Morgunblaðið - 28.08.1983, Síða 23

Morgunblaðið - 28.08.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGUST 1983 23 Baldur Eiríksson í „kompu“ sinni. Hægra megin við hann trónar Káinn upp á vegg, en myndina hefur Baldur sjálfur málað. Fyrirliggjandi í birgðastöð EfNIS- SKF 280 oOO°oo° ^ °OOo Fiölmargir sverleikar ogpykktir. SINDRA AmSTALHF Borgartúni 31 sími 27222 MYNDIR OG TEXTI HG mannafélags Kaupfélagsins og var mikið kveðist á. Hér er til dæmis ein um gamlan samstarfsmann: Nú hefir hann lifað um sðimörg ár án þess neitt honum bagi, í óvígðri sambúð við unnustur þrjár, með ágætu samkomulagi. Hver og ein þeirra er þjónustufús og þáttur í önn hans og lukku: Hann sinnir um pípuna, situr með krús og sefur hjá vekjaraklukku. Erlingur Davíðsson kom upp um mig Ég orti mest ljóð um daginn og veginn, atburði líðandi stundar og hef alltaf verið lítið fyrir það að flíka þessu og notaði því dulnefni, þó flestir hafi líklega vitað hver maðurinn var. Það var Haukur Snorrason, sem fékk mig til að setja eitthvað af þessu í blöðin, en hann var þá ritstjóri Dags og síð- an Tímans. Að vísu sendi ég Páli Skúlasyni af og til vísur, sem hann birti í Speglinum. Ég notaði nafn- ið Dvergur í Degi, Andvari í Tím- anum og Balli í Speglinum. Það var svo Erlingur Davíðsson, rit- stjóri Dags, sem kom endanlega upp um mig. Hann var þá að skrifa eitthvað um mig í blaðið og gat þess þá hver valdur væri að þessum spéskap. Börnin mín fengu mig síðan til þess að gefa út ljóða- bókina Dvergmál árið 1981 og er það mesta i henni úr blöðum og tímaritum. Án hvatningar frá börnunum hefði bókin líklega aldrei komið út. „Skáldaði“ út leyfl til jeppakaupa Ég hafði nú aldrei neitt út úr kveðskapnum af veraldlegum gæðum utan einu sinni. Á þeim tíma þurfti leyfi til bílakaupa og voru margir um hituna. Ég var ætíð á eilífum þveitingi um bæinn og fram í sveitir til að aðstoða fólk og var því mikil þörf á jeppa. Þá var það að svokallaðir bændajepp- ar voru auglýstir og mönnum gert að senda inn umsókn vildu þeir fá leyfi til kaupanna. Ég sendi hinum háu ráðuneytisherrum í Reykjavík umsókn í ljóðum og beið lengi svars án árangurs. Þá heyrði ég í útvarpinu lesna upp tilkynningu þess efnis, að búið væri að úthluta öllum bændajeppunum og ekkert þýddi að sækja um í svipinn. Mér þótti hart að fá svar í gegn um útvarpið og sendi þá viðbót við umsóknina, einnig í ljóðum. Það hreif, ég fékk jeppann. Mála mínar myndir sjálfur Fyrir utan ættfræðigrúskið og kirkjubókalesturinn hef ég mjög gaman af bókum og á þó nokkur eintök. Ljóðum hef ég ákaflega gaman af og gömlum sögnum. Þá hef ég dundað við að mála, eigin- lega alveg frá því ég byrjaði hjá Kaupfélaginu. Ég sýndi einu sinni nokkrar myndir á samsýningu frí- stundamálara fyrir óralöngu og hef selt nokkuð af myndum, aðal- lega til vina og kunningja og allar þær myndir, sem hér eru inni hef ég málað sjálfur, það er ódýrara," sagði skáldið og málarinn Baldur Eiríksson, er skrafinu lauk í góðu yfirlæti yfir kaffibolla hjá Lauf- eyju konu hans. HG Umsókn um bifreiðarkaup Ég reit yður bréf eftir réttir í haust, og rétt hygg ég með það fari. En á ég að bíða endalaust eftir yðar heiðraða svari? Merki hins gjörhugla gáfnafars, í gamla daga þeir sögðu ef menn voru nokkuð seinir til svars og um sinn við spurningum þögðu. En mér finnst sú aðgætni óþarfleg hjá arftökum Njáls og Snorra, að vera að draga svarið við sig frá sumri og fram á þorra. Er ég sendi umsóknir auðmjúkar og prúðar, og hafði aldrei yðar dyr áður látið knúðar, hló í brjósti hugurinn og hugði að ég í þetta sinn skyldi ei ganga bónleiður til búðar. Enginn láir yður það þótt úr sé vöndu að ráða, ef þér fáið eitthvert blað frá ókunnugum snáða, sem virðist alveg ófeiminn og ákaflega hraðlyginn, og leirburðinn eys á bóga báða. Ekki gengst ég fyrir fé þótt finnist slíkt hjá hinum, og ég geng einn á yðar vé án aðstoðar frá vinum. Þér ætlið kannski að ég sé okurkarl og prakkare, en selji strax á svartamarkaðinum. Ég finn kannske enga náð hjá æðstu landsins ráðum, en eftir því sem út er sáð mun uppskeran hjá báðum. En — verði orð mín alveg smáð, eftir Nýbyggingarráð erfiljóðin yrkja mun ég bráðum. B. Aukinn vettuhmÖi með ömggu vörustreymi Reglubundið áætlunarflug Arnarflugs tryggir lágmarksflutningstíma á vörum til landsins. Þannig stuðlum við að minna birgðahaldi, lægri fjármagnskostnaði og auknum veltuhraða stórra sem smárra fyrirtækja. Tryggðu betri nýtingu á fjármagni þínu og sparaðu að auki dýrt geymsluhúsnæði með aðstoð Arnarflugs. Láttij okkur finna hagkvæmustu leiðina N)^ARNARFLUG fyrir þína vöru. ^ Lá9múli 7’s,mi 295" * A

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.