Morgunblaðið - 19.08.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGtJST 1983
Kvennaat-
hvarf flutt í
nýtt húsnæði
FYRR í sumar efndu Samtök um
kvennaathvarf til fjársöfnunar til að
standa straum af húsnæðiskaupum
sem gekk mjög vel. Um næstu mín-
aðamót verður kvennaathvarfið flutt
í nýtt húsnæði sem samtökin festu
kaup á fyrr í sumar.
Samtökin hafa notið mikils
stuðnings einstaklinga og fyrir-
tækja við að koma því húsi í gott
horf og hefur vinna við það verið
unnin af sjálfboðaliðum að mestu.
Nokkurt starf er þó eftir við máln-
ingu og annan frágang í húsinu og
er það von forsvarsmanna sam-
takanna að einhverjir velunnarar
athvarfsins geti lagt þeim lið við
þá vinnu. Um átta mánuðir eru frá
því að kvennaathvarfið opnað í
Reykjavík og hefur reynslan á
þessum tíma sýnt fram á verulega
þörf fyrir rekstur slíkrar aðstöðu,
sem kvennaathvarfið býður upp á.
„Á hjara
veraldar“
sýnd á ný
ÍSLENSKA kvikmyndin Á hjara ver-
aldar verður tekin til sýninga í Regn-
boganum kl. 7 og 9 dag hvern vegna
fjölda áskorana.
Myndin var sýnd á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes í vor og í París
við afbragðs góðar undirtektir og
hefur það nú þegar m.a. haft þær
afleiðingar að virt franskt dreif-
ingarfyrirtæki gerði samning um
umboðssölu og dreifingu í nokkrum
löndum Vestur-Evrópu; sömuleiðis
var hún valin ein af örfáum mynd-
um hvaðanæva úr heiminum til sýn-
inga á alþjóðakvikmyndahátíðinni f
Montreal í Kanada í nóvember, en
hún er mikilvæg fyrir dreifingu og
kynningu kvikmynda vestanhafs.
Arnar Jónsson, Helga Jónsdóttir
og Þóra Friðriksdóttir, með aðal-
hlutverkin og fleiri leikarar koma
einnig við sögu svo sem Rúrik Har-
aldsson, Pétur Einarsson, Guðlaug
María Bjarnadóttir og Hjalti
Rögnvaldsson. Nokkrir íslenskir
söngvarar syngja, svo sem Kristján
Jóhannsson, Sieglinde Kahmann,
Sigríður Ella, Garðar Cortes, ólöf
Kolbrún Harðardóttir og Engel
Lund. Af íslenskum tónskáldum
eiga Hjálmar Ragnarsson, Jón Leifs
og rokkhljómsveitin Oxzmá tónlist í
myndinni. Höfundur handrits og
leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir.
(llr fréttatilkynningu)
Kjördæmisráð sjálfstæð-
ismanna á Vestfjöröum:
Aðalfundur
um helgina
AÐALFUNDUR kjördæmisráós
sjálfstæóisfélaganna á Vestfjörðum
verður haldinn að Núpi í Dýrafirði nú
um helgina. Fundurinn hefst föstu-
dagskvöldið 19. ágúst kl. 19.30. Þá
um kvöldið verður ávarp formanns
kjördæmisráðs, Engilberts Ingvars-
sonar, og ávörp þingmanna, þeirra
Matthíasar Bjarnasonar og Þorvaldar
Garðars Kristjánssonar.
Á laugardaginn verða umræður
um atvinnumál. Frummælendur
verða þeir Eyjólfur Konráð Jóns-
son, Einar Oddur Kristjánsson
framkvæmdastjóri og Ólafur
Hannibalsson bóndi. Eftir hádegið
á laugardag verður aðalfundar-
störfum haldið áfram. Fundinum
lýkur síðdegis á laugardag. Það
skal tekið fram að setningarfund-
urinn á föstudagskvöldið er opinn
öllum sjálfstæðismönnum.
ER HÆGT AÐ GERA REYFARAKAUP
Á SUMARÚTSÖLUNNI OKKAR
SEM ER í 6 VERSLUNUM SAMTIMIS
er bara aö drífa sig
og kíkja á herlegheitin
eins og litli snáöinn
á myndinni
m
--------------------AFSLATTUR
ið viljum minna alla
landsmenn á sannleiksgildi
ágústbatamerkisins:
„ÍSLENSKUR IONAOUR“
KJÖLFESTA
KOMANDI
KARNABÆR
KYNSLÓÐA
LAUGAVEGI 66 — GLÆSIBÆ
— AUSTURSTRÆTI 22
SIMI FRÁ SKIPTIBOROI 85055
GARBO
BONANZA
BONAPARTE