reykjavfkurviku, fjóra
bæklinga til kynningar á ýmiskonar
starfsemi sem er á vegum borgarinn-
ar.
Nefnast bæklingarnir „Vatns-
veitan“, „Borgarbókasafnið"
„Gerðuberg” og „Umferðin". I
bæklingnum um Vatnsveituna er
stuttlega rakin saga Vatnsveitunn-
ar, en vatni var fyrst hleypt á
Vatnsveituna í Reykjavík árið
1909. Einnig er í bæklingnum sagt
frá mismunandi vatnsþörf Reyk-
víkinga, hverjir nota mest vatn og
ýmsar aðrar upplýsingar.
Saga og þróun Borgarbókasafns-
ins er rakin frá 1923 í bæklingnum
um það og greint frá ýmiskonar
þjónustu sem safnið veitir.
„Umferðin" nefnist sá bæklingur
sem að mestu fjallar um ráðstaf-
anir í þágu öryggis í umferðinni.
Þá er bæklingurinn um félags- og
menningarmiðstöðina Gerðuberg
sem Reykjavíkurborg rekur. Húsið
var tekið í notkun 1983 og er í
bæklingnum greint frá margvís-
legri starfsemi sem rekin er í þess-
ari menningarmiðstöð borgarbúa.
Umdæmisþing hjá
Kiwanis og K-dagur
DAGANA 19. til 21. ágúst verður
haldið í Vestmannaeyjum 13. um-
dæmisþing Kiwanishreyfingarinnar
á íslandi. Kiwanishreyfingin er
þjónustuhreyfing, sem beinir kröft-
um sínum til aðstoðar við þá, sem
hjálpar eru þurfi. Stærstu verkefni
íslenskra Kiwanismanna eru svo-
nefndir K-dagar og rann ágóði af
síðustu K-dögum til styrktar geð-
sjúkum.
K-dagur verður haldinn nú í
haust, 29. október, og er það eitt af
verkefnum þessa umdæmisþings
að ákveða til hvaða málefnis ágóði
af K-degi í haust renni.
Reikna má með miklu fjölmenni
á þessu þingi eða á milli 5—600.
Einnig munu nokkrir erlendir
gestir koma til þingsins. Svo sem
Donald Williams frá Kiwanis
International og Willy östholt
umdæmisstjóri Norden.
Samhliða umdæmisþinginu
halda Sinawik-konur, en þær eru
konur Kiwanismanna, sinn sjö-
unda landsfund.
Forseti evrópusambands Kiw-
anismanna mun heimsækja þing-
ið, en hann er íslendingur, Eyjólf-
ur Sigurðsson. Umdæmisstjóri ís-
lenska umdæmisins er Hörður
Helgason og mun hann stjórna
þinghaldi.
skátafélagið Árbúar sem stendur
fyrir mótinu í Hljómskálanum. Á
dagskránni verða m.a. barna-
íþróttir, þrautabráutir, flugdreka-
keppni, siglingar á tjörninni,
hljómleikar og skemmtiatriði.
Lýkur dagskránni með verðlauna-
afhendingu. Á sunnudaginn verð-
ur opinn fundur Umferðarnefndar
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Verður m.a. rætt um hraðatak-
markanir í þéttbýli. Framsögu-
maður verður Guttormur Þormar,
forstöðumaður Umferðardeildar.
Fundurinn hefst kl. 14.00.
í Gerðubergi verður á sunnu-
daginn haldinn fyrirlestur um
Vatnsveituna og farið í Heiðmörk
og víðar að honum loknum. Tón-
leikar verða síðan kl. 20.30 í
Gerðubergi og syngur þar Krist-
inn Sigmundsson við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar. Einnig
verður í Gerðubergi sögustund
fyrir börn á morgun og sunnudag
kl. 15.00.
f Árbæjarsafni stendur yfir
sýning á gömlum Reykjavíkur-
kortum í Eimreiðarskemmu.
Sunnudaginn 21. ágúst kl. 14.00
flytur Elín Pálmadóttir erindi um
fólkvang í Eliðaárdal. Að erindinu
loknu verður Elliðaárdalsganga á
vegum safnsins. Leiðsögumaður
verður Salvör Jónsdóttir. Auka-
ferðir verða frá Hlemmi að Ár-
bæjarsafni á vegum SVR laugar-
daginn 20. ágúst kl. 14.00 og til
baka kl. 16.00 og sunnudaginn 21.
ágúst kl. 13.30 og til baka kl.
16.30. Árbæjarsafn er opið kl.
13.30—18.00. Þá verður kvikmynd-
in „Reykjavíkuræfintýri Bakka-
bræðra" sýnd kl. 16.00 í Iðnó á
sunnudag.
Tvær ferðir verða farnar á
morgun, laugardag, á vegum
Reykjavíkurviku, útsýnisferð í
Bláfjöll undir leiðsögn Einars Þ.
Guðjohnsen. Verður lagt af stað
kl. 10.00 frá Kjarvalsstöðum og
kl. 10.15 frá Gerðubergi. Kl.
14.00—15.00 verður siglt úr
Sundahöfn og farin Viðeyjarferð
undir leiðsögn þeirra Sigurðar
Líndals, prófessors, og örlygs
Hálfdánarsonar. Kaffiveitingar
verða á vegum Viðeyingafélagsins.
Ifenan....
3636
hringir
....ein af n£ju Eagnarsvörunum
IÐNSYNM£|j^