Morgunblaðið - 19.08.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.08.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 A Þetta er hin nýja Atlantis-tölva sem kynnt verður á iðnsýningunni. íslensk tölva á markaðinn Á IÐNSÝNINGUNNI, sem hefst í Laugardal í dag, verftur sýnd í fyrsta sinn opinberlega íslensk tölva sem framlcidd er af Atlantis hf., en það er nýstofnað fyrirtæki sem ætlað er að standa að fram- leiöslu og markaðssetningu á smá- tölvum hér á landi. Iðntæknistofnun Islands hefur þegar pantað fyrstu Atlantis- tölvuna, en hún er fyrst og fremst ætluð tii viðskipta og iðnaðar- nota. Grunneining Atlantis- tölvunnar er hönnuð af hópi sér- fræðinga í Bandaríkjunum fyrir Atlantis hf. íslenska tölvan er hliðstæða nýrrar tölvu frá IBM, sk. IBM Personal Computer. For- ráðamenn Atlantis telja, miðað við innflutningsverð sambæri- legrar erlendrar tölvu, að þjóð- inni sparist 1.200—1.300 banda- ríkjadalir í gjaldeyri fyrir hverja tölvu. „Ég veit ekki hvað þarna er á ferðinni - segir Halldór Björnsson, varaformaður Dagsbrúnar íí „ÁSTÆÐAN er fyrst og fremst sú að á sínum tíma var mér falið að hafa dag- legan rekstur skrifstofunnar með höndum. Þessi ráðning Þrastar Ólafs- sonar kom mér algerlega í opna skjöldu og ég hlýt að líta svo á að verið sé að segja mér upp starfi," sagði Hall- dór Björnsson, varaformaður verka- mannafélagsins Dagsbrúnar í samtali við Morgunblaðið, þegar hann var spurður hvers vegna hann hefði verið andvígur ráðningu Þrastar Ólafssonar í framkvæmdastjórastarf hjá Dags- brún, en Halldór varð I minnihluta, þegar kosið var um það í stjórn félags- ins. „Samkvæmt ráðningu Þrastar í dag, er hann ráðinn þarna fram- kvæmdastjóri, með alræðisvald, og þar með er öllum öðrum ýtt til hlið- ar. Einn stjórnarmaður, Garðar Steingrímsson, lýsti því yfir að hann myndi ekki taka lengur þátt í störf- um stjórnar og sagði sig úr stjórn," sagði Halldór. Halldór sagði að hann hefði fyrst heyrt af þessu máli fyrir röskum hálfum mánuði síðan. Hann sagði að það hefði verið þannig innan dyra hjá þeim í Dagsbrún að laun starfsmanna væru nokkuð hliðstæð og engin sérstök stéttarskipting hefði verið þar, t.a.m. kannaðist hann ekki við að Guðmundur J. Guð- mundsson hefði notið sérstakra fríð- inda þegar hann gegndi starfi vara- formanns. Nú væri tekin upp ný stefna, þar sem ráðinn væri maður upp á 50 þúsund króna mánaðarlaun, þegar hlunnindi væru meðtalin. „Ég hef verið eini stjórnarmaður- Seljugerði fegursta gatan SELJUGERÐI í Reykjavík hlaut í gær titilinn „Fegursta gata Reykja- víkur 1983", en Seljugerði er tíunda gatan sem hlýtur þennan titil. Davíð Oddsson, borgarstjóri. veitti verð- launin, en það var dómnefnd á veg- um Umhverfismálaráðs sem út- nefndi götuna. Einnig hlutu 9 fyrir- tæki viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi. Frá árinu 1969 hefur verið til- nefnd fegursta gata borgarinnar og hefur skjöldur verið settur upp í viðkomandi götu sem hlotið hef- ur slíka viðurkenningu. 9 götur bera nú fegurðarskjöldinn, og í gær bættist sú lOnda við. Það er Seljugerði sem hlýtur titilinn „Fegursta gata borgarinnar" í ár. 9 fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi og fram- tak til fegrun borgarinnar, en það voru Bensínstöð Olíufélagsins hf. við Ægissíðu 102 og Hjólbarðavið- gerð Jóns Ólafssonar á sama stað, Kaffivagninn, Grandagarði 10, Sparisjóður vélstjóra, Borgartúni 18, Vélaverkstæði J. Hinrikssonar hf., Súðarvogi 4, Gunnar Guð- mundsson hf., Dugguvogi 2, Fiski- mjölsverksmiðjan að Kletti, Bíla- smiðjan Kyndill hf., Smiðshöfða 9, og Geymsluhús Samábyrgðar fs- lands á fiskiskipum á Vagnhöfða 14. inn þarna í starfi og það virðist vera skoðun formannsins og meirihluta stjórnar að það gangi ekki lengur. Það sem þarna er á ferðinni veit ég ekki hvað er,“ sagði Halldór. Halldór sagði að hann hefði verið starfsmaður Dagsbrúnar frá því 1969, en samþykktin varðandi núver- andi starfsvettvang hans, sem væri sá sami og Guðmundar J. Guð- mundssonar meðan hann var vara- formaður, hefði verið gerð fyrir þremur árum. Þessi ráðning hefði komið sér algerlega í opna skjöldu. „Ég veit ekki hvað ég kem til með að gera, en ég óttast að vegna þessa séum við að missa út úr höndunum á okkur mjög góða starfsmenn, sem eru búnir að vinna þarna í mörg ár,“ sagði Halldór Björnsson, ennfremur. Þröstur Ólafsson hef- ur ekki verið ráðinn — segir Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Dagsbrúnar „ÉG kannast ekki við að Þröstur Ólafsson hafi verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar. Hann hefur hvorki sótt um það starf, né gert ákveðnar launakröfur í þvi sambandi. Hins vegar hef ég haft áhuga á því að fá hann til starfa fyrir félagið og fékk heimild til þess hjá stjórn félagsins að ræða við hann um starf," sagði Guð- mundur J. Guðmundsson, formaður verkamannafélagsins Dagsbrúnar í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar það var borið undir hann hvort Þröstur Ólafsson hefði verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar. Guðmundur sagði að þessar um- ræður við Þröst stæðu í sambandi við það að Dagsbrún hefði orðið fyrir áföllum á árinu, því tveir máttar- stólpar þess hefðu fallið frá: Eðvarð Sigurðsson, fyrrverandi formaður þess, sem verið hefði ómetanlegur ráðgjafi, hefði unnið ólaunað starf hjá félaginu frá því hann lét af formennsku og Sigurður Guðgeirs- son, gjaldkeri, sem hefði annast all- ar fjárreiður félagsins og bókhald. Óhjákvæmilega hefði fráfall þessara manna breytingar í för með sér og hefðu störf hjá honum til að mynda aukist mjög. Guðmundur aftók með öllu að þessum viðræðum við Þröst, væri beint gegn nokkrum starfs- manna félagsins. Varðandi laun sagði Guðmundur að það væri ætíð mjög erfitt að meta hvernig borga skyldi laun fyrir störf þess eðlis, sem hér um ræddi. Þau færu mikið fram utan venjulegs vinnutíma. Til dæmis væri spurning hvort greiða bæri fasta yfirvinnu á mánuði eða unna yfirvinnu. Ef til samninga kæmi við Þröst, myndi fylgja kvöð um ótakmarkaða vinnu- skyldu. Sú hefði verið tíðin að allir á skrifstofu Dagsbrúnar hefðu unnið fyrir sömu daglaunum. „Ég vonast til að það verði áfram bræðralag á skrifstofu félagsins. Það verður það frá minni hendi,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson að lok- Ljósmynda- tösku stolið Á miðvikudagskvöldið var stolið úr bifreið, sem stóð í porti Morgun- blaðsins, stórri svartri tösku sem í var myndavél af gerðinni Mamya RB 67, þrjár linsur ásamt Ijósmæli, flash-mæli og ýmsum öðrum fylgi- hlutum sem viðkoma myndatöku. Það er að vonum bagalegt fyrir ljósmyndara þegar stolið er frá honum atvinnutækjunum og ef ein- hver getur gefið upplýsingar um mál þetta er hann vinsamlegast beðinn að hafa samband við ljós- myndadeild Morgunblaðsins og einnig má hinn seki gjarnan skila töskunni með öllu tilheyrandi á sama stað svo lítið ber á. Iðnsýningin hefst í dag: 120 fyrirtæki taka þátt í sýningunni KLUKKAN sex í dag hefst f Laug- ardalshöll yfirgripsmesta iðnsýning sem sett hefur verið upp á íslandi. Iðnsýning ’83, er hún köíluð og taka þátt í henni um 120 fyrirtæki. Sýn- ingin er haldin í tilefni 50 ára afmæl- is Félags íslenskra iðnrekenda og hefur kjörorðið „íslensk framtíð á iðnaði byggð". Víglundur Þorsteinsson, for- maður FÍI, sagði á fundi með fréttamönnum í gær að eitt helsta markmið sýningarinnar væri að gera íslenskum almenningi ljóst hve þróaður og margþættur ís- lenskur iðnaður er orðinn. „Það mun koma í ljós á þessar sýningu," sagði Víglundur, „að íslenskur iðn- aður er bráðlifandi og á fullri ferð að gera nýja og góða hluti." Efnt var til samkeppni um kjör- orð sýningarinnar og var kjörorð- ið, „íslensk framtíð á iðnaði byggð“, valið úr 671 tillögu. Töldu forráðamenn sýningarinnar þetta kjörorð vel við hæfi, þar sem ljóst væri að vaxtarmöguleikar hefð- bundins landbúnaðar væru tak- markaðir og auðlindir sjávar væru ekki óþrjótandi. Framtíð íslensku þjóðarinnar myndi því í vaxandi mæli byggjast á iðnaðinum. Mikið kapp hefur verið lagt á að gera sýninguna skemmtilega og líflega, að sögn Bjarna Þórs Jóns- sonar, framkvæmdastjóra sýn- ingarinnar. Fataframleiðendur standa fyrir daglegum fata- og tískusýningum, sem mikið er lagt í. Smíðaður hefur verið sérstakur Morjfunbladió/KAX Hið íslenskumælandi vélmenni, ásamt umboðsmanni sínum hér á landi, Birni Kristinssyni. pallur gegnt áhorfendastúkunni þar sem tískusýningar fara fram, tvisvar til þrisvar á dag. Þetta verða tískusýningar með leikrænu ívafi, m.a. verður notast við leik- muni og mjög fullkominn ljósa- búnað. Milli 30 og 35 manns hafa fastan starfa við sýningarnar, en sýningarfólkið er úr Módelsam- tökunum og Model ’79. Þá mun gestum gefast kostur á að smakka á margs konar réttum í matardeildinni, sem verður í and- dyri Hallarinnar, og í veitingasöl- unni, sem JC Reykjavík sér um, verður boðið upp á rétti sem aldrei hafa áður sést á íslenskum mat- seðlum. Brotið verður uppá ýms- um skemmtilegheitum, til dæmis verður á hverjum degi valinn „happagestur", sem verður leystur út með einhverri vöru á sýning- unni. Það sem kemur sennilega til með að vekja einna mesta athygli á sýningunni er bandarískt vél- menni, eða „róbót“, sem leika mun ýmsar listir gestum til fróðleiks og skemmtunar. Það er Björn Kristinsson og starfsfólk hans hjá Rafagnatækni sem stendur á bak við veru vélmennisins á sýning- unni. Vélmennið, sem kallar sig Fjallið hreina. FÍA fjölhæfa, talar íslensku, með bandarískum hreim að vísu, en það mun stafa af því að hljóðin sem tölvan vinnur með eru úr bandarísku talmáli en ekki ís- lensku. Tvö önnur fyrirtæki verða einnig með vélmenni til sýnis, auk þess sem gestir fá tækifæri til að kynnast fyrstu séríslensku tölv- unni. Töluvert verður af erlendum gestum við opnun sýningarinnar, m.a. 75 Færeyingar, sem koma í boði Útflutningsmiðstöðvar iðnað- arins og FÍI. Stendur þessi koma Færeyinganna í tengslum við sér- stakt átak, sem gert hefur verið í sambandi við aukinn útflutning til Færeyja. Sýningin í dag hefst með ávarpi Ágústs Valfells, sem er formaður sýningarnefndar. Þá munu Víg- lundur Þorsteinsson, formaður FÍI, og Sverrir Hermannsson, iðn- aðarráðherra, flytja ræður. Inngangseyrir er 100 krónur fyrir fullorðna og 40 krónur fyrir börn, en sýningin verður opin frá klukkan 15 til 22 á virkum dögum og frá 13 til 22 um helgar. Sýn- ingarsvæðinu verður lokað klukk- an 23 á hverju kvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.