Morgunblaðið - 28.08.1983, Page 45

Morgunblaðið - 28.08.1983, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983 45 Sfðbúin afmæliskveðja: Ragnar Kjartans- son myndhöggvari Ragnar Kjartansson mynd- höggvari varð sextugur þann 17. ágúst sl. sem kunnugt er orðið af afmælisgreinum, sem birst hafa um hann í blöðum. Mig langar þó að bæta þar örlitlu við um þann kapítula lífs hans, sem snúið hefur að Myndlistaskólanum í Reykja- vík. Ragnar Kjartansson kom snemma við sögu Myndlistaskól- ans, hann gerðist nemandi fljót- lega eftir stofnun hans, síðar kennari og skólastjóri. Og er mér stórlega til efs að skólinn væri til í dag hefði hans ekki notið við, hann kenndi í höggmyndadeild, teiknideildum og barnadeildum. Á þeim árum voru brennsluofnar ekki komnir í barna- og ungl- ingaskóla landsins og mun Ragnar hafa verið fyrstur hérlendis til að kenna stórum hópi barna leirmót- un, þá gerðu börn undir hans handleiðslu mósaikmyndir í stofn- anir í Reykjavík. Ragnar hefur reynst dugandi kennari, lifandi og litríkur per- sónuleiki, honum tekst að hrífa nemendur sína með sér svo þeir telja ekki eftir sér að vinna, hann er áhugavekjandi og skemmtileg- ur, segir meiningu sína á grein- argóðan og kjarnyrtan hátt, hann sér möguleikana í unga fólkinu, sem vill beita sér til árangurs, hann talar af lotningu um þá sem eru ungir og óþreyttir og honum lætur einkar vel að umgangast sér yngra fólk, hann er ungur í hugs- un og fullur af viljaþreki og krafti. Ragnar hefur setið í stjórn Myndlistaskólans í Reykjavík frá ómunatíð, lengi vel sem stjórnar- formaður. Síðastliðin 10 ár hef ég verið með honum í stjórninni og þó langt sé frá að við höfum haft sömu skoðanir á hlutunum þá hef- ur okkur lynt vel. Alltaf hefur ver- ið daufara á stjórnar- og kennara- fundum þegar hann hefur ekki mætt, hann er skemmtilegur í samkvæmi, talar af innlifun, bros- ir með öllu andlitinu og verður myndrænni í útliti eftir því, sem árunum fjölgar. Kæri vinur, ég óska þér til ham- ingju og góðs gengis í framtíðinni. Katrín Briem. meginþorra þjóóarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80 Þakka innilega vináttu og hlýhug á 70 ára afmœli mínu. Ragnheiður Þórðardóttir, Vesturgötu 41, Akranesi. Alúðarþakkir og kveðjurfæri ég öllum þeim fjölmörgu er heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaósk- um á sjötugsafmœli mínu, þann 13. ágúst sl. Guð blessi ykkur öll. Unnur Halldórsdóttir, Gröf. Þessi bátur er til sölu Trébátur, 5,3 tonn. Petter díselvél. 3 rafm. rúllur, dýpt- armælir, talstöð o.fl. Má greiöast að hluta meö fast- eignatryggðu skuldabréfi. Uppl. í síma 29555 og síma 76253. Kaiser eru vestur-þýsk matar- og kaffistell úr úrvals postulíni. Heimsþekkt gæöavara. Nú er ný sending komin. Hagstætt verö. Alhvítt stell (White Lady. sjá mynd). Fæst einnig meö gylltri rönd (Nizza). Eigum jafnan gott úrval af margskonar gjaf^örum úrpostulíni. A

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.