Morgunblaðið - 19.08.1983, Side 22

Morgunblaðið - 19.08.1983, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 Aburðaryerksmiðja ríkisins: Ný sýruverksmiðja og guli reykurinn horfinn NÝ sýruverksmiöja hefur verið tek- þessarar nýju verksmiöju tvöfald- in í notkun hjá Áburöarverksmiöju ast næstum framleiðslan á áburöi ríkisins á Gufunesi. Með tilkomu en hún var 40—45 þús. tonn á ári Stjórntækin og annar vélabúnaður er keyptur frá Frakklandi. og er nú 70 þús. tonn, það er svo til allur sá áburður sem landiö þarfn- ast. Guli mengunarreykurinn sem kom frá strompi gömlu verk- smiðjunnar er horfinn því að nýja sýruverksmiðjan veldur 20 sinnum minni mengun en sú gamla. Byggingarframkvæmdir við þessa nýju verksmiðju hófust í apríl 1982 og miðaði þeim allan tímann vel áfram. Teikningar voru gerðar af verkfræðiskrif- stofunni Önn sf. og bygginga- meistari var Kristinn Sveinsson. Franska fyrirtækið Grande Paroisse seldi vélar og búnað í verksmiðjuna og hafði milli- göngu um útvegun fransks láns að upphæð 60 millj. kr. vegna vélanna. Lánið er til fimm ára og ber 9% vexti. Innlendar fram- kvæmdir, þ.e. húsbygging og uppsetning véla, voru fjármagn- aðar með bráðabirgðaláni frá Citibank í London, sem seinna verður breytt í lán til lengri tíma. Kostnaður við fram- kvæmdir er nú orðinn um 170 milj. kr. Alls vinna um 200 manns hjá Áburðarverksmiðj- unni, en þar er unnið allan sól- arhringinn á vöktum. Nýja sýruverksmiðjan sem hefur tæplega helmingi meiri afköst en sú sem fyrir var. Lágplöntur í ná- grenni Reykjavíkur Náttúruverndarfélag Suðvesturlands: Leiðsögumaður Hörður Kristinsson DrfiAfRíCl Sjöunda laugardagsferð Nátt- úruverndarfélags Suðvesturlands verður farin til kynningar á grasafræðisal fyrirhugaðs Nátt- úrugripasafns fslands. Skoðaðar verða svokallaðar lágplöntur, þ.e. sveppir, fléttur og mosar. Þessum lífverum hefur almenningur lítinn gaum gefið, enda hefur verið erfitt að afla fróðleiks um þær vegna þess að við eigum ekki fullkomið náttúrugripasafn. í þessari ferð reynum við að líkja eftir þeirri kynningu og fræðslu sem fyrirhugað Náttúru- gripasafn íslands gæti veitt. Brot af tegundasafni höfum við í her- bergi því sem safnið hefur til um- ráða í dag. Þar var þó ekkert teg- undasafn af sveppum (sveppaald- inum). Vistkerfið sýnum við úti í náttúrunni. Fyrirlestur verður haldinn í bílnum og á stöðum sem við heimsækjum. íslenskar bækur og tímarit sem um lágplöntur fjalla verða kynntar. Fólk verður aðstoðað við að tína sveppi, fjalla- grös og litunarmosa eins og tím- inn leyfir. Þetta er þó ekki nema hluti af hugsanlegri starfsemi væntanlegs safns. Við getum t.d. ekki kynnt þá aðstöðu sem kenn- arar og nemendur gætu notfært sér í safninu, alls konar upplýs- ingaþjónustu fyrir ýmiss konar starfsemi og erlenda ferðamenn, myndbanda- og litskyggnusýn- ingar o.s.frv. Farið verður í nokkrar stuttar göngur. Komið til baka um kl. 7.00. Athugið, þetta er ferð fyrir alla. Leiðsögumaður verður Hörður Kristinsson, grasafræðingur. Lagt verður af stað kl. 1.30 frá Norræna húsinu. Verð 150 kr. og frítt fyrir börn. íslenskar lágplöntur Helztu flokkar lágplantna á landi eru mosar, fléttur og svepp- ir. Þörungar eru að mestu leyti í ferskvatni og sjó, þótt þeir finnist einnig á landi. Þessar lágplöntur, sem flestir gefa lítinn gaum, búa yfir ótrú- legri fjölbreytni, sem sést bezt á því, að hver þessara flokka fyrir sig, hefur álíka margar tegundir hér á landi eins og blómplöntur og byrkningar til samans. Þannig má gera ráð fyrir, að á íslandi séu um eða yfir 500 tegundir af fléttum, og kunnar eru um 520 tegundir af mosum, en sveppir munu vera á annað þúsund. Áf þeim erp að vísu flestar tegundir smásæjar, og lifa í mold og á dauðum og lifandi plöntuhlutum á landi eða í vatni. Af þessum plöntuflokkum eru sveppirnir nokkuð sér á báti, þar sem þeir eru ófrumbjarga um líf- ræn efni eins og dýrin. Þeir þura að fá lífræn efni frá öðrum lífver- um, dýrum eða plöntum, dauðum eða lifandi. Þeir lifa því ávallt þar, sem slík lífræn efni falla til. Margir þeirra sníkja á iifandi plöntum, og valda sjúkdómum þeirra. Færri orsaka sjúkdóma á dýrum eða mönnum. Flestir lifa hins vegar á dauðum og rotnandi jurtaleifum, sem ætíð falla til á hverju hausti á öllu grónu landi, eða á rotnandi laufi og kvistum í skógarbotninum. Sveppir eru oft sérhæfir í niður- broti lífrænna efna. Sumir eru hæfastir til að brjóta niður sellu- lósann úr plöntunum, aðrir viðinn, og enn aðrir brjóta niður horn úr nöglum, hárum eða klaufum, eða þá kítin skordýranna. Auk svepp- anna vinna bakteríur einnig við niðurbrot lífrænna efna, og er því mikil samkeppni milli þessara lífvera í jarðveginum. Sumir sveppir hafa komizt upp á lag með að lifa í sambýli við aðrar lifandi verur, og ná frá þeim lífrænum efnum án þess að valda þeim tjóni svo nokkru nemi, eða vinna þeim jafnframt eitthvert gagn. Dæmi um slíkt eru ýmsir hattsveppir, sem mynda svokall- aða svepprót með ákveðnum trjá- tegundum, og margar tegundir asksveppa, sem lifa í sambýli við grænþörunga og mynda með þeim svokallaðar fléttur. Sveppirnir eru ætíð gerðir af smásæjum frumuþráðum, sem greinast um það efni, sem svepp- urinn vex í. Slikt þráðasafn geng- ur venjulega undir nafninu mygla á íslenzku. Sumir sveppir geta ofið saman stóra keppi úr frumuþráð- um, og búa til úr þeim gróhirzlur, sem birtast á yfirborði efnisins. Hjá hattsveppum eru þessi svepp- aldin hattlaga, hjá belgsveppun- um kúlulaga, en hjá asksveppum disk- eða skáiarlaga. Fjölmargir sveppir búa þó aldrei til aldini af þessu tagi. Mosarnir eru á hinn bóginn frumbjarga lífverur, og geta því fremur vaxið á ólífrænu undirlagi, svo sem vikri eða hrauni. Þeir hafa að jafnaði örsmá blöð með blaðgrænu, og mynda gró í litlum, stilkuðum gróhirzlum (baukum). Á fslandi geta mosar verið svo til einráðir á stórum svæðum, t.d. gamburmosinn eða grámosinn, sem þekur hraunin á Reykjanesi og víðar þar sem úthafsloftslag er ríkjandi. Einnig myndar dýjamos- inn fagurgrænar breiður umhverf- is lindir og uppsprettur, og eins geta mosategundir verið nær ein- ráðar í blautum flóum. Mosarnir eru venjulega fyrstu plöntur, sem sjást með berum augum í nýjum hraunum. Fléttur eru í eðli sínu sveppir, sem farnir eru að lifa í sambýli við þörunga. Flétturnar njóta hæfi- leika þörunganna til að byggja upp lífræn efni, og verður sambýl- ið í heild því frumbjarga þótt sveppurinn, sem myndar þær sé ófrumbjarga. Þær verða þvl ekki eins háðar lífrænum efnum, og skipa sér í samfélög með öðrum frumbjarga plöntum eins og mos- um og háplöntum. Þær eru ásamt ýmsum mosum mikilvægur frum- gróður í nýjum hraunum, þótt þær verði um síðir að víkja fyrir gamb- urmosanum í þeim landshlutum, þar sem úthafsloftslag er mest. Sem asksveppir mynda flétturn- ar oftast litlar, disklaga skífur (askhirzlur), sem oftast eru í öðr- um lit en fléttan sjálf. í fornu máli var ekki gerður greinarmunur á mosum og fléttum, þótt ólíkar lífverur séu. Þannig bera ýmsar fléttur mosaheiti, t.d. litunarmosi og hreindýramosi. Af öllum flétt- um eru fjallagrösin þekktust hér. Fléttur vaxa bæði á mold, grón- um jarðvegi, lyngi og trjágróðri, á gömlum viði og beru grjóti. Oftast eru þær vöxtulegri inn til heiða og nálægt stöðuvötnum, þar sem þok- ur eru tíðari og loftraki hærri. Þær vaxa og starfa bæði sumar og vetur ef loftraki er nægur, en vöxtur þeirra er afar hægur. Á laugardag er fyrirhugað að staldra við á ýmsum stöðum í nágrenni Reykjavíkur, sem valdir verða með tilliti til þess, að skoða mismunandi gerðir af fléttum, mosum og sveppum. Leitast verð- ur við að útskýra líf og byggingu þessara plantna, og gefa ofurlitla hugmynd um fjölbreytni þessara lífvera. Einnig mun verða kostur á að fræðast um aðrar villtar plönt- ur, blómplöntur eða byrkninga, á því svæði sem farið verður um. H.K.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.