Morgunblaðið - 31.08.1983, Side 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983
Landslið íslands í hestaíþróttum 1983
Einvala lið manna
Tómas Ragnarsson og Fjöln-
ir frá Kvíabekk
Tómas Ragnarsson er yngsti
maður sveitarinnar, aðeins sautján
ára, og fer nú í annað skiptið á Evr-
ópumót sem keppandi. Hann er bú-
settur í Reykjavík og vinnur Við
tamningar. Tómas á litríkan feril að
baki þótt ungur sé og má til gamans
geta þess að hann var stigahæstur á
öllum íslandsmótum sem hann tók
þátt í meðan hann var í unglinga-
flokki, einnig varð hann stigahæst-
ur á fyrsta árinu sem hann keppti í
fullorðinsflokki á íslandsmótinu ’82.
Tómas byrjaði aðeins tíu ára gamall
að hleypa skeiðhestum á kappreið-
um og ellefu ára vann hann í fyrsta
skipti gull í 250 metra skeiði. Af
þeim hestum sem Tómas hefur haft
undir höndum eru kunnastir Börkur
frá Kvíabekk, Bjarki frá Vallanesi
og Fjölnir frá Kvíabekk sem Tómas
keppir á nú.
Fjölnir er undan Hrafni 802 frá
Holtsmúla og Pílu frá Kvíabekk.
Hann er sjö vetra, brúnn, og munu
þeir Tómas taka þátt í keppninni
um Evrópumeistaratitil í saman-
lögðu. Keppnisgreinarnar eru tölt,
fimmgangur, 250 metra skeið, gæð-
ingaskeið og hlýðniæfingar.
Olii Amble og Bliki
frá Höskuldsstöðum
Olil, sem reyndar er norsk þótt
hún keppi fyrir íslands hönd, er
tvítug að aldri og starfar hún við
tamningar. Hún hefur verið búsett
hérlendis í tæp þrjú ár og hefur nú
þegar getið sér gott orð sem tamn-
ingamaður og knapi á keppnishest-
um. Segja má að hún hafi slegið í
gegn á Islandsmótinu ’82 en þá varð
hún íslandsmeistari í tölti á Fleyg
frá Kirkjubæ. Einnig gerði hún það
gott á stórmótinu á Hellu fyrr í
þessum mánuði en þá sýndi hún
þrjá hesta í B-flokki gæðinga og
kom hún þeim öllum í verðlauna-
sæti og var einn þeirra, Snjall frá
Gerðum, í fyrsta sæti. Olil er frá
smábænum Asker í Noregi og byrj-
aði hún sína hestamennsku níu ára
gömul og þá á norskum fjarðahest-
um og dalahestum en seinna upp-
götvaði hún íslenska hestinn og þar
með var teningnum kastað. Áður en
hún kom hingað til lands hafði hún
keppt á mótum víða um Noreg og
einnig á Norðurlandamóti sem
haldið var í Svíþjóð. Varð hún þar
stigahæst í samanlögðu á hesti sem
Eldjárn heitir.
Olil keppir á Blika frá Hösk-
uldsstöðum en hann er sjö vetra,
brúnskjóttur og undan Nasa 899 og
Árna-Skjónu 4436 frá Jódísarstöð-
um. Keppnisgreinarnar eru fjórar,
tölt, fjórgangur, hlýðnikeppni og
víðavangshlaup og er hún eini „fs-
lendingurinn" sem fer í þá grein.
Eyjólfur Isólfsson á Krák.
Gunnar Arnarson og Galsi
frá Sólheimatungu
Gunnar er 26 ára, fæddur og upp-
alinn í Hafnarfirði en nýlega fluttur
til Reykjavíkur. Hann er giftur
Kristbjörgu Eyvindsdóttur sem er
kunnur reiðkennari og hestakona og
eiga þau eitt barn. Gunnar er lærð-
ur trésmiður og vinnur við iðn sína
á milli þess sem hann starfar við
járningar og tamningu. Af þeim
hestum sem Gunnar hefur haft und-
ir er án efa þekktastur Glæsir frá
Glæsibæ sem stóð efstur í A-flokki
gæðinga á fjórðungsmótinu á Hellu
’81 og einnig í efsta sæti á stórmót-
inu á Víðivöllum nú í sumar. Af öðr-
um hestum sem Gunnar hefur keppt
á, má nefna Hrannar frá Guðna-
bakka, fjölhæfur hestur sem keppti
jafnt í gæðingakeppni sem skeiði og
ogh
auk þess einu sinni í brokki og náði
góðum árangri í öllum þessum
greinum. Einnig var hann með
skeiðhestinn Funa frá Seljabrekku,
sem var í fremstu röð vekringa á
sínum tíma.
Gunnar keppir á Galsa frá Sól-
heimatungu en hann er undan
Hnokka 916 frá Steðja og Jörp frá
Löngumýri. Galsi er átta vetra
jarptvístjörnóttur. Þeir Gunnar og
Galsi keppa í tölti, fimmgangi,
hlýðniæfingum, 250 metra skeiði og
gæðingaskeiði.
Lárus Sigtnundsson og
Bjarmi frá Kirkjubæ
Lárus, þrítugur múrari, hefur þá
sérstöðu innan sveitarinnar að vera
sá eini sem ekki hefur lifibrauð sitt
af hestamennsku. Sem sagt áhuga-
maður eins og þeir gerast bestir.
Hann er giftur Hrafnhildi Helga-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
Ef til vill er Lárus þekktastur
fyrir að halda í hesta á kappreiðum
en einnig hefur hann tekið töluvert
þátt í keppni og þá aðallega í hesta-
íþróttum. Athygli vakti hversu auð-
veldlega Lárus vann sér sæti í úr-
tökunni og virtist hann vera nokkuð
öruggur strax á fyrri degi úrtök-
unnar. Og annað sem ekki gerir af-
rek Lárusar minna er að hann
keppti á hesti sem þekktir keppn-
ismenn höfðu ýtt til hliðar og ekki
talið nógu góðan í þetta en annað
Hverjir eru sigurmögu-
leikar íslendinganna?
Þetta er spurning sem sjálfsagt margir hafa velt fyrir sér
síðustu daga og vafalaust eru svörin jafnmörg hugsuöunum
sem leiða hugann aö þessu. Ganga má út frá að möguleikar
okkar til afreka í fjórgangi og tölti séu hverfandi litlir og lifa
menn þá í þeirri von að hið óvænta gerist á þeim vígstöðvun-
um. Hvað fimmganginn og skeiðið varðar er það ekkert
launungamál að sigur er það eina sem við getum gert okkur
ánægð með. Fram að þessu hefur verið keppt um titilinn
sigurvegari mótsins þ.e.a.s. stigahæsta knapa mótsins og höf-
um við hreppt þann titil á síðustu þrem mótum. Hefur sú
breyting orðið á að nú verður keppt um tvo slíka titla; annars-
vegar fimmgangshestar og svo fjórgangshestar hinsvegar. Til
þess að keppendur séu gjaldgengir í keppni um þessa titla
þurfa þeir að taka þátt í fjórum greinum, þeir sem eru með
fimmgangshesta keppa í tölti, fimmgangi, 250 metra eða gæð-
ingaskeiði og svo hlýðniæfingum. En þeir sem ríða fjórgangs-
hestum keppa í tölti, fjórgangi, hlýðniæfingum og víðavangs
hlaupi.
Fyrir þessar breytingar áttu fjór-
gangshestarnir litla möguleika á
þessum titli og var þessu breytt að
frumkvæði Þjóðverja, en þeirra
sérgreinar eru fjórgangskeppni og
tölt. Tveir íslendingar keppa í fjór-
gangi, þau Olil á Blika og Lárus á
Bjarma, og gætu þau vel við unað ef
þeim tækist að komast í úrslit um
sjötta til tíunda sæti í annað hvort
tölti eða fjórgangi. Olil mun eínnig
keppa í hlyðniæfingum og víða-
vangshlaupi og verður þar af leið-
andi með í keppninni um stigahæsta
knapann fjórgangsmegin. Tæplega
verður hún þar í toppbaráttunni en
allt fyrir ofan tíunda sæti getum við
talið sigur fyrir okkur.
Fimmgangshestarnir sterkir
En svo vikið sé að fimmgangs-
hestunum og byrjað á keppni um
stigahæsta knapann þá beinist at-
hyglin fyrst og fremst að Tómasi
Ragnarssyni og Fjölni. Án efa verð-
ur hann þar í baráttunni um fyrsta
sætið og á hann þar stóran mögu-
leika. Reikna má með að hann kom-
ist í úrslit í fimmgangi, verði fram-
arlega í skeiðinu og þá sama hvort
það verður gæðinga- eða 250 metra
skeið. Fjölnir á bestan tíma, 22,8
sek., og verður hann kandídat í
fyrsta sæti ásamt þeim Reyni á
Sprota, bestur tími 22,2 sek. og Að-
alsteini á Baldri einnig með bestan
tdima 22,2 sek. Ef skeiðbrautin
verður jafngóð og hún var í Noregi
’81 mega menn búast við tímum
undir 23 sek. Satt best að segja von-
ast maður eftir þreföldum íslensk-
um sigri í 250 metra skeiði og ekki
er útilokað með slíkt í gæðinga-
skeiðinu. En svo aftur sé vikið að
Fjölni og Tómasi þá má búast við að
þeir verði vel yfir miðju í töitinu en
fjórða greinin sem þeir verða að
leysa af hendi, hlýðniæfingar, er
þeirra höfuðverkur. Dómarar í
hlýðnikeppni erlendis eru mjög
kröfuharðir og þurfa menn ekki að
gera sér miklar vonir ef ekki er allt
í topplagi og því miður vantar tölu-
vert á að svo sé hjá þeim Tómasi og
Fjölni en við skulum vona að sem
best takist til þegar á hólminn er
komið þannig að þeir hali þar inn
einhver stig i safnið, ekki veitir af.
Gunnar Arnarson á Galsa er einnig
gjaldgengur í þessari stigakeppni,
en möguleikar hans eru ekki miklir,
svona á pappírunum. Hans sterk-
ustu greinar eru fimmgangur og
gæðingaskeið og ef vel tekst til gæti
hann gert sér vonir um verðlauna-
sæti þá í fimmgangi.
Eyjólfur sterkastur í töltinu
Eyjólfur á Krák keppir í þrem
greinum; tölti, fimmgangi og
hlýðniæfingum. Á hann sennilega
mesta möguleika allra íslending-
anna í töltinu og sagðist hann að-
spurður stefna á að komast í úr-
slitakeppnina um sjötta til tíunda
sæti. f fimmgangi á hann einnig
góða von með að komast í úrslit og í
hlýðniæfingunum er hann okkar
stærsta von ásamt Reyni á Sprota.
Má ugglaust reikna með að Eyjólfur
komi heim með að minnsta kosti
einn verðlaunapening ef allt gengur
upp eins og það hefur best gert fram
að þessu.