Morgunblaðið - 19.08.1983, Side 26

Morgunblaðið - 19.08.1983, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 t 1 Eiginkona mín og móöir, ELÍN GUDJÓNSDÓTTIR, Bústaöavegi 91, Reykjavík, i andaöist í Landspítalanum 17. ágúst sl. Albert Sigurösson, Guöjón Albertsson. t Sambýliskona mín og móöir okkar, INGA INGÓLFSDÓTTIR, Vesturbraut 6, Keflavík, lést 17. ágúst. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir hönd barna hennar, Guölaugur Jónatansson. t Eiginkona mín, móöir og fóstra, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Hvanneyrarbraut 23, Siglufiröi, veröur jarösungin frá Sigiufjaröarkirkju, laugardaginn 20. ágúst kl. 14. Hallur Garibaldason, Pétur G. Hallsson, Margrét Hallsdóttir, Magöalena S. Hallsdóttir, Helgi Hallsson, Jón Hallsson, Guöjón H. Hallsson, Jóhannes Jósefsson, Óskar Garibaldason, Magðalena B. Jóhannesdóttir. t Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, NIKULAI ELÍASSON, Bergi, Keflavík, verður jarösunginn frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn 20. ágúst kl. 1.30. Kristjana Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, KRISTJÁN KRISTÓFERSSON, frá Kirkjubóli, Vestmannaeyjum, lést 8. ágúst sl. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Þökkum innilega samúöarkveðjur. Þóra Valdimarsdóttir, Kristján Þór Valdimarsson, Valdimar Þ. Kristjánsson, Guórún Þorgeirsdóttir, Kristbjörg Kristjánsdóttir, Bergur Vilhjálmsson, Jón Kristjánsson, Ingibjörg Karlsdóttir, börn og barnabörn. t Útför fööur okkar, GUDMUNDAR GUÐMUNDSSONAR, frá Blómsturvöllum, Stokkseyri, fer fram frá Stokkseyrarkirkju, laugardaginn 20. ágúst kl. 14.00. Lilja Guömundsdóttir, Guömundur Helgi Guömundsson. t Hjartans þakkir til allra þeirra, er vottuöu okkur samúö og heiör- uöu minningu MAGNÚSAR PÉTURSSONAR, hljómlistarmanns. Sérstakar þakkir færum viö Félagi íslenskra hljómlistarmanna fyrir ómetanlega aöstoö. Guö varðveiti ykkur öll. Ragnheiöur Hannesdóttir, Rósa Þóra Magnúsdóttir, Hannes Magnússon, Elizabeth Cook, Elísabet Ragna Hannesdóttir. t Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug vegna and- láts og útfarar eiginkonu minnar, móður, tengdamóöur og ömmu, GUÐRÚNAR PÁLÍNU VILHJÁLMSDÓTTUR. Sigmar Björnsson, Guölaug Sigmarsdóttir, Tryggvi Jóhannsson, Höröur V. Sigmarsson, Sigurbjörg E. Guðmundsdóttir, Björn Sigmarsson, Vilhjálmur Jónsson og barnabörn. Minning: Kristján J. Sigur- jónsson skipstjóri Fæddur 5. aprfl 1923 Dáinn 11. ágúst 1983 Á regnvotum degi fyrir nokkru var ég á gangi í Austurstræti. Þá heyrði ég sagt að baki mér „Sæll frændi, það er mikið verið að hugsa núna.“ Ég þurfti ekki að líta við til að vita hver þarna var að ávarpa mig. Auðvitað hann Kiddi Sigurjóns, og þar sem ég stoppaði kom hann upp að hliðinni á mér, brosandi og hress eins og vana- lega, og það var sem birti mitt í rigningardrunganum þá stund er við tókum tal saman um landsins gagn og nauðsynjar. Ekki hvarfl- aði að mér er við kvöddumst, og ég sá hann ganga greitt eftir Austur- strætinu, að þar með hefðum við kvaðst í síðasta sinn í þessu lífi. Kristján Sigurjónsson var fæddur á Norðfirði hinn 5. apríl 1923, og þar ólst hann upp hjá for- eldrum sínum í stórum systkina- hópi, á fátæku heimili alþýðu- fólks. Eins og siður var þá eystra fór hann á sjóinn strax er hann hafði aldur til, og sjómennskan varð hans ævistarf. Hann fór í Sjómannaskólann, og eftir að hann útskrifaðist var hann stýri- maður og skipstjóri, fyrst á fiski- skipum, en síðar á hafrannsókn- arskipinu Árna Friðrikssyni, og um borð þar var hann er það kall kom er allir verða að hlýða. Kristján var öruggur skipstjóri og heppinn. T.d. var það eitt árið að hann tók þátt í þrem björgun- um á skipi sínu, og í einu þeirra tilfella var e.t.v. farið öllu grynnra en öruggt þætti samkvæmt dýpt- armæli, en mönnunum var bjarg- að. Það var ætíð ánægjulegt að hitta Kidda og spjalla við hann um það er hæst bar í þjóðfélaginu á hverjum tíma, því þótt hann væri ákveðinn í skoðunum og við ekki alltaf sammála var hláturinn ávallt skammt undan. Hann var jafnaðarmaður að lífsskoðun og lá ekki á liði sínu fyrir það stjórn- málaafl er hann taldi best geta tryggt kjör þeirra er minnst mega sín, og alltaf var hann tilbúinn í rökræður þætti honum á málstað jafnaðarstefnunnar hallað. Meðan hann var á fiskiskipum sigldi hann oft til Bretlands og batt við þá þjóð tryggðabönd, enda kynntist hann í einum þessara siglingatúra ungri konu, Babs, er varð hans lífsförunautur, og eign- uðust þau tvo syni, Ronald, er hef- ur verið með föður sínum á sjó, og Sigurjón Helga, sem stundar verslunarstörf. Ég sendi ástvinum hans mínar innilegustu samúðarkveðjur, og þótt ég viti að á slíkum stundum séu orð lítils megandi, veit ég að minningarnar um góðan dreng munu sefa sorgina, því ætíð verð- ur hans minnst er góðs manns er getið. Fari frændi minn í friði. Til hans er hlýtt hugsað. Garöar Sveinn Árnason Kristján Sigurjónsson fæddist í Neskaupstað 5. apríl 1923 og lést við skyldustörf sín um borð í rs. Árna Friðrikssyni hinn 11. ágúst 1983 sextugur að aldri. Foreldrar Kristjáns voru Sigurjón Ás- mundsson, verkamaður á Norð- firði og síðari kona hans, Helga Þorvaldsdóttir. Kristján var næst- elstur fjögurra alsystkina, auk þess átti hann fimm hálfsystkini er öll voru mun eldri. Er nú skammt stórra högga á milli í systkinahópnum, því að aðeins tveimur vikum áður en Kristján lést bar hann elstu systur sína, Þórunni, til grafar. Skömmu síðar hélt hann glaður og reifur með skip sitt í fyrsta rannsóknaleið- angurinn eftir sumarleyfi og grunaði þá engan að hann ætti svo skammt ólifað sem raun varð á. Kristján Sigurjónsson ólst upp í foreldrahúsum á bernskuárunum. Foreldrar hans bjuggu í svoköll- uðu Strandarhúsi þar sem nú heit- ir Strandgata 40 í Neskaupstað. Sá er þessar línur ritar ólst hins vegar upp í næsta húsi er kallað var Strönd. Mikill samgangur var milli heimila foreldra okkar Kristjáns, enda skyldleiki mikill þar sem faðir hans og móðir mín voru systkin. Við Kristján höfðum því þekkst í nærri því halfa öld. Hann er mér fyrst minnisstæður sem glaðvær og skemmtilegur „stóri frændi". Hann var átta ár- um eldri og fékk því að fara á sjóinn um það leyti sem undirrit- aður var að byrja í barnaskóla. En á þessum árum bárum við smá- strákarnir á Ströndinni meiri virðingu fyrir „sjóurum" en öðrum mönnum. Kristján lauk prófi frá Gagn- fræðaskólanum í Neskaupstað vorið 1939. Um það leyti hóf hann sjómennskuferil sinn. Fyrst hjá föður mínum á vélbátnum Auð- björgu að sumar- og haustlagi. Hann var til dæmis háseti á Auð- björgu 1940 og 1941. Fyrra árið við síldveiðar en hið síðara var gert út á þorskveiðar frá Vopnafirði. Haustið 1941 sótti hann vélstjóra- námskeið Fiskifélags íslands og fékk vélstjóraréttindi. Fyrstu vetrarvertíð sína réri Kristján svo með Ásmundi bróður mínum á Auðbjörgu veturinn 1942 frá Hornafirði. Þetta var óvenju erfið vertíð, því að þá ríktu miklar haf- áttir og þungur sjór við Horna- fjarðarós. Þeir skipverjar á Auð- björgu komust aðeins 48 róðra þessa vertíð, en fengu þó 350 tonn á þennan fimmtán rúmlesta bát. Eftir þessa eldskírn á Hornafirði hefur Kristján vafalaust þóst fær í flestan sjó og næstu árin er hann t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR JÓHÖNNU INGÓLFSDÓTTUR, Sólmundarhöfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Sjúkrahúss Akraness. Huldar Ágústsson, Lára Ágústsdóttir, Sigurlaug Ágústsdóttir, Arnór Ólafsson, barnabörn og Helga Aðalsteinsdóttir, Hafsteinn Sigurbjörnsson, Ólöf Magnúsdóttir, Ásmundur Pálsson, barnabarnabörn. ATHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- og minn- ingargreinar verða aö berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. ýmist háseti eða vélstjóri á ýms- um mjög þekktum bátum frá Norðfirði. Árin 1942 og 1943 var hann t.d. á Birninum NK 33, árið 1944 ræðst hann á Sævar NK 88, en skipstjóri á honum var Ás- mundur bróðir Kristjáns. Þá ræðst hann á Sleipni með Herbert Þórðarsyni og árið 1945 er hann orðinn háseti á Stellu. Þar næst er hann á Draupni NK 21 árið 1946, en þá um haustið fer hann í Stýri- mannaskólann í Reykjavík og út- skrifast þaðan vorið 1948 en var á sumrin á Goðaborg með Hauki Ólafssyni. Skömmu eftir að námi lauk í Sjómannaskólanum varð hann svo stýrimaður á Valþór frá Seyðisfirði en skipstjóri á Valþór var þá frændi hans, Sveinbjörn Sveinsson. Stundaðar voru síldveiðar á sumrin en þorskveiðar á veturna og þá siglt með aflann til Skot- lands. í einni slíkri söluferð urðu þeir Valþórsmenn fyrir því óhappi að aðalvélin í skipinu bilaði og urðu þeir því að bíða í einar tvær vikur í Aberdeen eftir að viðgerð lyki. Sú dvöl skipti sköpum fyrir Kristján því að þá hitti hann skoska stúlku, Bellu McDonald, í fyrsta skipti. Hún varð síðar eig- inkona Kristjáns og giftust þau 17. júní árið 1950. Á árunum 1950—1951 var hann stýrimaður hjá Sigursveini Þórðarsyni á Björgu frá Neskaupstað og Heimakletti frá Hafnarfirði, en árið eftir fluttust þau Kristján til Reykjavíkur. Næstu þrjú árin starfaði Kristján í Áburðarverk- smiðju ríkisins en hélt svo aftur á sjóinn að þessum þrem árum liðn- um. Þá reri hann nokkrar vertíðir í Vestmannaeyjum og einnig var hann á Stapafellinu frá ólafsvík. Þá fór hann oft með báta í sölu- ferðir til Bretlands og var þá jafn- an skipstjóri. Þótti honum takast þessar siglingar mjög vel, þótt oft skylli hurð nærri hælum þegar siglt var hlöðnum bátum á úfnu hafi. Á það var minnst hér að framan að Kristján hóf sjómannsferil sinn á Auðbjörgu í kringum 1940. Rúmum tuttugu árum síðar réðst hann enn til Ásmundar á Auð- björgu. Báturinn var þá við síldar- merkingar, en stundaði auk þess ýsúveiðar hér í Faxaflóa. Árið 1964 og 1965 er Kristján svo skip- stjóri á Freyju RE 97, sem einkum stundaði ýsuveiðar hér í Flóanum. Árið 1966 ræðst Kristján svo enn til frænda síns, Ásmundar Jak- obssonar, á rs. Hafþór (gamla Hafþór) og hófst þá óslitið starf hans hjá Hafrannsóknastofnun. Hann var stýrimaður á Hafþór uns Bjarni Sæmundsson var smíð- aður, en þá réðst hann 1. stýri- maður á hið nýja hafrannsókna- skip. Árið 1973 varð hann skip- stjóri á gamla Hafþór, en í árs- byrjun 1975 tók hann við skip- stjórn á rs. Árna Friðrikssyni og var skipstjóri þar uns yfir lauk hinn 11. ágúst. Kristján var tæplega meðal- maður á hæð. Hann var þéttvax- inn og vel að manni. Hann var hverjum manni reglusamari og mjög samviskusamur í starfi. Þó var sá ljóður á Kristjáni, að hon- um var tamara að gera kröfur til sjálfs sín en annarra. Hann var góður málamaður og tók virkan þátt í ýmsum félögum, t.d. þeim er tengdust ættjörð eiginkonunnar, enda var hann tíður gestur á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.