Morgunblaðið - 28.08.1983, Page 41

Morgunblaðið - 28.08.1983, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983 41 Minning: Edvard Frímanns- son leiðsögumaður Fæddur 28. ágúst 1917 Dáinn 13. ágúst 1983 Góður vinur er genginn. Á morgun, mánudag kl. 13.30 verður Edvard Frímannsson jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Kvöldið áður en hann dó hringdi hann til okkar hjónanna og spjall- aði lengi við okkur bæði og var hinn hressasti, sagði okkur frá ferð sem hann átti að fara næsta dag sem leiðsögumaður erlends ferðahóps, en þann dag að Húsa- felli í Etorgarfirði féll hann niður og var látinn stuttu síðar í sjúkra- húsinu á Akranesi. Eldvard var fæddur í Borgarnesi þann 28. ágúst 1917, sonur sæmd- arhjónanna Margrétar Runólfs- dóttur frá Norðtungu í Borgarfirði og Frímanns Frímannssonar í Hafnarhúsinu, sem flestallir Reykvíkingar og fleiri þekktu og er nú nýlega látinn, svo stutt var milli þeirra feðga. Edvard var mikill laxveiðimað- ur og sérstaklega mikill heiðurs- maður í þeirri íþrótt, aðstoðaði og kenndi mörgum byrjandanum og þar á meðal vorum við hjónin, enda áttum við margar góðar stundir saman við fallegar lax- veiðiár í Borgarfirðinum. Á unglingsárum dvaldi hann á sumrin hjá afa sínum í Norðtungu við hina góðu laxveiðiá Þverá, og síðar sem leiðsögumaður Englend- inga við laxveiðar í ánni og er mér minnisstætt eitt sinn er við vorum við veiðar í Norðurá að Englend- ingurinn captain Turner og kona hans heimsóttu Edvard í veiði- húsið, en hann hafði verið við veiðar með Edvard sem leiðsögu- mann við Þverá að mig minnir 25 árum áður og urðu miklir fagnað- arfundir. Edvard lauk prófi frá Verzlun- arskóla íslands árið 1936, fór síð- an til Bandaríkjanna og dvaldi þar í nokkur ár, fyrst sem starfsmað- ur á Heimssýningunni í New York og síðar hjá G. Helgason & Melsted í New York. Eftir dvölina í Bandaríkjunum fór Edvard til Tékkóslóvakíu, dvaldi þar nokk- urn tíma við leit að viðskiptasam- böndum. Að lokinni dvöl þar sneri Edvard heim til fslands, setti með stuttu millibili á stofn þrjár tísku- verslanir við Laugaveginn ásamt konu sinni, en síðustu árin starf- aði hann sem leiðsögumaður er- lendra ferðamanna og í þeim ferð- um eignaðist hann marga góða erlenda kunningja, sem héldu sambandi við hann. Edvard kvæntist Ástu Láru Jónsdóttur ólafssonar, banka- stjóra Útvegsbankans, hinni glæsilegustu og ágætustu konu og eignuðust þau þrjú börn, Jón Gunnar, sem kvæntur er Lindu Stefáníu De L’Etoile, Birgi Frí- mann, sem var giftur Nönnu Eg- ilson og Elínu Láru, sem er gift Jens Sandholt og eru barnabörnin nú þrjú, en þau Ásta Lára slitu samvistum fyrir nokkrum árum. Mörg áhugamál átti Edvard, hann var meðlimur í Lions- -klúbbnum Ægi og Frímúrara- reglunni, safnaði frímerkjum af miklum áhuga og tók mikið af ljósmyndum á ferðalögum sínum. Sem leiðsögumaður var hann sér- staklega hjálpfús eins og við lax- veiðarnar. Heima hjá okkur verð- ur hans saknað á hverri hátíð svo og heimsókna hans og símtala með lýsingum af ferðum hans. Að lokum vottum við hjónin börnum hans, barnabömum og öðrum ættingjum samúð okkar. Eggert Kristinsson Ferðaþjónustan á íslandi hefur misst mikilhæfan mann. Leið- sögumenn hafa misst ágætan fé- laga og samstarfsmann. Edvard Frímannsson stundaði leiðsögustörf alfarið síðastliðin 12 ár, fyrst og fremst fyrir erlenda ferðamenn á fslandi, en einnig var hann fararstjóri með íslendingum erlendis. Hann hafði snemma kynnst því að fylgja erlendum ferðamönnum, því að á skólaárum sínum var hann fylgarmaður enskra lax- veiðimanna við Þverá í Borgar- firði, en móðurafi hans var bóndi í Norðtungu, sem er mikil laxveiði- jörð. Edvard stundaði nám í Verslun- arskóla fslands, var við fram- haldsnám i verslunarfræðum í Englandi og einnig í Tékkóslóv- akíu. Hann dvaldi langdvölum við viðskiptastörf í New York og sneri sér að verslun í Reykjavík er heim kom. Þegar hann hóf leiðsögustarfið, fann hann lífsstarf, sem átti afar vel við hann. Hann hafði ómælda ánægju af að miðla farþegum sín- um af þekkingu sinni um land og þjóð og hann sýndi þeim einstaka kurteisi og umhyggju. Hann var mjög metnaðarfullur leiðsögu- maður, sem lagði sig í líma við að hafa allar upplýsingar sem ná- kvæmastar og var óþreytandi að sækja hvers konar fræðslunám- skeið og fyrirlestra, sem að gagni mættu koma í leiðsögustarfinu. Einnig átti hann mikinn bókakost um fsland. Edvard var mikill tungumálamaður, talaði sérlega góða ensku, en einnig dönsku og þýsku. Leiðsögumenn búa yfirleitt við lítið atvinnuöryggi, en vinsældir Edvards tryggðu honum vinnu hvern dag um ferðamannatímann. Hann var mjög kappsamur og af- kastamikill leiðsögumaður. Er- lendir farþegar hans gegnum árin skipta tugum þúsunda, t.d. var hann á sl. ári leiðsögumaður 6.500 farþega. f viðtali við Félagsblað leiðsögumanna á sl. vetri sagði Edvard þetta um ieiðsögustarfið: „Maður verður að hafa áhuga á fólki og starfinu til að geta sinnt því á réttan máta, þannig að ferð- in verði áhugaverð fyrir farþeg- ana. Það, sem er skemmtilegast við starfið er, að maður kynnist indælu fólki, sem kann að meta það, sem maður er að fræða það um, það fær ást á íslandi og kem- ur hingað jafnvel ár eftir ár.“ Hann vissi, að ferðamaður, sem snýr ánægður heim úr íslandsferð, er besta landkynningin og því slakaði hann aldrei á kröfunni til sjálfs sín um að gera sitt besta í hverri ferð. Farþegar hans, sem voru af ýmsu þjóðerni, voru mjög ánægðir með hann og sýndu honum þakk- læti sitt á margan hátt, m.a. fékk hann fjölda bréfa frá farþegum sínum. Leiðsögustarfið er ung atvinnu- grein og Edvard skildi mikilvægi þess, að leiðsögumenn byndust samtökum um aukna starfs- menntun, aukinn þátt í ferðaþjón- ustunni og bætt kjör. Hann var því einn af stofnfélögum Félags leiðsögumanna 1972 og í trúnað- armannaráði þess um árabil. Edvard Frímannsson veiktist við vinnu sína á ferð um Borgar- fjörð laugardaginn 13. ágúst og lést að kvöldi sama dags. Við í Félagi leiðsögumanna geymum minninguna um góðan dreng og sendum bðrnum hans og fjölskyldum þeirra einlægar sam- úðarkveðjur. Júlía Sveinbjarnardóttir. Eðvarð Frímannsson var maður vel á miðjum aldri er hann hóf störf við leiðsögn erlendra ferða- manna á íslandi. En skemmst er frá því að segja að hann var einn afkastamesti starfsmaður þessar- ar ungu atvinnugreinar hérlendis, í seinni tíð að minnsta kosti. Sá sem þessi fáu kveðjuorð ritar átti þess kost að starfa í nálægð Eð- varðs um all langt skeið og þykist þess umkominn að lýsa þeirri skoðun að einn mætasti fulltrúi ís- lenskra leiðsögumanna sé nú genginn með honum. Eðvarð stundaði vandasamt starf af mikilli alúð og nákvæmni og setti sig ekki úr færi um að auka við þekkingu sína, þannig að til gagns mætti verða í starfi. Hann var veitull farþegum sínum í bestu merkingu þess orðs. Á tímum ofurtrúar á þýðingu svokallaðrar fjölmiðlunar og aug- lýsingaskrums, yfirsést á stundum gildi starfs þess sem unnið er á hljóðlátari hátt. Eðvarð Frí- mannsson vann gott starf að land- kynningu, án þess að hávaði fyigdi. Honum eru þakkaðar góðar samverustundir og samstarf og óskað góðrar ferðar. Kristján Jónsson, Kynnisferðum. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf ISS.HELGASONHF ISTEINSMIÐJA ■ SKBvWUVEGI 48 SWl 7667? Opið til kl. 10 virka daga Útfararkransar og kistuskreytingar með stuttum fyrirvara. Allar skreytingar unnar af dönskum skreyt- ingameistara. Flóra, Hafnarstræti 16, sími 24025. Húseigendur Viö önnumst þakvíöhald — þéttingar — viögeröir — Vatnsþéttingu steinsteypu. — Lagningu slitlaga á gólf. — Húsaklæðningar. S. Sigurösson hf. Hafnarfiröi, sími 50538, kvöld- og helgarsími 54832. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og stuöning viö andlát og útför KRISTJÁNS J. SIGURJÓNSSONAR, •kipatjóra, Hringbraut 48, Raykjavík. Sórstakar þakkir til Hafrannsóknastofnunarinnar, Breska sendi- ráösins og áhafnarinnar á rs. Árna Friörikssyni fyrir veitta aöstoö. Balla (Baba) Sigurjónsson, Ronald Michael Kristjánsson, Sigurjón Helgi Kristjánsson, Ellan Mjöll Ronaldsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar, NIKULÁSAR ODDGEIRSSONAR, Háaleitisbraut 32. Börnin. t Innilegar þakkir færum viö öllum sem auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, bróöur, afa og langafa, GUDMUNDAR GUDMUNDSSONAR, frá Blómsturvöllum, Stokkseyri. Lilja Guömundsdóttir, Guömundur Helgi Guömundsson, Sigríöur Sveinsdóttir, Ingibjörg Guömundadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför KARLS HJÁLMARSSONAR, Hringbraut 43. Frióbjörg Davíösdóttir, börn og tangdabörn. t Innilegar þakkir færi óg öllum þeim sem sýndu mór og börnum okkar htýhug viö andlát og jaröarför eiginmanns míns og fööur, VIGGÓS SVEINSSONAR, pípulagningameistara. Sérstakar þakkir til Fólags pipulagningameistara. Margrét Simonardóttir og börn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdafööur og afa, NIKOLAI ELÍASSONAR, Bergi, Keflavík. Kristjana Jónsdóttir, Axel Nikolaison, Áaa Sigurjónsdóttir, Elías Nikolaison, bórunn Torfadóttir, Jón Nikolaison, Erla Delberts, Kristín Nikolaidóttir, Ólafur H. Kjartansson, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.