Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 15 Gísli Sigurbjörnsson „Fiskurinn er víst eitthvaö á undanhaldi. Flestir þorskarnir eru nú orðiÖ á landi, en þeir sem í sjónum eru, eru orðnir svo litlir og hor- aðir að varla tekur því að veiða þá. En við kunnum ráð við því flestu, fáum bara fleiri skip.“ það eru smámunir. Þetta gengur allt eftir áætlun. Nú er margt farið að dragast saman, örlítið, það er bölvað tíð- arfarið, stjórnleysi segja reyndar sumir, alltaf rigning. Það rignir og rignir og heyfengur verður lít- ill, en við björgum okkur með súrheyjum. Að vísu eru fjósin á Suðurlandi okkur erfið fyrir súr- heyið, þeir eru snjallari fyrir norðan. Hrossin og kindurnar eru nokkuð mörg, sumir segja alltof mörg, en einn sérfræðingurinn segir, að gott sé fyrir ræktun að hafa mikið af hrossum. Þetta skilja að vísu ekki allir. Annað skilja heldur ekki allir, þetta með hreindýrin. Umsjá þeirra og hirð- ing heyrir víst undir menntamála- ráðuneytið, einnig gæsanna. Hreindýrin þurfa sitt og fóru því í heimsókn til Neskaupstaðar, þeg- ar lítið var um beit í högum þeirra. Þetta eru allt smámunir. Fiskurinn er víst eitthvað á undanhaldi. Flestir þorskarnir eru nú orðið á landi, en þeir sem í sjónum eru, eru orðnir svo litlir og horaðir, að varla tekur því að veiða þá. En við kunnum ráð við flestu, fáum bara fleiri skip. Það er alveg eins með bankana, eftir því sem minna verður um peninga, þ.e. erfiðara að fá lán, þá fjölgar bönkum og sparisjóðum, útibúum þeirra. Atvinnuleysið verður að hverfa. Það er ágætt ráð að hafa of margt fólk á vinnustað, en slæmt að því leyti, að það kostar mikla peninga. En við höfum ráð á því, fáum olíu- peninga, það er nóg af þeim. Vext- ir eru að vísu einhverjir, en við kunnum ráð við því, borgum vext- ina fyrst eftir nokkur ár. Hvernig það verður svo gert — engar áhyggjur, þetta leysist allt með seinni skipunum. Við kjósum þau á alþingi, en hleypum þeim ekki strax að, þau myndu gera þetta allt alveg vit- laust — lengi getur vont versnað. „En þegar þeim öllum verður sleppt á alþing, Guð hjálpi okkur fyrst þá,“ sagði maðurinn og fór með ferjunni. Nútíðin er dagurinn í dag. Framtíð Hver verður hún? Við þessu er ekkert svar, nema Sturlungaöld- inni linni, nema íslendingar átti sig og skilji, að þeir eru ekki einir í heiminum. Við höldum svo mörg, að Guð tali eingöngu íslensku. En að öllu gamni slepptu, þá verður hér reynt að gera grein fyrir draumnum um framtíðina. Þann draum dreymir marga, við erum ekki alveg vonlaus þjóð, okkur dreymir mörg um nýja og betri daga. „Þessi símaskrá er tveggja ára gömul, áttu ekki nýja símaskrá?" „Jú, vitanlega-, hérna er viðbót- arskráin í ár, við gefum aðalsíma- skrána aðeins út á þriggja ára fresti, en viðbót með nýjum og breyttum númerum kemur út ár- lega.“ „Hvers vegna?“ „Vegna þess að nú eru komnir nýir menn og nýir tímar, og við erum farin að spara.“ „Hvað er þetta, kemur enginn strætisvagn?" „Jú, en hann er hættur að koma á 10 og 15 mín- útna fresti, nú koma þrír á klukkutíma í stað fjögurra og sex áður. Þetta var endurskipulagt, þegar endurreisnin hófst, árið sem allt var komið á heljarþröm og skynsemin varð pólitíkinni yfir- sterkari." „Hvaða hús er þarna?“ „Þetta var áður einn af ótal bönkum. Mörgum var lokað, þeir urðu að vísu ekki gjaldþrota, en þeir voru sameinaðir, og síðan var farið að færa þetta allt saman. Fleiri þús- und fermetra gólfpláss sparaðist, vélar, áhöld og húsgögn, allt sett á uppboð, sem stóð í marga daga, til sælla minninga. Þá gerðu margir góð kaup. Sparnaðurinn í öllum rekstrinum var stórkostlegur." „En hvað varð um allt fólkið, sem missti atvinnu sína?“ „Þetta var nú ekki eins slæmt og búast mátti við. Endurreisnin þurfti margt starfsfólk, nýjar starfsgreinar í iðnaði, t.d. lyfjagerð, söl, þang og alls konar lyfjajurtir. Lyfjagerðin í sambandi við sláturhúsin er geysimikil atvinnugrein. Ölkeldu- vatnið er selt álíka erlendis og Coca-Cola, einnig innanlands. Út- flutníngur á vatni frá Sauðárkróki og allar fiskræktunarstöðvarnar þurfa líka sitt. Framtakið þeirra fyrir austan fjall, draumur Jör- undar Brynjólfssonar og ýmissa samtíðarmanna hans er orðinn að veruleika. „Síbería", allar mógraf- irnar milli Eyrarbakka og Kaldað- arness, eru fullar af eldifiski, heitt vatn er notað frá Selfossi og þar úr grennd. Stóru verksmiðjurnar, sem Egil Thorarensen, Jón Loftsson og aðra stórhuga framkvæmdamenn dreymdi um í Þorlákshöfn, eru orðnar að veruleika. Nú er bannað með lögum að flytja úr landi vikur eða önnur jarðefni. Einangrunar- efnaverksmiðjan í Þorlákshöfn hóf framleiðslu á hundrað þúsund hellum til einangrunar húsa í Evr- ópu. í einni borg vantaði einangr- unarhellur í yfir 400.000 íbúðir. Síðan sandarnir voru ræktaðir í stórum stíl, hafa breytingarnar orðið stórkostlegar. Klemenz Kristjánsson hóf áður þessa rækt- un, hann var 100 árum á undan sinni samtíð, líkt og þeir menn, sem áður voru nefndir. Fram- leiðsla og útflutningur á heyköggl- um frá verksmiðjunni á Suður- landi er mikil atvinnugrein, einnig þaratakan víðs vegar við Suður- ströndina. Hveragerði er heilsulindabær, blómabær og garðyrkjubær. Að lokum kom að því, að þar tóku við stjórn konur og karlar, sem vissu, hvað þurfti að gera. í áratugi hafði ekki tekist að vekja menn tii athafna, hugmyndirnar voru ekki rétt tímasettar, en nú er farið af selja möpnum í stórum mæli, jafnt innlendum sem erlendum, það dýrmætasta sem til er, heils- una. Sú saga verður ekki rakin hér. Það er hægt að draga úr, en framfarir á sviði vísinda verður aldrei hægt að hindra til lengdar. Olíuhreinsunarstöðin er orðin að veruleika. Þorlákshöfn er olíu- höfn og var olíuhreinsunarstöðin reist þar í nágrenninu. Olíuleiðsl- an er undir brúnni yfir Ölfusá og liggur þaðan til Selfoss, þar sem er dreifingarstöð. Frá olíuhreins- unarstöðinni fæst mikið magn af asfalti, sem notað er í vegina, og vegakerfi landsins er nú komið á annað stig, en áður var.“ Áfram mætti halda, en hvers vegna? Draumur manns, sem dreymir of mikið. Draumur, sem enn hefur ekki ræst, en sem mun rætast, þegar pólitíkin víkur fyrir þjóðarhag. Gísli Sigurbjörnsson er forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Ódýr 3 vikna haustferö — Brottför 13. sept. HGlminysafsláttur fyrir börn 2—17 ára Gisting í glæsilccjum íbú&um á bastu ströndunum Nú er tækifæriö aö fá sár ócfýran sumarauka fyrir aUa fjölslcylduna HAGSTÆD GREIÐSLUKJÖFt EDA 5% STADGREIDSLUAFSLÁTTUR ORVAL við Austurvöll @26900 Umboðsmenn um altt land

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.