Morgunblaðið - 19.08.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983
7
Ýsunet
nú fyrirliggjandi á lager.
Garn 0.52 (no. 10), 6 tommu möskvi, 120 yds. x 32
md. Sérstakur stór fellimöskvi. JAPÖNSK viöur-
kennd gæðanet. Einnig nýkomin JAPÖNSK
GRÁSLEPPUNET.
JÓN ÁSBJÖRNSSON, heildv.,
Grófinni 1, Reykjavík.
Símar: 11747 og 11748.
GARÐASTÁL
Þrautreynt efni í hæsta gæóaflokki á þök og veggi
utan sem innan. Allir fylgihlutir fyrirliggjándi
einnig slétt efni. Sérsmíði eftir óskum.
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 4-6 GARÐABÆ
SÖLUSÍMI 5 29 22
Hringið, komið eóa skrifið os-
og kostnaöaráætlun -
Raforkusamningurinn við Alu- suisse hefur skaðað þióðina |
Athugasemd frá Orkustofnun — vegna k jallaragreinar Ragnars Ámasonar hagfræðings í DV f gær
Forsendusmiður og Orkustofnun
Hin nýja stétt Alþýðubandalagsins leit svo á þegar ráðherrar henn-
ar sátu í ríkisstjórn að opinberar stofnanir og embættismenn ættu
ekki að sinna öðrum störfum en þeim sem samrýmdust sérvisku
stéttarbræðranna. Sá sem gekk lengst á þessari braut var Hjörleif-
ur Guttormsson og sérfræðingahirð hans. Hún skipaði mönnum
heima og erlendis að reikna og reikna á alþýðubandalagsforsend-
um. í Staksteinum í dag er rætt um grein eins af forsendusmiðum
Hjörleifs og athugasemdir Orkustofnunar við hana.
Forsendu-
smiður skrifar
Kram hefur komirt að
eftirlætisiðja Hjörleifs
Guttormssonar á meðan
hann var iðnaðarráðherra
var að láta opinberar stofn-
anir og embættismenn
stunda alls kyns útreikn-
inga á alþýðubandalagsfor-
sendum sem ávallt leiða til
rangrar niðurstöðu. Er
nauðsynlegt að upplýst
verði um alla slíka útreikn-
inga svo að menn geti var-
að sig á þeim, hvort heldur
þeir voru gerðir á vegum
erlendra aðila (Coopers &
Lybrand) eða innlendra
(Orkustofnun o.fl.). Einn af
forsendusmiðum Hjörleifs
Guttormssonar var Ragnar
Árnason sem síðast var
minnst á hér í Staksteinum
þegar Þjóðviljinn lagði for-
síðuna undir það, að Ragn-
ar var ekki endurskipaður í
gjaldskrárnefnd ríkis-
stjórnarinnar, stuðpúðann
innan stjórnkerfísins á leið
umsókna um opinberar
hækkanir. Ragnar er einn-
ig góðkunningi lesenda
Staksteina af þeirri ástæðu
að hann tók við gullkistu-
vörslu innan Alþýðubanda-
lagsins þegar Svavar
Gestsson gerði Inga R.
Helgason að _ forstjóra
Brunabótafélags íslands.
Ragnar Árnason ritaði
grein í Dagblaðið-Vísi á
mánudag sem hét „Raf-
orkusamningurinn við Alu-
suisse hefur skaðað þjóð-
ina“ og segist þar byggja á
greinargerð Orkustofnunar
um áhrif rafmagnssamn-
ingsins við álverið í
Straumsvik á raforkuverð
til innlendra aðila, en þessi
greinargerð var einmitt
samin á alþýðubandalags-
forsendum eftir að Hjör-
leifur Guttormsson hafði
vísað greinargerð um sama
efni aftur til Orkustofnun-
ar þar sem niðurstöður
hennar samrýmdust ekki
áróðri Alþýðubandalagsins.
Grein Ragnars Árnason-
ar er þannig skrifuð að les-
andinn getur ekki álitið
annað en að höfundur
þræði skýrslu Orkustofn-
unar og birti úr henni orð-
rétta kafla eins og til dæm-
is niðurstöður og línurit.
Þetta efni verður forsendu-
smið Hjörleifs Guttorms-
sonar síðan tilefni til að
álykta í greinarlok: „Öll
þessi atriði og mörg fleiri
hníga að einni niðurstöðu.
Óverjandi er að krefjast
minna en 20 mills á kfló-
vatt stund fyrir raforku til
núverandi álbræðslu f
Straumsvík."
6. maí 1982 gerði Hjör-
leifur Guttormsson Alu-
sulsse það tilboð að raf-
orkuverðið hækkaði úr
6,45 mills eins og það er
enn f 9,5 mills — nú telur
forsendusmiður Hjörleifs
hins vegar 20 mills algert
lágmark og rökstyður þá
niðurstöðu með skýrslu
Orkustofnunar.
Orkustofnun
mótmælir
Grein Ragnars Árnason-
ar birtist í Dagblaðinu Vísi
á mánudag en á miðviku-
dag birtist í sama blaði at-
hugsaemd frá Orkustofnun
vegna greinar Ragnars.
Þar kemur þetta helst
fram:
1. Kaflinn í grein Ragn-
ars Árnasonar sem ber yf-
irskriftina Niðurstöður
Orkustofnunar og skiptist f
þrjá töluliði er þannig úr
garði gerður að „textinn í
þessum þremur töluliðum
er ekki tekinn úr“ greinar-
gerð Orkustofnunar að
sögn stofnunarinnar „held-
ur er hann saminn af höf-
undi, Ragnari Árnasyni",
eins og Orkustofnun bend-
ir einnig á.
2. Orkustofnun sýnir
fram á í athugsemd sinni,
að Ragnar Árnason ber í
„niðurstöðum" sínum sam-
an það sem ekki er sam-
bærilegt.
3. Orkustofnun bendir á
að Ragnar segi í grein sinni
„meðfylgjandi línurit úr
skýrslu Orkustofnunar" en
gerir síðan athugasemdir
sem sýna að línuritið er
ekki eins í skýrslu stofnun-
arinnar og Ragnar birtir
það.
í lok athugasemdar
Orkustofnunar segir:
„Hvorki textinn (í grein
Ragnars Árnasonar, innsk.
Staksteina) undir fyrir-
sögninni „helstu niðurstöð-
ur Orkustofnunar eru sem
hér segir“, né heldur
myndin, sem vitnað er til
sem „linurits úr skýrslu
Orkustofnunar", hafa ver-
ið tekin rétt upp úr greinar-
gerð stofnunarinnar.
Stofnunin gerir ekki at-
hugasemd við það, að
menn dragi aðrar ályktanir
af skýrslum hennar og
greinargerðum en hún sjálf
gerir, en hún frábiður sér
rangar eöa villandi tilvitn-
anir í þær.“
Það er óvanalegt að
opinber stofnun eins og
Orkustofnun sjái sig til
þess neydda að gera at-
hugasemd við blaðagrein
með þeim hætti sem hér
hefur verið lýsL Hitt er þó
enn óvanalegra að háskóla-
kennari eins og Ragnar
Árnason hefur verið og
ráðgjafi fleiri en eins ráð-
herra skuli fara jafn óvar-
lega með efni í opinberri
skýrslu og kalla yfir sig at-
hugasemdir vegna brota á
einföldum grundvallarregl-
um um meðferð slikra
skjala. En þessi vinnu-
brögð Ragnars eru því mið-
ur dæmigerö fyrir þá
starfshætti sem félögum í
hinni nýju stétt Alþýðu-
bandalagsins eru kærust
og niðurstöðurnar eru því
I miður í samræmi við það.
I.jósmynd Mbl.Ó.K.M.
Vörumarkaðurinn opnar bráð-
lega verslun á Seltjarnarnesi
BRÁÐLEGA verdur opnaður nýr Vörumarkaður, og verður hann staðsettur í nýja miðbæ Seltjarnarness við Eiðistorg.
Verið er að leggja síðustu hönd á innréttingar á fyrstu hæð og þegar framkvæmdum við stórt upphitað bflaplan við
verslunina lýkur verður hún opnuð. Húsið á að vera á þrem hæðum en enn hefur ekki verið byggt nema kjallari og
jarðhæð, og eru það til samans 1.800 fermetrar.