Morgunblaðið - 19.08.1983, Page 18

Morgunblaðið - 19.08.1983, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 Ríkisstjórnin ráðstafar gengismun: Saltfiskvinnsl- an fær 60 millj. RÍKISSTJÓRNIN hefur tek- ið ákvörðun um ráðstöfun gengismunar og greindi Hall- dór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra frá skiptingu hans á fréttamannafundi í gær. Sú upphæð sem hér um ræðir nemur um 552,2 millj. kr. og skiptist hún sem hér segir: 200 millj. renni í Stofnfjár- sjóð fiskiskipa til lækkunar á skuldum og/ eða fjár- magnskostnaði fískiskipa. 100 millj. fari inn á reikninga fískiskipa í Stofnfjársjóði Drangalegt atriAi úr Poltergeist Nýja bíó: „Poltergeist“ Spielbergs frumsýnd KVIKMYND Steven Spielberg, „Polt- ergeist", var frumsýnd í Nýja bíói í gær. Myndin segir frá bandarískri fjöl- skjldu sem verður fyrir því að óvæntir hlutir taka að gerast á heimili þeirra, sem rekja má til athafnasamra „ærsl- anda", en ærsl-andi er þýðing Ævars Kvaran á „Poltergeist". Með aðalhlutverk í myndinni fara þau Craig T. Nelson, Jobeth Willi- ams og Beatrice Straight, ásamt fleirum. Myndin er gerð eftir sögu Spielberg, en leikstjóri er Tobe Hooper og höfundur tónlistar Jerry Goldsmith. með hliðsjón af aflaverðmæti frá 1. júlí 1982 til 30. júní 1983. 60 millj. til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, deildar fyrir salt- fiskafurðir. 60 millj. sem lánveiting til loðnuskipa vegna rekstrarerfið- leika og skal Fiskveiðasjóður ann- ast hana. U.þ.b. 55 millj. til greiðslu eftir- stöðva, þar með taldir vextir skulda Olíusjóðs fiskiskipa. 37 millj. til sjómannasamtak- anna. Af þessari upphæð renna 30 millj. í lífeyrissjóði sjómanna að viðhöfðu samráði við sjómanna- samtökin; og 7 millj. skal ráðstaf- að til annarra velferðarmála í þágu sjómanna. 15 millj. sem lánveiting til loðnuvinnslustöðva. 10 millj. til orkusparandi að- gerða í útgerð. Skal Fiskimála- sjóður annast þessar greiðslur. 10 millj. til að efla gæði og vöru- vöndun í sjávarútvegi og skal framkvæmdin vera á vegum Fiski- málasjóðs. 4 millj. í Styrktar- og lánasjóð fiskiskipa. 1.200 þús. verði varið til sér- staks átaks í loðnuleið 1983. Sjávarútvegsráðherra sagði á fundinum að gert væri ráð fyrir að aflað yrði mestum hluta þess fjár sem hér um ræðir á þessu ári og því næsta. Enda væri enn mikið óselt af skreið og saltfiski. En þeim tæplega 162 milljónum sem nú væru til ráðstöfunar hefði þeg- ar verið úthlutað. Halldór sagði að ákveðið hefði verið að veita salt- fiskvinnslunni 60 millj., sem mundi koma framleiðendum til góða. Þá sagði hann að þriðjungi þeirra 300 milljóna sem renna í Stofnfjársjóð fiskiskipa yrði skipt með hliðsjón af aflaverðmæti Sjávarútvegsráðherra hvað hér um nýjung vera að ræða við skipt- ingu gengismunafjár, sem ákveðin hefði verið til að koma betur til móts við þá aðila er mest hafa lagt af mörkum til gengismunasjóðs. Loks sagði Halldór að lögð væri mikil áherzla á loðnuleit í haust, en ekki yrði ljóst fyrr en í október hvort eða hvenær veiðar gætu haf- ist, því að þá kæmi hafrannsókn- arskipið Bjarni Sæmundsson úr leiðangri um helztu loðnosvæðin. Afsakið verður með tón- leika í Tónabæ í kvöld í TENGSLUM við Reykjavíkurviku verða tónleikar í Tónabæ í kvöld, föstudagskvöld. Hljómsveitin Afsakið kemur þar fram í fyrsta skipti opinber- lega og einnig kemur fram Jóhann Helgason með hljómsveitinni þetta eina kvöld og kynnir nýút- komna hljómplötu. Hljómsveitin Afsakið er 14 manna stórhljómsveit, með hefð- bundinni hljóðfæraskipan rokk- tónlistar og auk eru þess bakradd- ir, blásarar og slagverk. Hljóm- sveitin spilar einkum rokkað funk, mestmegnis frumsamið. Aldurs- takmark á tónieikana er 13 ára og eldri og er aðgangseyrir enginn. Tónabær verður opinn frá klukkan 20-24. Ljómarall 1983: Hafsteinn og Birgir eru með gott forskot „Svona er rallakstur, fyrstir fyrir mínútu, síðastur núna,“ sagði Ómar Ragnarsson er hann og Jón bróðir féllu úr leik vegna bilaðs drifs eftir að hafa haft nauma forystU. MorgunblaAið/Gunnlaugur. HAFSTEINN Hauksson og Birgir V. Halldórsson hafa tekið forystu f Ljómarallinu eftir fyrsta dag ralls- ins. Hafa þeir um einnar og hálfrar mínútu forskot á þá Halldór Úlf- arsson og Tryggva Aðalsteinsson á Toyota Corolla. Ásgeir Sigurðsson og Júlíus Ólafsson á Escort 2000 eru þriðju eftir ágætan akstur. „Það var gaman að þessu þótt stutt væri farið," sagði Ómar Ragnarsson í samtali við Morg- unblaðið, en þeir bræður Ómar og Jón féllu út fyrir næstseinustu leið gærdagsins þegar drif Ren- ault þeirra brotnaði. „Við sjá- umst bara í haustrallinu," sagði Ómar fjallhress. Annars var lítið um óhöpp í rallinu í gær. Þær Helga Jóhannsdóttir og Jónína Ómarsdóttir settu líklega kvennamet í að aka á sprungnu dekki í rallkeppni. Sprakk á afturhjóli Subaru þeirra snemma á Reykjanesi, en þær stöllur létu sér fátt um finnast og skiptu ekki um dekk fyrr en það var orðið að gúmmítægjum á miðri leiðinni. Skotarnir Tom Davies og Philip Walker fara sér hægt, eins og þeir höfðu ákveðið og eru 6 mín- útum á eftir forystubílnum. „Ég er að venjast vegunum hérna og hef mikla ánægju af keppninni," sagði ökumaðurinn Davies. „Ég er ánægður með aksturinn, það er langt eftir enn- þá,“ sagði aðstoðarökumaðurinn Walker brosandi. Ásgeir Sigurðs- son hefur ekið vel og er nokkuð öruggur í þriðja sæti, enn sem komið er. Hann þurfti að aka hluta Reykjaness í fjórða gír er gírstöng hoppaði uppúr gírkass- anum. Ævar Hjartarson og Árni Óli Friðriksson á Lada hafa ekið af öryggi og fjórða sætið er þeirra. Búast má við miklum breytingum á stöðunni í dag, en líklega haldast tvö efstu sætin óbreytt, a.m.k. ef þeir sem þar sitja lenda ekki í óhöppum. Staðan í byrjun annars dags. Hafsteinn 2.42 refs. mín, Hall- dór 4,14, Ásgeir 4,46, Ævar Hjartarson 6,40, Jón Sigþórsson 7,18, Ríkharður 7,18, Tom 8,11, Eiríkur 8,18, Kristján 8,35, Ævar 10,22, Gunnar 12,13, Ólafur 12,34, Ari 15,10, Úlfar 10,29, Helga 21,21, og Steingrímur 26,05. GR. íslandsrallið: „Var alltaf sagt að ekkert vandamál yrði“ segir Jean Claude Bertrand „ÞAÐ ER vægast sagt hræðilegt ef ég fæ ekki nema fjórar leiðir f fs- landsrallið. Keppendur eru búnir að gera ráð fyrir átta daga keppni og hafa borgað stórfé til að komast hingað og skipulagningin hefur einn- ig verið mjög kostnaðarsöm," sagði Jean Claude Bertrand aðspurður um hvernig rallkeppni hans yrði, nú eftir að dómsmálaráðuneytið gaf aðeins leyfi á helming þeirra akstursleiða er Bertrand hafði gert ráð fyrir. „Ég veit ekki hvað ég get sagt við keppendurna, margir eru komnir langt að ... ég hef sann- arlega áhyggjur af því hvað kepp- endurnir segja ef ekki fást fleiri leyfi. Ég get ekkert gert, Land- samband íslenskra akstursfþrótta- manna hefur haft heilt ár til að ganga frá þessum málum og sfðan kemur þetta upp er við erum komnir hingað til keppni," sagði Bertrand er blaðamaöur ræddi við hann á tjaldsvæði á Þingvöllum, þar sem keppendur rallsins dvelja fyrstu dagana. „Ég er búinn að koma hingað 12 sinnum síðan f fyrra og alltaf var mér sagt að ekkert vandamál yrði. Gallinn við fslendinga er sá að enginn virðist geta tekið ákvörðun, allir segja seinna, seinna ... Þetta er vanda- mál LÍA og dómsmálaráðherra, hann verður að geta sagt af eða á þegar svona mál eru lögð fyrir. Ég skil ekki af hverju hægt er að segja að fjórar leiðir séu í lagi, en fjórar ekki. Ef einhver hefði bara sagt nei fyrir sex mánuðum, þá væri þetta allt í lagi, ég hefði bara sagt bless!“ sagði Bertrand og var óhress í máli. „Örvar Sigurðsson hjá LÍA hringdi í síðustu viku og sagði að allt væri í góðu lagi! I febrúar hitti ég LÍA-menn og spurði hvort þeir væru alveg ör- uggir með að þetta yrði leyft. Ég varð að vera viss, þetta eru miklir peningar sem eru f veði. Svarið var: Ekkert mál, rallið verður! Ég boðaði því 500 manns á minn fund í Frakklandi, þar af 100 blaða- menn. Kynnti ég keppnina og ís- land fyrir þessu fólki og margir vildu koma. Einnig hélt ég fundi á Ítalíu og í Sviss. Síðan fóru menn að frétta af einhverjum vandamál- um vegna rallsins, meðal annars gegnum konsúl íslands í Belgíu og drógu sig úr hópnum, þannig að eftir eru aðeins 20 keppendur," sagði Bertrand og hristi hausinn. „Jæja, ég safna saman því fólki sem eftir er, frá Ítalíu, Belgíu, Sviss og Frakklandi og held af stað með Eddunni fullviss um að keppnin verði góð þó fáir þátttak- endur séu. f Eddunni frétti ég síð- an frá Morgunblaðinu að búið sé að fella niður helming keppninn- ar,“ sagði Bertrand, en kona hans tók nú til máls. „Við leggjum á okkur að verða sjóveik í þrjá daga til að komast til fslands í skemmtilega keppni og gott and- rúmsloft, eyðum miklum pening- um, — allt í lagi, það er þess virði. En síðan er við birtumst reynist allt f vitleysu með keppnina." „Menn geta ekki leikið sér svona að peningum annarra. íslandsrall- ið er tvöfalt dýrara en Alsír rallið, sem ég held árlega — það eru miklir peningar. Annað mál er að enginn skoðar bílana hjá túristum þegar þeir koma til landsins, en ég verð að fara með alla bílana í sér- staka skoðun á morgun. Af hverju? Það er sannarlega ekki heilbrigt," sagði Bertrand og bað- aði út höndunum. „Við sjáum hvað gerist á morgun er við ræðum við hlutaðeigandi yfirvöld," sagði Bertrand að lokum. G.R. Hluti keppenda í íslandsrallinu að slá upp tjaldbúðum á Þingvöllum, þar sem þeir dveljast fyrstu dagana. Morpinbi»*i4/Gunni»ugur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.