Morgunblaðið - 28.08.1983, Qupperneq 29
Hljóm-
plotur
Árni Johnsen
Hallbjörn í
kúrekaham
Stundum er sem villtur og
fjörugur foli ráði ferðinni í
kántrýlögum Hallbjarnar Hjart-
arsonar, í öðrum er rómantísk
undiralda, en fyrst og fremst eru
lög hans einlæg og söngvin, þau
hrífa hlustandann með sér. Það
hefur fækkað stórlega kúrekun-
um í tslandi, en fáir hafa þeir
verið í hinum bandariska sléttu-
stíl. Okkar kúrekar gerðu garð-
inn frægan með hestvagna í eft-
irdragi, mjólkurlögg, póst og
annað slíkt.
Það er skemmtilegt framtak
hjá Hallbirni að setja lög sin á
þrykk og flytja þau á látlausan,
en hressilegan hátt hins lagvissa
manns.
Flestir textarnir eru sögur úr
mannlífinu, fjalla um það að
hittast og kveðjast, leita eftir fé-
lagsskap í kærleik og ást. Höf-
undar textanna eru Rúnar Krist-
jánsson, Kristján Hjartarson,
Jón Sigurðsson, María Konráðs-
dóttir og Jóhann G. Jóhannsson,
sem á tvö lög og texta á plötunni.
Hljómlistin er íslenskuð kú-
rekatónlist. Hefur hinn rétta
blæ, en er með öðru sniði en hin
rótgróna kántrýtónlist Banda-
ríkjanna. Á sínum tíma var
enska orðið Beatles islenskað i
bítill. Eins má segja að Hall-
björn íslenski sléttusöngvana á
sinn hátt og satt best að segja
blæs hann úr ýmsum áttum,
meðal annars með ágætis jóðli.
Hallbjörn hefur góða liðs-
menn með sér á Kántrý 2, Vil-
hjálm Guðjónsson á gítar, Árna
Áskelsson á trommur og þús-
undþjalasmiðinn Sigurð Rúnar á
píanó, fiðlu, bassa, gitar, munn-
hörpu, harmoníku og áslátt-
arhljóðfæri. Þá er heill herskari
hljómlistarmanna sem leikur á
ýmis strengjahljóðfæri, góðar
bakraddir, og allt skapar þetta
skemmtilega og heimilislega
plötu.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983
^«01*
\egrar rósasýo'09ar
Sýnd *an í svn.n9— «£££ **°«**'’
Bnn.9^7^. .inQartnnar.Sín*enns>a
ank danskra g . ^ syn.nga'
Símar
1. Alhliðanámskeið
SÉRFRÆÐINGAR
LEIÐBEINA MEÐ:
• Snyrtingu
• Hárgreiðslu
• Fataval —
hreinlæti
• Framkomu
• Kurteisi
• Borðsiði —
gestaboð
• Göngu
• Hagsýni
• Ræðumennsku
12 sinnum — tvisvar í viku.
10 í hóp
Snyrtifræðingar: Brynhildur Þorsteinsdóttir.
Hárgreiðslumeistari: Erla Vilhjálmsdóttir.
2. Fyrir ungar konur á öllum aldri
8 sinnum — einu sinni í viku.
Framkoma — Hárgreiðsla — Snyrting —
Fataval — Borðsiðir. 10 í hóp.
3. Stutt snyrtinámskeið
3 sinnum — 3 klst.
Handsnyrting — Andlitshreinsun —
Dagsnyrting — Kvöldsnyrting. 6 í hóp.
4. Fyrir starfshópa —
saumaklúbba
6 sinnum — einu sinni í viku.
Snyrting — Framkoma — Hárgreiðsla
— Borösiðir. 10 í hóp.
5 Fyrir ungar stúlkur 14—16
ára (skólahópa)
8 sinnum — einu sinni í viku.
Framkoma — Hreinlæti — Fatnaður —
Snyrting — Borðsiðir — Ganga —
Hagsýni. 10 í hóp.
6. Fyrir herra á öllum aldri
7 sinnum — einu sinni í viku.
Hárgreiðsla — Hreinlæti — Fatnaöur
— Snyrting — Ræöumennska — Kurt-
eisi. 10 í hóp.
7. Modelnámskeið
15 sinnum — fyrir verðandi sýningar-
fólk. Dömur — Herra. Kurteisi — Fram-
koma — Snyrting — Fatnaöur —
Ganga — Hreinlæti. 8 i hóp.
Innritun hefst mánudag 29. ágúst í símum 36141
— 15118, kl. 2—6. Unnur Arngrímsdóttir