Morgunblaðið - 28.08.1983, Síða 40

Morgunblaðið - 28.08.1983, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983 t Faðir okkar, ÁSGRÍMUR ÞORGRÍMSSON, bóndi, Borg, Miklaholtshreppi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 25. ágúst. Bðrnin. t Útför konu minnar, UNNAR ÓLAFSDÓTTUR, sem lézt 18. ágúst sl. hefur fariö fram. Þakka auösýnda samúö og færi sérstakar þakklr til lækna og starfsfólks Landakotsspítala, Heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar, svo og nágranna minna fyrir ómetanlega aöstoö. Óli Magnús ísaksson. t Móöir okkar og tengdamóöir, SÓLVEIG BJARNADÓTTIR ANSNES, sem andaöist aöfaranótt 21. ágúst veröur jarösungin frá Dómkirkj- unni, þriöjudaginn 30. ágúst kl. 15. Guðrún Ansnes, Harrý Steinson, Bjarni H. Ansnes, Rut Guömundsdóttir. t Bróöir okkar, GUÐBRANDUR ÞORKELL SÆMUNDSSON, veitingaþjónn, er andaöist 23. ágúst veröur jarösunginn þriöjudaginn 30. ágúst kl. 1.30 frá Fossvogskirkju. Eva Sæmundsdóttir, Lóra Sæmundsdóttir, Guðrún Sæmundsdóttir. t Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, ÓLAFSTRYGGVASONAR, Brekkustíg 14, Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunnl, þriöjudaginn 30. ágúst kl. 10.30. Sigriður Sigurgeirsdóttir, Kristrún Ólafsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Kári Ólafsson, Margrét Jóhannsdóttir, Sigurgeir Ólafsson og barnabörn. t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, EDVARD FRÍMANNSSON, leiðsögumaður og fyrrv. kaupmaður, Hringbraut 46, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 29. ágúst kl. 13.30. Jón Gunnar Edvards, Linda Stefanía De L'Etoile, Birgir Frímann Edvards, Elín Edvards, Jens Sandholt, og barnabörnin Rúnar Þór, Atli Jarl og Ásta Lára. t Útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ÁSTU MARGRÉTAR GUÐLAUGSDÓTTUR, Miklubraut 42, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, miövikudaginn 31. ágúst nk. kl. 15.00. Björgvin Grímsson, Jóhann S. Björgvinsson, Klara Sjöfn Kristjánsdóttir, Guörún E. Björgvinsdóttir, Jón Böðvarsson, Guölaugur Björgvinsson, Þórunn Hafstein, og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall fööur okkar, tengdafööur og afa, EIRÍKS ORMSSONAR, rafvirkjameistara. Sigrún Eiríksdóttir, Sigurveig Eiríksdóttir, Kristinn Guöjónsson, Eyrún Eiríksdóttir, Karl Eiríksson, Ingibjörg Skúladóttir, Kristín Þorsteinsdóttir Minning: Andrés Andrésson framkvœmdastjóri Fæddur 1. nóvember 1928. Dáinn 16. ágúst 1983. Þegar vinur og starfsfélagi á besta aldri er kvaddur burt úr þessu lífi, finnst manni tilveran furðuleg og söknuður verður mik- ill einkum þegar samfylgdin hefur verið náin um margra ára skeið. Fyrstu kynni okkar Andrésar hófust árið 1955 þegar hann réðst til Rafvirkjadeildar Sameinaðra verktaka sem bókari og síðar sem framkvæmdastjóri. Hafa sam- skipti okkar verið all náin öll þessi ár, bæði í starfi og tómstundum. Meðal annars fórum við saman í laxveiðiferðir árum saman með vinum og kunningjum. Árið 1964 festum við Andrés kaup á jörðinni Foss í Skefilstaðahreppi ásamt tveim félögum öðrum, og höfum við verið með fiskiræktartilraunir þar í nokkur ár. Andrés lauk prófi frá Verslun- arskóla íslands árið 1947. Hann var mjög hæfur bókhaldari og leituðu margir til hans varðandi það. Rafvirkjadeildin var ekki eini starfsvettvangur Andrésar. Þegar Ákvæðisvinnunefnd rafvirkja var stofnuð árið 1965 var hann skipað- ur oddamaður í þeirri nefnd af opinberri stofnun, og falið þar framkvæmdastjórastarf vegna góðrar þekkingar á rafvirkjastörf- um. Einnig kenndi Andrés bók- færslu við Iðnskólann í Reykjavík um árabil. Andrés Andrésson var fæddur 1. nóvember 1928 í Stöðvarfirði. Foreldrar hans voru Andrés Karlsson, byggingarmeistari, sem dáinn er fyrir mörgum árum, og Vilfríður Þórunn Björnsdóttir, sem enn er á lífi háöldruð. Þau áttu auk Andrésar tvo syni, þá Pétur, sem er húsasmiður, og Hauk, sem vinnur í Áburðarverk- smiðju ríkisins. Þann 20. júlí 1952 kvæntist Andrés ágætri konu, Pálínu Björnsdóttur, og áttu þau tvö börn, Rósu Björgu og Andrés Þór. Rósa Björg er kvænt Hallgrími Ævari Hallgrímssyni og eiga þau tvo drengi. Andrés Þór býr enn í foreldrahúsum. Um leið og ég þakka samfylgd- ina sem við Andrés áttum, vil ég fyrir hönd félaganna í Rafvirkja- deildinni og fjölskyldu minnar senda þér, kæra Pálfna, og fjöl- skyldu þinni okkar innilegustu samúðarkveðj ur. Vilberg Guðmundsson. Þriðjudaginn 16. ágúst lést Andrés Andrésson framkvæmda- stjóri á Landspítalanum, aðeins 55 ára að aldri. Hann hafði um sjö mánaða skeið, þó með stuttum hléum, háð harða baráttu við sjúkdóminn, sem dró hann til dauða. Andrés fæddist á Stöðvarfirði 1. nóvember 1928, yngstur þriggja sona hjónanna Vilfríðar Bjarna- dóttur og Andrésar Karlssonar kaupmanns og póstafgreiðslu- manns þar. Eftirlifandi bræður hans eru Pétur og Haukur, báðir fjölskyldumenn, búsettir í Reykja- vík og Garðabæ. Þegar Andrés var tveggja ára gamall fluttist fjölskylda hans til Reykjavíkur og þar setti faðir hans á stofn trésmíðaverkstæði, sem hann rak síðan til dauðadags 3. nóvember 1959. Vilfríður, móðir Andrésar, lifir son sinn í hárri elli, svo og heimilisvinur þeirra hjóna, Katrín, sem fluttist með þeim frá Stöðvarfirði og tók sér- stöku ástfóstri við Andrés. Við Andrés vorum bekkjar- bræður í barnaskóla og urðum strax góðir félagar og síðar styrktust vináttuböndin, er við urðum nágrannar, er Túnin f Reykjavík byggðust. Þar bættust okkur góðir vinir, þeir Snorri og Rikki, og má segja að við fjórir höfum verið saman í öllum frí- stundum okkar á unglingsárunum. Þá tókst sú vinátta sem enst hefur til bessa dags. Á sumrin var farið í ferðalög, útilegur og veiðitúra. Á vetrum var gjarnan leitað til fjalla og far- ið á skíði. Oft var þá gist f skíða- skálanum „Hliðskjáif" í Selfjalli, þar sem við áttum félaga. Andrés lauk prófi frá Verslun- arskóla íslands 1947 og stundaði síðan verslunarstörf og bókhald í Reykjavík. Hann varð fram- kvæmdastjóri rafvirkjadeildar LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960 Lokað vegna jaröarfarar, ANDRÉSAR ANDRÉSSONAR, frá kl. 13.00, mánudaginn 29. ágúst. Segull hf. Skipaljós, Eyjagötu 7, Reykjavík. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÓHANNES 6. GUOMUNDSSON, viöskiptafræöingur, Melabraut 47, Seltjarnarnesi, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, þriöjudaginn 30. ágúst kl. 13.30. Þóra Guöjónsdóttir, Guömundur Jóhannesson, Helga Jósepsdóttir, Alexander Jóhannesson, Helga Hafsteinsdóttir, Anna B. Jóhannesdóttir, Steingrímur Ellingsen, Guölaug I. Jóhannesdóttir, Gary Hecker, og barnabörn. Sameinaðra verktaka 1954 (nú Rafvirkjadeildin hf.) og veitti for- stöðu skrifstofu ákvæðisvinnu- nefndar FLRR og FÍR frá upphafi til dauðadags. Nokkur siðustu árin var hann einnig stundakennari i bókfærslu við meistaraskóla Iðnskólans í Reykjavík. Utan síns daglega starfs hafði Andrés mikið yndi af veiðum og varð snemma góður laxveiðimað- ur. Fór hann viða um land til veiða. Fyrir um það bil 25 árum tók hann, ásamt Vilberg Guð- mundssyni rafvirkjameistara og fleiri mönnum, litla laxveiðiá á leigu. Þetta var Fossá í Skefils- staðahreppi á Skaga. Sex árum seinna keyptu þeir jörðina Foss og dvaldi Andrés þar á hverju sumri eftir það í fríum sínum ásamt fjöl- skyldu sinni. Hann tók ástfóstri við þennan stað og ekki síður við fólkið sem sveitina byggir. Að Fossi voru ættingjar og vinir ávallt velkomnir, þar var alltaf nóg húsrými og hjartahlýja og gestrisni húsráðenda einstök. Það var gaman að fara með Andrési um sveitina, er hann heimsótti bændur á hinum ýmsu bæjum. Þá var oft falast eftir veiðileyfi í heiðarvatni eða hestum til ferða, sem var alltaf auðsótt mál, því hvarvetna þótti hann au- fúsugestur. Eftirlifandi konu sinni, Pálínu Björnsdóttur, kvæntist hann 1952 og var hún gæfa hans og yndi. Hún hjúkraði honum í veikindum hans, enda mátti hann vart af henni sjá, og var hjá honum er yfir lauk. Börn þeirra Andrésar og Pálínu eru tvö, Rósa Björg og Andrés Þór. Rósa er gift Hallgrími Ævari Hallgrímssyni bifreiðarstjóra og eiga þau tvo syni, Andrés Pál og Hallgrím Val. En Andrés dvelur enn i foreldrahúsum. Heimili þeirra Andrésar og Pál- ínu hefur lengst af verið í Glað- heimum 16 hér í borg. Þar var gott að koma og við hjónin eigum margar góðar minningar um sam- veruna með þeim þar og eins á heimili okkar, einnig frá sameig- inlegum ferðalögum bæði hér heima og erlendis. Minningarnar um liðnar samverustundir lifa og þeirra er nú gott að minnast. Við sendum Pálínu, börnunum, aldraðri móður, bræðrum og ætt- ingjum öllum innilegar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Andrésar Andréssonar. Ragnar Vignir Útför Andrésar fer fram frá Fossvogskirkju nk. mánudag kl. 13.30. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.