Morgunblaðið - 19.08.1983, Side 24

Morgunblaðið - 19.08.1983, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 Ólafur Rafn Jónsson, Þingvallastræti 22, Akureyri: Úrskurðurinn léttir byrði af fjölskyldunni Áfram unnið að því að leggja málið fyrir Mannréttindadómstólinn Akureyri, 16. ágúst. „ÞESSI úrskurður sannar, að mín- urn dómi, það sem ég hef alltaf sagt og haldið fram, að dómur Hæstaréttar íslands er í eðli sínu rangur dómur," sagði Ólafur Rafn Jónsson, Þingvallastræti 22, Ak- ureyri, þegar Mbl. innti hann eftir viðbrögðum þeirra hjóna gagnvart úrskurði fótgetaembættisins á Akureyri, sem í gær synjaði beiðni Grímu Guðmundsdóttur um út- burð á þeim, ásamt börnum þeirra, úr íbúðinni Þingvalla- stræti 22. Hér á eftir fara niðurstöður dómara og úrskurðarvottorð varð- andi þessa beiðni Grímu, ásamt niðurstöðu dómara varðandi þá kæru ólafs Rafns, að dómur Hæstaréttar hafi ekki verið birtur þeim hjónum á löglegan hátt. Niðurstaöa Varðandi þennan þátt máls- ins er óumdeilt að dómur Hæstaréttar komst til skila til gerðarþola hinn 9. apríl 1983. Þá verður lagt til grundvallar að þegar birting dómsins fór fram, hafi það atvikast þannig að þeir stefnuvottar, Gísli ólafsson og Jón Benediktsson, hafi í greint sinn ekið í bifreið- inni A-1060 að vesturenda hússins Þingvallastæti 22, og þar hafi bifreiðin verið stöðvuð þannig að vel sá upp í tröpp- urnar að íbúð gerðarþola. Stefnuvotturinn Gísli ólafsson hafi farið út úr bifreiðinni og gengið upp í fyrrgreindar tröppur með endurrit af dómi Hæstaréttar og afhent báðum gerðarþolum þar þetta endur- rit, enda er þetta viðurkennt af gerðarþola, Ólafi Rafni Jóns- syni. Hvorki vætti vitnanna Bald- urs Halldórssonar og Gunnars Berg Gunnarssonar né skýrsla gerðarþola, Ólafs Rafns, né önnur gögn, svo sem ljósmynd- ir og blaðafréttir, hrekja það að stefnuvotturinn, Jón Bene- diktsson, hafi fylgst með birt- ingunni úr hægra framsæti bifreiðarinnar, en líta verður svo á, að sá atbeini, sem Jón Benediktsson, stefnuvottur, léði til birtingarinnar hafi ver- ið fullnægjandi, enda ekki tíðk- að að lesa stefnur eða dóma upp við birtingu, heldur er lát- ið við það sitja að afhenda afrit eða endurrit. Með hliðsjón af þessu og 2. mgr. 92. gr. i.f. laga nr. 85, 1936 verður talið að vottorði stefnuvottanna varð- andi birtinguna 9. apríl sl. hafi ekki verið hnekkt og er því fyrir hendi í máli þessu lög- mætur grundvöllur til aðfarar, enda voru þrír mánuðir liðnir frá birtingunni, þegar gerðar- beiðni kom fram hinn 11. júlí 1983. Gísli Ólafsson, stefnuvottur, birtir hjónunum í Þingvallastræti dóminn á sl. vetri. — Ljé8m..-GBerg 12. gr. aðfararlaga Lögmaður gerðarþola hefur haldið því fram að þegar út- burður fer fram, beri að beita 12. gr. aðfararlega nr. 19,1887, en hún er svohljóðandi: „ Ef maður er dæmdur til að víkja af fasteign eður selja dómhafa nokkur umráð hennar, skal fógeti, ef því verður við komið, með útburði dómfellda og inn- setningu dómhafa eða á annan hátt því líkan, þröngva honum til að hlýðnast dómsákvæð- inu.“ Lögmaðurinn heldur því fram, að þegar útburður fer fram, þá sé það algert skilyrði samkvæmt tilvitnuðu ákvæði að dómhafi geti tekið við um- ráðum eigna þeirra, sem dóm- þolum sé gert að víkja af. í þessu máli hafi dómur Hæsta- réttar ekki svipt gerðarþola neinum umráðum eignarinnar og ekki fengið þau í hendur neinum öðrum en þeim sjálf- Washington-pistill eftir Margréti Þorvaldsdóttur Forsetakosningar verða hér í Bandaríkjunum að ári. Málefni sem þjóðina varðar eru rædd. Frambjóðendur eru krafðir um afstöðu sína til efnahagsmála, örygg>smála, málefna kvenna og minnihlutahópa og ber margt til. í könnun sem nýlega var gerð meðal kjósenda kom fram að mun færri konur en karlar voru sáttar við stjórn Reagans á efna- hagsmálum. Þessi niðurstaða kom róti á lið stjórnarinnar, og á þingi kvennaleiðtoga Republik- anaflokksins tjáði einn aðstoð- armanna Reagans þingheimi, að þessi afstaða kvenna, er hann nefndi „kynjabil", gæti orðið til þess að kæfa Republikanaflokk- inn í næstu kosningum. Konur í landinu eru 53 prósent þjóðarinnar. í kosningunum 1980 kusu fleiri konur en karlar svo Ijóst þykir að atkvæði þeirra geta ráðið úrslitum í næstu kosningum. Meðal baráttumála kvenna í þessari kosningabaráttu sem nú er hafin er jafnrétti í launamál- um, til starfa, menntunar, í tryggingar- og eftirlaunamálum og fl. Þær eru óánægðar með stefnu í efnahagsmálum sem þær telja ósanngjarna. Þær lýsa áhyggj- um sínum á stefnu í umhverf- ismálum, utanríkismálum og ekki síst á atvinnuleysinu. Einn- ig bera þær fyrir brjósti fjöl- mörg önnur menningarmál. Misrétti í launamálum hefur lengi verið hitamál, því hefur verið beitt þar sem því hefur verið við komið. Konur vinna einnig mikið störf sem falla und- ir svonefnda lægri launaflokka, því kemur samdráttur í atvinnu- lífinu oft illa niður á þeim. Skýrslur frá 1981 sýna að af 8,4 milljónum kvenna, sem hafa fyrir börnum og heimili að sjá, fá aðeins 35 prósent þeirra með- lög greidd frá feðrum barna sinna og aðeins 22 prósent fá þau greidd að fullu. Atvinnuleysi kemur því mjög illa niður á þess- um fjölskyldum þegar fyrirvinna missir atvinnu sína. Reagan og stjórn hans, sem vilja „ríkis- báknið burtu", hafa einnig minnkað opinbera aðstoð við þessa fjölskyldu. Þær finna sér- staklega fyrir erfiðleikum í sam- bandi við kostnað af heilbrigðis- þjónustu og menntun. Kvartanir hafa komið frá kon- um sem starfað hafa við sérhæfð störf sem karlar hafa litið á sem karlastörf eingöngu. Þær hafa orðið að taka niðurlægjandi at- hugasemdum frá samstarfs- mönnum sínum og hafa margar hverjar hrökklast úr starfi. Nú leita þær réttar síns í auknum mæli fyrir dómstólum. Eitt slíkt mál er fyrir dómstól- um í Kansas City. Konu, sem var fréttamaður við sjónvarpsstöð þar í borg, var sagt upp starfi á þeim grundvelli að hún væri of gömul, ekki nógu falleg og félli ekki nógu vel í geð karlakyns áhorfenda sjónvarpsstöðvarinn- ar. Var þessi niðurstaða byggð á könnun sem gerð var meðal sjón- varpsáhorfenda. Þetta mál hefur vakið feikimikla athygli m.a. fyrir það að um fjölmiðlamann er að ræða, stúlku 37 ára að aldri og vel í meðallagi falleg. Það að aldur (37) og skortur á fegurð skuli vera talin brott- rekstrarsök eru atriði sem veru- lega athygli vekja. I blaðaskrifum og umræðum, sem fylgt hafa í kjölfar þessara réttarhalda, kemur fram að þetta er ekki einangrað tilfelli, slíkt hefur oft komið fyrir áður. Stúlkan fer fram á 1 milljón dala í skaðabætur og endurráðningu í starfið. Þetta verður prófmál sem vel er fylgst með og munu áhrif þess ná langt út fyrir sjónvarps- skerminn, hver sem niðurstaða dómsins verður. Það er í raun um það að ræða, hvort skuli vera áhersluatriði í ráðningu kvenna til starfa, fagleg hæfni eða kyn- þokki. Þrátt fyrir margar yfirlýs- ingar frá Hvíta húsinu á áhuga stjórnvalda á réttindamálum kvenna og nauðsyn þess að brúa margumrætt „kynjabil", þá varð þeim heldur betur fótaskortur í „bilinu" og það rétt við eigin bæjardyr. Alþjóðasamband kvenna úr viðskiptalífinu hélt þing í Wash- ington í síðustu viku. Boðið var upp á skoðunarferð til Hvíta hússins. Þegar svo hópurinn kom þangað á tilteknum tíma, var þeim sagt að ferðinni hefði verið aflýst. Þar sem ekki hafði verið tilkynnt um breytingar voru talsmenn hópsins æfir af reiði. Madenwald, formaður banda- rísku samtakanna, sagði í viðtali að þetta væri niðurlægjandi meðhöndlun á meðlimum elstu samtaka vinnandi kvenna í land- inu og þeim erlendu gestum sem með hópnum voru. Ennfremur sagði hún að þetta atvik sýndi betur en nokkuð annað viðhorf stjórnarinnar til kvenna „slíkt hefði aldrei átt sér stað ef í hlut hefðu átt alþjóða karlaklúbbar eins og Rotary og Lions". Sú skýring var gefin að Reag- an hefði snögglega kallað til fundar í austursalnum. Hann er í þeim enda Hvíta hÚ3sins sem ferðamönnum er sýndur. Þar sem þessi samtök kvenna hafa verið mjög framarlega í gagnrýni á Reagan og stjórn hans á meðhöndlun og tregðu i málefnum kvenna og minni- hlutahópa, þá var málið orðið hápólitískt. Það varð tals- mönnum stjórnarinnar líka fljótt ljóst og bárust brátt afsak- anir frá æðstu stöðum. Reagan hringdi í Madenwald og sagðist taka persónulega alla ábyrgð á mistökunum, baðst fyrirgefn- ingar og fór fram á að tala til þingkvenna. „Fyrirgefning kemur þegar Reagan hefur samþykkt jafn- réttisfrumvarpið," sagði Mad- enwald í viðtali á eftir. Reagan mætti hress til fundar næsta morgun, hann mælti ljúflega til þingkvenna og talaði frá eigin brjósti. Gekk allt stórslysalaust þar til hann kom að gamanmál- um. Hann sagðist vilja að þær vissu að hann skildi stöðu kvenna. Hann kvaðst trúa því að ef ekki væri fyrir áhrif kvenna þá gengju karlar enn í lenda- klæðum með steinexi í hendi. Þessum ummælum tóku þing- konur með grafarþögn. Á eftir sagði Madenwald að Reagan virtist ekki skilja hvaða mál væri til umræðu. „Hann virtist alltaf vera tveim skrefum á eftir því sem var að gerast," bætti hún við. Skýringar á því má e.t.v. finna í orðum þinggests á þingi Republikanaflokksins fyrir nokkru er hún sagði, „þið verðið að skilja að hann (Reagan) er 72 ára gamall, hann tilheyrir ann- arri kynslóð." Hvort kona muni sitja í önd- vegi í Hvíta húsinu á næstu ára- tugum, draga allir aðspurðir í efa. Sú mynd sem dregin er fram af hæfni kvenna til rökréttrar hugsunar og ábyrgra athafna er stórlega skekkt í sjónvarpsþátt- um sem hér eru framleiddir. Konur sem koma fram í veiga- meiri hlutverkum eru milli tví- tugs og þrítugs, karlar eru 20—30 árum eldri. Þær eru þokkafullar með æskuljóma og eru látnar leggja allt sitt traust á hetjuna, karlmanninn. Hann er aftur á móti mjög sjálfsör- uggur með línur visku og forsjár í andliti svo og í orðum og gerð- um. Eldri konur en 30 ... + ! eru oftast látnar túlka jafnvægis- leysi, vera óútreiknanlegar. Áhrif sjónvarps eru mikil, og þegar kynslóðir hafa frá barn- æsku verið aldar upp við þessa brengluðu mynd af raunveru- leikanum, þá verður hún ekki af- máð á skömmum tíma. Því mun enn um sinn nokkur tími líða þar til bandarískar konur ná rétti sínum. Þar til sá tími kemur munu þær þurfa að búa við mis- rétti í stað jafnréttis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.