Morgunblaðið - 31.08.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983
3
Eru
þeir að
fá 'ann
Strætisvagnar Reykjavíkur:
leiðum á morgun
ÞAR TIL endurskipulagningu
leiðakerfis SVR, sem nú er unnið
að, er lokið, er óhjákvæmilegt að
sinna til bráðabirgða þörfum þeirra
hverfa borgarinnar, sem nú eru að
byggjast, en það er annars vegar
Eiðsgrandabyggðin og hins vegar
Ártúnshöfði, Artúnsholt og iðnað-
arsvæðin sunnan Vesturlandsveg-
ar, segir í frétt frá SVR.
Um næstu mánaðamót verður
því hafinn akstur á nýrri leið, nr.
16, sem hlotið hefur nafnið Lækj-
artorg-Eiðsgrandi og ekið verður
á 30 mín. fresti mánudaga til
föstudaga kl. 07 til 19. Hinni nýju
leið er fyrst og fremst ætlað að
tengja hina nýju byggð við Eiðs-
granda við miðborgina, en einnig
að leysa að nokkru vanda þeirra
skólabarna, sem skólasókn eiga í
Jón Böðvarsson
byggingarstjóri
flugstöðvarinnar
JÓN Böðvarsson hefur verið til-
nefndur byggingarstjóri vegna
flugstöðvarbyggingarinnar á Kefla-
víkurflugvelli. í stað hans hefur
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri, verið tilnefndur í byggingar-
nefnd.
Byggingarnefnd skipa nú,
Sveinn Haukur Gunnlaugsson,
formaður, en hann tók sæti Helga
Ágústssonar, Ásgeir Einarsson,
skrifstofustjóri, Leifur Magnús-
son, formaður Flugráðs, Pétur
Guðmundsson, flugvallarstjóri og
Kjartan Gunnarsson. Ráðunautur
nefndarinnar er Guðmundur
Eiríksson.
f gæzlu vegna
kæru um nauðgun
LIÐLEGA þrítugur maður var í gær
úrskurðaður í gæzluvarðhald til 21.
september. Maðurinn var kærður
fyrir nauðgun á sunnudag og rann-
sakar Rannsóknarlögregla ríkisins
málið. Honum er gefið að sök að
hafa ráðist inn á heimili 35 ára gam-
allar konu og neytt aflsmunar til
þess að koma fram vilja sínum.
Maðurinn fer væntanlega í af-
plánun þegar gæzluvarðhalds-
úrskurðurinn rennur út. Honum
hefur verið birtur 6 mánaða fang-
elsisdómur fyrir fjársvik.
Mikill afli í Kjósinni.
Karl Björnsson, veiðivörður
við Laxá í Kjós, sagði í samtali
við Mbl. í gær, að rúmlega 1750
laxar væru komnir á land úr
Laxá það sem af er sumri, en allt
síðasta tímabil veiddust þar að-
eins 1150 fiskar.
„Veiðin hefur gengið vel að
undanförnu og enn er talsvert að
ganga af laxi. Eg var við Lax-
fossinn á sunnudaginn og sá þar
silfurbjarta laxa stökkva og
horfði á menn draga lúsuga
fiska,“ sagði Karl. Hann gat þess
að áin hefði skolast í rigningun-
um um helgina, en væri nú orðin
góð á ný. Veitt er á tíu stangir í
Laxá og veiðitímanum lýkur 9.
september. Stærsti lax sumars-
ins var 20 pundari, en nokkrir
17—18 punda laxar hafa einnig
náðst. Meðalþyngdin er betri en í
fyrra, Karl taldi hana líklega
vera um 7 pund.
Miðfjarðará enn dauf.
Veiðinni í Miðfjarðará lýkur í
dag og hefur veiðin verið afar
treg í allt sumar. Þar voru í gær
komnir um 870 laxar á land, þeir
stærstu 17 pund. Aðeins 3 veidd-
ust í gærmorgun og að sögn við-
mælanda í veiðihúsinu að Laxa-
hvammi, væri alvanalegt að það
kæmu 1—9 laxar á land á dag, en
veitt hefur verið lengst af með 10
stöngum. Miðfjarðará gruggað-
ist í dembunni um helgina, en
var orðin falleg og veiðileg á ný í
gær.
Haga- og Melaskóla og um
lengstan veg eiga að sækja.
í öðru lagi er ætlað að koma á
sérstökum ferðum milli Breið-
holtshverfa annars vegar og Ár-
bæjar- og Ártúnshverfa hins
vegar snemma á morgnana á
virkum dögum, bæði til að auð-
velda farþegum úr Breiðholts-
hverfum að komast til vinnu í
iðnaðarhverfin á Ártúnshöfða
svo og til að aka skólafólki úr
Árbæjarhverfi í Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti, en hingað til
hafa þessir farþegar þurft að
skipta um vagna á Miklubraut
við erfiðar aðstæður.
Báðar þessar leiðir verða fyrst
um sinn auglýstar til reynslu
fram til áramóta, og mun sér-
prentaður viðbætir við leiðabók
SVR verða afhentur farþegum á
sölustöðvum SVR, þar sem allar
upplýsingar um akstursleiðir og
brottfarartíma koma fram.
Þá verður frá sama tíma gerð
sú breyting á leið 14, að ekið
verður í öllum ferðum um Jað-
arsel í Seljahverfi, þ.e. á 30 mín.
fresti, en akstur um Hólmasel og
Hjallasel að Flúðaseli, sem
hingað til hefur verið á 60 mín.
fresti, fellur niður. Leið 11 mun
hins vegar aka þessa leið óbreytt
eins og áður.
Framangreindar breytingar
taka gildi á morgun 1. september
1983.
Kröfur í Magasín
6—8 milljónir kr.
TALIÐ er að kröfur í þrotabú vöru-
hússins Magasíns sf., eign feðganna
Magnúsar K. Jónssonar og Ástþórs
Magnússonar, nemi um 6 til 8 millj-
ónum króna. Auglýsing um kröfur í
búið hefur enn ekki birst í Lögbirt-
ingi en í gær var boðað til fundar hjá
borgarfógeta með þeim, sem telja
sig eiga kröfur í búið.
Þar var meðal annars rætt til-
boð sem gert hefur verið í verzlun-
ina, en kröfuhafar höfnuðu tilboði
sem fyrir lá. Góðar líkur eru tald-
ar á, að náist upp í kröfur.
Kínverskur ráð-
herra í heimsókn
YAO GUANG, fyrsti varautan-
ríkisráðherra Kína, verður f opin-
berri heimsókn á íslandi frá 31.
ágúst til 2. september n.k. Hann
heimsækir einnig Danmörku,
Finnland, Noreg og Svíþjóð.
Á meðfylgjandi myndum má sjá Stórafoss í /Eðarfossunum í Laxá í
Aðaldal, fyrir og eftir hrunið á dögunum. Á myndinni að neðan er fossinn
eftir hrunið og sést munurinn er litið er á klettinn fast við fossinn til
hægri. Hann hefur lækkað talsvert frá því sem áður var og það brýtur á
tveimur stórum klettum í flaumnum fyrir neðan hann. Þarna féll 1—2
metra breið ræma úr klettinum á 5—10 metra löngum kafla. Reynslan
verður að skera úr um hvort fossinn er úr sögunni sem veiðistaður, en
þarna hefur einmitt lengi verið einn gjöfulasti veiðistaður árinnar, Foss-
hylurinn. Daginn áður en kletturinn hrundi var fólk þarna að veiðum.
Veiddust þá fimm laiar í hylnum og mildi að hann hrundi ekki á meðan
fólkið var á ferðinni ofan á hamrinum. Eldri myndina tók Jón Jóhannes-
son, en þá nýrri fréttaritari Mbl. á Húsavfk, Sigurður P. Björnsson.
IÐASTI DAGIIR
Sumarútsölu okkar er í dag
Nú er því allra síöasta tækifæriö til að eignast gæöafatnaö á
hlægilega lágu verði
%KARNABÆR
Ko*11'0.* rtöO,lu
gb** sío-
V9
LAUGAVEGI 66 — GLÆSIBÆ
— AUSTURSTRÆTI 22
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI — 45800
GARBO — BONANZA — BONAPARTE
Byrja akstur á
tveimur nýjum